Alþýðublaðið - 21.11.1969, Qupperneq 2
2 Alþýðubl'aðið 21. nóvember 1969
Gðfis
r
Gvendur
Á. SKRIFAR mér á þessa
leið: „Nokkuð er það sem mér
lengi hefur legið á hjarta, en
dregizt að koma á framfæri.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra einstæðra mæðra og
annarra, sem þurfa að hafa
börn sín í gæzlu á dagheimil-
um borgarinnar — vegna
vinnu sinnar — er ég spyr: Því
eru ekki dagheimili borgarinn-
ar opin lengur en til kl. 5 á
daginn?“
★ MÓTSETNING.
' I
„Það er ætlazt til þess að
.þessar stofnanir séu aðallega,
eins og áður er að vikið, fyrir
börn einstæðra mæðra, og auð-
vitað er þetta þörf þjónusta
* og góð nema hvað mér virðast
reglur um lokunartíma algjör-
lega í mótsetningu við tilgang
stofnananna. Það segir sig
sjálft að ekki eru allar konur
svo heppnar að .fá starf sem
haefir því að geta verið komn-
ar ,af vinnustað .og á barna-
heimilin kl. 5. Þær sem þurfa
að vinna til kl. 6 eða lengur
eru því annað hvort tilneyddar
að stelast úr vinnunni klukku-
tíma fyrr, sem varla mun vera
vel séð af vinnuveitandanum,
eða kaupa extra hjálp til að
koma afkvæminu til síns heima.
og er það talsverð ábót við
annan kostnað barnsins vegna.
Ekki eru heldur allar konur svo
vel settar að ættingjar geti
hlaupið undir bagga. Flestir
hafa nóg með sitt: Ég vildi því
koma því á framfæri við hátt-
virta forráðamenn barnaheim-
ilanna að þeir endurskoði af-
stöðu sína til þessara mála og
miðuðu lokunartíma barna-
heimilanna við venjulegan
verzlunartíma en ekki skrif-
stofutíma. Á.“
★ FÓTAFERÐARTÍMI.
Lesandi í Snobbhill skrifar á
þessa leið: „Hvenær mæta
starfsmenn stjórnarráðsins til
vinnu á morgnana? Það virðist
vera mjög svo með höppum og
glöppum. Ég byrjaði að hringja
í mann hjá einu ráðuneytanna
rúmlega níu fyrir skömmu. —
Hann var ekki kominn. Ég bað
um næsta mann, hann var ekki
kominn heldur, og þriðji mað-
urinn var einnig ókominn. Nú
er það afsakanlegt þó menn
komi fimm eða tíu mínútum
of seint, en fimmtán til tuttugu
mínútum síðar hringdi ég aft-
ur, þeir voru enn ekki mætt-
ir. Skömmu seinna þurfti ég að
ná í mann i öðru ráðuneyti,
það var skömmu eftir hálf tíu,
og maðurinn var ekki mættur.
Klukkan var orðin tíu, þegar
ég hringdi enn, og ennþá var
viðkomandi starfsmaður ekki
mættur til vinnu. Lokatilraun
gerði ég svo þegar klukkan var
farin að ganga ellefu, en árang-
urslaust. Nú freistist ég til að
spyrja: Er þessum opinberu
starfsmönnum ekki settur neinn
ákveðinn tími sem þeir eiga að
mæta, eða er þeim það alveg
frjálst? Hvað eru mennirnir þá
að gera á morgnana milli kl.
9 og 11? Eru þeir allir svona
svefnþungir eða ei’u þeir kann-
ski að vinna við eitthvað ann-
að? Á meðan eyðir fjöldinn
allur af venjulegu launafólki
dýrmætum tíma í að reyna ár-
angurslaust að ná tali af þess-
um háu herrum, sem fá manna
hæst kaup fyrir að vera ekki
við á sinni skrifstofu. — Les-
andi í Snobbhill.”
Götu-Gvendur.
BÍLASKOÐUN & STILIING
Skúlaribtu 32. ^
LJÓSASTILLINGAR
kJfitASiÍLdXtár r,,piORSiillingkr Simi V
Látió stilla i tíma. ^ O 1 n n
Fljót og örogg þjónusfa. 1 w
FASTEIGNASALA,
fasteignakaup, elgnaskipti.
Baídvin Jónsson, hrt.,
Fasteignasalan, Kirkjutorgi 6,
15545—14965, kvöldsími 20023
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
i
I
I
I
I
f
I
i
I
I
í
I
I
Höfundamiðstöð
settá
Reykjavík — GS
□ Ritliöfundar vinna nú að
framgangi þeirra tillagna, er
liggja eftir Rithöfundaþingið
og meðal þeirra mála, sem
lirundið hefur verið í fram-
kvæmd, er tilkoma Höfunda-
miðstöðvar, sem nú hefur ver-
ið opnuð í húsnæði Rithöfunda
sambandsins í Garðastræti 41.
Er Höfundamiðstöðin opin dag
lega frá kl. 10—12 og forstöðu
maður hennar er Ingólfur
Kristjánsson rithöfundur.
Alþýðublaðið hafði tal af Ein-
ari Braga formanni Rithöfunda
sambands íslands í gær og innti
hann um framkvæmdir hags-
munamála rithöfunda að loknu
Rithöfundaþingi. Kvað Einar
Bragi allt vera í fullum gangi
og þegar væri búið að opna
Höfundamiðstöð eins og áður
greinir. Rithöfundar hefðu unn
ið að því að koma öðrum til-
lögum á framfæri við viðkom-
andi aðila, borgarstjórn, þing
og ríkisstjórn. í ályktunargerð
Rithöfundaþingsins var tillaga
um bókmenntaverðlaun æðri
skóla (háskóla, menntaskóla,
kennaraskóla og verzlunar-
skóla) og kvaðst Einar Bragi
búinn að sitja tvo fundi með
formönnum lista- og bókmennta
félaga skólanna og gengið hefði
stofn
hefði verið frá drögum að út-
hlutunarreglugerð. Hefðu þeir
tekið vel í þessi mál, þar sem
slík verðlaunaúthlutun mundi
glæða áhuga nemenda og auka
umræður þeirra um bókmennt
ir. Hefðu þeir sent menntamála
ráðherra bréf, þar sem farið
væri fram á fjárveit. í þessu
skyni og einnig óskað eftir við-
ræðum við ráðherrann.
Þá greindi Einar frá því, að á
næstunni verði stofnað Rétt-
hafasamband eigenda ritrétt-
ar og rithöfundar gerðu sér góð
ar vonir með kaup ríkis- og
sveitarfélaga á ákveðnum ein-
takafjölda bóka eftir menn ?nn
an Rithöfundasambandsins,
sem mjög hefur verið til um-
Einar Bragi.
ræðu. Taldi Einar algjört lág-
mark 500 eintök hverrar bók-
ar og kvað þörfina vera alla
ekki minni, en rökstyðja mætti
það með því, að í fyrsta lagi
væru 270 almenningsbókasöfn
á landinu og reikna yrði með
einu eintaki til þeirra, sem
væru í dreifbýlinu, tveimur tii
bókasafna í fjölmennari kaup-
túnum og a. m. k. þriggja til
fjögurra eintaka til bókasafna
í stórum kaupstöðum og eml
fleiri til safnanna í Reykjavík,
í öðru lagi væru bókasöfn fram
haldsskólanna illum kostum
búin og sumir skólar hefðu all3
engin bókasöfn, en úr því yrði
að bæta og gæti ríkið notfærfi
sér þessa aðstöðu á ódýran hátfi
til að koma upp viðeigandi bóká
söfnum skólanna. í þriðja lagí
mætti benda á, að íslenzka eH
víða kennd við erlenda skóla,
m. a. væri nútimaíslenzka fösfi
námsgrein í norskum mennta-
skólum og væri hægt að ann-
ast hagkvæm bókaskipti viðl
þessar erlendu stofnanir, sem
að sjálfsögðu þyrfti á íslenzk-
um bókum að halda. í fjórðá
lagi þyrfti að viðhalda endur-
nýjun bóka í bókasöfnum og
væri það fjárhagslegt hag3-
munaatriði fyrir söfnin að getá
endurnýjað bókakost sinn á ó-
dýrari hátt en eftir venjuleg-
um viðskiptaleiðum. — >
Tekur skólasjónvarp
til starfa á næsta ári?
□ Reykjavík — KB.
Islenzkt skólasjónvarp getur hafizt næsta haust, fá-
ist fjárveiting til þess tekin inn á fjárlög. Er hug-
myndin sú, að skólasjónvarpið verði í byrjun tengt
þeirri nýskipan í eðlis- og efnafræðikennslu, sem
kcmið verður á næstu árin, og verður fyrsta skóla-
sjónvarpið líklega miðað við námsefni 11 og 13 ára
barna í þessari grein.
Þetta kom fram í sjónvarps-
þættinum Setið fyrir svörum á
þriðjudagskvöldið, en þar svar-
aði Benedikt Gröndal formaður
útvarpsráðs spurningum um út-
varp og sjónvarp. Benedikt
sagði í þættinum að fræðslu-
sjónvarp væri tvenns konar;
annars vegar almennings-
fræðsla, sem sjónvarpið annað-
ist sjálfí, hins vegar kennslu-
sjónvárp, er væri sniðið eftir
námsefni ákveðinna bekkja í
ákveðnum námsgreinum. Slíkt
kennslusjónvarp yrði að sjálf-
sögðu að vera unnið á vegum
skólakerfisins í heild. Benedikt
sagði að í sumar hefði Fræðslu-
myndasafn ríkisins í samvinnu
við Skólarannsóknir og náms-
stjórann í eðlisfræði unnið að
því að undirbúa sjónvarps-
kennslu í eðlisfræði, og hefði
menntamálaráðuneytinu verið
skrifað erindi um málið. Það
erindi liggur nú fyrir fjárveit-
inganefnd alþingis, og fáist fé
mun hugmyndin verða fram-
kvæmd næsta haust. Kostnað-
ur við þessa tilraun er áætl-
aður 3—400 þúsund krónur.
í viðtali við Alþýðublaðið í
Benedikt Gröndal
gær sagði Benedikt Gröndal,
að hann teldi hyggilegt að
fara að á þennan hátt við uiS
koma hér á skólasjónvarpi, þ.
e. byrja með litla tilraun; á
afmörkuðu sviði, en auka starf-
semina síðan smám saman með
aukinni reynslu og meira bol-
magni. :
i