Alþýðublaðið - 10.12.1969, Side 6
6 -Alþýðublaðið 10. desember 1969
Himifðdapkénpr
Ágnars kominn úi
★ HUNDADAGAKÓNGUR-
IN nefnist leikrit eftir Agnar
ÞórSarson, sem nú er komið út
hjá Helgafelli, en um þetta verk
urðu nokkur blaðaskrif í haust,
eins og menn muna. Leikritið
er; í þremur þáttum og gerist í
Reykjavík sumarið 1809 og er
byggt á atburðum þeim, er hér
gerðust þá, er danski ævintýra-
maðurinn Jörgensen kom til
landsins á brezku skipi og lagði
það undir sig. Leikrit Agnars
erf að nokkru leyti samið upp
úr framhaldsleikriti því um
Jörund, sem flutt var í útvarp-
inu fyrir nokkrum árum, en
mórgu er þó breytt frá því sem
þar var. — í útgáfu Helgafeils
er leikritið 132 bls. að stærð,
prentað í Víkingsprenti.
Victor Canning
kýdd telpnasap
GUNNA GERIST BARN-
FÓSTRA nefnist unglingasaga
eftir Catherine Wooley, sem
Si:afaféll gefur út í þýðingu
Oddnýjar Björgólfsdóttur. Er
þessi saga einkum ætluð telp-
um á aldrinum 8 til 14 ára. Bók
in er 137 bls. að stærð, sett í
prentsmiðjunni Ásrún, en prent
uð í Prentverki Þorkels Jó-
hannessonar.
LýðræðisEeg
félagsstörf
Spennandi
niósnasaga
R.ÖMM ERU REIÐITÁR nefn-
ist þýdd njósnasaga eftir Victor
C'mninH. sem Stafafell gefur út.
Árni Þór Eymundsson hefur ís-
lenzkað bókina. Sagan segir frá
viðureign flóttaþjónustumanna
við austræna mannræningja,
sem flytja flóttamenn að aust-
an heim til Rússlands á nýjan
leik. Bókin er 242 bls. að stærð,
sett í prentsmiðjunni Ásrún, en
prentuð hiá Grágás, bókbandið
er frá Nýja bókbandinu.
LÝÐiRÆÐISLEG FÉLAGS-
STÖRF nefnist ný bók eftir
Hannes Jónsson, félagsfræðing,
en Félagsmálastofnunin gefur
bókina út eins og fyrri bækur
höfundar. Bókin skiptist í þrjá
hluta, sem nefnast: Félagsleg
grundvallaratriði óg lýðræðis-
skipulagið; Félög, fundir, fund-
arsköp og lýðræðisleg forystu-
störf; og Mælska, rökræður og
áróður. Auk þess er í bókinni
ítarleg heimildarskrá og við-
bætir með dagskrám og verkefn
um fyrir 10 málfundi. Bókin er
304 bls. að stærð, prentuð í
prentsmiðjunni Eddu í Reykja-
vík.
JÓLAPLATTSNN
ER JÓLAGJÖFIN
Það l'emur eisin platti á ári hverjis. Gefif fyrsta plattann í ár. Hann er úr sneiddri
steinskííu og gljáfægSum kopar, sem ekki fellt'r á. Á plattanum er handþrykkt svart
listrrmynd. Skemmtiieg og verðug jóiagjöf,- fyrsíi hátíðarplattinn frá LISTIDN.
UST»3« KJÖRGRtPUR STHNSKIFA OG KOPAR
Þessi mynd var tekin, þegar lagið Öxar viS ána var frumflutt á Þing-
vallafundinum 1885. Myndina tók Sigfús Eymundsson, en þetta er ein
þeirra mynda, sem birtar eru í bók Þorsteins Thorarensens Móralskir
meistarar. ' \
Einar Bragi
Ljóðaþýðingar
Einars Braga
A HRAFNAR f SKÝJUM
nefnist safn ljóðaþýðinga eftir
Einar Braga, sem bókaútgáfan
Ljóðkynni gefur út. í bókinni er .
ljóð eftir 25 höfunda af ýmsum
þjóðernum, þar á meðal eftir
Edith Södergren, Walt Whit-
man og Charles Baudelaire. —
Bókin er prentuð í Setbergi.
Kynferðisfræðsla
fpr unglinga
TÁNINGABÓKIN nefnist ný
bók um vandamál unglinga eft-
ir Ann Landers, en Knútur
Kristinsson læknir hefur ís-
lenzkað bókina. í formála seg-
ir að höfundurinn, Anna Land,-
ers, skrifi dálk í Sun Times í
Chicago og sé hann endurprent-
aður í sjö hundruð öðrum dag-
blöðum. Táningabókin sé sér-
staklega skrifuð fyrir unglinga
og sé þar áð finna fræðslu og
haldgóðar ráðleggingar um kyn
lífið og aðrar brennandi spurn-
ingar. Þessum spurningum sé
svarað á hreinskilinn og
skemmtilegan hátt og leitað sé
ráða hjá læknum, sálfræðing-
um, prestum, lögfræðingum,
kennurum og öðrum sérfræðing-
Um. -— Táningabókin er 128
bls. að stærð, prentuð í Litho-
prent, en dreift í Félagsbókband
inu. Þorbergur Kristinsson hef
ur sett upp kápu og titilsíður,
en útgefandi er Bjarki h.f. Verð
bókarinnar er kr. 258.
Viimundur Jónsson
Rilgerðassfn effir
Vilmynd Jánsson
★ LÆKNINGAR OG SAGA
nefnist safn ritgerða eftir Vil-
mund Jónsson fyrrum land-
lækni, sem Bókaútgáfa Menn-„
ingarsjóðs hefur gefið. Ritgerða
safnið er í tveimur bindum,
samtals um 800 bls. að stærð.
E.ru í bókinni 10 ritgerðir úr
íslenzkri lækningasögu. Verð
ritsins er kr. 1030 til félags-
manna, en útsöluverð í búðmjp
er kr. 1290.