Alþýðublaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 11
Helgarblaðið - Kvennaþáttur
Perluhvítar
axlir
Ef þú ert ekki fyrst og fremst aö
hugsa um að verða óslbrún, geturðu 'ýst
hörundið á hálsi og herðum með því að
nudda það með sítrónusneið tvisvar til
þrisvar í viku. Svo skolarðu það 10 mín-
útum síðar og berð loks á það mýkjandi
krem.
Heillaráð
Hvað á til bragðs að taka, ef barnið
læsir sig inni á baði eða í einhverju öðru
herbergi og getur svo ekki opnað aftur?
Þarna er betra að byrgja brunninrr áður
en barnið er dottið ofan í hann ,eins og
máltækið ráðleggur okkur. Taku lykilinn
(eða lyklana) og notaðu þjöl til að sverfa
rauf í endann á horrum, þannig að hann
verði eins og skrúfa. Eftir það þarftu
ekki annað en ná þér í skrúfjárn og opna
dyrnar að utan með því, ef þörf gerist.
Litla systir mín, sem er 4 ára gömul,
sagði við mig um daginn: „Þegar ég er
orðirr stór, ætla ég að giftast manni eins
og pabba o gsitja svo heima og gera ekki
neitt eins og mamma.“
Úðaðu ilmvatni eða kölnarvatni aftan
á hálsinrr áður en þú ferð í föin. Húðin
aftan á hálsinum heldur anganinni leng-
ur við en að framan.
AlþýSublaSið — HtlgarblaS 11