Alþýðublaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 5
ÞaS er meS fjöllin eins og mennina,
sum vekja meiri athygli en önnur, standa
upp úr, skera sig úr fjöldanum; eitt slíkt
tjail er Baula í BorgarfirSi.
ÞaS er þó ekki hæS fjallsins, heldur hiS
keilulaga form, sem hún á frægS sína aS
þakka aö' verulegu leyti. En þó aS hæSin
sé ekki ýnja mikil, 934 m, þá er staSa henn
ar í landslagirru á þá lund, aS hún sést
víSa aS, gnæfir yfir aSliggjandi fjöll, t.d.
var hún lengi hötö fyrir eyktamark vestur
í Dölum.
Baula er bratt fjall, grýtt og skriSurunn-
in ,og lengi vel lagSi sig enginn í þá lífs-
hættu aS klífa tindinn, enda tíSkaSist ekki
slíkt klifur framar en nauSsyn krafSi. Þar
viS bættist, aS fólki stóS stuggur af fjöll
um og óbyggSum, hinu ókannaSa og ó-
þekkta í náttúrunni. En því minni sem
hin raunverulega vitneskja var, því meiri
varS hlutur ímyndunaraflsins og hugmynda-
flugsins.
i ÞjóSsögum Jóns Árnasonar er skráö
eftirtarandi lýsing á Baulu, sem gefur vel
tii kynna þær hugmyndir, sem almenning-
ur gerSi sér um tjalliS, þjóStrú þess tíma:
„uppi á toppinum á Baulu í Borgarfiröi
er tjörn ein eöa stöSuvatn, og þar er guií-
kista niSri í, sem engum hefur heppnazt
aS ná, enda kemst maöur ekki upp á
Baulu, nema á gandreiS."
I sama þjóSsagnasafrri er einnig aö finna
eftirfarandi upplýsingar:
„Kofri, einstakur og hár fjallstindur, rís
upp úr „fjallgaröi á Arnarnesi viö Álfta-
tjörö í ísafjaröarsýslu. Þar skal safna nátt-
úrusteinum, einkum á Jónsmessunótt, viS
tjörn þá, sem er uppi á tindinum; þar er
sagt, aS finnist bæöi óskasteinar og aörir
fásénir hlutir, en nálega er þar öllum
ófært upp aö komast. Hella ein, sem sum-
ir segja aö sé hol er í Kofra; hún getur
af sér hvers konar náttúru á Jónsmessu-
nótt. Sú hella heitir Steinamóðir.
ASrir segja ,að sams konar hella eigi aö
vera uppi í tjörninni á Baulu.“
Hér er gengiS út frá því sem staöreyno
aö uppi á toppnum á Baulu sé tjörn.
Þar kom þó aS lokum, að héraðið eign-
Baula í Bogarfiröi.
Gestur Gudfinnsson:
aöist ofurhugann, sem þorSi að leggja fil
atlögu viS fjalliö og þjóStrúna. Um 1850
bjó Halldór Bjarnason, hreppstjóri, aS Litlu
gröf í Borgarhreppi í Mýrasýslu. Hann vann
sér þaS til frægöar aS ganga á Baulu fvrst-
ur manna, aS því er ætlaö hefur venS.
Þótti það mikiS afrek á sínum tíma, þótt
Framhald á bls. 14.
AlþýSublaS -- - HelgarblaB 5