Alþýðublaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 12
Hallur Símonarson: VIOGRŒNA BORÐIÐ Heimsmeistarakeppnin í bridge, sem háð var að pessu sinni í Kíó de Janeiro í Bras- in'u í maí, lauk með sigri ítalíu, og er það í tíunda sinn, sem ítalir verða heimsmeist- arar í bridge frá því 1957. Aðeins árið 1960 hefur Italía ekki hlotið titilinn, en þá sigruðu Frakkar á Olympíumóti, sem háð var í Torínó á Italíu — en þau árin, sem Ölympíumótinr eru háð — á fjögurra ára fresti — fer ekki fram nein sérstök heims- meistarakeppni. Fimm sveitir, frá Ítalíu, Formósu, Banda- ríkjunum, Frakklarrdi og Brasilíu spiluðu í Ríó. ítalía var í efsta sæti í undankeppn- inni frá upphafi og í úrslitakeppninni sigr- aði ítalía Formósu með miklum mun — meiri mun en nokkru sinrri áður hefur ver. ið í úrslitakeppninni. Eftir keppnina lýstu ítölsku spilararnir yf ir því, aö þetta hefði verið síðasta keppni „bláu sveitarinnar“ sem slíkrar og munu nokkrir spilaranna hafa ákveðið að leggja keppnisbridge að miklu leyti á hilluna. Sig- urganga sveitarinnar hefur verið einstök — og vafasamt að það verði nokkru sinni leikið eftir. í þessi tíu skipti, sem sveit- in hefur orðið heimsmeistari, má segja, að sami kjarninn hafi verið í sveitinni öll ár- in, og þrír þeirra, það er Belladorrna, Avar- elli og Forquet, verið með í öll skiptin. Þá hefur D'Alelio einnig flest árin verið í sveitinni — Chiaradia, sá, sem bjó til- Napoli-sagnkerfið, fyrstu árin, en þeir Gar- ozzo og Pabis Ticci síðari árin. Af þessum spilurum mundi ég telja Giorgio Belladonna frá Feneyjum þann frægasta, enda hefur hann tekið þátt í mun fleiri stórmótum en nokkur hinna — og er nú meðlimur í hinum fræga „bridge- circus" kvikmyndaleikarans heimsfræga Omars Shariffs. Auk þess sem Belladonna hefur tíu sinnum orðið heimsmeistari, hef- ur hann sex sinnum orðið Evróþumeistari og þó það kunni að hljóma einkennilega hefur honum reynzt erfiðara að sigra á Evrópumótunum en í heimsmeistarakeppn- inni. Belladonna er frábær spilari, jafnt í sókn sem vörn og hið skemmtilega ítalska kerfi, ómar-laufið, er samið af honum og Mond- olfo, sem hann hefur spilað við síðustu ár- in á Evrópumótum, og tvívegis hafa þeir orðið Evróþumeistarar saman. Við skulum til gamans líta hér á spil, er Belladonna spilaði fyrir nokkrum árum. S G9 H K4 T G10876 L Á764 SK4 S 2 H D1087 H Á965 T K95 T D432 LKD93 L G1082 S ÁD1087653 H G32 T Á L 5 Belladonna var Suður og átti að spila fjóra spaða. Vestur spilaði út tígulfimmi og spurningin er: Hvernig getur Suður unn ið sögnina, sama hvernig spilin skiptast hjá mótherjunum. Svar Belladonna: Eftir að hafa unnið á tígulásinn spilaði harrn laufafimminu, tók á ásinn í blindum og spilaði litlu hjarta frá kóngnum Öryggisspil, sem tryggði honum annað hvort hjartaslag eða að trompa hjarta í blindum. Enginn annar spilamáti er ör- uggur. Þetta er mjög skemmtilegt spil — og sennilega fáir, sem koma auga á þessa leið við spilaborðið. Hallur Símonarson. 12 MþfBublaOK — HelgarWað

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.