Alþýðublaðið - 26.01.1970, Side 2
2 Mánudagur 26. janiúar 1970
TT
PIO
□ VERKAJLÝÐS9INNI biður
mig að koma eftirfarandi á
framfæri: „Mig undrar sú þró-
un nú sýnist í fullum gangi
í latinamálum íslenzku þjóðar-
innaþ. Það er skyndilega einsog
öllu hafi verið snúið við. Þeir
launahæstu eru farnir að iheimta
mest. Læknar riðu á vaðið og
sprengdu alla skala fyrir nokkr
um árum, svo komu flugmenn.
Þessar stéttir miða sig við út-
lendinga af því menn úr þeim
getaj hvenær sem er farið til
, starfa í sínu fagi í öðrum lönd-
um. Þá hafa háskólamenn í
Bandalagi opinberra starfs-
manna klofið sig út úr til að
heimta hærra en aðrir af því
þeir telja sig vera æðri stétt
og eiga að bera meira úr být-
um. Og nú eru skipstjórar
farnir að gera uppsteyt þótt há-
setarnir haldi sér á mottunni.
í
Ég VETT ekki fyrir víst hve
skipstjórar eru með mikið kaup,
en þeir eru víst anzi háir fyrir.
Ég býst við að háskólamenntað-
ir menn í opinberum stöðum
séu líka þokkalega launaðir, og
læknar og flugmenn eru jú
ekki beinlínis á nástrái. En á
sama tíma eiga verkamenn og
, ýmsir óbreyttir starfsmenn að
láta sér nægja að vera með
kannski 12—17 þúsund á mán-
- uði. Ég er ekki að segja að hin-
ir lærðu menn eigi ekki skilið
gott kaup. En meðan til eru þeir
sem naumast hafa þurftartekjur
ætti þeim að vera óhætt að
doka við. En það virðist eng-
in þolinmæði vera til. Og þjóð-
félagsleg ábyrgðartilfinning er
áreiðanlega mest hjá þeim sem
lægst eru launaðir. — Verka-
lýðssinni“.
BÚI í DAL skrifar mér enn
eitt ágætt bréf:
Ég hef áður minnzt á að
fram hefur komið tillaga um.
það að reisa olíuhreinsunarstöð
■ í Hvaifirði, og látið í ljós þá
meiningu, og rökstutt nokkuð,
að slíkt og annað eins megi
ekki henda okkur landsmenn
að ráðamenn á Alþingi fái vilja
sínum framgengt hvað þetta
staðarval snertir. Ég er ekki frá
jþví að tímabært sé, og hentugt
að mörgu leyti, að reist verði
olíuhreinsunarstöð hér á landi.
Það mundi sennilega lækka olíu
verðj rafimagnsnotkun myndi
auki st, dreifing á olíunni gæti
orðii hf; hagkvæm.ari að mörgu
leyti og sem hliðar-framleiðsla
skaphðist sennilega grundvöllur
. fyrir plastíhráefnaframleiðslu.
■
EN ÞÁ ER ÞAÐ mál mál-
anna: Hvar ætti slík hreins-
unarstöð að standa. Eitt er víst
að slík stöð á ekki að stand.a við
neinn, af okkar fjörðum, þeir
eru of dýrmætir, og í of mikilli
mengunarhættu frá slikum
stöðvum. Ég hefi velt staðar-
málinu nokkuð fyrir mér, og
komizt að þeirri niðurstöðu að
Vestur-Landeyjar, nánar tiltek-
ið Skúmstaðavatn, muni hafa
marga kosti til að bera. Auðvit-
að þarf þar mikið hafnarmann-
virki, en það er einmitt það
sem Suðurlandsundirlendið van
hagar um, og ekki hvað sízt
núna þegar hafin er Búrfells-
virkjun og vonandi á eftir að
aukast.
HAFNAlRMANNVrRKI ætla
ég að séu ekki frágangsök við
Landeyjasand, en staðurinn hef
ur geysilega kosti, sem sé:
1. Mengunarhættu er hægð-
arleikur að sporna við á þess-
um stað, nógir sandar fyrir
hendi, og straumar fyrir utan
ekki svo litlir.
2. Siglingaleið hentug hvort
heldur er frá gamla eða nýja-
heimi, og öruggt með að af ís
teppist höfnin ekki.
3. I sambandi við hreinsun-
arstöðina er ekkert hægara en
að koma þar upp fríverzlunar-
svæði, og það jafnvel á heims-
m.ælikvarða og um leið leysa
hafnarvandamál alls suðurlands
undirlendisins.
4. Það er engin frágangssök
að leiða olíu í plaströrum þvert
yfir hálendið til Akureyrar til
dæmis. Einnig væri sjálfsagt
að leiða olíu til Hafnarfjarðar,
og þá um leið Selfoss, Stokks-
eyrar, Eyrarbakka og Þorláks-
ihafnar með grönnum hliðar-
leiðslum.
Nú er bryddað hefur verið á
þessu máli, væri fróðlegt að
heyra aðrar raddir þessu við-
víkjandi. — Búi í Dal“.
Götu-Gvendur.
Smurt brauB
Snittur
Brauðtfrtur
BRAUDHVSIP
SNACK BAR
Laugavegi 126
Sími 24631.
Sólógítar til sölu.
Upplýsingar í síma 35927
eftir kl. 8 á kvöldin.
IPOP-HEIMURINN
I
110
! ef stu
Þannig lítur listi „208 Times“,
frá því í gær út. Viff spáffum því
fyrir viku aff Bad Finger færi í
1. sæti, sem og varff. Tom Jones
hrapaði úr 3. niffúr í 16. sæti
meff lag sitt: Without Love.
Tracy, lag Cuff Links, hrundi
einnig, úr 6. sæti niffur i 11.
Viff spáum því aff Bad Finger
haldi enn velli eftir viku, nema
Arrival komist upp fyrir þá,
se.ni þó verður aff teljast meff ó-
líkindum.
Kinks voru ekki sérlega
lieppnir mcð lag sitt, Victoria,
en það er nú í 18. sæti og var
númer 17 fyrir viku. Þeir eru
hddur ekki sjálfir það sem þeir
voru fyrrum og varla líklegir til
stórafreka á popsviðinu. —
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
( 4) Come and Get lt — Bad Fiuger
( 7) Friends — Arrival
( 5) Someday We’ll be Together — Supremes
( 2) All I Have to Do Is Dream — Glen Campbell & Bobby
( 1) Reflections of My Life — Marmelade
(12) l’m a Man — Chicago
(—) Love Grows — Chicago
( 9) She Sold Me Magic — Lou Christie
(18) Leaving on a Jet Plane — Peter, Paul and Mary
(11) Good Morning — Peter, Paul and Mary
Gentjl,
Hljómsveitin Arrival, sem næstum komst á toppinn.
4000 lestir a
saltfiski
nar
□ Á blaðamannafundi á laug-
ardaginn var sagði Gylfi Þ.
Gíslason að samningar hefðu
tekizt við Spánverja um að
heimila innflutning á allt að
4000 lestum af saltfiski frá ís-
landi. Muni þessi útflutningur
geta hafizt þegar í marz.
Að ósk Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda hafði
viðskiptamálaráðherra íslands
óskað viðx-æðna við Codina, við-
skiptamálaráðherra Spánar
vegna þess hve innflutningur á
saltfiski hefði dregizt saman
bæði vegna aukinna veiða Spán
verja sjálfra og minnkaðrar
neyzlu á fiski þar í landi. í
fyrx-a hafði innflutningur á salt
fiski frá íslandi fallið úr 5000
tn. á ári í 2000 tn. en árið
1969 hafði innflutningur á salt
fiski frá Danmörku fallið nið-
ur í 3250 tn. og frá Noregi f
500 tn. Var því auffséff aff áliti
SÍF, að mikil hætta var á því
að hinn gam.li og mikilvægi salt
fiskmax-kaður á 'Spáni brygðist
íslendingum algerlega.
Viðræðurnar við Spánverja
forii fram í Madrid mánud.,
þriðjud. og miovikuá. í síðustu
viku og sátu fundinn af íslands
hálfu auk viðskiptamálaráð-
herra, dr. Gylfa Þ. Gíslasonar,
þeir Guðmundur í. Guðmunds-
son, sendiherra íslands á Spáni,
Tómas Þorvaldsson, formaður
SÍF, Helgi Þórðarson, framkv-
stj., Þórður Alberfsson ásamt
ræðismanni íslands í Madrid en
fjölskylda hans hefur verið
einn stærsti innflytjandi salt-
fisks frá Islandi í um einnap
aldar skeið.
Að loknum viðræðum héldu
þeir Tómas og Helgi til Portú-
gal og Ítalíu til viðræðna við
innflytjendur þar. —
Mtkil aðsókn
að bjarndýrinti
★ Sýninguimá á hvítabirn-
inum þeirra Húsvíkinga, sem
haldin var í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins, lauk í gærkvöldi
og hafði þá staðið í 8 daga.
— Aðsóknin vair miklu meiri
en við bjuggumst við, sagði
Benedikt Jónsson í viðtali við
Alþýðublaðið í morgun, en hann
sá um sýninguná ásamt Birni
Friðfinn-ssyni bæjai"stjóra.
— En þegar ma'ður fer að
hugsa sig um, hél-t hann áfram,
-er maður ekkert . hissa á því,
þar sem þetta er eina dýri'ð af
sinni tegund hér á lándi, og
hvítabjörninn- er líka mikið
sagnadýr svo fólki lei'kur for-
vitni á að sjá hann. )
— Fyrstu tvo dagana komu'
140-0 gestir, hvorn daig, og aff
sóknin var drjúg hina daganal
líka, en ég hef efeki tölur yfip
heildar aðsókniina.
Sýni-nigin fór hið bezta frarri,
en þó kom upp vandamál vegna
þrengsla, -en það leystist allt
Saman ve-1.
Blaði-nu tókst -ekfei a@ bafa
uppi á Biirni Friðfinssyni tiSJ
að fá nákvæmar tölur um að-
sóknina, en búast má við, s-am-
kvæmt upplýsingu-m Benedikfs,
að gestimir hafi verið nær tíu
þúsund. — ÞG. |J