Alþýðublaðið - 26.01.1970, Blaðsíða 3
Mánudagur 26. janúar 1970 3
FARARTÆKl OG UMFERÐ
Umsjón: Þorri
Hvernig þarf að
búa sig undir
3000 km. ökuferð
□ Hinum árlega 'Monte Carlo
aks.tri lauk á laugardaginn, og
voru að þessu sinni skráðir 233
bílar til keppni. Er síðast frétt-
ist hafði Svíinn Waldegard for-
ystuna, en hann ekur Porche
Þegar þetta er ritað voru end-
anleg úrslit ekki kunn. en það
væri ekki úr vegi að athuga
örlítið hvernig útbúa verður
bifreiðarnar fyrir þessa 9 daga
aksturkeppni á meðan beðið er
eftir að frétta hver sigraði.
í norska blaðinu Arbeider-
bladet birtist daginn sem keppn
in hófst, þ. e. 16. janúar; við-
tal við tvo Norðmenn sem voru
skráðir til keppninnar og þar
sögðu þeir frá því hvernig þéir
útbjuggu sig og bílinn fyrir
þessa miklu þolraun. Þeir heita
Egil Stenshagen, ökumaður, og
Egil Morete, aðstoðarmaður
(það mætti kalla aðstoðarmann
inn ,,siglingafræðing“), og þeir
aka Ford Capri GT. Leiðin sem
þeir þurftu að aka er hátt á 3ja
þúsund kílómetrar. Þó eru breyt
ingarnar á sjálfum bílnum ekki
ýkja miklar, hann er að mestu
leyti útbúinn eins og venjuleg-
ur eða „standard“ Capri GT.
Mestu breytingarnar eru
fólgnar í styrktu bremsukerfi
og bremsuvökvinn er af þeirri
gerð sem ekki getur soðið, því
álagið á bremsunum er geysi-
mikið. Stillanlegum dempurum
er komið fyrir að aftan, að fram
an er komið fyrir 4 kalogen-
luktum, tveimur auka km.-telj-
urum og sérstakt öryggisgler er
notað í framrúðu. Þá er sett sér
stök olía á vélina, í gíx-kassann
og drif og sérstök gerð af feiti
er sett á alla hjólalagera.
Þeir hafa með sér fjögur
negld veti’ardekk auk þeiri’a
sem eru undir bílnum, öll af
sömu gerð. Naglarnir eru af
venjulegri gei’ð, í einföldum
röðum og 224 í hverju dekki.
Þeir félagarnir álíta að þessi
gerð nagladekkja hitni minnst
við akstur ó þurru malbiki.
Þá þarf að hafa meðferðis
talsvert af verkfærum, og þar .'á
íheðal að sjálfsögðu það sem
ailtaf á að vera í hvérjum bíl
Örýggisbelti eru sjálfsögð,
hjáimar, sjúkrakassi, þríhyrning
ur með glitaugum til að setja
við bílinn ef þeir verða stopp
í myrkri. — Af varahlutum þarf
að hafa auka perur í luktir, raf-
al, tmargar viftureimar, öryggi,
kerti, þétta og margt fleira sem
viðkemur rafkerfinu. Þá vex-ður
að hafa til reiðu auka hremsu-
klossa, bremsuborða og bremsu-
vökva. — Ef framrúðan skyldi
brotna þarf að hafa hlífðargler-
augu og þykka vettlinga.
Aksturinn tekur mai’ga daga.
Því hafa þeir með sér, nafn-
arnir, segulbandstæki og marg-
ar segulbandsspólur með tón-
list. — Vitanlega er ekki hægt
að hafa fullkomnar máltíðir
meðferðis í kappakstur. í stað-
inn hafa þeir súkkulaði, kex og
þi'úgusykur, og síðast en ekki
sízt, fiskibollur. Það er kannski
undarlegt, en mai’gir Norðmenn
sem ekið hafa í Monte Cai’lo-
keppninni, hafa haft með sér
fiskibollur og krafisúpur. — Að
lokum má nefna, að þeir Stens
hagen og Morete hafa meðferðis
stóran geymi með drykkjar-
vatni.
Sumir gera meiri breytingar á
bílum sínum, breytingar eru
annars bannaðar nema að vissu
marki, John Unnerud, sem ek-
ur SAAB V-4, lét verksmiðjurn
ar i Trollhattan lækka bílinn
aðeins og sömuleiðis lækka hlut
fallið í gírkassanum frá því sem
venjulegt er. —■
Þjóðlög í Glaumbæ
□ Þórarinn og Ottó heita’
tveir unigir menn, sem feng-
izt hafa við þj óðlagaisönlg og
hafa í hyggju að halda þjóð-
iagakvöld í Glaumbæ þriðju-
daginn 3. febrúai’ næstk.
Þeir í'eikna með að hljóm-
sveitim Fiðrildi komi þar fram,
en að aulki verða þar eftirtald-
ar hljómsveitii': Ævintýri, Nátt-
úra, Trúbrot, Júdas og Tatar-
■ar, en með síðastnefndu
grúppunni kemur fram nýr
gítarleikari.
VELJUM ÍSLENZKT-/W^
ÍSLENZKAN IÐNAÐ \|>/J
í VIKUBYRJUN:
Hvor hafði á
réttu að standa?
Þetta er fullyrðing, sem
krefst rökstuðnings, raunar
meiri og ítarlegri rökstuðnings
en rúm er til að koma að hér.
Hér verður að nægja að benda
á, hvað hefði getað hlotizt
af sigri Biafra-manna, enda er
það eitt aí aðalatriðum málsins.
Hefði Biafra fengið yilja
sínum framgengt, stofnað sjálf-
stætt ríki án allra tcngsla j við
Nígeríu, er mjög hætt við; að
Framhald bls. 11.
Sími
11687
21240
Hekla
□ Á ÞVÍ ER enginn vafi að
meginþorri íslendinaa hafði
ríka samúð með Biafra í þeim
liildarleik, sem nú er nýlokið,
og sömu afstöðu hafði almenn-
ingur í flestum nálægnm lönd-
um. Þetta var að flestu leyti
effiilegt. Viffi liöfum ríka til-
hneigingu til standa meffi þeim,
sem okkur finnst vera minni
máttar og eiga í vök að verj-
ast, og þaffi voru Biafra-menn
sem urðu harðast úti af völd-
um stríðsins; á landi þeirra
var barizt, þar var hungriff
sárast og neyðin þungbærust.
Fjölmiðlunartækin áttu mik-
inn þátt í að móta þessa samúð,
sérstaklega sjónvarpið, sem
birti iðulega myndir og frá-
sagnir af hungruðum bömum,
átakanlegustu myndir sem sézt
hafa á sjónvarpsskermi hér-
lendis. Þetta meðal annars
vakti upp fómarlund manna
og margir lögðu fram mikið og
óeigingjamt starf til aðstoðar
hinu hrjáða fólki. En margir
drógu líka af þessu þá ályktun
að málstaður Biafra-manna í
styrjöldiuni væri sá rétti, þeir
væru að berjast fyrir frelsi
sínu og sjáfstæði gegn erlendri
þjóð, sem vildi lialda þeim í
kúgunarfjötrum.
Þetta er skoðun, sem er væg-
ast sagt mjög vafasöm. Það er
vafasamt, svo að ekki sé meira
sagt, að málstaður Biafra-
manna í styrjöldinni hafi rerið
„réttari“ en málstaður sam-
bandsstjórnarinnar í Nigeriu.
í styrjöld eins og borgarastyrj-
öld er það að vísu alltaf mjög
hæpið að fa^a þm v'réttand
málstað; yfirleitt er það svo
að báðir aðilar hafa mikið til
síns máls og báðir eru ætíð
sannfærðir um að einmitt þeir
liafi réttinn sín megin. Sé þrátt
fyrir þetta reynt að meta hvor
aðilinn hafi á réttu að standa,
er ekki hægt að nota nema
einn mælikvarða, þann hvort
líklegt sé að sigur annars hvors
aðiljans hafi fleira gott í för
með sér en sigur hins. Og sé
þessum mælikvarða beitt við
Nígeríu-stríðið held ég að það
sé varla á því neinn vafi að
dómurinn verði sá, að sam-
grein fyrir því live gríðarstór
liún er. Þjóðflokkar og ættbálk
ar eru þar mjög margir og
víða hefur samkomulagið milli
þessara þjóðflokka verið held-
ur stirt. Landamæri hinna ny-
frjálsu ríkja álfunnar fylgja
yfirleitt ekki landamærum
bandsstjórnin hafi haft á rétt-
ara að standa.
Þaff er eitt aff kaupa bíl — og annað að eiga og reka bíl.
Kynniff yffur Volkswagen,
1
— varahlutaverð og viðgeirðarþjónustu —
SÝNINGARBÍLAR Á STAÐNUM .
— KOMIÐ, SKOÐIÐ, REYNIÐ .
V. W. 1200
Vélarstærð 41,5 hö.
öryggis stýrisás. —
Öryggis stýrishjól.
Tvöfalt bremsukerfi.
Fáanlegur með sjálfskiptingu.
V. W. 1300
Vélarstærð 50. hö.
Öryggis stýrisás. —
Öryggis stýrishjói.
Tvöfalt bremsukerfi. —
Loftræstikerfi.
Fáanlegur með sjálfskiptingu.
NÚ GETUM VIÐ BOÐIÐ
V0LKSWAGEN
Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI
Volkswagen 1300 fyrir kr. 209.700,00
Volkswagen 1200 fyrir kr. 189.500,00
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VERÐLÆKKUN
I