Alþýðublaðið - 29.10.1970, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.10.1970, Blaðsíða 3
B o Karl GuSjónsson, alþingismaSur kvaddi sér hljóffs utan dagskrár á fundi SameinaSs Alþingis [ gaer^og lýsti því þar yfir, aS hann hefSi formlega sagt sig úr þingflokki Al- þýguJjand,;)lagsln!i's. Tjasj hai^n upp bréf til formanns þingflokksins, Lú8- víks Jósefssonar, þar sem hann get- ur m. a. ástægnanna fyrir úrsögn sinni. Að lokinni ræSu Karls GuSjónsson ar tóku til máls þeir LúSvík Jósefs- son og Jónas Árnason. Eru ræður þeirra allra birtar hér í blaffinu í dag. SUNDRUNGARÖFL RÁÐA ÞAR ÖLLU Ræða Karls Guðjónssonar, al- þingismanns; — — Herra forseti. — í gær skrif aði ég þingflokki Alþýðubanda- lagsins svohljóðandi bréf: Al- þingi, 27. nóvember 1970. — Til ítrekunar og skriflegrar staðfest ingar á því, sem ég tjáði for- manni þingflokks Alþýðubanda- lagsins í gærmorgun og á þing- flokksfundi síðdegis í gær, dreg ég hér saman þessi meginatriði. — Til Alþýðubandalagsins var upphaflega stofnað til að vinna að aukinni og bættri samstöðu hinnar verkalýðssinnuðu hreyf- ingar á íslandi. Þetta hlutverk A'.lþýðubandalagsins hefur mér alltaf verið hugstætt, og þegar úr því varð, á síðustu árum, að íil forráða í því voru komin öfl, sem greinilega unnu gegn þessu markmiði, var það mér ekki að skapi. Gerði ég þó ýmsar tilraun- ir til að fá Alþýðubandalagið til að taka forystu um að efla já- kvæða samstöðu vinstri manna í landinu, en þær urðu allar að lúta í lægra haldi fyrir valdi þeirra sundrungarmanna, sem mcðal annars liöfðu uppi opin- berar kröfur um það í Þjóðvilj- anum 1967, að af Alþýðubanda- laginu yrðu liöfð 40% löglegra atkvæða þess í Reykjavík, því að þann hóp kölluðu þeir vont Al]»ýðubandalagsfólk. Ekki tel ég ástæðu til að rekja allar tilraunir, sem í þessa átt fóru, en ég minni á síðustu til- lögu mína og minna samherja í framkvæmdastjóm Alþýðubanda lagsins til að freista þess að gera Alþýðubandalagið trútt stefnu- hlutverki sínu. Sú tillaga var þannig: — Fundur í fram- kvæmdastjóm Alþýðubandalags- ins lialdinn 27. september 1968 samþykkir að gera alvarlega könnun á því, hverjir möguleik- ar kunni að vera á bættri sam- stöðu verkalýðssinna og vinstri marrna í landinu, bæði á sviði hinnar almennu kjarabaráttu verkalýðsstéttanna og á vett- vangi stjómmálanna. Til þess að framkvæma þessa könnun kýs framkvæmdastjórnin nefnd, sem taki þegar til starfa. í þessu augnamiði verði leitað eftir sam- vinnu og/eða skipulagslegri ein- ingu við Alþýðuflokkinn og aðr- ar lireyfingar vinstri manna, sem til slíkra viðræðna væm fúsar. Nefndin miði störf sín við það, aö málið eða veigamiklir þættir þess verði tilbúnir til ákvörð- unar á landsfundi þeim, sem á- kveðinn hefur verið hinn 1. nóvember n.k., ella verði lands- fundinum frestað. Karl Guðjónsson, Magnús Torfi ólafsson, Guðjón Jónsson, Sigurður Guðgeirsson. —■ Fkki var tillögu þessari sinnt í einu cða neinu, enda yfirráð Alþýðubandalagsins þá þegar komin í hendur þeirra afla, sem snúizt höfðu gegn uppliaflega áfcrmuðu hlutverki þess. Nú fyrir fáum dögum sendir svo Alþýðuflokkurinn þingflokki Alþýðubandalagsins bréf, þar sem hann býður upp á viðræð- ur um stöðu vinstri hreyfingar á íslandi. Bréf þetta las formað- ur þingflokks Alþýðubandalags- ins mér í síma síðastliðið föstu- dagskvöld ásamt drögum að svarbréfi, sem hann hafði gert, og spurðist fyrir um samþykki mitt við svarið. Ég kvaðst vera því mótfallinn og taldi að svara ætti jákvætt og gera allt, sem unnt væri, til að umræður þess- ar yfðu uppbyggilegar og eíldu samstöðu vinstri manna. En fyrst og fremst taldi ég þó, að bréfið ætti að taka fyrir til umræðu og afgreiðslu á þingflokksfundi. — Bauðst formaður þá til að halda þingflokksfund kl. 11 á laugar- dagsmorgun. Tjáði ég honum, að ég gæti ekki komið til fundar á þeim tírna, þar eð ég liefði heitið mínum stéttarsamtökum, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, því að vinna fyrir þau um helgiina og ^æru fundir, sem ég yrði á, þegar boðaðir á Siglufirði laugardaginn 24. okt. og á Blönduósi sunnudaginn 25. okt., en strax eftir helgina væri ég reiðubú'Jl n til 'ff.ngflokks- fundari Lauk þa.r tali okkarl En þegar ég kom til Reykja- víbur að nýju, sé ég, aö svarið hefur verið sent og birt í blaði þeirra ráðamanna Alþýðu- bandalagsins. Átaldi ég for- manninn fvrir þessi vinnubrögð og kvað það lágmarksrétt þing- manns, að ekki yrði gengið fram hjá eindreginni ósk lians um stórmál, sem ekkert Iá á að afgreiða með svona skjótum hætti. Tel ég, að þingmaður, sem svo er lítilsvirtur í þingflokki sín- um. að slíkri ósk hans er ekki anzað, hafi heldur ekki skyldur til að fara eftir samþykktum þess sama þingflokks, og jafn- gildi þessi vinnubrögð því brott vísun þingmannsins úr þing- flokknum. Mun ég því ekld telja mig í þingflokki Alþýðu- bandalagsins hér eftir, en líta á mig sem þingmann utan flokka. Kjósendum mínum sem og öll- um íbúum Suðuríandskjördæm is mun ég eftir sem áður vinna allt það gagn. sem ég má, enda ber sundurþykkja mín og þing- flokks Alþýðubandaiagsins eng an skugga milli mín og þeirra. Ekki breytir hún neitt heldur stjórnmálalegum liugmyndum mínum utan þess að hún er að sjálfsögöu þáttur í lífsreynslu minni og lífsreynslu skyldi eng- inn vanmeta. — Með kveðju, Karl Guðjónsson. — Til þing- flokks Alþýðubandalagsins. Herra forseti. Þetta er að vísu bréf til þingflokks Al- þýðubandalagsins, en eftir at- vikum tel ég rétt og mér skylt að birta það á þingi. TYLLIÁSTÆÐA □ Lúðvík Jósefsson, formaður þin gf lokks Alþýðubandalagsins: — Ilerra forseti. Háttvirtur sjötti þingmaður Suðurlandskjör dæmis, Karl Guðjónsson, hefur sent þingflokki Alþýðubanda- lagsins það bréf, sem hann hefur hér lesið. Það barst mér reyndar í hendur hér nú fyrir nokkmm mínútum síðan, þegar í upphafi þessa þingfundar, en það eitt breytir hér engu fyrir mig; bréf- ið kemur mér í rauninni ekkert á óvart, nema helzt það úr efni þess, þar sem háttvirtur þing- maður fer óumdeilanlega með rangt mál. Það hélt ég að væri búið að leiðrétta þannig við þing manninn, að hann sæi ekkí á- stæðu til þess að endurtaka þess- ar fullyrðingar hér á þennan Frh. á bls. 11. MYNDSKREYTING FYRIR MOGGANN Jónas Árnason: — Herra forseti. Ég stend ekki hér upp til þess að lengia þessar umræður um innanfIokks,mál okk ar Alþýðubandalagsmanná, heid- ur vil ég láta í ljós liarm minn yfir því, að jafnágætur maður og Karl Guðjónsson er, skuli liafa sagt skilið við okkur, og um léið' vil ég lýsa vonbrigöum mínum yfir því, og munu fleiri gera, að hann skuli grípa til þess ráðs að vilja efla samistöðu vinstri manna með því að gera úr sjálf- um sér þingflokk. Ennfremur vil ég láta þess getið, að mér var al- gerlega ókunnugt um það, hvað hér stæði til. Það bréf, sem hann las hér upp, barst í hendur for- manns þinglíiokks okkar núxía rétt fyrir þingfund Aftur á mótí er svo að sjá se»*n aðrir aðilar hafi haft einhverja „nasasjón“ at því, sem hér átti að gerast, þvi að þegar þingiúndur hófst, stóð hér í dyrunum ljósmyndari frá Morgunblaðinu til þess að taka mynd af Karli Guðjónssyni undii þessum kringumstæðum. Eg .Vil að síðustu óska honum til ham- ingju með þann heiður, sern hon- um hefur nú hlotnazt, að vera. myndskreytingarel'ni .iyrir mal- gagn Sjálfstæðisflokksins. — BIRTAR RÆÐUR KARLS, LÚÐVÍKS 06 JÓNASAR Á ALÞINGII GÆR FIMMTUDAGUR 29. DKTÓBER 1970 § ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.