Helgarpósturinn - 22.12.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
7
í dag verður gengið endanlega frá starfslokum Sigurjóns Sighvatssonar
Siguijón hættur
hjá Propaganda
„Umfang stjórnunarstarfa minna
íyrir Propaganda var orðið þannig
að það truflaði að ég gæti einbeitt
mér að því að búa til bíómyndir,
sem ég hef mikinn metnað til að
gera,“ segir Sigurjón Sighvatsson
en hann mun um áramótin hætta
núverandi störfum sínum fyrir
kvikmyndafyrirtækið Propaganda
sem hann stofnaði ásamt félaga sín-
um Steve Golin íyrir átta árum.
„Mér fannst ég kominn svo langt
frá því sem ég upphaflega vildi gera.
Propaganda sem var í byrjun
ákveðið tækifæri var í rauninni
orðið þrándur. Ég hafði orðið svo
mikið á minni könnu dagsdaglega
að ég hafði í rauninni lítið tækifæri
til að vinna að þeim skapandi þátt-
um sem ég hef áhuga á. Þegar ég
seldi fyrirtækið átti það að verða til
þess að ég gæti einmitt haft tæki-
færi til þess að einbeita mér meira
að þessu, en það æxlaðist töluvert
öðruvísi. Kannski gerðist það bara
vegna þess hvað ég tók sjálfur alltaf
mikið að mér, þegar maður er
kominn af stað með ákveðna hluti
vill maður ganga frá þeim. Og
smám saman festist ég alltaf meira
og meira við skrifborðið. Það var
orðið spurning um áð breyta þessu
og komast meira út í hina daglegu
famleiðslu aftur.“
Sigurjón segir að það hafi verið
ákveðin spenna í fyrirtækinu sem
átti þátt í því að hann tók þess
ákvörðun en hann ítrekar að sú
spenna hafi ekki haft úrslitaáhrif
um það að hann ákvað að hætta.
„Fyrirtækið er nú komið á gott
ról og mér fannst þetta einnig vera
orðin spurning um að einfalda líf
mitt aðeins. í dag hef ég efni á því
fjárhagslega og á annan hátt. Ég
þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af
lífinu dag frá degi, svo ég hugsaði
bara með mér: ég get kannski gert
aðeins minna og haft það jafn
gott.“
Aðspurður hvort Propaganda
hafí skilað honum miklu í aðra
hönd svarar Sigurjón:
„Það er mjög afstætt. Á íslenskan
mælikvarða er það örugglega mjög
gott, á bandarískan mælikvarða
þokkalegt og á Hollywood-mæli-
kvarða svona viðunandi.“
Vill einbeita sér að
bíómyndum
Propaganda gat sér fyrst orð fyrir
gerð tónlistarmyndbanda og aug-
lýsinga. Fyrirtækið hefur haldið
sterkri stöðu sinni á þeim markaði
og var Sigurjón meðal annars í
stóru viðtali í tímaritinu Interview í
október um þátt hans og fyrirtækis-
ins í að hefja tónlistarmyndbanda-
gerð til vegs og virðingar. Aðspurð-
ur hvort tónlistarmyndbandagerð-
in hafí ekki fullnægt listrænum
metnaði hans svarar Sigurjón:
„Ég hef haft verulega gaman af
auglýsinga- og tónlistarmynd-
bandaiðnaðinum. Framlag okkar í
þessum efnum hefur verið töluvert
og í raun má segja að við höfum
gjörbylt þessum bransa, sérstaklega
tónlistarmyndböndunum sem ég
kom mest nálægt. Propaganda var
upphaflega stofnað út úr neyð,
vegna þess að við komumst ekki
inn í kvikmyndaiðnaðinn, en svo
varð fyrirtækið að leið til þess að
komast inn í bransann. Neyðin
varð að leið. Þessir hlutir voru því
mjög samhangandi þegar fyrirtæk-
ið var í ákveðinni stærð. Svo hélt
þessi snjóbolti áfram að rúlla og
hlóð alltaf utan á sig. Og þegar
maður er kominn með 150 manns í
vinnu og 400 manns á launaskrá er
spurning hvað maður getur gefið
sig í mikið. Mér fannst ég orðið
ekki geta gefxð öllu þessu nógu
mikinn tíma. Bæði tónlistarmynd-
banda- og auglýsingaiðnaðurinn
hafa verið að breytast mjög hratt og
ég tel nýtt tímabil framundan í
báðum greinum. Það þyrfti mjög
mikinn kraft og vinnu ef ætti að
halda Propagranda í sömu deild og
fyrirtækið hefur verið og mér
fannst kominn tími til að snúa mér
að öðru. Ég er maður á fimmtugs-
aldri og þótt MTV sé ágætt er það
meira fýrir son minn en mig í dag.
Ég vil ekki viðurkenna að ég gæti
þetta ekki, en ég varð að ákveða
hvað ég vildi, út frá lífi mínu í heild.
Ég kom til Hollywood til þess að
gera bíómyndir og ég hef gert það.
Það er hins vegar ekkert launungar-
mál, þrátt fyrir að Red Rock West
sem við framleiddum sé nú á topp
tíu á mörgum listum yfír bestu
myndir ársins, að undanfarin 2-3 ár
hafa verið ákveðin vonbrigði fyrir
mig persónulega hvað kvikmynda-
gerðina snertir. En nú hef ég tæki-
færi, eftir að ég er laus úr 9-5 vinn-
unni að gera það sem ég vil og ein-
beita kröftum mínum að bíómynd-
unum. Og ég ætla að sjá til í 1 til 2 ár
hvað gerist. Og ef ekki gengur vel
get ég engum kennt um nema sjálf-
um mér.“
Mun verða Propag-
anda tii ráðgjafar
Sigurjón mun ekki slíta öll sam-
skipti sín við Propaganda. Hann
mun vinna áfram að tveimur bíó-
myndum sem hann hefur unnið að
um nokkurt skeið, auk þess að vera
fyrirtækinu til ráðgjafar í ýmsum
verkum. Árið sem er að hefjast er
þegar orðið þéttbókað hjá Sigurjóni
við gerð ýmissa bíómynda.
„Eg er með þessi verkefni í gangi
hjá Propaganda og svo er ég að fara
að vinna við mynd sem tökur hefj-
ast á upp úr miðjum janúar. Hún
heitir „)ust looking" og er með
ungum og upprennandi leikurum í
aðalhlutverkum. í apríl fer síðan af
stað mynd sem gerist í New York
og fjallar um svartan málara sem
lést ungur af ofneyslu eiturlyfja, svo
ef eitthvað er hef ég þegar of mikið
að gera. Ég ætlaði að taka mér
nokkurra mánaða frí og gefa nýjum
fjölskyldumeðlimi tíma en fríið
verður víst bara nokkrar vikur.“
Sigurjón leggur hins vegar
áherslu á að vinnan muni mikið
breytast við það að hann hætti hjá
Propaganda.
„Ég mun hætta öllu þessu dag-
lega vafstri og get stýrt því meira
sjálfur hvernig ég vinn. Ég verð
áfram hjá Propaganda sem ráðgjafi
en þá eingöngu við hinn svokallaða
skapandi þátt, val á handritum,
leikstjórum og svo framvegis.
Hefur verið í bígerð
um nokkurn tíma
Sigurjón segir að það hafi staðið
til í nokkurn tíma að breyting yrði
hjá honum en málið hafi krafist
töluverðs undirbúnings því þegar
hollenska risafyrirtækið Polygram
keypti Propaganda að fullu í byrjun
árs 1992 var gerður fímm ára starfs-
samningur við hann og félaga hans
Golin.
„Þetta hefur auðvitað tekið tölu-
verðan tíma. Ég hef nú um skeið
verið að vinna að því að losna und-
an starfssamningum en gera um
leið hagkvæman samning því hin-
um fylgdu ýmis réttindi. Ég vildi
auðvitað ekki ganga á dyr og gefa
öll þau réttindi upp á bátinn.“
Aðspurður hvort hann fari frá
fyrirtækinu í frið og spekt svarar
Sigurjón:
„Vissulega, þetta er með miklum
friði og spekt, ég væri varla hérna
áfram sem ráðgjafi ef svo væri ekki.
Það eina sem ég er hræddur um er
að ég verði hérna of mikið. Ekki
það að ég sé að meina það neikvætt
en þegar maður er að gera breyt-
ingar þá eiga þær að sjást. Og þó ég
sé mjög tengdur þessu fyrirtæki og
hafi gaman af tónlistarmyndbanda-
og auglýsingabransanum er kom-
inn tími til að að láta þetta gott
heita. Ég vil ekki hljóma hrokafull-
ur en ég held að ég sé búinn að gera
allt sem ég get gert í þeim efnum.
Það má orða þetta sem svo að það
eru ekki margir tindar eftir að klífa
í vídeó og auglýsingaframleiðslu.“
Að sögn Sigurjóns gengur rekst-
ur Propaganda vel og mun halda
áfram óbreyttri starfsemi. Félagi
hans, Steve Golin, verður áfram hjá
fyrirtækinu og mun halda þar um
stjórnartaumana. Þegar talið berst
að Golin segir Sigurjón að því sé
ekki að leyna að það hafi við og við
komið upp ákveðin spenna milli
þeirra en hann aftekur að brottför
hans frá Propaganda megi á nokk-
urn hátt skoða sem uppgjör milli
þeirra.
„Hvað er uppgjör? Þetta var alls
ekki á persónulegum grundvelli.
Samstarf okkar Steve hefur auðvit-
að breyst gríðarlega mikið frá því
að við byrjuðum saman í einu her-
bergi með einn síma og það -var
pláss fyrir okkur báða í þessu fyrir-
tæki ef við hefðurn viljað það. En ég
fyrir mína parta ákvað að þetta væri
orðið gott og ég þyrfti að velja milli
ákveðinna hluta á þessu stigi í lífi
mínu.“
Ekki á leið til íslands
Um það hvort hann muni í kjöl-
far þessara breytinga koma til með
að eyða meiri tíma á Islandi segir
Sigurjón að svo verði ekki.
„Nú er maður að byrja á ein-
Uppgangur Sigurjóns
Sighvatssonar í Holly-
wood var ævintýralegur
15 ár í
Hollywood
Árið 1977 hélt Sigurjón Sighvats-
son til Bandaríkjanna í fimm ára
nám í kvikmyndagerð. Skólabróðir
hans var Steve Golin og saman
áttu þeir eftir að stofna gullnámuna
Propaganda Films árið 1986. Vöxtur
þess var aevintýralegur en það sem
kom einkum fótunum undir þá fé-
laga var velgengni við gerð tónlist-
armyndbanda og Propaganda náði
yfirburðastöðu á þeim markaði
fyrstu árin. Smám saman færðu
Sigurjón og Golin út kvíarnar og
hafa framleitt fjölda kvikmynda,
sjónvarpsþátta og auglýsinga, auk
tónlistarmyndbandanna. Heimfræg-
ir leikarar hafa komið þar við sögu
og myndir frá Propaganda hafa
fengið mörg af eftirsóttustu verð-
launum kvikmyndanna, meðal ann-
ars Wild at Heart sem fékk Gullpál-
mann í Cannes.
í ársbyrjun 1992 keypti risafyrirtæk-
ið hollenska, Polygram, meirihlut-
ann í Propaganda fyrir metfé en
Sigurjón og Golin héldu 49 prósenta
hlut í fyrirtækinu. Sérfræðingar hafa
metið þá sölu á mörg hundruð millj-
ónir króna en talið er að Propag-
anda velti yfir fimm milljörðum
króna á ári. Þá var jafnframt gengið
frá samningum um að Sigurjón og
Golin störfuðu áfram hjá fyrirtækinu
næstu fimm árin.
Skömmu síðar haslaði Sigurjón sér
völl í íslensku viðskiptalífi með því
að kaupa hlut í íslenska útvarpsfé-
laginu fyrir 46 milljónir að nafnvirði
og myndaði fyrrverandi meirihluta
undir forystu Ingimundar Sigfús-
sonar. Fyrr á þessu ári jók hann enn
við hlut sinn í félaginu og tók þátt í
að fella fyrrverandi meirihluta og
mynda nýjan með Jóni Ólafssyni í
Skífunni og fleirum.
hverju nýju og þá þarf maður að
setja allan sinn kraft í það. Ég sé
mig að vísu alltaf á leið til Islands,
en þær sögur sem hafa gengið um
að ég sé að flytja heim núna eru al-
gjörlega úr lausu lofti gripnar og ef-
laust tengdar eitthvað þessu Stöðv-
ar 2-máli. Þó ég eigi hagsmuna að
gæta í Stöð 2 og sé þar til ráðgjafar
um ýmis mál er það ekki inni í
myndinni að flytja til íslands. Ég sé
ekki einu sinni fram á að komast
heim næstu sex mánuðina. Það er
hins vegar alltaf á dagskrá á færa
mig nær Islandi, 15-20 ár í Banda-
ríkjunum er alveg nóg fyrir mig og
ég hef aldrei ætlað mér að vera hér
til eilífðar.“
Jón Kaldal