Helgarpósturinn - 22.12.1994, Síða 12

Helgarpósturinn - 22.12.1994, Síða 12
12 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 Útgefandi Ritstjórar Fréttastjórar Framkvæmdastjóri Auglýsingastjóri Miðill hf. Páll Magnússon, ábm Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Styrmir Guðlaugsson Kristinn Albertsson Örn ísleifsson Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. Miðar þótt hæst fari í fjölmiðlum landsmanna, ctlTi síst MORGUNPÓSTINUM, hef- ur síðustu mánuði og misseri verið mikið fjallað um misbresti í op- inberri stjórnsýslu, óráðsíu í rekstri hjá ríki og sveitarfélögum, slæ- legt upplýsingastreymi frá stjórnvöldum og þar fram eftir götun- um. Þessi umræða og gagnrýni hefur verið íýllilega réttmæt og fyr- ir löngu orðin tímabær. Henni hefur raunar skotið upp oft áður, án þess þó að bera sjáanlegan ávöxt. En dropinn holar steininn og nú eru loks farin að sjást nokkur merki þess, að gagnrýnin hafi þrátt fyrir allt haft einhver áhrif og að stjórnkerfið sé farið að bregðast við á réttari hátt en áður. Þar má fyrst nefna hlut Ríkisendurskoðunar. Áður en lögum um stofnunina var breytt fyrir nokkrum árum var hún eins konar framlenging á framkvæmdavaldinu, þjónn þess og þræll, og hafði litlu sem engu sjálfstæðu hlutverki að gegna. Það er fyrst með nýj- um forsendum, og kannski ekki síður nýjum mönnum og vinnu- brögðum, sem Ríkisendurskoðun er nú farin að gegna raunveru- legu hlutverki sínu: að halda uppi virku eftirliti með framkvæmda- valdinu fyrir hönd löggjafans og þar með almennings í landinu. Stofnunin lætur heldur ekki lengur við það sitja, að búa til mála- myndaskýrslur, sem hún er sérstaklega beðin um, og undir hælinn lagt hvort þær komi nokkru sinni fyrir almenningssjónir eða verði umbjóðendum hennar að nokkru gagni. Stofnunin er sjálf farin að taka frumkvæði að rannsókn einstakra mála, og ætti raunar að gera það í enn ríkari mæli en þó er orðin raunin. Til þess þarf að efla stofnunina, sem óhjákvæmilega kostar fjármuni, en uppákomur síðustu missera sýna og sanna, að ef einhvers staðar er réttlætanlegt að auka ríkisútgjöld þá er það í eftirlit með framkvæmdavaldinu sjálfu. Því miður er ekkert sambærilega óháð og gagnrýnið eftirlit með rekstri sveitarfélaga í landinu, sem veitti þó svo sannarlega ekki af, og þarf að ráða bót á því sem fyrst. Einnig er rétt að nefna í þessu sambandi stjórnsýslulögin, sem tóku gildi um síðustu áramót. Þau hafa tvímælalaust verið til bóta, og leitt til þess að stjórnmála- og embættismenn eru varkárari en áður í ákvarðanatöku og beitingu valds. Af sama meiði er það frumvarp, sem nú er í smíðum á vegum forsætisráðherra, um upp- lýsingaskyldu stjórnvalda. Binda má vonir við að lagasetning af því tagi auki nauðsynlegt aðhald með valdsmönnum, og bæti sam- skipti stjórnvalda og almennings. Þessi lög ættu meðal margs ann- ars að kveða á um ótvíræðan og tafarlausan aðgang almennings, og þar með fjölmiðla, að öllum skýrslum og niðurstöðum Ríkisendur- skoðunar. Alltaf. Hér hefur áður verið skorað á forsætisráðherra, að láta hraða gerð þessa frumvarps, þannig að lagasetningunni verði lokið á yfir- standandi kjörtímabili. Þessi áskorun er hér með ítrekuð. Aðalatriðið er þó, að ofangreindum málum þokar til betri vegar. Miðar þótt hægt fari. Gleðilega hátíð Þetta er síðasta tölublað MORGUNPÓSTSINS fyrir hátíðina framundan. Blaðið sendir lesendum sínum og landsmönnum öll- um bestu óskir um gleðileg og friðsæl jól. Páll Magnússon Posturínn Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga, til 21:00 á þriðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum. ■amssm ».' Jólabarniö í ór [ymmæjj; Vestfirskt Alþingi „Ég verð ekki á listanum vegna þess að mérfinnst að með þeirri ákvörð- un sem tekin hefur verið og niður- staða prófkjörsins felur í sér um nýja stefnu að rœða; að leita útfyrir Vestfirði að málsvara á Alþingi. “ Pétur Bjarnason fallkandídat Tíðindalaust á borgarvíg- stöðvunum „Þetta eru fyrirtceki sem eruyfirleitt vel stceð. Skulda lítið og eru ekki í tniklum framkvcemdum. “ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, talin borgarstjóri Grátklökkur Ingó „Bók Ingólfs Margeirssonar er í sam- rcemi við hátíðina sem hún á að lýsa; yfirborðsleg, innihaldsrýr, há- stemmd —jafnvel grátklökk á stundum.“ Birgir Hermannsson aðstoðarmaður bókagagnrýnenda Ekkert kerlingavæl „ Yfir œvisögur hálffertugra poppara og sorgarsögu kvenna gnœfir þessi bók. Ég hálföfunda þá sem eiga eftir aðfá hana íjólagjöf.“ Magnús Óskarsson lögmaður Hagrœðing í mjólkuriðnaði? „Alltfrá því aðframtak Thor Jensen til að byggja upp samkeppni í mjólkuriðnaði var drepið hefur engum tekist að lifa slíka til- raunastarfsemi af “ Fyrir fáeinum dögum var gengið frá úreldingu Mjólkurbúsins í Borgarnesi. Úreldingin felur í sér að vinnslu á mjólkurafurðum verð- ur hætt í Mjólkursamlagi Borgfirð- inga í Borgarnesi. Fyrir þetta fær Kaupfélag Borgfirðinga á bilinu 400-500 milljónir króna. Með þessu batnar rekstrarstaða Kaupfé- lags Borgfirðinga til muna en það er ýmislegt fleira sem fylgir þessu samkomulagi. Það ríkti síður en svo einhugur um þessa ákvörðun eins og fram kom á aukafundi fulltrúa Mjólkur- samlags Borgfirðinga sem haldinn var síðastliðinn föstudag þar sem úreldingin var samþykkt með 22 at- kvæðum gegn 13. Þennan sama dag var samkomulagið samþykkt á aukafundi fuiltrúa Mjólkubús Borgfirðinga með 22 atkvæðum gegn 8. Með samkomulaginu afsaiar Kaupfélag Borgfirðinga sér öllu til- kalli til eignarhluta í Mjólkursam- sölunni í Reykjavík. Jafnframt af- sala mjólkurframleiðendur á félags- svæði Kaupfélagsins sér öllu tilkalli til eignarhlutar í Mjólkursamlaginu þannig að Kaupfélag Borgfirðinga er viðurkennt sem eini eigandinn að Mjólkursamlagi Borgfirðinga. Mjólkurframleiðendur fá hins veg- ar nokkuð fyrir sinn hlut sem greiddur verður út í sérgreindum stofnsjóði samlagsins. Mörgum þykir sárt að horfa á eftir mjólkurvinnslunni í Borgar- firði sem nú flyst suður íyrir heiðar. I' þeim hópi eru margir bændur, íjöldi neytenda og síðast en ekki síst nokkrir einstaklingar sem höfðu trú á að ef til vill gæti Mjólkursam- lagið í Borgarnesi orðið vettvangur að eðlilegri og heilbrigðri sam- keppni í framleiðslu mjólkurafurða hér á landi. Það er merkilegt að í einu glæsi- legasta mjólkurbúi landsins, sem byggt var fyrir stórfé fyrir ekki svo löngu síðan, skuli ekki lengur telj- ast hagkvæmt að vinna mjólkuraf- urðir heldur eigi nú að hefja annars komar atvinnurekstur í húsnæði Þungavigtin Mjólkurbúsins sem á að geta orðið arðsamur. En hvaða atvinnustarf- semi er það? Samkvæmt fréttum hefur verið stofnað nýtt hlutafélag um þennan rekstur sem er að 50 prósent í eigu Kaupfélags Borgfirðinga í Borgar- nesi en hin 50 prósentin eru í eigu Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, Mjólkurbús Flóamanna og Osta- og smjörsölunnar. Hlutafé hins nýja félags verður, samkvæmt frétt- um, á bilinu 80-100 milljónir króna. Eitt af því sem á að hefja framleiðslu á í stað mjólkur eru ávaxtasafar. Framleiðsla ávaxasafa á vegum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík hefur fram til þessa farið fram í Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi. Nú þegar úreldingu er iok- ið á Mjólkursamlaginu í Borgarnesi á sem sagt að flytja þessa starfsemi frá Selfossi upp í Borgarnes, fæða hana og klæða með vélum, tækjum, vörumerkjum og fjármagni og byrja nánast á skuldlausum rekstri. Nú er sem sagt komið að því að mjólkuriðnaðurinn í landinu telur ekki lengur hagkvæmt að framleiða mjólk í Borgarnesi en það er hægt að ráðast til atlögu við einkafyrir- tæki í framleiðslu á ávaxtasöfum, enda fjárhagur hins nýja ávaxta- mjólkurbús verið lagaður til með fjármunum frá almenningi upp á 400-500 milljónir króna. Hvers vegna var ekki leitað eftir samstarfi við aðila utan mjólkur- iðnaðarins um að stofna til fram- leiðslu annars konar drykkjaraf- urða í mjólkurbúinu ásamt mjólk- urafurðum og breyta mjólkurbú- inu þannig í alvöru mjólkur- og ávaxtasafabú? Fyrir skömmu síðan sagði góður maður við mig: „Einokunarkerfi mjólkuriðnaðarins mun aldrei brotna innan frá.“ Það er því miður býsna mikið til í þessum orðum. AJlt frá því að framtak Thor Jensen til að byggja upp samkeppni í mjólkuriðnaði var drepið hefur engum tekist að lifa slíka tilrauna- starfsemi af. Allir þekkja örlög Baulu sem innleiddi fleiri nýjungar í jógúrtframleiðslu en Mjólkursam- salan hafði gert um áratugaskeið; einokunin þoldi hins vegar ekki það fyrirtæki og því var gert ókleift að starfa. Mjólkurbúið í Borgarnesi er eina mjólkurbúið sem getur ógnað ein- okunaraðstöðu Mjólkursamsöl- unnar vegna nálægðar sinnar við markaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Með úreldingunni hefur nú verið reynt að koma í veg fyrir að sam- keppni berist þaðan. Sífellt fleiri bændur átta sig á að hagsmunir þeirra, framleiðenda í tengdum greinum og neytenda fara saman í þessu máli. Það er ennþá tími til að tefla rétt úr skákinni og hafa sigur þó staðan sé flókin í dag. Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Siguröardóttir, Jón Erlendsson Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson. I I I I > > I I l I »

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.