Helgarpósturinn - 22.12.1994, Page 24
24
MORGUNPÓSTURINN BÆKUR
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
Stiömugiöf
Páll Pálsson
Vesturfarinn
★
„Mislukkuð bók þar sem stíll
ogpersónusköpun er sérlega
ábótavant. Höfundur hafði
ágætt efni í höndunum en af-
greiðslan er langtfrá því að
vera fullnœgjandi. “
Pétur Gunnarsson
Efstu dagar
★
„Pétur Gunnarsson er óra-
fjarrifrá sínu besta ífurðu-
lega daufri og heldur leiðin-
legri skáldsögu.“
Þórunn Valdimarsdóttir
Höfuðskepnur
- Ástarbréfaþjónusta
★
„Þórunn er vissulega hug-
myndarík, en mérfinnsthún
enn eiga nokkuð langt í land
með að skrifa góða skáldsögu.
En vissulega er þessi bók
framförfrá þeirri fyrri."
Robert James Waller
Brýrnar f Madison-sýslu
★
„Það eina merkilega við þessa
bók eru vinsœldirltennarsem
eru þó ekki óútskýranlegar:
Robert James Waller er ekki
góður rithöfundur og hreint
afleitur stílisti en hann kann
að púsla saman klisjum og
klisjur hafa löngum selst vel. “
Lawrence Norfolk
Orðabók Lempriers
O
„Rúmlega 6oo blaðsíðna bók
(með skýringum) sem ber
gáfnarfari höfundar síns fag-
urt vitni. En þarnafara vit og
skemmtun ekki saman. Leið-
indin eruþrúgandi.“
ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON
Snigi.aveislan
_____________0_____________
„Hvorki innihaldsríkt né eft-
irminnilegt verk. Fyndni þess
er misheppnuð. Það vantar
skáldskapinn íþetta verk.“
Unun
Æ
★★★★
„Það kæmi ekki á óvart þó
Smekkleysu tækist að hala
hér inn enn eina gullplötuna
úr ólíklegustu átt. Ununflyt-
ur nefnilega lög ungafólksins
og gerir það vel. “
Utangarðsmenn
Tónleikaupptökur
★ ★★★★
„Bubbi Morthens er hér í
banastuði. Gamli Bubbi sem
öskraði barafrekar en pældi.
Þetta er besta plata Utan-
garðsmanna. Þeir lifi, meira
pönk!“
Diddú ásamt
SlNFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Töfrar
★ ★★★★
„Nýi geisladiskurinn með
Diddú er einfaldlega frábær.
Kristján Jóhannsson fölnar
við samanburðinn.“
Maus
Allar kenningar heimsins og
ÖGN MEIRA
★ ★★★★
„Maus sýna það ogsanna að
íslendingar geta rokkað í
þrusu ogþað án þess að
herma eftir Pearl Jam. Ein af
bestu plötum ársins.“
„Aðalheiður lýsir svo eftirminnilega bágum kjörum verkafólks og baráttu fyrir mann-
sæmandi lífi að manni finnst eiginlega miður þegar hún flyst úr landi. Hins vegar fer
ekki svo að ffásögnin halli verri veg eftir þann flutning því í nýju landi hefst barátta
við trúarkreddur og fordóma.a
Vönduð bók
Þorvaldur Kristinsson: Veistu ef
ÞÚ VIN átt - Minningar Aðalheið-
AR HÓLM SPANS
223 BLS.
Forlagið 1994
Þetta er ákaflega vönduð bók.
Þarna segir frá konu sem virðist hafa
meiri áhuga á umhverfi sínu en
sjálfri sér. Það er ágætur kostur og
sérlega heppilegur þegar kemur að
skráningu ævisagna því þá er ekki
svo mikil hætta á að sjálfhverfan
verði ríkjandi.
Aðalheiður Hólm, þessi orð-
heppna og kjarkmikla kona, fékk
ríka réttlætiskennd í vöggugjöf og
tók snemma fullan þátt í verkalýðs-
baráttu. Átján ára gömul var hún ein
af stofnendum Sóknar og varð fyrsti
formaður félagsins. Endi var bund-
inn á baráttu hennar hér heima þeg-
ar hún giftist Hollendingi og flutti
með honum til heimkynna hans. En
þar tók við önnur barátta þar sem
Aðalheimur barðist fyrir því í
ókunnuglegu umhverfi að vera virt
og metin vegna eigin verðleika.
Það má segja að þessi bók sé þri-
skipt. Fyrsti hlutinn segir frá barn-
æsku og uppvexti á Eysteinseyri og
Bíldudal. Annar hlutinn gerist í
Reykjavík og sá síðasti í Hollandi.
Það skiptir ekki máli í hvaða hluta
bókarinnar Aðalheiður er stödd,
henni tekst að draga upp ákaflega
sterkar þjóðfélags- og þjóðlífsmynd-
ir og gera persónur ljóslifandi í huga
lesanda. Þarna kynnist lesandinn
sveitabasli og menntunarþrá ungrar
stúlku, draumi sem fær ekki að ræt-
ast. Hann fræðist um aðbúnað
verkakvenna og vinnukvenna á erf-
iðleikatímum. Reyndar eru kaflarnir
sem lýsa aðbúnaði og aðstæðum
vinnukvenna á reykvískum heimil-
um með þeim bestu í bókinni. Þar
eru hrollkaldar lýsingar á heimi sem
nú er blessunarlega horfinn.
Aðalheiður lýsir svo eftirminni-
lega bágum kjörum verkafólks og
baráttu fyrir mannsæmandi lífi að
manni finnst eiginlega miður þegar
hún flyst úr landi. Hins vegar fer
ekki svo að ffásögnin halli verri veg
effir þann flutning því í nýju landi
hefst barátta við trúarkreddur og
fordóma. Það er erfið- ___________
ur slagur, en eins og
fýrr, brettir þessi dug-
mikla kona upp erm-
arnar og berst fyrir því
sem hún telur sannast
og réttast, því eins og
hún segir sjálf: „Allt
ofstæki stefnir gegn
innstu náttúru
mannsins og hefur
aldrei þjónað öðrum
tilgangi en þeim að
halda aftur af leitandi
huga og þagga niður
spurningar.“
Það er með Aðal-
heiði eins og aðrar
manneskjur, orð
hennar og viðhorfgcfa ||>ORVALD
af henm sonnustu ■' """"..........
Mlnningar
Aðalhelðar Hólm Spans
myndina. Sú mynd sýnir hugrakka
og skynsama konu með sterka rétt-
lætiskennd og sjálfstæðar skoðanir.
Hún segir að í sínum huga byggist
tilgangur lífsins á því: „Að vera heil
og einlæg, trú
tilfinningum
sínum og
dýpstu sam-
visku, að vera
manneskja
með öðrum manneskjum af fullu
heillyndi. Þetta er það sem máli
skiptir. Það er svo önnur saga að
mér hefúr þótt það ærið dagsverk að
standa við þetta og stundum nokk-
uð erfitt.“
Þorvaldur Kristinsson skráir
þessar minningar og mér finnst
ástæða til að hafa orð um þátt hans í
þessu verki. Þetta er fyrsta bók hans
og ég ætla að vona að hún verði ekki
sú síðasta. Þorvaldur er greinilega
næmur stílisti og hann á mikið lof
skilið fyrir þátt sinn í þessu verki.
Það er ekki oft sem svo vel skrifúð
ævisaga rekur á fjörur.
Ákaflega vel skrifuð ævisaga
konu sem á sínum tíma stóð
framarlega í verkalýðsbarátt-
unni hér á landi en fluttist síð-
an til Hollands. Sterkar þjóð-
lífsmyndir og Ijóslifandi per-
sónur birtast á síðum bókar-
I Kolbrún Bergþórsdóttir
Debbie Blyden
eróbikkþjálfari
„Við verðum hjá fjölskyldu mannsins míns fyrir norðan,
á Kristnesinu. Þetta er fyrst og fremst hátíð barnanna
og við munum eyða eins miklum tíma og við getum
með þeim. Ég veit ekkert um það hvað við fáum að
borða, tengdamamma hefur ennþá ekkert sagt um
það. Við fengum rjúpur í fyrra, en hún hefur gaman af
að koma okkur á óvart, gera eitthvað nýtt á hverju ári.
Ég hef reyndar komið henni á óvart líka og manninum
mínum, því ég skellti mér í óvænta heimsókn norður um
jólin ‘92, en þá vorum við maðurinn minn að taka saman.
Hann fór norður um jólin eins og venjulega og ég skellti mér
bara á eftir honum án þess að láta nokkurn mann vita,
svona til að kynnast fjölskyldu hans. Það var mjög
gaman. Ég er hins vegar tiltölulega nýfarin að
halda jólin hátíðleg, því ég var vottur Jehóva
þangað til 1990. Þá fyrst þurfti ég að fara
að hugsa eitthvað um jólin, svo þetta er
ennþá nýtt og ferskt fyrir mig og mjög
skemmtilegt.“
Öm Kaiisson
matreiðslumaður
„Ég ætla nú bara að hafa það afskaplega
náðugt. Ég á langt og gott frí yfir jólin,
eina sex daga, því Tjörnin verður lokuð.
Ætli maður lesi ekki eitthvað af bókum,
glápi á sjónvarp og vídeó og svo skreppur
maður væntanlega eitthvað í heimsóknir
til ættingja og vina að góðum og gömlum
sið. Ég veit ekki ennþá hvað ég kem til
með að borða á aðfangadag, það hefur
ekki verið ákveðið ennþá. Ég bý einn og
áður fór ég alltaf til systur minnar á að-
fangadag, en hún er flutt svo langt út á
land núna að ég verð að sleppa því. í stað-
inn ætlum við að hittast nokkrir vinirnir, ætli við verðum ekki þrír eða fjórir, og
elda eitthvað saman og hafa það gott. Eftirminnilegustu jólin eru líklega þau
sem ég hélt hátíðleg í Kristjaníu ‘71. Það var keypt eitt dýrindis jólatré, og því
stillt upp í borðstofunni. Svo var tekið rækilega til í íbúðinni í fyrsta sinn í
langan tíma. Öll gólf voru sópuð, og afrakstur sóperísins notaður sem jóla-
skraut. Rykið var fínasta englahár, og gylltir öltapparnir og álpappírinn reynd-
ust hið ágætasta skraut. Við vorum ákaflega ánægð með þetta tré.“