Helgarpósturinn - 22.12.1994, Page 40

Helgarpósturinn - 22.12.1994, Page 40
[ hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16. 2% 46 I Össur í leit aðfiðrildum í Kólumbíu ’Engir Radíusarbrœður í Sjónvarpinu ■ Skuggabarinn endurvakinn Ös "ssur Skarphéðinsson umhverf- isráðherra sem ásamt eiginkonu sinni, Árnýju Erlu Sveinbjörns- dóttur, sem nýkomin eru úr væg- ast sagt örlagarríkri ferð frá Kól- umbíu, lýsti sér sem eitthundrað kílóa glaðbeittum húmorista í við- tali við MORGUNP- ÓSTINN á dögunum. Svona fyrir utan það að eignast eigið afkvæmi var hann sagður vera að leita að nýju flðrildi í stað þess sem Steingrímur J. Sig- fússon hnuplaði frá honum til þess að gefa nafna sínum Hermanns- syni. Gálgahúmor Össurar var heldur ekki langt undan því hann ku látið hafa þau boð ganga til flokksfélaga sinna uppi á íslandi hvort ekki væri hægt að senda Jó- hönnu Sigurðardóttur til Kól- umbíu. Þar væri nefnilega svo mik- ið af krókódólum... Skuggabarinn á Hótel Borg var fyrr á árum einn helsti griðastaður óminnishegrans hér í Reykjavík, en siðastliðin ár hefur hann hins veg- ar verið lokaður. Nú er loks að verða þar breyting á. Tómas A. Tómasson, sem vakið hefur Hótel Borg til Jífsins að undanförnu, er nú búinn að klassa Skuggabarinn verulega upp og verður hann opn- aður með pompi og prakt fimmtu- daginn 29 desember. Barinn er þó ekki eins skuggalegur og nafnið gefur til kynna og munu innrétt- ingarnar vera sérlega glæsilegar, en þær hannaði Ingibjörg PAlma- dóttir. Veg og vanda af starf- rækslu barsins hafa þeir Pétur Ottesen og Ingvi Týr Tómasson, en sér til fulltingis hafa þeir fengið súperbarþjóninn Ingva Steinar Ólafsson, sem til skamms tíma stýrði barnum á Ingólfscafé... Nú I ú styttist til áramóta og margir farnir að hugsa sér gott til glóðar- innar í gleðskaparmálum. Flestir skemmtistaðir hafa opið til fimm á nýársnótt, en á Kaffibarnum við Bergstaðastræti verður aftur lokað á gamlárskvöld. Þar á bæ hafa menn hins vegar tekið höndum saman við Ingólfscafé og ætla að halda mikið og exklúsíft ball, þar sem PAll Óskar og milljónamær- ingarnir leika undir dansi. Ýmsar fleiri uppákomur munu fyrirhug- aðar, en aðstandendurnir eru þögl- ir sem gröfin. Það sem gerir áramótadansleik þennan þó öðrum ólíkum er sú staðreynd að miðarnir verða víst ekki seldir á opnum markaði heldur boðnir útvöldum hópi mögnuðustu samkvæmisljóna bæjarins... yrirhugaðir sjónvarpsþættir Radíusbræðr- anna Davíðs ÞÓRS JÓNSSONAR og Steins Ár- MANNS MAGNÚS- SONAR hafa verið flautaðir af í bili. Þetta eru nokkur vonbrigði þeim sem vildu sjá ný- sköpun í sjónvarpsgríni en Svein- björn I. Baldvinsson, foringinn í innlendri dagskrá Sjónvarpsins, telur sig ekki hafa nauðsynlegt fjár- magn. Hann tekur greinilega ekki mið af orðum forvera síns, Hrafns Gunnlaugssónar, í bókinni Krummi, en þar segir Krummi eitt- hvað á þá leið að það sé í sjálfu sér ekkert að þvi þó það sé smá skulda- hali í gangi. Það sýni þó alla vega að það sé eitthvað í gangi... J. ískusýningar eða alls kyns skrautlegar uppákomur virðist nánast það eina sem heldur lífl í þeirri hörðu samkeppni sem skemmtistaðirnir Ingólfscafé, Kazablanka og Tunglið eru í um þessar mundir. Með örfárra helga millibili hafa Snorrarnir; Einar og Eiður troðfyllt að minnsta kosti tvo þessara skemmtistaða með ljósmyndasýningum, tískusýning- um og með’í, eins og þeim er ein- um lagið. Um helgina ætlar Svenni ljósmyndari og Beysi kokkur að freista þess að slá tvær flugur í einu höggi og halda ljósmyndatískusýn- ingu. Með öðru orðum ætla þeir að halda slædsmyndatískusýningu á tvisvar sinnum þriggja metra tjaldi og sýna þar 140 myndir. Sýningin er byggð á grunni tölvukerfis sem er flóknara en svo að hægt sé greina frá því í stuttu máli... Morgunpósturinn kemur næst út fimmtudaginn 29. desember og svo mánudaginn 2. janúar. Allt stefnir í það að Sniglaveislan verði söluhæsta skáldsaga síð- ustu áratuga á Islandi. Er komin 111 þúsund eintök frá útgef- anda og tveir sölumestu dagarnir fara í hönd. Ólafur Jóhann hefur einnig gengið ffá leikriti sem verður sýnt í Borgarleikhús- inu á næsta leikári Kvörnin malar hj á Ólafi Jóhanni Eins og sjá má inni í blaðinu er Sniglaveisla Ólafs Jóhanns Ólafs- sonar efst á lista bókabúðar Ey- mundssonar og hefur haldið sínu striki frá því að'jólabókasala hófst. I hönd fara tveir sölumestu dagar ársins og Ólafur Ragnarsson, út- gefandi hjá Vöku-Helgafell segir allt stefna í að Sniglaveislan verði söluhæsta bók síðustu áratuga. Hún er þegar komin í 11 þúsund frá útgefanda sem er meira en síðasta bók Ólafs Jóhanns, Fyrirgefning syndanna, fyrir nákvæmlega þrem- ur árum síðan, en hún hefur selst í 13 þúsund eintökum hérlendis. Ól- afur Ragnarsson segir þetta hafa verið mjög stöðugur stígandi í sölu höfundarverka Ólafs Jóhanns, Níu lyklar fór í 6 þúsund eintökum og Markaðstorg guðanna í 9 þúsund. „Núna er verið að þýða Sniglaveisl- una yfir á ensku samkvæmt óskum erlendra forlaga. Það er spennandi að koma íslenskum bókmenntum út íyrir landhelgina og ég hef trú á að hún eigi eftir að sigla í kjölfar Fyrirgefningarinnar," segir útgef- andi Ólafs Jóhanns en MORGUN- PÓSTURINN náði tali af honum í gærkvöldi, en Ólafur Jóhann kom til landsins frá New York í gær- morgun. „Maður verður að fá slabb og hálku fyrir jólin,“ segir hann. Hefurðu eitthvað náð að fylgjast með þessum bókaslag? „Ég hef verið í bölvuðum látum vestra þangað til ég kom heim en ég er alltaf í sambandi við nafna minn og hann hefur látið mig fylgjast með. Aðallega það sem hefur farið út úr húsi í samanburði við Fyrir- gefninguna. Þetta er eins og sjó- mennska, maður er settur í að fylgj- ast með aflabrögðum.“ Ólafur segir það koma sér nokk- uð á óvart að Sniglaveislan ætli að slá Fyrirgefninguna út og segir að- spurður að það sé vonandi ekki Ólafur Jóhann Ólafsson áritar Sniglaveisluna í Kringlunni í gær en hann kom til landsins frá New York í gærmorgun. ir jafnframt að hann hafi meiri ánægju af einfaldari uppfærslum þar sem lagt er mikið í persónurnar og þann texta sem þeim er lagður í munn. „Ég er, ekki mikið fyrir show, ég held að bíómyndin sjái betur um showið en leiksviðið sem er hætt að geta keppt við viðamikl- ar bíómyndir með hoppi og híi.“ Ólafur segist kunna bridge en vera lélegur og tapi oítast því hann sé of sagnaglaður þó að hann noti íþrótt- ina sem ramma um nýja leikritið. Það er nokkur skyldleiki með Fjór- um hjörtum og Sniglaveislunni og þegar eru einhverjar hugmyndir farnar að sulla í höfði hans, „mér líður lang best þegar ég er að vinna að einhverju. Þá er kvörnin eitt- hvað að mala.“ JBG hætta á að þetta stigi sér til höfuðs, segir að sér leiðist mont og vonist til að það gerist ekki með sig. „Það er nýtt tilverustig þegar bókin fer af borðinu hjá manni sjálfum og í hendur á lesendum og ég neita því ekki að það er alltaf skemmtilegra ef það framhaldslíf er á þennan hátt.“ Ólafur Jóhann var að leggja loka- hönd á sitt fyrsta leikrit sem hann kallar Fjögur hjörtu og er fyrirhug- að að fari á íjalir Borgarleikhússins á næsta leikári. Það fjallar um fjóra karla urn sjötugt sem eru að spila bridge og Ólafur segist hafa haft ákveðna leikara í huga þegar hann skrifaði það. „Sem strákur lá ég oft og hlustaði á útvarpsleikritin og er svona að hneigja mig fyrir þessu gamla leikaralandsliði.“ Ólafur seg- Veðrið í dag: Suðvestan kaldi eða allhvasst með skúrum eða slyddu- éljum sunnanlands og vestan en annars þurrt að mestu. Hitastigið verður á bilinu frá 2 stiga frosti til 4 stiga hita. Horfur á Þorláksmessu: Suðvest- læg átt. Él sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands. Frost 0 til 5 stig. Horfur á aðfangadag: Suðvestiæg eða breytileg átt og víða él. Frost 1 til 6 stig. Horfur á jóladag: Snýst til norð- austlægrar áttar með snjókomu eða éljum norðan- og austanlands en léttir smám saman til suðvestan- lands. Frost 1 til 8 stig. Hefur Jakob Magnússon staðiðsigvelsem menningaifulltrúi? Veðrið um helqina Greiddu atkvæði 39,90 krónur mínútan Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á spurn- inguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu þínu. Kvöldið fyrir næsta tölublað verður síðan talið upp úr Kjörkass- anum og niðurstöðurnar birtar í MORGUNPÓSTINUM að morgni. Hvítjól osbjartur jólaaagur y Veðurútlitið yTír hátíðarnar lofar góðu, að minnsta kosti á sunnan- og vestanverðu landinu. „Veðurútlitið er jólalegt fýrir minn smekk og ég vona að þessi spá rætist,“ segir Bragi Jónsson, veðurfræðingur. „Það lítur út fyrir að það verði él víðast hvar á aðfangadag og létti svo til á jóladag hérna hjá okkur suðvest- anlands. Þannig að við ættum að fá hvíta jörð og bjart og fallegt veður. En gert er ráð fýrir að það haldi áfram að snjóa fýrir norðan og austan.“ Fólk ætti að klæða sig vel áður en það fer í verslunarleiðangur á Þorláksmessu og huga sérstaklega vel að skóbúnaðinum. Þá er búist við snjókomu sunnanlands og vestan og því hætt við að hitalagnirnar á Laugaveginum hafi ekki undan og slabb verði á gangstéttunum. Þeir sem eru á seinni skipunum fá snjó- inn einnig yfir sig fýrir hádegi á aðfanga- dag. Þá ættu trén að svigna undan snjón- um og umhverfið klæðast jólabúningn- um. Á jóladag má búast við frábæru úti- vistarverði, nokkuð köldu, en björtu og stilltu veðri. Göngutúr í kirkjugörðununi bætir meltinguna eftir jólasteikina og kemur huganum í ró eftir alla pakkana. Opnunartími bara og búða Búast má viö því að verslunarfólk verði lúið á aðfangadag, sæki það skemmtistaðina eítir lokun búðanna, en opið er á nánast öllum skemmstöðum og börum bæjarins til þrjú aðfaranótt að- fangadags, enda föstudagskvöld. Lauga- vegurinn og Kringlan hafa tekið höndum saman um að hafa búðirnar opnar til tíu í kvöld, elleíu að vanda á Þorláksmessu og frá níu til tólf á aðfangadag. Sjoppur munu hins vegar verða opnar aðeins lengur; ýmist til tvö eða fjögur, eítir því sem MORGUNPÓSTURINN kemst næst. Eins gott er að mata sig þokkalega fyrir helgina því flestar matvöruverslanir leggjast á eitt með að hafa lokað á þriðja í jólum. Barir og skemmtistaðir verða hins vegar lokaðir frá og með þrjú á föstu- dagsnótt fram á annan í jólum. Barir ku opna sídegis, eða um sexleytið og allir skemmtistaðir verða með hefbundinn „annaníjólum" dansleik frá og með tíu. Allt lítur því út fýrir að mikil gleðijól séu framundan. Þá má geta þess að einstaka hótel verður opið með fýrir mat um jól- in, ýmist morgunmat og/eða kvöldmat, eins og til dæmis Hótel Saga og Hótel Loftleiðir. Hjálpræðisherinn verður svo að venju opinn þeim sem ekki eru tengd- ir íslensku stórfjölskyldunni með einum eða öðrum hætti; eða opinn þeim vina- fáu og snauðu. GK r / Hlustum allan sólarhringinn 2 1900

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.