Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 11
[FIMMTODWGOR'gST ÍMtfáMm 11 Neytendur og dílerar eiturlyfsins alsælu bera efninu góða sögu í viðtali við PÓSTINN. Af lýsingum krakkanna á neysluvenjum, vímunni og leiðum til að nálgast efnið virðist eftirsókn í E-pillurnar mikil og meiri en nokkru sinni. Er alsæla ávísun á ást, frið og hamingju 9. áratugarins, eða banvæn stundarsæla? Kristján Ingi Kristjánsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar. Virðist vera í mikilli aukningu Ólafur Ólafsson landlæknir Með fræðslu- átak í gangi „Andlitið breytist, verður frísklegt, gljáandi og brúnt. Var- irnar verða eldrauðar, tennurnar hvítar og augun stór og björt. En þegar fer að líða á vímuna verð- urðu kinnfiskasoginn og augn- lokin þyngjast. Húðin breytist þannig að hún verður mjúk og teygjanleg og æðarnar koma í gegn. Það er mjög skrítið að vera edrú og koma við manneskju á E- i, þú finnur svo sterklega fyrir beinunum og æðunum í henni. Þegar þú ert aftur í vímu þrengj- ast háræðarnar í puttunum og þú verður ofsalega næmur á allt sem þú kemur við. Ég til dæmis fór að nudda á mér eyrað einu sinni og áttaði mig ekkert á því að þetta væri eyrað á mér, mér fannst ég finna allt inní heila. Maður fær yfirleitt einhverja kæki í vímunni eins og í gær fékk ég eitthvað í tærnar þannig að ég var að kreppa þær allt kvöldið. Það er voðalega misjafnt hvernig þetta fer í fólk, sumir kannski gefa frá sér undarleg hljóð allt kvöldið eða eru með einhvern áberandi kæk eins og að bretta uppá varirnar á sér.“ SIUÝST ALLT UM E-KVOLDIM Þegar blaðamaður spurði þær hvort þær væru ekkert hræddar við að taka inn einhverja töflu, sem þær vissu ekkert hvað væri í eða hvernig hún virkaði, neit- uðu þær því og sögðu að töflurn- ar væru auðvitað mismunandi áhrifaríkar en það versta sem gæti gerst, væri að það gerðist ekki neitt. „Það var rosalega gott E í gangi um daginn, töfiur með jarðarberjabragði, núna eru þær aftur súrar. Það besta sem er í gangi í dag er hreint kóla (kóka- ín), alveg tandurhreint. En E-ið er ekkert hættulegt það er bara gott, gott, gott. Það hefur rosal- eg áhrif á ástarlífið í heilanum. Það opnast fyrir „love and happiness“-hólfið í hausnum á manni og maður fer að elska manneskju sem maður kannski þolir ekki venjulega. Það er samt algjör vitleysa að það sé eitt- hvert kynsvall í kringum þetta, það nær ekki svo langt. Ljótasta fólk og leiðinlegasta verður al- veg yndislegt," segja þær ánægð- ar og vilja meina að þær séu ekki háðar efninu, nema þá kannski helst félagslega. „Ef ég ætti fimmtíu þúsund kall myndi ég kaupa E fyrir allan pen- inginn. Eg kaupi frekar E en flott- an kjól til dæmis og geng þá bara í druslunum. Þetta heltekur mann þótt maður vilji ekki viður- kenna það, bæði peningalega og svo snýst allt manns líf um E- kvöldin. Ég gæti þó alveg sleppt þessu ef mig langaði en mig bara langar ekki,“ segja krakkarnir og halda áfram að lofa efnið. „Maður þarf lítið að pæla í hlutunum þegar maður er á E-i, maður verður svo skýr og greindur og skilur allt svo vel. Það verður allt svo satt sem maður segir. Það er eitthvað annað en hjá þessu fyllerís-pakki sem er röflandi leiðinlegt og í sí- felldum slagsmálum. Það eru aldrei nein slagsmál í okkar hópi, kannski helst ef eitthvert dauðadrukkið fólk er að abbast upp á mann. Maður vill bara losna við það.“ Kannist þið við dauðsföll af völdurn neyslu á alsœlu? „Nei, við vitum ekki til þess að það hafi gerst.“ En alvarleg veikindi tengd neyslunni? „Engin sem við getum tengt al- sælu beinlínis. En við höfum ver- ið með fræðsluátak í gangi, í samvinnu við lögregluna, í fram- haldsskólunum og reynt þannig að upplýsa krakkana um hætt- urnar sem fylgja notkun efnis- ins.“ ■ DAMSAÐ VK> DAUÐAMM Nýlega birtist grein í erlendu tímariti sem fjallaði um dauðs- föll af völdum esctacy-neyslu í Bretlandi. Efnið hefur þau áhrif að neytandinn skynjar ekki boð líkamans, eins og krakkarnir lýstu, og áttar sig því ekki á hungurtilfinningu, þorsta, hita og sársauka. Getur það leitt til þess að líkamshiti neytandans hækkar upp úr öllu valdi og hreinlega sjóði líffærin. Neyslu- venjur efnisins stuðla einnig að því þar sem efnið er oft tekið inná klúbbum þar sem mikið er dansað og loftræsting lítil. Þegar krakkarnir voru spurðir að því hvort þau þekktu dæmi um dauðsföll af þessum völdum hérlendis kom hik á þau. „Ég kannaðist við eina stelpu, sem dó á útihátíð á Eldborg fyrir tveimur árum eftir að hafa tekið E. Hún var búin að dansa of mik- ið. Annars hefur maður frekar heyrt af fólki sem hefur farið út og verið á E-i í tólf daga í einu og þurft að láta sprauta sig niður. Það er enginn á E-i svo lengi hérna heima. Það er líka ekki verið að bjóða manni eitthvað rugl hérna eins og stundum úti í London, þar sem maður fær bara magnyl eða einhverjar aðr- ar töflur. Það er ekki hægt að bjóða manni svoleiðis hér, efnið verður að vera gott því það þekkjast ailir og það kemst eng- inn upp með að selja eitthvað drasl. Við erum ekkert hrædd við þetta, því við pössum okkur. Og það er bara þannig að ég fer ekkert á djammið án þess að eiga E, viltu prófa?“ ■ „Ég hefaldrei fariö útsjálfur að ná í efni, það eru sér- stök burðar- dýríþví. Maður tekur ekki svoleiðis sénsa." „ Við erum ekkert að flýja raunveruleik- ann heldur að gera hann bjartari og skemmtilegri. Maður verður allursvo alsæll eftir að hafa tekið þetta, fullur af„love and happi- ness" þótt maðurgeti orðið rosalega þunglyndur þegar maður kemur niður."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.