Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 12
Igær skrifaði varn-
arjaxlinn Finnur
JÓHANNESSON Und-
ir samning við hand-
knattleikslið Selfoss.
Samkvæmt heimild-
um blaðsins fékk
Finnur splunkunýjan
jeppa af gerðinni
Toyota RAV4, að
verðmæti um það bil
tveggja milljóna
króna, við undir-
skrift samningsins.
Eitthvað virðist því
handknattleiksdeild
Selfoss vera að rétta
úr kútnum en allt leit
út fyrir að hún yrði
tekin til gjaldþrota-
skipta á síðasta ári.
Þess má geta að bíll-
inn mun vera hugs-
aður Finni til hægð-
arauka í vetur þegar
hann þarf að brjótast
austur fyrir fjall á æf-
ingar...
ÓDÝRASTI HAPPDRÆTTISMIÐINN
A LANDINU
Taktu þátt í léttum leik!
Ef heppnin er með þér vinnur þú
Benidorm-ferð fyrir tvo með
Heimsferðum í sumar.
Það eína sem þú þarft að gera er að svara laufléttri
spurningu og senda svarið til
Mánudagspóstsins að Vesturgötu 2.
Rétt svör fara í pott sem dregið verður úr í byrjun júní.
Nafn vinningshafans verður birt í
Mánudagspóstinum 12. júní.
Næsta mánudag, 29. maí, birtist önnur spurning í
Helgarpóstinum og með því að svara henni einnig eykur
þú vinningslíkur þínar um helming.
Spurningin í dag er:
Hvort er sunnar, Benidorm eða
Barcelona?
Vikuferð
til
Benidorm
Sólin skín í um 300
daga á ári á
Benidorm-ströndinni.
Hún er ein fegursta
strönd Spánar og þar
er einstök veðursæld.
Hér má finna
merkilegan
menningararf síðustu
alda, heillandi bæi
með arabískum
áhrifum sem nú eru
undirlagðir
listamönnum.
Verðlagið á Benidorm
er með því lægsta af
öllum áfangastöðum á
Spáni. Þar er því hægt
að njóta lífsins á
fjölmörgum
veitingastöðum -
frönskum, ítölskum,
spánskum og að
sjálfsögðu er mikið
úrval af amerískum
skyndibitastöðum á
Benidorm.
Næturlífið er kröftugt.
Það er enginn staður
á Spáni sem hefur
jafn marga
skemmtistaði á jafn
litlum bletti - diskótek
af öllum stærðum og
gerðum, fjöldi bara og
veitingahúsa með
lifandi tónlist.
j Nafnið þitt:_____________
i Heimilisfang:____________
J Póstnúmer:_______________
I Setjið í umslag og skrifið utan á:
Símanúmer:______
Ferðahappdrætti
Mánudagspósturinn
Vesturgötu 2
101 Reykjavík
Framsalsbeiðni á Tryggva Bjarna áfram í skoðun
Interpol segir
Ikyggva Bjama
erai í hakli
100 dagar frá framsalsbeiðninni
Fyrir milligöngu Interpol feng-
ust þau svör á mánudaginn frá
Portúgal að framsalsbeiðni ís-
lenskra stjórnvalda á Tryggva
Bjarna Kristinsson væri þar enn til
meðferðar. Dómsmálaráðuneyt-
ið sendi fyrirspurn í gegnum Int-
erpol þar sem ekkert hafði frést
af málinu frá því að það var sent
þann 14. febrúar síðastliðinn. í
svarbréfinu kemur fram að
beiðnin hafi borist til Portúgal og
sé enn til meðferðar.
Nú eru liðnir 100 dagar síðan
beiðnin um framsal var send
héðan en upphaflega gáfu stjórn-
völd í Portúgal sér 50 til 80 daga
til þess að fara yfir og svara fram-
salsbeiðninni. Nú loks, með eftir-
gangsmunum, fást þau svör að
málið sé í skoðun en í bréfinu
kemur ekki fram hvenær málinu
muni ljúka.
Menn voru farnir að óttast að
Tryggvi Bjarni væri genginn
þeim úr greipum því síðast þegar
fréttist var aðeins vitað að hann
ætti að vera í gæsluvarðhaldi út
febrúarmánuð. Reyndar höfðu
portúgölsk yfirvöld sagt að hon-
um yrði haldið þar til niðurstaða
fengist í framsalsbeiðnina. í bréfi
Interpol kemur hins vegar fram
að hann sé enn í haldi og verði
það til 1. júlí hið minnsta og jafn-
vel til 15. september ef mál hans
frestast yfir sumarfrí en Tryggvi
Bjarni bíður dóms í Portúgal.
Þetta er í annað sinn sem íslensk
stjórnvöld krefjast framsals að
Norðurlöndunum frátöldum.
Framsalsbeiðnin er tilkomin
vegna hasssmygls í haust þegar
tveir Bretar og þrír íslendingar
voru hnepptir í gæsluvarðhald.
Talið var fullvíst að Tryggvi
Bjarni hefði útvegað þessum hóp
fíkniefni frá Spáni um árabil.
Tryggvi Bjarni hefur 15 sinnum
verið dæmdur til fangavistar
samtals í 7 ár, hann hefur 21
dómssátt á bakinu auk þess sem
hann hefur í þrígang verið svipt-
ur ökuleyfisréttindum ævilangt.
Tryggvi Bjarni hefur 18 sinnum
gengist undir dómssátt fyrir
fíkniefnabrot og tivsvar var hann
dæmdur fyrir fíkniefnamisferli,
60 daga fangelsi í hvort skipti.
Tíu sinnum hefur hann verið
dæmdur fyrir auðgunarbrot ým-
iss konar, skjalafals, þjófnað og
fíkniefnabrot, samtals í 69 mán-
aða fangelsi. Þá hefur hann sex
sinnum hlotið dóm fyrir ölvuna-
rakstur og tvisvar fyrir réttinda-
lausan akstur. Auk þess var hann
dæmdur í fyrrasumar á Spáni fyr-
ir ofbeldi gegn fyrrum eiginkonu
sinni og bíður nú dóms í Portúgal
fyrir fíkniefnamisferli.
-pj
Bergþóra Guðmundsdóttir
refsifangi. Fangar í kvenna-
fangelsinu í Kópavogi fá
væntanlega eitthvað að
gera fljótlega.
Fá. að troða
tvist í poka
„Ég hef ekki þurft að hafa mikil
afskipti af fangelsismálayfirvöld-
um eftir að greinin birtist og því
ekki orðið vör við nein eftirmál
vegna hennar," segir Bergþóra
Guðmundsdóttir, 34 árá refsifangi í
hinu svokallaða kvennafangelsi í
Kópavogi. í viðtali í PÓSTINUM
þann 4. maí síðastliðinn gagn-
rýndi Bergþóra fangelsisyfirvöld
harðlega og sagði fanga geymda
„eins og hveitipoka", því einungis
tvö stöðugildi væru í boði innan
veggja fangelsjsíns í Köpavogi og
meirihluti fanganna sætu því að-
gerðalausir. Bergþóra hefur verið
föst í neti áfengis- og fíkniefna-
neyslu um árabil og fjármagnaði
hún neyslu sína með ýmsum
smáglæpum. Gagnrýndi hún
einnig fangelsisyfirvöld fyrir að
engin hjálp væri í boði innan
fangelsismúranna fyrir fanga sem
vilja vinna bug á fíkniefnavanda
sínum.
„Ég er að fara að sækja um
reynslulausn á helming og þá
kemur væntanlega í ljós hvort
gagnrýni mín hafi einhver eftir-
mál,“ sagði Bergþóra á fimmtu-
dag. „Ef greinin hefur einhver
áhrif á reynslulausnina þá læt ég
heyra í mér og einnig finnst mér
rétt að það komi fram í fjölmiðl-
um ef tekið verður vel í hugmynd-
ir okkar um að fá að afplána hluta
dóma okkar í langtímameðferð í
Krísuvík. Við erum tvær hérna
sem erum að ræða við hjúkrunar-
fræðinginn, lækninn og prestana
um möguleika á að taka út hluta
afplánunarinnar þar.“
Að sögn Bergþóru er útlit fyrir
að fljótlega rætist að einhverju
leyti úr aðgerðaleysi fanganna í
Kópavogi.
„Það er í bígerð að hefja vinnu
hérna fyrir Shell við að setja tvist
í poka og eitthvað svona. Það gef-
ur okkur allavega tækifæri til að
gera eitthvað." -lae.
t