Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 15
FI MMTuDAGu R’257M'A IfejFirirB ins hefur sá orðróm- ur verið á kreiki að SVEINBJÖRN BALDVINS- SON dagskrárstjóri hafi viljað leggja þáttinn niður og nota kostnaðinn við gerð þáttanna til annars en drjúgur hluti fjárveitingar til innlendrar dagskrár- gerðar fer í Dagsljós. Þessu hefur verið mætt með mikilli andúð af Pétri Guð- finnsyni, fram- kvæmdastjóra Sjón- varpsins, og því hafi Sveinbjörn dregið í land með þessa ákvörðun sína. Þess í stað hafi hann tekið þá ákvörðun að hætta með Hemma Gunn til að losa ein- hverja peninga til annarrar dagskrár- gerðar, sem var í lág- marki undanfarinn vetur. Sveinbjörn viðurkennir að breytingar séu fyrir dyrum við gerð Dagsljóss en neitar að hann hafi ætlað að leggja niður þátt- inn og fórnað Hemma þegar hann mætti andstöðu við þá ákvörðun sína. Einnig bjuggust margir við að ein af grundvallarbreyting- unum á Dagsljósi yrði að láta SlGURÐ Valgeirsson, rit- stjóra þáttarins, fara en Sveinbjörn segir að hann verði áfram með Dagsljós í haust... hafa neitt skap í það sem hann var að gera, heldur lét hann það hlaupa með sig í gönur og gerði gloríur. Þá benti maður við hlið- ina á mér á (ég tek það fram að ég horfði á leikinn á pöbb, enda strákur), að Patti væri bara 22 ára. Þá sagði maðurinn hinum megin við mig að hann væri jafn gamall og Kóreumaðurinn sem vár að skora tíunda markið sitt gegn okkur. Þá áttaði ég mig á að það væri ekki hægt að bera þetta saman. í Kóreu verða menn ábyggilega fullorðnir sextán ára, eins og tíðkaðist hér á árum áður. ísland í dag er orðið svipað og öll vest- urlönd og þar er fólk börn og unglingar fram eftir öllum aldri. Það er að koma upp kynslóð for- eldra sem losnar ekki við börnin sín að heiman. Og ef þau loksins fara þá líður yfirleitt ekki á löngu áður en börnin eru búin að hafa af þeim húsin með því að láta þá skrifa upp á pappíra sem þau kunnu ekki að borga af. Þegar ég var úti í Svíþjóð fyrir fimmtán árum þá hló ég mikið af að sjá börn að leik með hjálma. Mér fannst þetta yfirgengiíeg of- verndun og vorkenndi börnun- um, foreldrunum og landinu. Nú yrði ég ekki hissa þótt ég sæi við- skiptanema á fyrsta ári ganga yf- ir Hringbrautina með hjálm og nesti frá mömmu í tösku á bak- inu. Og það er ekki nóg með að for- eldrar framlengi æskuna hjá börnunum með því að ofvernda þau, heldur lifum við í svo gegndarlausri æskudýrkun að þegar unglingarnir loksins reyna að fóta sig sjálfir gera þeir allt sem í þeirra valdi stendur til að viðhalda æskunni. Og það er líkast til þess vegna sem við Michael höfum ekkert nema gamlar myndir til að gefa okkur hugmynd um hvernig eitt- hvað sem er tuttugu og fimm get- ur verið kona. Og það er þess vegna sem við klæðum og hegð- um okkur eins og strákar þótt við séum farnir að grána. Það þarf náttúrlega ekki að deila um hvort hugsanlegt sé að þessi æskuþrá hafi gert okkur Michael hamingjusamari. Því til vitnis er volið í okkur báðum. ■ ■■ ■okkrar breyt- Íll ingar eru fyr- ■ U irhugaðar á umgjörð og innihaldi Dagsljóss næsta vet- ur. Innan Sjónvarps- velja hálf-miðaldra- strákahlut- verkið. Þessar leikkonustelpur sem Mi- chael minn var að kvarta yfir hafa verið miklar hetjur í öðrum grein- um sem hafa fjallað um eitthvað sem blaðamenn hafa kallað „girlie“. Þessir blaðamenn þóttust hafa uppgötvað að upp væri risin ný kynslóð kvenna sem gæfi skít í hefðbundna kvennabaráttu, held- ur heimtaði bara að fá að vera stelpur eins lengi og þær vildu. Al- veg eins og strákarnir. Og lífs- mottó stelpnanna eru svipuð og draumaheimur strákanna, að skemmta sér mikið, dufla, drabba og daðra. (Hardcore-stelpur orða þetta náttúrlega miklu dónalegra en ég treysti mér til, en það er önnur saga.) Madonna er náttúrlega mikil gyðja í þessum greinum og jafnvel líka Courtney Love. Og við hliðina á þessum kjarnorkubombum er vanalega stillt upp einhverjum stelpum frá Hollywood; Drew Barrymore, Juliette Lewis og meira að segja henni Winonu litlu Ry- der. Og þá ætti fjandinn hann Mi- chael að vera búinn að hitta ömmu sína, sem einfaldlega vill ekki vera kona heldur stelpa. Mi- chael karlinn hélt að þetta mál kæmi sér og pabba hans eitthvað við, að þetta snerist eitthvað um kvenímyndir þeirra tveggja. Málið var hins vegar að ungu konurnar höfnuðu Ritu Hayworth eins og hún birtist á hvíta tjaldinu en kusu frekar að verða eins og hún í einkalífinu — strákur. Ingrid Bergman var 26 ára og fáguð í Casa- blanca á meðan Julia Roberts virtist fákunn- andi í The Pelican Brief. STRAKARIUIR VERÐA AÐ KOIUUM En áður en ég vorkenni honum Michael meira út af þessari hlið málsins ætla ég að vorkenna hon- um út af annarri hlið þess. Ég er nefnilega alltaf að heyra af fleirum og fleirum íslenskum körlum sem fóru á norrænu karlaráðstefnuna um daginn. Það getur nefnilega verið að ég hafi logið á hann Michael base- ball-húfunni áðcm. Ef til vill er hann enginn strákur og er fyrir löngu búinn að koma sinni húfu ofan í kjallara. Ef til vill les hann uppi í rúmi á kvöldin langar skýrslur um það hversu erfitt það er að vera karlmaður. Um að karl- ar drepi hvern annan, að þeir séu alltaf að verða sér að fjörtjóni í slysum, að þeir séu stressaðri, að þeir lifi styttra en konur og séu því veikari fyrir. Veikara kynið. 22 áravarWinona Ryder ósköp sæt í Reality Bites - einu ári eldri Ava Gardner orðin hættulega glæsileg í The Killers. Á sama tíma og ungu konurnar hans Michaels hafa hafnað öllum kenningum kvennabaráttunnar um hin mjúku, kvenlegu gildi og kosið að gerast hálfgerðir strákar, getur vel verið að Michael trúi þeim og reyni jafnvel að taka mið af þessum gildum. Eins og ungu mennirnir sem fóru á kvennaráð- stefnuna, þá situr hann á strák sínum, fyllist ábyrgð í stað kæru- leysis, veltir fyrir sér hvernig börnunum vegnar í skólanum en reynir að gleyma strákunum okk- ar í landsliðinu og KR. Þetta myndi náttúrlega gera stöðu Micaels miklum mun verri en lesa mátti af grein hans. í raun má segja að hann sé orðinn að hinni ábyrgu, 19 ára reyndi Drew Barrymore að leika í Bad Girls - á sama aldri var Elizabet Taylor Rebecca í ívari hlújárn. ungu konu sem hann ! saknar svo i mjög og stelp- urnar stokkn- ar í strákahlut- i verkið sem hann skildi eft- ir. Og ef til vill er hann sjálfur líka ástæðan fyrir því að ungu konurnar urðu að strák- um. Alveg eins og pabbi hans gat ekki elskað ungu konuna nema vegna þess að hann var strákur inn í sér þá geta ungar konur ekki elskað konur eins og Michael nema vegna þess að þær eru strák- ar. Þannig sann- ast það á Michael, sem allir vita, að við erum sjálf upphafið og end- irinn af öllum vanda okkar — alla vega þeim sem á heima í sálinni og pungnum. 19 ára var Lauren Bacall sprungin út sem kona í To Haveand Havenot- Juliette Lewis var á sama aldri að springa af barna- skap í Natural Born Killers STELPUR ERU VITLAUSAR En þessar vangaveltur mínar um hann Michael bættu mína líð- an svo sem ekki neitt. Ég var enn- þá dálítið stúrinn yfir að hafa misst ungu konuna sem Michael benti mér á að ég hefði hugsan- lega geta eignast. Mér er alveg sama þótt Courtney Love finnist Rita Hayworth vera hálfgerð Iuðra í Gildu. Mér fannst og finnst enn að hún sé helvíti töff. Og ég er alveg sammála Michael um að maður trúi því frekar að hún sé vís með að gera það í alvörunni sem hún gerði í myndinni heldur en að maður kaupi það að stelpu- hnátan hún Sandra Bullock hafi í alvöru verið að keyra strætó í Speed. Og það er auðvitað eitt- hvað hlægilegt við að þær tvær skuli vera jafngamlar í þessum hlutverkum. Ég hefði trúað því að Rita hefði getað drepið menn bæði andlega, líkamlega, sálar- lega, félagslega og kynferðislega sem Gilda en ég myndi ekki einu sinni treysta Söndru til að aka ve- spu. Þær stelpulegustu af stelp- unum okkar eru nefnilega svo stelpulegar að þær eru fremur reynslulausar en töff, kjánalegar en veraldarvanar. Og hver kaupir að Julia Roberts geti verið svo snöll í Pelican Brief að hún leysti ein og sér flækju sem var svo flók- in að þeir sem stóðu á bak við hana skildu hvorki upp né niður í heila dæminu? En kannski er þetta misskiln- ingur í okkur Michael. Kannski geta svona stelpukjánar ýmislegt. Gallinn er bara sá að við tveir er- um frekar óvanir svona stelpum komnum á miðjan aldur og gleymum því að á bak við stelp- una býr fullmótuð kona. Að við þekkjum ekki svoleiðis gripi nema þeir séu pakkaðir inn í silki og skreyttir með demönt- um helst. En þó að þetta sé freistandi skýring þá hallast ég frekar að annarri. ÆSKUÞRA Þegar ég var að horfa á handboltaliðið okkar heitið um daginn var ég að bísnast eitthvað yfir Patreki Jóhannes- syni. Mér fannst hann ekki

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.