Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 6
'FIMMTUD,A'GURW2'5‘ ffi felldasta frétt vikunnar LÖGGILD SLAG3- MALI EYJUM Ógeöfelldasta frétt vik- unnar er að vanda í Tím- anum. Þar er greint frá því að líkamsárásir eru helmingi fleiri í Vest- mannaeyjum í ár heldur en síðustu ár og er þó árið enn ekki hálfnað. Tryggvi Kr. Ólafsson lögga segist ekki hafa nein úrræði önnur en að banna neyslu vímuefna. Sálfræðingur bæjarins, Jón Pétursson, er hins vegar með skýringar á reiðum höndum og segir hörmungarnar í Súðavík brjótast út sem slagsmál í Vestmannaeyjum! Hann segir að áföllin í Súðavík, áföll á loðnuvertíð, verk- föll, kosningar og eilíft kvabb um fiskirí ásamt at- vinnutryggingu sjómanna valdi kvíða og spennu sem brjótist út á þennan hátt. Manninum er fúlasta alvara og segist hafa bent á það strax í vetur þegar hörmungarnar í Súðavík gengu yfir að þær myndu leiða til ofbeldis í Vest- mannaeyjum með vorinu. Hann klykkir svo út með því að segja að karlmenn fái útrás eftir löggiltum leiðum, eins og til dæmis slagsmálum, eins og hann segir orðrétt. Konur hins vegar ræða málin við vin- konurnar.B Ólafur Þ. Þórðarson hefur kallað eftir stöðu sinni sem skólameistari í Reykholti. Deilur hafa risið í kringum málið og nemendur skólans meðal annars mótmælt þvi að Ólafur taki við af núverandi skólameistara, Oddi Albertssyni. íslenskir lyfjaframleiðendur hafa um árabil reynt lyf á heil- brigðum einstaklingum gegn greiðslu. Fyrirtækin framleiða fyrst og fremst svokölluð eftirlík- ingalyf, en að sögn Fjalars Krist- jánssonar, lyfjafræðings hjá Delta, eru umræddar lyfjatil- raunir lokastigið í þróun viðkom- andi lyfja og ganga í flestum til- vikum út á að rannsaka frásog lyfsins út í blóðrásina samanbor- ið við frásog upprunalega lyfs- ins. Fjalar segir að þessar rann- sóknir séu gerðar að kröfu heil- brigðisyfirvalda og séu skilyrði þess að lyf fáist skráð. Greiðslur til þeirra sem taka þátt í rannsóknunum fara, að sögn Guðbjargar Eddu Eggerts- dóttur, markaðsstjóra Delta, eftir eðli og umfangi rannsóknanna og eru því mjög mismunandi. En samkvæmt upplýsingum blaðs- ins er þóknunin til „tilraunadýr- anna“ ekki lægri en 5-7 þúsund krónur fyrir minniháttar rann- sóknir en hleypur á tug þúsund- um þegar um umfangsmeiri rannsóknir er að ræða. LYFJAFYRIRTÆKIN TRYCCÐ BAK OG FYRIR Strangar reglur eru um lyfja- rannsóknir á fólki. Lyfjaframleið- endur þurfa að fá leyfi hjá heil- brigðisyfirvöldum áður en rann- sókn hefst og skila lýsingu á framkvæmd og tilgangi rann- sóknar. Allir þeir sem taka þátt í rannsóknunum gangast undir læknisskoðun og skrifa undir yf- irlýsingu þess efnis að þeir taki þátt í viðkomandi rannsókn óþvingaðir og sjálfviljugir. Áður er þátttakendum kynnt viðkom- andi lyf, hvernig tilraunin fer fram og hugsanlegar aukaverk- anir. Þá kveða reglurnar um að þátttakendur geti hætt þátttöku hvenær sem er, án skýringa. Aðspurð segir Guðbjörg Edda að Delta sé að sjálfsögðu tryggt fyrir hugsanlegum skakkaföllum en segir jafnframt að aldrei hcifi „Ólafur er mjög sterkur persónuleiki, ákveð- inn og klárar yfirleitt það sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Guðbjörg Heiðarsdóttir, eig- inkona Ólafs. „Ég gef Ólafi mína bestu einkunn og efast ekki um hæfileika hans sem skóla- meistari. Hann er reglusamur og góð fyrir- mynd ungra manna í flestum tilvikum. Ólafur talar kjarnmikið og fallegt íslenskt mál, er vel gefinn og góður drengur,“ segir Baldur Jónsson, vinur Ólafs og fyrrum starfsfélagi. „Óiafur er að mörgu leyti glöggur maður og dettur ýmislegt gott í hug. Hann hefur verið samstarfsmaður minn í langan tíma og mér hefur í flestum til- felium fallið vel við hann og þá sérstaklega í þeim málum sem snúa að kjarnanum," segir Matthías Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og pólitískur andstæðingur Ólafs. „Ég met Ólaf mik- ils. Hann er mjög gáfaður að mörgu leyti, skemmtilegur ræðumaður og andríkur í and- svörum. Ólafur er vel lesinn og vel að sér í tii dæmis ljóðum og fornsögum. Hann er jákvæð- ur og vill láta gott af sér leiða," segir Steingrím- ur Hermannsson, fyrrum samstarfsmaður Ólafs. Ólafur Þ. Þórðarson, tilvonandi skólameistari í Reykholti „Hann vinnur alltof mikið og mætti gefa sér meiri tíma fyrir sig og sína," segir Guðbjörg Heiðarsdóttir, eiginkona Ólafs. „Ólafur mætti vera betur skipulagður. Hann er stundum ekki nógu raunsær á almenn mál. Annars get ég ekki tínt upp marga galla á Ólafi. Eini Akkilesarhællinn við að taka við starfi skólameistara er að hann er svo heilsuveill," segir Baldur Jónsson, vinur Ól- afs og fyrrum starfsfélagi. „Því er ekki að leyna að Ólafur er mjög sérvitur og kemur oft með hug- myndir sem fáum dytti í hug. Frumlegar hug- myndir sem má hafa gaman af en hafa kannski ekki fallið í kramið í hans verbúðum. Ólafur er líka skapmikill og sjálfstæður í hugsun," segir Matthías Bjarnason, fyrrverandi alþingismað- ur og póitískur andstæðingur Óiafs. „Olafur er stundum svolítið fljótráður og skoðar ekki allar hliðar málsins nógu vel. Hann á það til að bíta í sig hluti og víkur þá ógjarnan frá fyrri skoðunum sínum. Mér hefur sjaldan liðið verr í híl en með Ólafi á ferðalögum um Vestfirðina," segir Stein- grímur Hermannsson, fyrrum samstarfsmaður Ólafs. þurft að grípa til þessara trygg- inga. Einn heimildarmanna PÓSTS- INS tók þátt í að reyna bólgueyð- andi lyf sem setja átti á markað. Eitt lyfið var frá íslenskum fram- leiðanda og þrjú frá erlendum lyfjafyrirtækjum til samanburð- ar. Tilraunin fór þannig fram að hvert lyf var tekið eina helgi og í kjölfarið voru teknar blóðprufur úr „tilraunadýrumum" til þess að rannsaka frásog lyfjanna út í blóðið. Fyrir vikið fékk hver þátt- takandi um það bil 33 þúsund krónur. LÆKIUAIUEMAR RÆNULAUSIR EFTIR TILRAUN MEÐ GEÐLYF Mjög algengt er að nemar úr heilbrigðisgreinum, læknis- og lyfjafræði, taki þátt í lyfjarann- sóknum, bæði til þess að auka á fróðleik sinn og ekki síður til þess að drýgja tekjurnar. Blaðið hefur heimildir fyrir því að fyrir nokkrum árum tók hóp- ur læknanema þátt í tilraun með geðlyf hjá einum íslensku lyfja- framieiðendanna. Frásog lyfsins reyndist afbragðsgóð, svo góð reyndar að drjúgur hluti hópsins eyddi tilraunahelginni hálf rænu- laus heima hjá sér. Engin eftir- mál urðu eftir þessa tilraun. Fjal- ar segir að atvik sem þessi heyri til undantekninga en segir þau fyllilega eðlileg þegar um er að ræða lyf sem geta haft róandi eða svæfandi hliðarverkanir. ■ Þrír íslenskir lyfjaframleiðendur greiða sjálfboðaliðum fyrir að taka þátt í lyfjarannsókn- um: Delta hf. í Hafnarfirði, Omega Farma í Kópavogi og Lyfjaverslun íslands. Debet Kredit

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.