Helgarpósturinn - 20.07.1995, Page 2

Helgarpósturinn - 20.07.1995, Page 2
Pósturinn Útgefandi: Miðill hf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Framkvæmdastjóri: Kristinn Albertsson Auglýsingastjóri: Öm Isleifsson Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Leiðari Ríki í ríkinu ( Póstinum í dag er frétt af því að allt í einu er orðið leyfilegt að flytja inn sterk- ari bjór en áður var heimilt að selja hér á landi. Hing- að til hafa framleiðendur og innflytjendur staðið i þeirri trú að óheimilt væri að selja hér sterkari bjór en með 5,6 prósent áfengis- innihaldi. Nú hefur eigin- maður innkaupastjóra Áfengisverslunar ríkisins hins vegar sett á markað- inn sterkari bjór og kemur það skiljanlega flatt upp á aðra innflytjendur og fram- leiðendur. Fyrir utan hin augljósu tengsl innflytjandans við Áfengisverslunina vekur það athygli að bannið við innflutningi sterkari bjórs var ekki bundið í lög eða reglugerðir. Að baki bann- inu lágu aðeins tilmæli frá Áfengisversluninni. Undir þau tilmæli beygðu sig allir þar til Áfengisverslunin skipti um skoðun og breytti viðmiðunarmarkinu. Það er furðulegt að for- stjóri Áfengisverslunarinnar geti breytt leikreglum markaðarins með þessum hætti án þess að tala við kóng né prest. Hann þarf ekki samþykki neinnar stjórnar í fyrirtækinu og hann þarf heldur ekki sam- þykki ráðuneytisins. Svona fríspil embættismanna býð- ur heim hættu á spillingu og þetta eina litla dæmi sýnir að full ástæða er til að kanna hvort fleira í starfsemi þessarar stofnun- ar sé af svipuðum toga. Pósturínn Vesturgötu 2, Reykjavik sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666 sfmbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4777 Auglýsingadeild: 552-4888 símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingan 552-5577 HelgarPósturinn kostar 199 kr. MánudagsPósturinn kostar 99 kr. Áskrift er 999 kr. á mánuði ef greitt er með greiðslukorti en 1.100 kr. annars. Unnleid/nidurleid Ekki nóg A UPPLEIÐ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. með að hin skelegga borgar- sjýra sé farin að brýna boð háttinn og byrjuð að taka almennilega til í rústunum sem íhaldið skildi eftir sig, heldurerhún núnafarin að plotta með uppreisnarmönn um allra flokka og undirbúa þannig að taka ríkið líka frá Dabba & Co. Sjónvarpið. Dagskráin sem slík er reyndar síður en svo á uppleið, en ríkisfjölmiðill sem kaupir og sýnir jafn umdeilda mynd og Bið- sal dauðans sýnir meira sjálfstæði og þor en maður á að venjast á þeim bænum. Gvendur Jaki. Gvendi Jaka er skítsama þótt glerskálinn við Iðnó sé forljótur. Fyrst búið er að henda milljónum í þessa vitleysu á annað borð er betra að láta þetta viðundur standa óhreyft en að henda enn fleiri milljón um í að rífa það í burtu aftur. Á IUIÐURLEID Ingibjörg Pálmadóttir. Fresturinn sem hún gaf sér til að leiða rifrildið um tilvísana- skylduna til lykta er löngu liðinn en enn hef- ur ekkert gerst. Auk þess bólar enn ekkert á raunhæfum tillögum um aðgerðir gegn við- varandi vanda sjúkrahúsanna og heilbrigð- iskerfisins almennt. Halldór Ásgrímsson. Utanríkisráðherrann lýsti því yfir að hann hafi svo sem enga sér- staka stefnu í málefnum Bosníu. Halldór sér held- ur ekki ’ ástæðu til að ’ gera meira en að „harma" kjarnorku- ’ sprengingar Frakka í Kyrra- hafi og virðist enga leið sjá út úr hatrömm- um deilunum við þá þjóð, sem hann þó vill eiga hvað nánast samstarf við í utanríkis- málum. Árni Sigfússon. Árni kann því greinilega sífellt verr að vera í minnihluta og málflutn- ingur hans einkennist í síauknum mæli af tuði og marklauSu hjali þar sem hann lætur eins og allt böl borgarbúa megi rekja til þessa eina árs, sem R-listinn hefur verið við völd. Sniöugt hjá DV aö láta Davíð borga laun framkvæmdastjórans. Já, meö þessu er hann algjörlega frjáls og óháður sölunni á blaðinu. Eyjólfur Sveinsson er á sama tíma aðstoðarmaður forsætisráðherra og einn af stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar IVIeð 220.000 á mánuði hjá forsætisráðuneytinu Eyjólfur Sveinsson er ennþá að- stóðarmaður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra þrátt fyrir að hann hafi hafið störf hjá Frjálsri fjölmiðlun hf., útgáfufyrirtæki DV. Það hefur staðið til í töluverð- an tíma að Eyjólfur taki við starfi framkvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar, en hann er sonur Sveins R. Eyjólfssonar, sem er stjórnarformaður fyrir- tækisins og einn af aðaleigend- um þess. Hann er þegar kominn með skrifstofu í höfuðstöðvum fyrirtækisins og undanfarna mánuði hefur hann látið taka verulega til sín í tengslum við þær breytingar sem hafa orðið á yfirstjórn DV. Eyjólfur hefur hins vegar haldið áfram störfum sínum fyrir forsætisráðherra og þegið fyrir um það bil 220.000 krónur á mánuði. MILLIBILSÁSTAMD í þessu sambandi hlýtur óhjá- kvæmilega að vakna spurning um hvort það fari saman að stjórnandi eins stærsta fjöl- miðlafyrirtækis landsins sé jafn- framt aðstoðarmaður forsætis- ráðherra. Þessi spurning var lögð fyrir Jónas Kristjánsson, rit- stjóra DV, sem svaraði því til að þetta væri millibilsástand og að hann teldi að önnur lögmál giltu um millibilsástand en varanlegt ástand. Þegar Eyjólfur var spurður sömu spurningar og Jónas svar- aði hann því til að hann væri í sumarleyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu um þessar mundir og benti á að hann þurfi ekki að standa skil á því hvað hann geri í leyfinu. í framhaldi af því sagði hann það ekki rétt að hann hafi hafið störf hjá Frjálsri fjölmiðl- un. „Það er ekki um það að ræða, ég er bara að sinna ákveðnum hagsmunum mínum og fjöl- skyldu minnar í sumarleyfinu mínu,“ sagði Eyjólfur og vildi ekkert kannast við að vera fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. STARFSMEMM HALDA AD HAMM SE FRAM- KVÆMDASTJORI Það skýtur óneitanlega skökku við að Eyjólfur neiti að vera framkvæmdastjóri Frjálsrar fjöl- miðlunar, því þegar blaðamaður bað um framkvæmdastjóra á skiptiborði DV sagði sú sem svaraði að hún héldi að Eyjólfur væri framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins og gaf blaðamanni við svo búið samband við ritara Eyjólfs. Ritarinn virtist aðspurður standa í þeirri trú að hann væri í starfi hjá framkvæmdastjóra fyr- irtækisins og tók við skilaboðum til Eyjólfs sem hann síðar svar- aði. Og í ljósi þess að Eyjólfur sagðist vera í sumarfríi frá störf- um sínum í forsætisráðuneytinu er það líka einkennilegt að þegar ítrekað var spurt um hann þar var ekkert minnst á sumarleyfi heldur sagt að það gæti verið erfitt að ná í Eyjóíf í ráðuneytinu, en hann hringdi alltaf og athug- aði með skilaboð til sín. Þegar spurt var eftir Ólafi Davíðssyni ráðuneytisstjóra til þess að greiða úr þessari flækju fengust hins vegar þau svör að hann væri í sumarfríi. Og virtist eng- inn vafi leika á því. ■ Eyjólfur segist vera í sumar- fríi frá störfum sínum fyrir Davíð Oddsson. Svarthöfdi Með pólitíska netið í skrúfunni Þeir sem hafa lifað helftina af 20. öld- inni og hafa séð menn koma og fara, sem miklu hafa ráðið og miklum örlögum hafa valdið, upplifa nú ýmsa gagnmerka úttekt á liðnum tíma og eiga auðvelt með að setja samtímaatburði í rétt samhengi. Sumt af þessu varðar Island eins og það er nú smátt og áhrifalítið í flokki þjóð- anna. Hér heima hafa menn enn áhyggj- ur af Nato eins og um miðja öldina þegar þeir voru að berjast fyrir nýrri heims- mynd. Nú eru þeir á móti Nato af því að samtökin geta spilit fyrir túrisma. Konur stefna á ráðstefnu i Kína í haust en mega ekki nota sum orð öðruvísi en eiga á hættu að móðga gestgjafana. Svo er um nafnið Taiwan (Formósu). Einhverjir fara til að mótmæla í Kína. Ætli Kínverja muni mikið um það. Þeir eru vanir að vera einir í heiminum. Undanfarið hefur orðið grundvallar- breyting á stöðu íslands innan norrænu þjóðanna. Norðmenn hafa neitað að hjálpa islensku fiskiskipi í nauðum og Svíar hafa neitað að borga þrjátíu millj- óna kennslukostnað fyrir íslenska flug- virkja. Þetta kemur á óvart. Við höfum yfirleitt alltaf fengið allt sem við höfum viljað hjá hinum Norðurlöndunum. En nú er eins og stefnan hafi breyst. Við er- um ekki lengur litla Island langt út í haf- inu með eldfjöll og jökla og fáeinar hræð- ur tilvaldar til að búa úr tilraunasamfé- lag í anda sósíalismans, gott ef ekki kommúnismans, bæði á félagslegu sviði og sviði kennslumála. Hin mikla fyrir- sögn úr austri berst ekki lengur til Norð- urlandanna. Ekki þarf lengu að halda við andófsstefnunni frá stríðsárunum — þessari alkunnu baráttu gegn fasisman- um — sem samið var þó við í stríðsbyrj- un, og verðlauna á íslandi allt og alla sem eru sósíalismanum þénugir. Það er þegar búið að hirða upp alla kommún- ista og hálfkomma sem fyrirfinnast, gefa norrænt hús sem er bókstaflega í umsjá réttra manna, og hvern fjandann vilia Is- lendingar meira. Skera aftan úr. Onei, við höldum nú ekki, eða borga þrjátíu milljónir fyrir íslenska flugvirkja. Við höfum engin fyrirmæli fengið um það að austan, enda er allt þar í sukki og forset- inn hjartveikur. Það er náttúrlega aumkunarvert hlut- skipti fyrir fslendinga að vera í norrænu samstarfi. Gamla andspyrnuhreyfingin frá stríðsárunum tók þetta norræna samstarf að sér og hefur ekki sleppt hendinni af því fyrr en nú. Andsyrnu- hreyfingin var rekin í anda Stalínismans. Við höfum dæmin. Þeir drápu Guðmund Kamban. Þeir ofsóttu Knut Hamsun. Og svo segjast þessir aðilar geta gefið okkur norrænt hús til að geta troðið í okkur menningu, svona eins og Mál og menn- ing gerir. Upp að strönd Norður-Noregs siglir íslenskur togari með net í skrúf- unni. Hann kemst ekki heim og getur raunar ekkert farið nema til næstu hafn- ar. Norðmenn, gömul siglingaþjóð, taka við skipi í nauðum og reka það út fyrir landhelgina. Þetta er norrænt samstarf sem hætt er að lúta fyrirmælum. Það er tilkomið með álíka hætti og rógurinn um íslenska stjórnmálamenn, samanber Stefán Jóhann Stefánsson. Eftir að hafa verið eins konar sósíal- hjálp heimsins með landið fullt cif út- lendu flóttafólki og meira svindl í vel- 'ferðinni en jafnvel skattframtölum, er nú svo komið, að sænski ríkiskassinn segist vera blankur. Svíar hafa látið eins og ríki pabbinn í Norðurlandasamvinnunni. Sví- ar blómstruðu á Stalínstímanum, og fundu andófsfólk út um allan heim til að verðlauna, ýmist með Nóbelsverðlaun- um eða annars konar viðurkenningum. Þeir grófu þetta fólk upp í afkimum þar sem það hafði verið að bulla eitthvað um erfiða tima eða hafði verið í sendi- ferðum til Moskvu. Jafnvel Frakkar, sem eru með nefið oní hvers manns menn- ingarkoppi vissu ekki alltaf hvað Svíar voru að verðlauna. Litlir íslendingar voru þeim hugstæðir og þeir þurftu sósí- alhjálp og þeir þurftu menningarhjálp. Og litlir Islendingar urðu mjög sænsk- sinnaðir. Flugvirkjar voru meðal annars sendir þangað til að læra. Nú sendir sænska ríkið reikning upp á þrjátíu millj- ónir fyrir nám flugvirkjanna. Við eigum sem sagt að fara að borga þessu sósíal- istaríki fyrir hjálp sem þeir buðu íslandi. Næst ættu þeir að tcika Norræna húsið eða loka því, enda er ekkert með sellu- starfsemina þar að gera. Svo eigum við eftir að senda Svíum reikning fyrir að eyðileggja skólakerfið okkar að svo miklu leyti sem það þjónar sósíalisman- um. Einnig eigum við eftir að senda reikning til þeirra sem héldu að við vær- um svo lítil að skaðlaust væri að gera hér tilraun með menntakerfið. Svona til- raun, sem hvergi hefði getað skotið upp kollinum nema hjá Stasi eða öðrum ámóta stofnunum. Norrænt samstarf virðist á allra síð- ustu dögum hafa fengið pólitískt net í skrúfurnar. Tvö ríki, sem ekki eru skyld- ari en gengur og gerist, hafa á sama tíma tekið upp sömu stefnu gegn íslandi. Þau hafa að vísu lengi ráðið ferðinni gegn landinu og úthlutað hér viðurkenning- um út í hött, einkum Svíar, en ríkin hafa ekki fyrr verið svo átakanlega samstíga um aðgerðir. Það er vegna þess að þau öfl hérlendis, sem þurftu á viðurkenn- ingu Skandínava að halda, framleiða ekki lengur fólk sem nokkur minnsta von er til að jafnvel Skandínavar geti gert nokkuð fyrir eða grætt á. Þess vegna er allt í lagi að gefa litla ísland upp á bátinn, Norræna húsið og alla „Skandínavana" hér heima. Það verður ekki meira unnið á íslendingnum í bili. SVARTHÖFÐI

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.