Helgarpósturinn - 20.07.1995, Side 4
SAMBÖND
BYRJA EKKI
UPPI í RÚMI
Mér finnst samskipti
kynjanna ekki spennandi
hér á (slandi. Samböndin
hér eru innantóm, fólk
hittist og skilur daginn
eftir þegar annar aðilinn
stekkur út úr rúminu. Það
er ekki hægt að byrja
sambönd uppi í rúmi,
enda eru Islendingar sér-
staklega fljótir að skilja.
Ég hef sjálfur aldrei verið
með íslenskri konu, ekki
nema skyndibita, þær
gefa ekki kost á sér.
Mín skoðun, sem karl-
maður, er sú að íslenskir
karlmenn séu karlrembur.
Þeir eru miklu meiri karl-
rembur en latneskir karl-
menn. Mér finnst ekkert
skrýtið að fólk eigi erfitt
með að tjá tilfinningar
sínar þegar samskipti
kynjanna eru á þennan
hátt. Ég vinn á bar og á
barnum sér maður margt.
Hingað kom einu sinni
maður, með konu í sinni
fylgd. Hann gerði þessa
konu ólétta, hætti með
henni stuttu síðar og
mætti fljótlega með aðra
upp á arminn. Pör skilja
jafnoft og ég skipti um
buxur. I stuttu máli: fs-
lendingar lifa á góðri
stund en svo er allt búið.
PATRICIO CEBEDA
fSLAND ER SKRIFAÐ AF
HRINGBORÐI FÓLKS SEM A
RÆTUR SlNAR AÐ REKJA ER-
LENDIS EN ER BÚSEHÁÍS-
LANDI
Augnlæknar vernda einokunaraðstööu sína
„Það eru ekki nema tvær vikur
síðan ég opnaði en Augnlæknafé-
lagið er þegar búið að hafa sam-
band við Landlæknisembættið
út af þessu,“ segir Sigþór Sigurðs-
son, sjóntækja- og sjónmælinga-
maður í Gleraugnagalleríinu í
Kirkjuhvoli, en hann hefur boðið
viðskiptavinum sínum upp á
sjónmælingar á staðnum og
sparað þeim þannig ferð til augn-
læknis. „Ég hef ekki heyrt neitt
ennþá en ég á von á bréfi frá
embættinu á næstu dögum.“
Samkvæmt lauslegri áætlun Sig-
þórs hafa um það bil 85 prósent
þeirra sem til hans hafa leitað á
þeim tveim vikum sem hann hef-
ur starfað hérlendis sparað sér
bæði tímann og peningana sem
annars hefðu farið í heimsókn
þeirra til augnlæknis. íslensk lög
segja hins vegar fyrir um að eng-
um sé heimilt að mæla sjón
manna nema augnlæknum, og í
lögum um sjóntækjafræðinga er
tekið fram að þeir hafi ekki rétt-
indi til slíks.
IUÓGU GÓÐUR FYRIR
DAIUADROTTIUiniGU
Sigþór segir að hann sé ekki
einungis sjóntækjafræðingur og
að nám hans sé viðurkennt á öll-
um Norðurlöndum öðrum en ís-
landi. „Ég lærði bæði sjóntækja-
fræði og það sem kallað er opto-
metry. Með slíka menntun er
mönnum heimilt að mæla styrk-
leika sjónar og útbúa gleraugu í
samræmi við sínar niðurstöður,
með ákveðnum takmörkunum
þó.“ Sjónmælingafræðingum er
þannig ekki heimilt að fram-
kvæma fyrstu skoðun á börnum
og unglingum innan sextán ára
aldurs né heldur að útbúa fyrstu
Sigþór Sigurðsson við sjónmælingatækin sem íslensk lög meina honum að vinna við.
kvæmt íslenskum lögum er sjón-
tækjafræðingum ekki heimilt að
mæla sjón manna, heldur aðeins
augnlæknum.“ Matthías segir að
þótt Sigþór hafi aðra og meiri
menntun en þeir sem titla sig
sjóntækjafræðinga, þá breyti það
engu um lagalega stöðu hans.
„Staðreyndin er bara sú að þetta
starfsheiti, sjónmælingafræðing-
ur, er ekki til hér á landi og þessi
menntun ekki viðurkennd.“
Matthías sagði vel hugsanlegt
að breyta þyrfti þessum lögum
að vel athuguðu máli, en allt of
snemmt væri að segja til um
hvort og þá hvenær það getur
orðið. „Eins og er sýnist okkur
hins vegar sem þarna sé um brot
á íslenskum lögum að ræða og sé
svo, þá er alveg ljóst að honum
er ekki heimilt að stunda þá
starfsemi sem hann gerir. Það er
hins vegar ekki okkar hlutverk að
loka hjá honum og við erum ekki
með neinn æsing í þessu máli.
Við bíðum eftir að hann færi rök
fyrir sínu máli og sjáum svo hvað
setur."
HR/EDDIR VK>
GLAKUIUA
Helstu rök augnlækna í málinu
munu vera þau, að baráttan við
gláku hefur gengið mjög vel und-
ir þeirra handleiðslu, og er tíðni
þessa sjúkdóms hér á landi með
því lægsta sem gerist í heimin-
um. Telja þeir að árangri þess
forvarnarstarfs sem þeir hafa
stundað á undanförnum árum og
áratugum sé stefnt í voða ef aðr-
ir en þeir fái leyfi til að mæla
sjón og skrifa upp á gleraugu.
„Það er vissulega rétt að hér
hefur verið unnið mikið og gott
starf í baráttunni gegn g!áku,“
segir Sigþór. „En mín menntun
felst meðal annars í því að greina
þegar óeðlilegar breytingar
verða á sjón fólks, það er að
segja breytingar sem ekki falla
inn í þetta venjulega mynstur.
Þegar ég verð var við slíkar
breytingar er það auðvitað
skylda mín að vísa þeim til augn-
læknis." ■
Matthías Halldórsson að-
stoðarlandlæknir. „Erum
ekki með neinn æsing í
þessu máli."
gleraugu fyrir fólk með sjón-
skekkju án samráðs við lækni.
Sigþór starfaði í Danmörku um
þriggja ára skeið áður en hann
kom hingað og er löggiltur sjón-
mælingafræðingur þar í landi,
einn Islendinga. Hann vann með-
al annars í konunglegu gler-
augnaversluninni og „átti jafnvel
á hættu að fá drottninguna í
sjónpróf,“ eins og hann orðaði
það. En það sem er nógu gott fyr-
ir Danadrottningu er greinilega
ekki nóg fyrir íslendinga.
BRÝTUR í BÁGA
VIÐ ISLEMSK LOG
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir staðfesti í samtali við
PÓSTINN að embættinu hefði bor-
ist erindi um rekstur Sigþórs frá
Augnlæknafélaginu. „Við höfum
sent honum bréf og beðið hann
að skýra sinn málstað, því sam-
Hallur Hallsson, formaður Víkings, svínaði á knattspyrnudeild félagsins við undirskrift félagaskipta
Sktiffadi sjálffur undir ffélagasldpti sonarins
„Stjórn knattspyrnudeildar
taldi að það væri í sínum verka-
hring að skrifa undir samninga
um félagaskipti en það var ekki
þannig I þessu tilfelli þar sem
formaður félagsins skrifaði und-
ir. Þetta er spurning um verk-
lag,“ sagði Jóhannes Albert Sæv-
arsson, formaður knattspyrnu-
deildar Víkings, í samtali við
PÓSTINN.
Málið snýst um að fyrir
skömmu skipti Arnar Hallsson,
knattspyrnumaður úr Víkingi, í
ÍR. Undir félagaskiptasamning-
inn skrifaði formaður Víkings,
Hallur Hallsson, en hann er faðir
Arnars. Því er haldið fram að
þarna hafi Hallur tekið fram fyrir
hendurnar á knattspyrnudeild-
inni og sýnt mikinn yfirgang.
„Það náðist ekki í menn þegar
þurfti að skrifa undir félagaskipt-
in þar sem þeir voru út úr bæn-
um og því kom það í minn hlut.
Þjálfarinn hafði ekki not fyrir
Arnar og því var sjálfsagt að
leyfa honum að fara. Arnar hefur
staðið sig mjög vel frá því að
hann kom til ÍR og ég harma að
hann hafi þurft að fara úr Vík-
ingi,“ sagði Hallur Hallsson.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hafði Jóhannes áður neitað
að skrifa undir félagaskiptin til
ÍR, sem er í 2. deild eins og Vík-
ingur, en hann var hins vegar til-
búinn til þess að hleypa Arnari
til félags í einhverri annarri
deild. Síðan hafi Hallur einfald-
lega gripið tækifærið þegar Jó-
hannes var út úr bænum og
skrifað undir félagaskiptin sem
formaður félagsins. Jóhannes
segir að það sé ekki rétt að hann
hafi neitað að skrifa undir. Málið
Hallur Hallsson skrifaði und-
ir félagaskipti sonarins sem
hefði átt að vera í verka-
hring knattspyrnudeildar
félagsins.
hafi ekki verið komið á það stig.
Heimildirnar herma ennfrem-
ur að stjórn knattspyrnudeildar,
þjálfari og helstu stuðningsmenn
hafi orðið æfir yfir þessu fram-
ferði og tala um að Hallur sé að
Jóhannes Albert Sævarsson:
„Hélt að þetta væri í verka-
hring knattspyrnudeildar."
ganga endanlega frá knatt-
spyrnudeildinni. Jóhannes segir
að málin hafi verið rædd opin-
skátt á fundi stjórnar knatt-
spyrnudeildar og stjórnar félags-
ins og menn hafi náð sáttum.
Hallur segir að vissuiega hafi
orðið skoðanaskipti en málin
hafi síðan verið leyst í bróðerni.
FAGIUAÐI HALLUR
SIGRI IR?
Síðasta föstudag lék Víkingur
við ÍR í botnbaráttu annarrar
deildar og sigraði ÍR með Arnar
innanborðs og hlaut hann góða
dóma fyrir Ieik sinn. Einn af þeim
sem pósturinn ræddi við við
vinnslu þessarar fréttar hélt því
fram að Hallur hafi verið afar
ánægður með sigur ÍR-inga og
fagnað að leikslokum. Jóhannes
sagði aðspurður að hann hafi
ekki talað við Hall eftir leikinn en
hann trúi því ekki að formaður
Víkings hafi fagnað með öðrum
en Víkingum. Hallur segir það af
og frá að hann hafi nokkru sinni
fagnað ósigri Víkings. kgb