Helgarpósturinn - 20.07.1995, Side 10

Helgarpósturinn - 20.07.1995, Side 10
'Fl M M T Ú D'A'GU RW20TT> ul: l~'1r99’5l ugnaðarfork- urinn Sigrún Stefánsdóttir hefur löngum starfað sem lektor við Há- skóla íslands ásamt jví að vinna á Ríkis- sjónvarpinu, þar sem hún hefur hvort heldur brugðið sér í gervi fréttakonu eða dagskrárgerðarkonu. Nú hefur hins vegar frést að breytinga sé að vænta í lífi Sigrún- ar þar sem hún hefur tekið þá ákvörðun að sækja um fasta stöðu sem fréttamaður á Ríkissjónvarpinu. Ekki liggur þó ljóst og klárt fyrir hvort Sigrún ætlar að sinna starfi sínu sem lekt- or, jafnframt því að vera fastráðin á Sjón- varpinu, en það kann að reynast erfitt að vera fastráðinn í tveimur stofnun- um... íbúðablokk við Berjarima og Flétturima eru í niðurníðslu og hafa íbúar í nágrenni þeirra kvartað til yfirvalda vegna slysahættu sem stafar af þeim. Saga húsanna er afar skrautleg og tengjast þeim menn sem bendlaðir eru við umsvifamikil fjársvikamál ið í byggingu í 6 ár og hafa framkvæmdir legið niðri í þrjú ár. Bygg- ingafulltrúi Reykjavíkur segir að þar séu menn ráðþrota gagnvart þessu máli vegna óljóss eignarhalds. Fjölbýlishúsið að Berjarima 20-30 stendur nú autt og er stórhættuleg slysagildra fyrir börn svo og aðra sem þangað koma inn. fbúar í nágrenninu eru ekki hrifnir af að hafa slíka óprýði í nágrenninu og hafa kvartað til yfirvalda vegna ósómans og kraf- ist tafarlausra úrbóta. stendur blokk sem, líkt og húsið við Berjarima, hefur verið í fjölda ára í smíðum og allar fram- kvæmdir hafa legið niðri frá því á árinu 1992 þegar Guðmundur Rúnar Svavarsson varð gjald- þrota. Síðan hafa verið stöðug uppboð á íbúðunum í húsinu. Guðmundur segist hafa verið af- ar svekktur með að missa eign- ina á sínum tíma en segist ekki hafa fylgst með byggingunni síð- an nema hvað Sigurður Ólason hafi haft samband við hann og verið að falast eftir húsinu. Herma heimildir blaðsins að í þessari byggingu hafi Sigurður ætlað sér að gera líkt og í Berja- rima, að ná pening út úr lána- stofnunum með veðsetningum og útgáfu skuldabréfa. ÍBÚAR KVARTA VECIUA BYGGINGARIMIUAR Fjöldi íbúa við Flétturima hafa kvartað við byggingafulltrúann í Reykjavík. Þeim hefur fundist erf- itt við málið að eiga og ekki vitað hvað hægt sé að gera til úrbóta. „Þetta er náttúrlega til mikilla vansa fyrir alla sem búa þarna í kring og borgaryfirvöld eru ekki ánægð með þetta en það skortir hreinlega úrræði til að taka á þessu,“ sagði Magnús Sædal Svav- arsson, byggingafulltrúi í Reykja- vík. Hann sagði að afar erfitt sé að eiga við málefni þessarar byggingar vegna óljóss eignar- halds og einnig sé erfiðleikum bundið að ná sambandi við þá sem eiga húsið það og það skipt- ið. „Þegar við höfum ætlað að setja okkur í samband við eig- endur hússins með það fyrir aug- um að gera eitthvað í málunum, er kominn nýr eigandi," segir Magnús. Hann segir að þessi mál séu embættinu afar þung í skauti. Það sem embættið geti gert sé að reynt hafi verið að girða fyrir svæðið og sjá til þess að lág- marksöryggi sé á svæðinu. „Mað- ur vonar bara að það rofi til og málin leysist," segir Magnús. ■ Bygging íbúðablokkarinnar að Berjarima 20-30 stöðvaðist er upp komst um vafasamar fjár- festingar Þorsteins V. Þórðarsonar úr lífeyrissjóðum starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar. Áður höfðu verið mikil vandræði við fjármögnun byggingarinnar sem Kristján Magnason húsasmiður hafði með höndum. Magnús Magnússon, ásamt Sigurði Ólasyni og Erni Karlssyni, sem kenndir hafa verið við Nýberg, tóku yfir flestar íbúðir blokkarinnar og skuldir Rimar hf. í desember síð- astliðnum af Kristjáni. Þykir þessi sala á Rim vafasöm þar sem fyrirtækið átti ekkert nema margveðsettar íbúðirnar og sam- kvæmt heimildum PÓSTSINS munu þeir Nýbergsmenn hafa ætlað sér að kría pening út út þessu fyrirtæki með útgáfu skuldabréfa og reynt að fá lán út á íbúðirnar þrátt fyrir að þær væru að fullu veðsettar. Engar framkvæmdir hafa verið á þeim tíma sem Rim hf. hefur haft bygginguna með hendi og þann 26. júní var fyrirtækið úrskurðað gjaldþrota. Blokkin stendur nú auð og er stórhættuleg slysa- gildra fyrir börn svo og aðra sem þangað koma inn. Lokið hefur verið við að mála hluta hússins og tyrfa fyrir utan en rúður eru brotnar og frágangur er slakleg- ur, innanhúss og utan. íbúar í ná- grenninu eru ekki hrifnir af að hafa slíka óprýði í nágrenninu og hafa kvartað til yfirvalda vegna slælegs frágangs á húsinu og krafist tafarlausra úrbóta. ÓRÁÐSÍA FRÁ UPPHAFI Fyrirtæki Kristjáns Magnason- ar, Húsasmíði hf. fékk lóðinni, sem húsið stendur á, upphaflega úthlutað en svo stofnaði hann Húsaverk hf. sem hafði bygging- una með höndum allan tímann. Þegar Húsaverk varð gjaldþrota stofnaði Kristján Rim hf. Þegar hann hófst handa í upphafi fékk Kristján lán frá Kaupþingi og Landsbankanum til byggingar- Þorsteinn V. Þórðarson var rekinn frá Áburðarverk- smiðju ríkisins vegna vafa- samra og heimildarlausra fjárfestinga. Hann keypti fjölda skuldabréfa í Berja- rima 20-30 en þegar hann var rekinn lögðust fram- kvæmdir niður. innar en þeir hættu að veita hon- um þau þegar útséð var um að í óefni stefndi. Þá tók Kristján að leita til ýmissa aðila um að veita sér lán til að fullgera húsið og leitaði meðal annars til Þor- steins V. Þórðarsonar sem hafði umsjón með lífeyrissjóði starfs- manna við Áburðarverksmiðj- una í Gufunesi. Þorsteinn var umsjónarmaður lífeyrissjóðs starfsmanna Áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi áður en honum var vikið frá störfum vegna vafa- samra og heimildarlausra fjár- festinga í nafni sjóðsins eins og PÓSTURINN hefur áður greint frá. Meðal annars keypti hann fjölda skuldabréfa af Kristjáni í nafni fyrirtækjanna Húsaverk hf. og Rim hf. fyrir milligöngu Þorláks Einarssonar. Voru skuldabréfin sem Þorsteinn keypti í blokkinni við Berjarima að verðmæti 36 milljóna króna. Mjög hæpnar tryggingar eru fyrir rúmlega 17 milljónum af þessari upphæð og var mikil hætta á að sjóðurinn myndi tapa þessum fjármunum ef ekki yrði haidið áfram með framkvæmdirnar, sem raunin Sigurður Olason og Orn Karlsso Magnúsi Magnússyni og Magnúsi Björgvini Sveinssyni, staðið að umsvifamiklum fjársvikamálum. Þeir eru viðriðnir mál blokkanna tveggja í Borgarholtshverfi. hefur orðið á. Heimildir blaðsins herma að hefði ekki komist upp um Þorstein hefði verið lokið við að byggja blokkina og tekur Kristján Magnason undir það. „FIpÓKIUASTA IVIAL SEM VIÐ, HOFUM LEIUT I" „Þetta er það alflóknasta mál sem við hjá BM Vallá höfum komið nálægt," sagði Guðmundur Benediktsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri fyrirtækisins í samtali við PÓSTINN. Og hann ber Kristjáni Magnasyni ekki vel söguna. BM Vallá fékk nokkrar íbúðir í húsinu upp í skuldir en hefur nú losað sig við þær en þarf að ljúka við frágang á fjór- um íbúðum. Undirverktakar sem hafa fengið verk hjá Kristjáni taka í sama streng og BM Vallá. Þeir segja að ekkert hafi nokk- urn tíma staðist sem Kristján hafi lofað og þeir hafi flestir lent í því að fá ekkert borgað og þurft að taka íbúðir í húsinu uppí skuldir. Hins vegar er fullyrt að ekki sjáist að allir þeir peningar sem veitt hafi verið í húsið hafi runnið þangað og sagði einn við- mælandi að engin leið væri að sjá hvert peningarnir hafi farið. Stöðug uppboð hafa verið.á íbúðum í húsinu alla tíð en nú eiga 7-8 aðilar allar íbúðir í hús- inu. MED SKRAUTLEGAM FERIL Kristján Magnason er skráður til heimilis að Urðarstíg 8 í Reykjavík en hann mun hafa los- að sig við þá íbúð fyrir tæpu ári síðan í skiptum fyrir íbúð í Rima- hverfi og lóð í Kópavogi. Skömmu síðar fór íbúðin við Urðarstíg á uppboð þar sem ís- landsbanki fékk hana til sín. Full- yrt er að Kristján eigi fjölmörg slík dæmi á bakinu og ferill hans sé í meira lagi skrautlegur. Til dæmis hafi hann átt efri hæð í húsi við Huldubraut í Kópavogi. Þar hafi hann svikið bæði undir- verktaka og BM Vallá með lof- orðum sem hann gat á engan hátt staðið við. „Þetta er miklu flóknara mál en svo að ég geti sagt það svona í síma óundirbú- inn,“ sagði Kristján Magnason í samtali við blaðið í gær. SIGURDUR OLASOM VIÐRIDIMM FLETTURIMA „Það er hörmung að sjá þetta og mikil óprýði í annars fallegu hverfi," sagði Guðmundur Hösk- uldsson, íbúi við Flétturima, í samtali við PÓSTINN. Við götuna

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.