Helgarpósturinn - 20.07.1995, Síða 21

Helgarpósturinn - 20.07.1995, Síða 21
 Jayne Mansfield á heitum degi í Hollywood. Elle Macpherson sýnir hvers vegna hún er kölluð Skrokkurinn. Ó, þú hefðir ekki átt að... Gjafir segja ýmislegt um þann sem gefur þær og því er vandasamt að velja gjöf handa elskunni sinni. pósturinn léttir hér undir með lesendum sínum, gefur þeim fáeinar tillögur að skemmtilegum gjöfum og segir þeim í leiðinni hvað hægt sé að lesa úr þeim. Bangsi Skilaboöin: Þig langar til að vera bangsinn hennar. Skilaboðin gætu orðið: Þér finnst hún barnaleg og óþroskuð. Það sem gjöfin segir um þig: Þú býrð yfir barnalegu sakleysi. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Hún hjálpar þeim að leiða hugann frá því að þú sefur hjá dóttur þeirra. Eftir að þið hættið saman lendir bangsinn undir rúmi eins og allt hitt dótið. Ljódabók Skilaboðin: Þér finnst hún tilfinninga- næm og ástríðufull. Skilaboðin gætu orðið: Þér finnst hún ekki nógu vel að sér. Það sem gjöfin segir um þig: Þú ert afar fágaður. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Hefur hann vinnu? Þegar þið hættið saman minnir bókin hana á ósköp Ijúft samband. Samfella Skilaboðin: Þérfinnst hún kynþokka- full. Skilaboðin gætu orðið: Þú ert að reyna að troða ákveðnu hlutverki upp á hana og þar með hefta frelsi hennar. Þaö sem gjöfin segir um þig: Þú flettir undirfatavörulistum. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Eins og þú hafir sagt þeim frá ein- hverju sem þeir vildu ekki vita neitt um. Þegar þið hættið saman verður næsta kærasta komið skemmtilega á óvart. Skammbyssa Skilaboðin: Öryggi hennar skiptir þig máli. Skilaboðin gætu orðið: Hún getur ekki passað sig sjálf. Það sem gjöfin segir um þig: Þú ert hættulegur. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Kannski ætti hún að flytja aftur heim. Þegar þið hættið saman ættirðu að bíða í dálítinn tíma áður en þú læt- ur hana sjá þig með annarri konu. Gat í gegnum tunguna Skilaboðin: Þér finnst hún ferlega frík- uð. Skilaboðin gætu orðið: Það er ekki eins æðislegt að kyssa hana og þú hafð- ir búist við. Það sem gjöfin segir um þig: Þú gætir haft gaman af ýmsum öðrum óvenjulegum leikjum. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Ekki vel. Reyndu að fresta því í lengstu lög að vera kynntur fyrir þeim. Þegar þið hættið saman fær hún sýkingu. Wonderbra biiósta haldari Skilaboðin: Þér finnst hún kynæsandi og vilt að hún sýni sínar bestu hliðar. Skilaboðin gætu oröið: Líkamlegu atgervi hennar er ábótavant. Það sem gjöfin segir um þig: Þér finnst útlitið mikilvægt. Hvernig foreldrar hennar taka gjöf- inni: Haldarinn er mun hentugri en brjóstastækkun. Þegar þið hættið saman fær næsti kærasti ekki það sem hann hélt að hann fengi. „CAMELOT!“ Fremstur riddara Bíóhöllin/Stjörnubíó ★ Riddarar hringborðsins eru ekki að leita að gral- inu, það er enginn Merlín til að galdra, ekkert sverð sem heitir Excalibur, ill- mennið heitir ekki Mordred heldur Malagant. Camelot er þó að sönnu á sínum stað, þar gnæfa turnar við himinn eins og í Euro- Disney: í þessum bæ er mikið trommað og blásið í lúðra, riddarar fara í blys- farir, almúginn er I Ijósblá- um kuflum og forkláraður eins og hann hafi ánetjast einhverri frábærri sértrú. Þetta er fyrirmyndarsamfé- lag þar sem allri sagnfræði er gefið langt nef-og öll- um sennileika. Fremstur riddaranna er Lancelot, en hann er þó í rauninni enginn riddari, heldur sætur gæi sem heldur til úti í skógi og beitir þar brandi sínum - kannski í tvennum skiln- ingi. Ástin í myndinni upp- hefst þegar hann bjargar i nauðum Guinevere, vænt- anlegri drottningu Artúrs konungs. Drottningin veit hvað til síns friðar heyrir og reynir að tjá honum að hún elski hann ekki. Það hefur lítið upp á sig, því Lancelot kveikir bara á blikinu í aug- anu, brosir sjálfsánægður út í annað og segir: „Ég veit hvenær kona girnist mig." Hin stóra rómantík í myndinni er í raun ástar- samband Richards Gere við sjálfan sig. Þetta er að sönnu maðurinn sem fleygði Cindy Crawford á dyr. „Camelot!" andvarpar Guinevere þegar hún sér fyrst borgina miklu fyrir fótum sér. „Lancelot!" hrópar Artúr kóngur þegar hann ávarpar fyrst bar- dagamanninn mikla, „heldur er ólíklegt að ég gleymi því nafni í bráð!" „Hringborðið!" segir Lancelot þegar honum er fyrst hleypt inn í helgustu vé riddarahópsins. Svona veltur þetta áfram í óvið- jafnanlegum kjánaskap; þetta er meira sillí en Monly Python og ridd- arar hringborðsins — máski af því það er óvart fyndið — en líklega ekki alveg jafn sillí og platan sem Rick Wakeman gerði um Arthúr konung og menn hans. Músíkin er allavega sama miðaldakit- sið. -EGILL HELGASON

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.