Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 3
FlIvlMTtlDaGU R 277TJ tl 1TI“ 995 Lítið náðist upp í kröfur sem gerðar voru í þrotabú fjögurra fyrirtækja á Akur- eyri og Húsavík sem lýst voru gjaldþrota á þessu og síðasta ári, en gjaldþrotaskiptum er nú lokið úr þeim öllum. Samtals námu lýstar kröfur i þrotabúin fjögur ríflega 190 milljónum króna, en 44 milljónir náðust upp í þær. Af þessum 190 millj- ónum námu kröfurnar í þrotabú Glerhússins hf. á Akureyri um það bil 74 milljónum. Þar af voru veðkröfur upp á 53 milljónir og tókst að ná 38 milljónum upp í þær en ekkert greiddist upp í aðrar kröfur í búið. Lýstar kröf- ur á þrotabú fyrirtækisins Járn- tækni hf. á Akureyri námu sam- tals 66 milljónum, og náðu menn að kreista út 4 milljónir af þeirri 21 milljón sem krafist var upp í hinar ýmsu veðskuldir. Aðrir kröfuhafar fengu ekki krónu. Alls voru gerðar kröfur upp á 38 milljónir í þrotabú Varar hf. á Akureyri, en þegar skiptum var lokið höfðu veðkröfuhafar haft innan við tvær milljónir upp úr krafsinu en misstu af tæpri millj- ón, forgangskröfuhafar fengu skitinn hundrað þúsundkall í sinn hlut en áttu kröfu á 5,8 milljónir, og almennir kröfuhafar fengu ekki eyri upp í þær rúm- lega 29 milljónir sem þeir áttu sannanlega inni hjá fyrirtækinu. Á Húsavík fékk enginn krónu þegar upp var staðið eftir skipt- in á þrotabúi Naustvarar hf., en kröfur í búið voru samtals um 12 milljónir... ern — 973.000 á g ö t u n a ! atriðið þegar allt annaö stenst samanburð Aukabúnaður á mynd, álfelgur og vindskeið. Gerðu þinn eigin samanburð HYUNDAIACCENT 84 hestöfl með beinni innspýtingu, vökvastýri, vönduðum hljómflutningstækjum, samlituðum stuðara 3 dyra HYUNDAf VW TOYOTA OPEL og lituðu gleri ACCENT GOLF COROLLA ASTRA Rúmtak vélar 1341 cc 1391 cc 1331 cc 1389 cc Hestöfl 84 60 88 60 Lengd/Breidd cm 410/162 402/169 409/168 405/169 Farangursrými lítr. 380 370 309 360 Utvarp + segulb. Jaufclið Ekki innifalið Ekki innifalið Innifalið Þyngd 1075 1050 950 Verð r,9^Sp6 1.180.000 1.079.000 1.167.000 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236 HYunnni .til framtídar ÆTLAR ÞÚ ÞÉRAÐ ÆTTLEIÐA GRÆNMET- ISTEGUND EINS 0G KALLI PRINS, SIGGI? „Ég fyrirhuga að ættleiða smámaís frá Thailandi handa börnum mínum. Sömuleiðis járnríkt, hollt og gott spínat handa konu minni. Það er kannski ekki þáttur í hugsjóna- stefnu Kalla prins, en ég veit að þau munu ekki rækta grænmetið heldur borða það. Ég hef einnig áhuga á því að ættleiða vínber í stórum stíl og þá til víngerðar, og hvít- lauk en hann má nota í stað rak- spíra.“ Karl Bretaprins hef- ur ættleitt grænmet- istegundir og hvetur samlanda sína til að gera slíkt hið sama. Sigurður L. hall er matreiðslumeistari.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.