Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 11
ÍFIMMTUD7yGURw27rD0l:rir9ff5
M
Magnús Magnússon, Maggi
„ríki", hefur verið einn um-
svifamesti pappírsviðskipta-
jöfur landsins síðustu ár.
Örn Karlsson hefur löngum
verið í slagtogi með Magga
ríka og Jóni beikon í tengsl-
um við vafasöm fasteigna-
kaup, bílaviðskipti og víxla-
og skuldabréfaútgáfur.
bandarísku fangelsi til þess að
kynnast þeim af eigin raun og
klykkti svo út með því að segja að
hann hafi orðið að fara frá Mich-
igan því „hringurinn hafi verið
farinn að þrengjast" um hann í
undirheimunum þar sem hann
starfaði fyrir lögregluna.
Nokkru síðar kom í ljós að
Grímur var ekki sá sérfræðingur
sem hann gaf sig út fyrir að vera
en ekki fékkst önnur skýring á
háttalagi hans en að hann hafði
lengi langað að verða fíkniefna-
lögreglumaður. En þess má geta
að Grímur hafði boðið ávana- og
fíkniefnadeildinni krafta sína en
verið hafnað.
AUÐVELT
AD KAUPA TTTLA
Annar íslendingur sem hefur
flaggað plöggum frá USA upp á
vafasama titla og sérfræðiþekk-
ingu er Friðrik Páll Ásgeirsson, bet-
ur þekktur sem dáleiðarinn. Mun-
urinn á blekkingum Gríms og
Friðriks Páls er hins vegar sá að
háttalag þess fyrrnefnda er til-
tölulega saklaust og broslegt á
móti því að fjöldi manns hefur
beðið skaða af viðskiptum við
þann síðarnefnda. í póstinum í vor
var fjallað ýtarlega um feril Frið-
riks Páls og meðal annars greint
frá því að fjöldi fólks sem hefði
leitað meðferðar við ýmsum kvill-
um hjá honum hefði kvartað við
Landlæknisembættið eftir þá
reynslu. Þetta fólk taldi sig hafa
orðið fyrir skaða í meðferðinni og
nokkrir þurftu jafnvel að leita til
sálfræðings sér til hjálpar. Friðrik
flaggar titlum á borð við „Certifi-
ed hypnotherapist“ og segist út-
skrifaður frá bandarískum skóla
sem „registerd professional hyp-
notherapist". Aðspurður um
þessa titla dró Matthías Halldórs-
son, aðstoðarlæknir, í efa gildi
þeirra og sagði að hægt væri að
kaupa prófskírteini í Bandaríkj-
unum án þess að nokkur mennt-
un lægi að baki. Sálfræðingafélag
íslands lét málið einnig til sín
taka og sendi frá sér ályktun þar
sem meðal annars kom fram að
lengi hefðu verið uppi miklar efa-
Jón Ellert Tryggvason, Jón „beikon", á skrautlegan feril að
baki.
Þórhallur Gunnlaugsson hjá
Vatnsberanum sveik 38
milljónir út úr ríkissjóði en
hafði áður verið gabbaður
af bandarískum svika-
hrappi.
semdir um faglegar forsendur
Friðriks Páls. Það er mjög athygl-
isverð staðreynd að þetta var alls
ekki í fyrsta skipti sem umræða
skapaðist um hæpna starfshætti
Friðriks Páls því fjölmiðlar höfðu
fjallað rækilega um mál hans
nokkrum árum áður og þá vör-
uðu læknar og sálfræðingar einn-
ig eindregið við starfsemi hans.
En eins og í Nýbergsmálinu virt-
ist fólk þrátt fyrir allt vera jafn illa
á verði fyrir blekkingum hans og
áður.
Annars virðast íslendingar
vera sérstaklega veikir fyrir út-
lendum svikahröppum. Það er
ekki langt frá því að blaðið sagði
frá breska ævintýramanninum Ri-
chard Rees Edwards sem fór milli
íslenskra fyrirtækja, þar á meðal
Icemac og OZ, seldi þeim sér-
fræðiþekkingu á markaðsmálum
og viðskiptasamabönd dýru
verði en bjó í raun og veru yfir
hvorugu. í viðtölum við forráða-
menn þessara fyrirtækja kom
fram að Edwards skildi ekki ann-
að eftir sig en fjallháa símreikn-
inga og sáði auk þess fræjum
sundurlyndis meðal starfsfólks.
Sem dæmi má nefna að hann fór
á kostnað Icemac til Kína en fyrir-
tækið borgaði honum nokkrar
milljónir í laun og útlagðan kostn-
að á níu mánaða tímabili og Iagði
honum einnig til ókeypis íbúð og
bíl.
Þá er ekki hægt annað en að
minnast á blekkingar Donalds Fe-
eney þegar hann kom til landsins
í þeim tilgangi að nema dætur
Ernu Eyjólfsdóttur á brott. Feeney
og hans lið breiddi yfir raunveru-
legan tilgang sinn með þeirri
sögu að hópurinn væri hér á
landi til þess að undirbúa tökur á
kvikmynd með Sylvester Stallone.
Fljótt flýgur fiskisagan og taldi
Tíminn sig hafa slegið öðrum fjöl-
miðlum við þegar hann birti frétt
um væntanlegar kvikmyndatökur
hér á landi og mynskreytti frétt-
ina með mynd af Stallone, sem
fékk auðvitað umsvifalaust titil-
inn íslandsvinur.
MAGGI RÍKI
OG JOIU BEIKOIU
Meðal þeirra sem koma við
sögu í áðurnefndu Nýbergsmáli
eru kappar á borð við Magnús
Magnússon og Örn Karlsson en
báðir eiga skrautlegan feril að
baki. Magnús er best þekktur í
pappírsviðskiptaheiminum sem
Maggi „ríki“ þótt ríkidæminu sé
ekki beinlíns fyrir að fara. Fyrir
tveimur árum komst Magnús í
fréttirnar fyrir hugvitsamleg svik
í húsnæðibréfakerfinu. Þau voru
með þeim hætti að hann keypti
Grímur Th. Vilhelmsson. Gaf sig út fyrir að vera cand. mag.,
sérmenntaður á sviði fíkniefnamála og með prófgráðu í
lyfjafræði og taugasálfræði.
nánast ónýtan hjall á Skaga-
strönd á uppboði fyrir 4,6 millj-
ónir króna. Það verð fannst
heimamönnum út úr korti enda
húsið í hörmulegu ástandi. Þeir
áttuðu sig hins vegar ekki á því
að út á þetta verð fékk Magnús
tæplega þriggja milljóna króna
lán í húsbréfum. Eftir að hann
fékk þá peninga í hendurnar fór
litlum sögum af greiðslum fyrir
húsnæðið sem fór aftur á upp-
boð. Þá hafði brunabótamat þess
verið endurmetið og lækkað úr 6
milljónum í 1,5. Þetta er bara eitt
afrek á löngum ávirðingalista
Magnúsar sem á fjölbreytt papp-
írsviðskipti að baki. Meðal við-
skiptafélaga Magnúsar í gegnum
tíðina eru Jón Ellert Tryggvason,
oftast kallaður Jón beikon vegna
vaxtarlags síns, og Guðmundur
Franklín Jónsson, sem nú er virðu-
verðbréfasali á Wall Street.
Jón beikon hefur, líkt og Magn-
ús, verið umsvifamikill á gráa
svæði viðskiptalífsins og komið
við sögu í stórum fjársvikamálum
þar sem blandast saman fast-
eignakaup, bílaviðskipti og víxla-
og skuldabréfaútgáfur. Örn Karls-
son hefur yfirleitt ekki verið langt
undan og oft átt þátt í þessum
viðskiptum. Oft var þeirri aðferð
beitt að ná í gömul hlutafélög
sem ekki höfðu verið í rekstri og
fá þannig, sem kallað var, „-
hreina" kennitölu. Því næst var
bunað út skuldabréfum með
ábyrgðum þeirra. Og þar sem fé-
lagið var „hreint" á vanskilaskrá
var það talið góður pappír.
LÉT RÓIUA SKRIFA
UPP A FYJFtlR TVÆR
BREIUAIIVIIUSFLOSKUR
Það vantar ekki að menn séu
hugmyndaríkir þegar kemur að
því að finna „hreina" kennitölu til
þess að nota við útgáfu skulda-
bréfa. Fyrir þremur árum datt
Magnús Garðarsson niður á ein-
falda og ódýra leið þegar hann
fékk útigangsmanninn Jón Árna-
son, eða Jón á röltinu eins og
hann var líka kallaður, til þess að
skrifa upp á 20 sjálfskuldarbréf
að upphæð 500.000 krónur hvert,
eða 10 milljónir alls. Jón þáði
tvær brennivínsflöskur fyrir vikið
og sjálfskuldarábyrgðarmennirn-
ir tveir fengu sjálfsagt eitthvað
álíka en þeir voru í svipaðri stöðu
og Jón. Kennitölur allra þessara
manna voru „hreinar" enda eng-
inn þeirra haft bankaviðskipti
eða önnur fjármálaumsvif í lang-
an tíma. Fyrir vikið fundust þess-
ir kappar ekki á vanskilaskrám og
bréfin fóru af stað á braskmark-
aðinum.
FALSADIJUAFIU
FOÐUR SIRIS
20 SIIUIUUM
Ekki eru allir eins hugmynda-
ríkir og þeir svindlarar sem hér
hafa verið nefndir þegar kemur
að því að finna nöfn á skuldabréf
og víxla því oft grípa menn ein-
faldlega til þess ráðs að falsa
nöfn ættingja og vina og svíkja
þannig fé út úr lánastofnunum.
Dæmi er um að menn hafi svik-
ið tugi milljóna króna með þess-
um hætti. Fyrir nokkrum árum
falsaði til að mynda einn leigubíl-
stjóri hér í bæ undirskriftir föður
síns, bróður, fyrrverandi eigin-
konu og fyrrverandi tengdamóð-
ur á um það bil 30 víxla og
skuldabréf sem hann seldi Lang-
holtsútibúi og Suðurlandsbraut-
arútibúi Landsbankans. Fólkið
varð einskis vart fyrr en víxlarnir
og skuldabréfin voru komin í van-
skil og þá sáu ættingjar mannsins
sér einskis annars úrkosti en að
kæra hann til RLR. Maðurinn fals-
aði nafn föður síns tuttugu sinn-
um á tveggja ára tímabili og nafn
bróður síns sextán sinnum, nafn
eiginkonunnar falsaði hann ellefu
sinnum og nafn tengdamóður
sinnar tvisvar. Þegar upp var
staðið var krafa Landsbankans á
hendur leigubílstjóranum milli 20
og 25 milljónir.
Dæmi sem þessi eru fjölmörg
en yfirleitt er um að ræða menn
sem hafa verið að reyna að
bjarga sér úr greiðsluerfiðleikum
og byrjað á því að falsa undir-
skriftir á eitt, tvö skuldabréf eða
víxla en svikin hafa síðan undið
upp á sig eftir því sem erfiðleik-
arnir verða meiri.
vill ótrúlega þá hefur
íslensk matargerðar-
list numið land í
stórborginni New
York. Þetta landnám
er reyndar ekki stórt
í sniðum en er
merkilegt engu að
síður. Þannig er mál
með vexti að íslensk
kona, sem búsett er
á Long Island í New
York-fylki, hefur haf-
ið framleiðslu á flat-
kökum að íslenskum
sið. Edda Boyle heit-
ir þessi framtaksama
kona en framleiðsla
hennar hefur fallið í
góðan jarðveg og
hefur hún meðal
annars gert dreifing-
arsamning við stóra
verslunarkeðju í fylk-
inu...
AFGREIDDI
SJALFAIU SIG,
UM 38 MILUOIUIR
Eitt ævintýralegasta fjársvika-
mál sem hefur komið upp síðustu
ár er mál Þórhalls Gunnlaugssonar í
Vatnsberanum en saga þess fyrir-
tækis einkenndist af svikum og
prettum. Þórhallur var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
Vatnsberans og ráðgerði milljóna
lítra vatnsútflutning til landanna
fyrir botni Miðjarðarhafs. Vatns-
berinn hafði gert vatnssölusamn-
ing við bandaríska fyrirtækið Un-
ited Gulf Trading Ltd. fyrir 350
milljónir króna á mánuði, eða 4,2
milljarða á ári og virtist framtíð
fyrirtækisins björt. Þessar áætl-
anir hrundu hins vegar eins og
spilaborg þegar á daginn kom að
rekstur bandaríska fyrirtækisins
rúmaðist í skrifborðskúffu eig-
anda þess, Donald Rocco, og í ljós
kom að sá náungi hafði verið
dæmdur í fjögurra ára skilorðs-
bundið fangelsi fyrir trygginga-
svik og hafði að auki dóm á bak-
inu fyrir kókaínsölu. Eftir að þetta
lá fyrir var Vatnsberinn aðeins til
á pappírunum án reksturs. Það
kom aftur á móti ekki í veg fyrir
að Þórhallur nýtti sér fyrirtækið
til þess að svíkja 38 milljónir út
úr ríkissjóði. Það voru ekki flókin
brögð sem Þórhallur beitti til
þess að ná þeirri upphæð til sín.
Hann hafði einfaldlega þann hátt
á að selja Vatnsberanum að nafn-
inu til vinnu sem var unnin í nafni
annars fyrirtækis í hans eigu.
Vatnsberinn greiddi aldrei neitt
fyrir þessa vinnu en Þórhallur út-
bjó samt sem áður alltaf virðis-
aukaskattskýrslur vegna reikn-
inganna og sendi Tollstjóra sam-
viskusamlega. Á skýrslunum var
mismunurinn á útskattinum og
innskattinum þannig að Þórhall-
ur átti alltaf inni hjá ríkissjóði.
Með þessum hætti sótti hann að
jafnaði 340.000 krónur á viku til
Tollstjóra, í 112 vikur, áður en
upp um hann komst. -jk