Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 6
6
'FIMMT0PyGURw277T)0Crrg<y
'u,<w‘ö»n5!5j
"“^NolS'S^Í
"■■■•“OO !'uÍÍSS«A
usœ&sss
. "“"SíSi
'ukkaiuo jpR;
&AÍM5í
*SK«áí5u;
'"'ibilnum!
Enn hitnar undir Bergsteini Gizurarsyni brunamálastjóra
felldasta
ítt
mnnar
ÁLAGNINGAR-
SEÐLARNIR
KOMA
Einn atburður þessarar
viku skyggir gjörsamlega
á alla aðra hvað ógeð-
felldleika snertir. Það sem
um er að ræða er auðvit-
að fréttir af því að nú í
vikunni munu álagningar-
seðlar vegna skatta fyrir
árið 1994 verða póstlagð-
ir. Samkvæmt uplýsingum
ríkisskattstjóra fá 217.000
gjaldendur senda álagn-
ingarseðla svo þessi frétt
snertir stóran hluta þjóð-
arinnar.
Vissulega munu þeir
gleðjast yfir sendingunni
sem eru svo heppnir að
eiga einhverja inneign hjá
skattinum, vegna til dæm-
is vaxta- eða barnabóta,
en þeireru miklu fleiri
sem vildu vera lausirvið
að fá þennan ófögnuð inn
um lúguna hjá sér. Auð-
vitað er það árviss atburð-
ur að menn fá yfirlit yfir
skuldastöðu sína við ríkis-
sjóð en einhvern veginn
kemur það alltaf jafn flatt
upp á menn hvað þeir
skulda mikið. Síðustu
dagar júlímánaðar eru
reyndar versti timi ársins
hjá þeim sem kvíða út-
sendingu álagningarseðla
en hjá því fólki er biðin frá
því að tilkynnt er um
hvaða dag seðlarnir verða
sendir út og þar til seðill-
inn kemur, óbærileg. Og
ef í Ijós kemur að staðan
er slæm þarf að redda
aurum fyrir skattaskuld-
inni, annað hvort með því
að slá víxil eða skulda-
bréf. Oft verður þetta til
þess að þeir, sem svona er
ástatt um, lenda í hinum
versta vítahring og þurfa
ár eftir ár að standa í ein-
hverjum reddingum fyrir
skattinum. Þeim til hugg-
unar er að minnsta kosti
hægt að benda á að ríkis-
stjórnir landsins hafa í
gegnum tíðina séð um að
deila út peningum ríkis-
sjóðs af sérstakri ráðdeilni
og skynsemi.
Félagsmálanefnd
staðfestir álit ríkis-
endurs
Félagsmálanefnd hefur lokið
álitsgerð sinni vegna skýrslu rík-
isendurskoðanda um Bruna-
málastofnun þar sem ríkisendur-
skoðandi fór mjög hörðum orð-
um um rekstur stofnunarinnar
og Bergstein Gizurarson bruna-
málastjóra. Þegar PÓSTURINN tal-
aði við Kristínu Ástgeirsdóttur,
formann nefndarinnar, vildi hún
ekkert segja um hvað hefði kom-
ið fram í álitinu en sagði að því
hefði verið komið til Ólafs G. Ein-
arssonar, forseta Alþingis, sem
verið hefur í sumarfríi að undan-
förnu. Mun félagsmálanefnd taka
ákvörðun í samráði við Ólaf
hvort álitið verði gert opinbert
en samkvæmt heimildum PÓSTS-
INS tekur nefndin á afdráttar-
lausan hátt undir með ríkisend-
urskoðanda í gagnrýni hans á
brunamálastjórn. Þá munu ýms-
ar fleiri ábendingar um einkenni-
legar stjórnunar- og rekstrarað-
gerðir innan Brunamálastofnun-
ar hafa komið inn á borð nefnd-
arinnar við gerð álits hennar.
VOTTORÐ FRÁ PÁLI
Eins og kunnugt er var skýrsla
ríkisendurskoðanda gerð að ósk
Rannveigar Guðmundsdóttur, fyrr-
um félagsmálaráðherra, eftir að
stjórn stofnunarinnar hafði ít-
rekað kvartað til félagsmálaráðu-
neytisins yfir valdníðslu og óráð-
síu brunamálastjóra. Páll Péturs-
son var hins vegar sestur í stól
félagsmálaráðherra þegar ríkis-
endurskoðandi skilaði inn
skýrslunni og lét hann sér nægja
að segja að þar væri einungis að
finna „nokkrar ábendingar" um
það sem betur mætti fara hjá
brunamálastjórn, og aðeins sé
„fundið að fáeinum atriðum" við
rekstur stofnunarinnar í skýrsl-
unni. Sagði einn fyrrverandi
stjórnarmanna Brunamálastofn-
unar að ummæli Páls væru
ábyrgðarlaus og að þau jafn-
giltu heilbrigðisvottorði fyr-
ir Bergstein Gizurarson og
embættisfærslur hans.
Ávirðingarlisti Ríkisendur-
skoðunar var í 27 liðum og
bendir hann til þess að
ekki sé steinn yfir steini í
rekstri stofnunarinnar
sem hefur meira en 80
milljónir í sértekjur á ári.
GAMALT SPILL-
IIUGARB/ELI
FRAMSOKIUAR-
MAIUIUA
Brunamálastofnun er
fornfrægt vígi fram-
sóknarmanna og for-
veri Bergsteins var
Þórir Hilmarsson. Sagði
hann starfi sínu lausu
í ársbyrjun 1986 í kjöl-
far þess að Helgar-
pósturinn komst að
því að hann hafi mis-
notað utanlandsferð-
ir á vegum stofnun-
arinnar til að næla
sér í innflutningsumboð
fyrir fyrirtækið Skanís hf. sem
skráð var í eign fjölskyldu hans.
Skanís er til húsa að Laugavegi
59, eins og Brunamálastofnun,
en fyrirtækið fékk meðal annars
umboð fyrir Halon slökkvi- og
viðvörunarkerfi á meðan Þórir
var brunamálastjóri. Hafði hann
skömmu áður þegið boðsferð
fyrir hönd embættis síns til Dan-
merkur á námskeið um Halon-
slökkviefni. Haft var á orði um
Þóri að á meðan hann var bruna-
málastjóri hafi ekki verið nokkur
leið að ná í hann, nema á skrif-
stofu Skanís eða í Tækniskólan-
um þar sem hann stundaði
kennslu í vinnutíma sínum hjá
Brunamálastofnun.
Frétt
Helgarpóstsins frá 6.
febrúar 1986 um misnotkun
Þóris Hilmarssonar, fyrrver-
andi brunamálastjóra, á
embætti sínu. Hann sagði
starfi sínu lausu á meðan á
vinnslu fréttarinnar stóð.
STOFniUIUIIU EIUIU
STJORIULAUS
Bergsteinn tók við embætti
sínu 1. apríl 1986 en hann er per-
sónulegur vinur Steingríms Her-
mannssonar Seðlabankastjóra og
fyrrum forsætisráðherra. Áður
hafði Bergsveinn starfað hjá
Vita- og Hafnamálastofnun en
samkvæmt heimildarmönnum
Bergsteinn Gizurarson brunamálastjóri situr sem fastast
þrátt fyrir kröfu þingmanna um að hann víki. Félagsmála-
nefnd mun staðfesta og taka undir þær ávirðingar sem
komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar á rekstur stofnun-
arinnar.
póstsins var það mál manna að
honum hafi verið sparkað upp á
við af þáverandi félagsmálaráð-
herra, Alexander Stefánssyni, sem
skipaði hann í embætti bruna-
málastjóra. Vegna samstarfserf-
iðleika við Bergstein sögðu allir
stjórnarmenn Brunamálastofn-
unar af sér í vor en hann situr
enn sem fastast í embætti sínu.
Ný stjórn hefur ekki verið skipuð
fyrir Brunamálastofnun. ■
Debet
Kredit
„Kostir Steingríms eru þeir að hann er mjög
heiðarlegur, kemur hreint fram og hann myndi
ekki ganga á bak orða sinna, sem er fremur
sjaldgæft hjá stjórnmálamönnum í dag,“ segir
Bima Þórðardóttir, en hún starfaði með Stein-
grími í Sambandi herstöðvaandstæðinga. „Mér
fannst mjög gott að vinna með Steingrími, hann
var léttur í lund og þægilegur í samvinnu. Hann
var yfirleitt kátur og stutt í grínið hjá honum,“
segir Bjami Felixson, sem starfaði með Stein-
grimi á íþróttadeild Sjónvarpsins. „Hann Stein-
grímur minn hefur alltaf verið góður og dugleg-
ur, þessi elska. Það er alveg óhætt að treysta
honum, hann er líka sérstaklega hjálpsamur
sonur og duglegur að taka til. Hann sýndi
snemma mikla foringjahæfileika þegar hann var
að stjórna bræðrum sínurn," segir móðir Stein-
gríms, Sigríður Jóhannesdóttir, húsmóðir á
Gunnarsstöðum í Svalbarðahreppi. „Hann er
lygilega skemmtilegur og sinnir starfi sínu vel
sem þingmaður,*1 segir Róbert Marshall, for-
maður Verðandi.
„Steingrímur er enginn ævintýra-
maður í pólitík. Hann væri skemmti-
legri ef hann hefði smá anarkistaneista
í sér,“ segir Birna Þórðardóttir. „Hann
var of hallur undir blakið. Að vísu átti
hann að sjá um blakfréttimar en það
er sama. Ég var alltaf að vona að hann
kæmist lengra í blakinu en hann klikk-
aði, hann átti að fara í landsliðið en
ekki pólitíkina,“ segir Bjarni Felixson.
„Hann Steingrímur er stífur á sínu og
stundum utan við sig. Hann var sér-
staklega utan við sig þegar hann var
yngri,“ segir móðir Steingríms, Sigríður
Jóhannesdóttir. „Steingrímur er
ósveigjanlegur, algjör frekja og talar of
mikið,“ segir Róbert Marshall.
Steingrímur J. Sigfússon,
formannskandidat í Alþýðubandalagi
Steingrímur J. Sigfússon slæst nú af alefli við Margréti Frímannsdóttur um formannssæti Alþýðubandalagsins.