Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 27.07.1995, Blaðsíða 13
|FIMMTUD7VTGURw27raOCnr9Tg'5' svo mikil reisn yfir Alþýðublað- inu að það kom út á laugardög- um eins og önnur blöð og svo var líka til NT. NT var fyrirbrigði sem þeir sem unnu við það eiga til að kalla NT- ævintýrið þegar fe mærðin hellist yfir þá en aðrir * líta á sem hvert annað rugl. í raun var það ekkert verra rugl . en aðrar tilraunir sem hafa verið gerðar til að breyta gamla Tím- •i anum í markaðsvöru á mölinni. Borgarbúar hafa alltaf fúlsað við slíku eins og verið væri að bjóða þeim súkkulaði með beikon- bragði. Það var því ekki að undra að okkur vinunum fannst helgarblað NT lélegast og ákváð- um að sækja um að fá að ritstýra því. Þetta var í ágúst 1985. Magn- ús Ólafsson, sem hafði ver- ið kallaður heim frá Þýska- landi til að stýra NT, var þá horf- inn á braut fyrir þremur mánuð- um vegna ósátta við eigendur blaðsins, sjálfan Framsóknar- flokkinn. Með Magnúsi hafði horfið lungan úr ritstjórninni en ^ Helgi Pétursson verið ráðinn til að reyna að stýra þessu blaði frá fyrirsjáanlegu þroti. Ég held að Helgi hafi verið bú- inn að átta sig á því þegar við ) heimsóttum hann að það verk- efni sem honum var falið var óleyscmlegt. Hann var auðsjáan- lega með hugann við bókhaldið eða eitthvað slíkt þegar hann tók á móti okkur og sýndi okkur temmilegt fálæti. Ég áttaði mig á að leikurinn væri tapaður og greip til þess ráðs að bjóðast til að skrifa helstu hugmyndir okk- ar niður á blað og færa honum litla greinargerð daginn eftir. Helgi samþykkti það, ef til vill fyrst og fremst til að losna við okkur svo hann gæti haldið áfram neyðarfundum með fram- kvæmdastjóranum. Hvað um það. Við félagarnir fórum heim og hömruðum ailt | það niður á blað sem hvarflaði að okkur að gæti hugsanlega átt erindi í svona helgarblað. Dag- | inn eftir færðum við Helga síðan mikinn doðrant með afskaplega litlu viti. En Helgi tók hins vegar viljann fyrir verkið — ef hann hefur þá lesið skýrsluna — sló til og réð þessa dugnaðarforka. | En til að gera langa sögu stutta þá fann vinur minn sig engan veginn í blaðamannsstarf- inu og hvarf fljótlega á braut. Ég sat hins vegar einn eftir með helgarblaðið hans og skrifaði og skrifaði og skrifaði. Mig minnir að þetta hafi verið einar 24 síður á viku og það liðu einir tveir mánuðir áður en ég fékk hjálp til að skila þeim af mér. Eg hef hvergi séð þessi blöð síðan þá og myndi sjálfsagt líta undan ef það henti mig. Mig minnir að þetta hafi verið ákaflega vond ) blöð og ekki síður óholl þeim sem lásu en þeim sem skrifaði. Ég sá svo illa út úr því sem ég ) var að gera að ég freistaðist meira að segja til þess eina vik- 1 una að dikta upp viðtal við frá- skilinn og miðaldra mann sem bjó upp á Hverfisgötu. Svona gera menn náttúrlega ekki nema I ungir og veikgeðja en ég afsak- aði mig með því að virðuleg ráð- herrafrú hafði hrifist svo af við- talinu að hún sendi mér þær kveðjur inn á ritstjórn að hún hefði aldrei lesið raunsannara viðtal. Ég var bölvaður krakki og tók þessu frekar sem skjalli en skilaboðum um hvers kyns ver- öld grey ráðherrafrúrnar lifa í. En hvað um það. Vinur minn 1 hafði sem sagt skilið mig eftir í súpunni og ég er fyrst núna að stíga upp úr henni. ) nnars er þetta búin að vera / | ágæt vist. Það er bara þegar / Vmaður er að fara að maður • man eftir atvikum eins og gerð- ist þegar við vorum á Eintaki upp á Vatnsstíg. Þá fékk einn blaðamaðurinn það hlutverk að hringja í Eirík skipherra Krist- ófersson og spyrja hann hvort • hann myndi ekki eftir einhverj- um breskum landhelgisbrjót sem hefði farið sérlega í taugarn- - ar á íslendingum. Eiríkur var þá \ orðinn eitt hundrað ára og alls ekki með góða heyrn. Við hin heyrðum að sjálfsögðu ekki nema helming samtalsins. Það fór svona fram: „Ha, er ég glaður? Nei, ég er blaðamaður." Blaðamaðurinn hálfhrópaði þetta í símann í von um að Eirík- ur heyrði. Og svo endurtók hann þetta fimm sinnum en gafst loks upp, horfði á símtólið, hristi hausinn og lagði á. Við hlógum mikið að þessu. Okkur fannst sem misheyrnin í Eiríki hefði einhvern sannleiks- kjarna. Það getur enginn orðið glaður blaðamaður. Og sannleikskjarninn í þessu er sá að þetta er bölvað skítajobb, eins og sagt er. Biaðamaðurinn er sjaldan í ánægjulegum samskiptum við fólk. Hann reynir að fá fólk til að ræða það sem það á bágt með að ræða. Oft hittir hann fólk fyrir þegar það er í mestu sorg lífs síns eða mestu skömm. Jafnvel þegar hann er að reyna að falast eftir einföldustu upplýsingum á fólk það til að streitast á móti og hengja sig í einhverjar fáránleg- ar reglur til að haída aftur af upplýsingunum. Og meira að segja þegar hann tekur viðtöl sem virðast sakleysisleg byrjar hann á því að vinna trúnað við- mælandans en þegar hann er sestur við tölvuna er einhver andlitslaus lesandi orðinn hans einka-trúnaðarvinur. Ég hef því oft sagt að blaða- mennska sé frekar persónugalli en fag. Ég hef séð fólk gefast upp á fáeinum dögum eftir að hafa aldrei mátt eiga almennileg sam- skipti við fólk. Og ég hef líka tek- ið eftir því að þegar fólk hverfur úr stéttinni og snýr þangað aftur er það lengi að fóta sig aftur. Það er orðið vant því að eiga venju- leg samskipti við annað fólk. Aþessum tíu árum hef ég þvælst nokkuð víða. Ég byrjaði á NT sem varð síð- an að Tímanum, fór síðan á Helg- arpóstinn og þaðan á DV. Síðan gerðist ég ritstjóri á Pressunni, þar næst Heimsmynd, þá Eintaki og loks á Póstinum. Það, sem fékk bestu blaðamennina á þess- um blöðum til að þola það að vera sífellt að abbast upp á fólk með óvelkomin erindi, var sú trú að almenningur ætti rétt á upp- lýsingum um þjóðfélagið sem hann lifir í. Og á þessum tíma og frá þessum blöðum hefur ótrú- lega margt af því sem þaga átti yfir verið dregið fram í dagsljós- ið. Og þannig verður það áfram. Ég ætla hins vegar að láta það yngri og kappsamari mönnum að skrifa þessar fréttir í framtíð- inni. Ég verð hins vegar lesenda- megin við þær héðan í frá. Ég er runninn saman við lesöndina. . Ekki skil ég hvers vegna hann Andrés Magnússon er að teikna mig eins og einhvern bónapart með þessari grein. Ég er hvorki á leið að Waterloo né St. Helenu. Honum fannst mynd- in hins vegar svo góð að hann hefur teiknað sjálfan sig í bak- grunni sem lítinn og feitan sak- leysingja. Ef einhver vill skilja þennan einkabrandara okkar verður sá að snúa sér til Andrés- ar. Ég læt það hins vegar eftir mér að láta myndina flagga með hugheilum tíu ára starfs- afmælisóskum til sjálfs míns. Brenna á Fjósakletti - klikkar aldrei Flugeldasýning - sú stærsta frá upphafi Brekkusöngur - þú, Árni Johnsen og allir hinir FLUGLEIÐIR <*> HERJÓLFUR FLUGFÉLAG VESTMANNAEYJA ÍSLANDSFLUG Samkvæmt óstaðfest- um heim- ildum PÓSTSINS hefur rekstrarhagnaður Flugleiða á fyrstu sex mánuðum ársins tvö- faldast miðað við það sem hann var í fyrra. Þá nam hagn- aðurinn af rekstri stálfuglanna um það bil þrjú hundruð milljónum króna fram til loka júní- mánuðar, en í ár lítur út fyrir að hagnaður- inn sé orðinn allt að 600 milljónum á sama tíma. Flugleiða- menn hafa lítið verið að hampa þessum tölum enn sem kom- ið er, og verða þær vart endanlega stað- festar fyrr en um miðjan september, en þá senda þeir sína árlegu fréttatil- kynningu um afkom- una á fyrri hluta árs- ins. Flugvirkjar hafa kannski haft ein- hvern pata af þess- um tölum þrátt fyrir að þær séu langt í frá opinberar enn, altént virðast þeir vissir um að Flugleiðir hafi efni á að borga þeim mun meira en þeir buðu þeim í kjara- samningum á dögun- um. Það tilboð var snarlega fellt af flug- virkjum og eru þeir í miklum vígahug þessa dagana og vilja miklu meira...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.