Helgarpósturinn - 14.11.1996, Side 10

Helgarpósturinn - 14.11.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1996 HELGARPÓSTURINN Útgefandi: Lesmál ehf. Framkvæmdastjóri: Árni Björn Ómarsson Ritstjóri: Páll Vilhjálmsson Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Enginn sár, nema flokkurinn allur Sighvatur Björgvinsson, nýr formaður Alþýðuflokksins, er eldri en tvævetur í pólitík. Eftir að hafa sigrað Guðmund Árna Stefánsson með 19 atkvæða mun á landsþingi flokksins, en vera samt í kjöri með blessun og stuðningi óskoraðs for- ingja Alþýðuflokksins í meira en áratug, Jóns Baldvins Hanni- balssonar, lagði Sighvatur þá línu að enginn kæmi sár frá landsþinginu. Á máli atvinnumanna í auglýsingum og al- mannatengslum heitir þetta að setja „réttan vinkil“ á atburð- inn. Guðmundur Árni Stefánsson var kandídat þeirra alþýðu- flokksmanna sem sannfærðastir eru um að eina færa leið flokksins úr ógöngunum sem hann hefur ratað í sé samstarf við aðra vinstrimenn, sérstaklega Alþýðubandalagið. Sighvat- ur er fulltrúi forystunnar sem ber ábyrgð á einkar illa ígrund- aðri pólitík síðustu ára. Alþýðuflokkurinn sveigði til hægri í upphafi áratugarins þegar sá fyrir endann á hægrisveiflunni á Vesturlöndum. Breyttar áherslur gerðu raunar strax vart við sig 1987 þegar flokkurinn myndaði stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn- arflokki. Stjórn Þorsteins Pálssonar var skammiíf og ári síðar tók Alþýðuflokkurinn höndum saman við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag og myndaði ríkisstjórn undir forsæti Stein- gríms Hermannssonar. Vinstri stjórnin gat státað af merkileg- um árangri í efnahagsmálum þegar gengið var til kosninga vorið 1991. Stjórnin hélt meirihluta, naumum þó, og bæði Al- þýðubandalag og Framsóknarflokkur lýstu yfir vilja til áfram- haldandi samstarfs. Alþýðuflokkurinn kaus að fara í helminga- skiptastjórn með Sjálfstæðisflokknum. Sighvatur Björgvinsson var ákafur talsmaður hægrimanna í Alþýðuflokknum og kappið svo mikið að hann gleymdi upp- runa flokksins: Heldur fólk virkilega að það eigi ekki að greiða fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem það fær? spurði þáverandi ráðherra Alþýðuflokksins og lét eins og almannatryggingar væru illa þokkaðar af jafnaðarmönnum. Misheppnuð innanlandspólitík Alþýðuflokksins síðustu ára bliknar þó í samanburði við utanríkisstefnu flokksins. Forysta flokksins telur sér til tekna að hafa tryggt aðild íslands að samningnum um evrópskt efnahagssvæði, EES. Víst er það rétt að allir aðrir flokkar en Alþýðuflokkurinn áttu framan af í vandræðum með að gera upp hug sinn gagnvart EES. En í ljósi þess að samningurinn var framlenging á EFTA-samstarfinu sem ísland gekkst við á sjöunda áratugnum er hæpin sagn- fræði að þakka ríkisstjórnaraðild Alþýðuflokksins að EES- samningurinn fékk samþykki þingsins. Tregða annarra stjórnmálaflokka við að fallast á EES-samn- inginn hefði átt að hringja bjöllum í Alþýðuflokknum. Allt frá lýðveldisstofnun höfðu utanríkismál skipt þjóðinni í hat- rammar fylkingar. Eftir fall Berlínarmúrsins sá almenningur fyrir endann á ömurlegu tímaskeiði. Enginn grundvöllur var fyrir frekari nálgun að Evrópusambandinu með fyrirsjáanleg- um sjálfstortímandi skotgrafahernaði. Forysta Alþýðuflokks- ins daufheyrðist og tók ákvörðun um að setja umsókn um Evr- ópusambandsaðild á oddinn við síðustu kosningar. Flokkurinn galt Evrópustefnuna dýru verði og ekki er gjaldið fullgreitt. Á flokksþinginu minnti Valgerður Bjarnadóttir flokk- inn á að hann getur ekki snúið baki við þeim kjósendum sem lofað var Evrópusambandsaðild. Fyrir ræðu Valgerðar var rætt um að Alþýðuflokkurinn myndi leggja ESB-hugmyndina á hilluna. Og hvað gerðist? Flokkurinn skerpti á Evrópustefn- unni, kaus Sighvat Björgvinsson formann og bauð Alþýðu- bandalaginu samstarf; væri Alþýðuflokkurinn einstaklingur yrði hann úrskurðaður skítsófren. Helgarpósturinn Borgartúni 27, 105 Reykjavík Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeild: 552-4888, símboði (augl.) 846-3332, dreifing: 552-4999. Netfang: hp@this.is Áskrift kostar kr. 800 á mánuði efgreitt er með greiðslukorti, en annars kr. 900. ... HAMFARIR NATTURUNNAR Iú er Grímsvatnahlaupið mikla 1996 afstaðið. Fjórir rúmkílómetrar af jök- ulleir fossuðu á þrem sólar- hringum úr Grímsvötnum. Mest af leirnum barst út á reg- inhaf, sökk þar og verður með tímanum að setlögum á sjávar- botni. Áströndinni standa eftir forviða áhorfendur, ísjaka- hrannir, laskaðar brýr, rofnir vegir, skörðóttir varnargarðar og þúsund milljón krónu hag- vöxtur (viðgerðirnar), sem rík- isstjórnin ætlar að jafna niður á næstu þrjú árin. Þannig kemur hagvöxturinn best út á skýrslum. Varla eru blaðaljósmyndarar og óðamála sjónvarpsgaprípl- ar búnir að pakka saman græj- um sínum eftir hamfarirnar þegar fyrstu táknin um nýjar hamfarir — hið árvissa hlaup úr jökulvötnum bókaútgefenda — fara að birtast. Blöð og ljósvakamiðlar eru eins og skjálftamælar Bók- menntastofnunarinnar. Eðlis- fræðin á bak við nákvæmar mælingar þeirra apparata er einföld og traust. Orkugjafinn er peningar. Blöð þurfa rekstrarfé, út- varp þarf rekstrarfé, sjónvarp þarf rekstrarfé. Það rekstrarfé kemur m.a. frá bókaútgefend- um, sem kaupa mikið af aug- lýsingum hjá þessum stofnun- um um framanvert skammdeg- ið. Starfsfólk blaðanna kann góð skil á því hverjir eru væn- legir auglýsendur. Og skjálfta- mælavísar dagblaðanna slá ekki út nema hræringar séu í nágrenni við gróðavonina. Frá áramótum hafa dagblöðin ekki sýnt nein merki þess að þeim sé yfirleitt kunnugt um tilvist bóka, en það breytist stréix og hamfarirnar nálgast. Þorgeir Þorgeirson skrifar Eins er þetta með útvarp og sjónvarp. Undarlegur náungi sem ég þekki tók eftir því núna í vik- unni að skjálftamælar Bók- menntastofnunarinnar fóru að sýna titring. Hann orðaði þetta svona maðurinn — og átti þá við að blöð og útvarp eru nú að fyllast af bókafregnum, bókarýni, bókaspjalli, viðtölum og al- mennum greinum um væntan- legar jólabækur. Innan þriggja vikna má búast við hámarki flóðsins. Þá flýtur metsöluleirinn í tugþúsundum rúmmetra á sekúndu og ber með sér nokkra heillega ísjaka sem stranda kannski á flatlend- inu og verða þar til augnayndis meðan þeir eru að bráðna. Hitt flýtur út á miskunnsamt haf gleymskunnar og sekkur. Og hann var að hugsa fleira um þessar hamfarir — náung- inn undarlegi, sem ég nefndi áðan. Hann var að velta fyrir sér þeirri breytingu sem orðin er á stöðu rithöfundarins í sam- félaginu síðan við vorum ungir — því vitaskuld er þetta jafn- aldri minn. Þegar við vorum ungir var besti rithöfundurinn sá sem beindi athygli sinni fastast að heiminum og skoðaði hann ná- kvæmast. Ritstörf voru þessi viðureign einstaklingsins við heiminn. Heimurinn og rithöfundur- inn horfðust svo í augu eins og elskendur eða fjandmenn eftir atvikum. Og þá fyrst vaknaði athygli heimsins á höfundin- um. „Innan þriggja vikna má búastvið hámarki flóðs- ins. Þá flýtur metsölu- leirinn í tugþúsundum rúmmetra á sekúndu og ber með sér nokkra heillega ísjaka sem stranda kannski á flat- lendinu og verða þar til augnayndis meðan þeir eru að bráðna. Hitt flýt- ur út á miskunnsamt haf gleymskunnar og sekkur.“ Nú hefur þetta alveg snúist við. Fyrst verður athygli heims- ins að beinast að höfundinum. Til þess eru ærin ráð: viðtöl í blöðum og ljósvakamiðlum, fréttir og ljósmyndir (ég var að finna í fórum mínum um það bil 10 ára gamla tilkynningu frá blaði þar sem getið er um hlut- fallið: Fyrir hvern dálksentí- metra af greiddum auglýsing- um hjá blaðinu átti útgefand- inn að fá 10-15 dálksentímetra af fréttum, myndum og vin- samlegri umfjöllun um við- komandi höfund). Undir þetta eru menn seldir ef þeir vilja dansa með í hamförunum. Þegar athygli heimsins er náð með þessum ráðum skipt- ir það minna og minna máli hvað í bókunum stendur. Þær eru bara gjafavara. Enda er höfundurinn orðinn hluti af slysi sem hann ræður sjálfur engu um. Framvinda þess stjórnast af öflum sem hann vogar ekki að skilja. Hann skuldar þessum öflum þá at- hygli sem heimurinn veitir honum, jafnvel án minnstu verðleika. Við hann er sagt eins og austfirðingurinn mælti við grjónin í grautnum sem hann var að éta með gaffli: — Tolliði veð ef þið ætlið með. Það er nú öll ijóðagerðin. Við gamla fólkið litum á bók- menntir eins og hver önnur samgöngumannvirki. Líklega er rétt að skilja sam- líkinguna með Jólabókaflóði og Grímsvatnahlaupi á grundvelli þeirrar afstöðu. Enginn má þó halda að ég sé neitt að ráðast til atlögu við þessar hamfarir. Það er mikill leir til sjávar runninn síðan Jaroslav sálugi Hasek bauð sig fram til borgar- stjóra í Prag undir kjörorðinu: „Við erum eini flokkurinn sem opinberlega hefur mótmælt jarðskjálftunum í Mexíkó!" Og tapaði kosningunum. Hitt má þó að endingu taka fram að skilji síendurtekin Jólabókaflóð við samgöngu- mannvirki skáldskaparins í rúst þá mun engin ríkisstjórn hafa neinn hag af því að láta gera við skemmdirnar, því munurinn á þessum tvennu hamförum er sá að Gríms- vatnahlaup skilar ekki hag- vexti fyrr en farið er að byggja mannvirkin upp aftur en Jóla- bókaflóð skilar sínum hagvexti strax meðan leirinn veltur yfir. Það er nú hin peningalega staðreynd málsins. Frá lesendum ■ Bréf var sent á ritstjórnina og spurt hvort HP ætlaði ekki að fjalla um þátt Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í málefnum þjóðgarösvaröar og Þingvallaprests. ■ Vestmanneyingur skrifaði blaðinu, þakkaöi fyrir breyting- arnar og sagðist lítast vel á. Hann óskaði útgáfunni vel- farnaðar. ■ Eftirfarandi vísa barst HP með óskum um bjarta fram- tíö: Okkar von er leynt og Ijóst, að lukkan hvergi bíði þjóðin heimti Helgarpóst, hvað sem öðru líði. ■ Ungur maður frá Rómönsku Ameríku en búsettur í Hvíta- Rússlandi skrifaöi HP og bað um að því yrði komiö á framfæri að hann óskaöi eftir íslenskum pennavinum, stúlkum á hans aldri. Viðkomandi heitir Gonz- alo Portilla, er 23 ára og 175 sm á hæð. Heimilisfangið er Poste Restante, Main Post Off- ice, Minsk 220050, Belarus.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.