Helgarpósturinn - 28.11.1996, Blaðsíða 4
4
FlMIVmJDAGUR 28. NÓVEMBER1996
Er borgin virkilega
að vinna gegn
jafnrétti, Hildur?
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, hélt því fram um daglnn að
stefna Reykjavíkurborgar i launamál-
um ynni gegn jafnrétti. Við hljótum
að spyrja: Getur það verið, miðað
við að borgin er nú loksíns með starf-
andi jafnréttisráðgjafa og Reykja-
víkurlistinn lagði sérstaka áherslu á
jafnréttismál í kosningabaráttunni?
Hvað er á seyði Hildur Jóns-
dóttir, jafnréttisráögjafi Reykvík-
inga?
Ég held að Ögmundur hafi gagn-
rýnt þá stefnu borgarinnar að kanna
lelðir til að færa ákveðið ákvarðana-
vald út til stofnana borgarinnar, þá
framtíðarsýn að það gefist svigrúm
innan hverrar stofnunar til að koma
að launamyndunlnni og þar með
bregðast við launamisréttinu.
Það sem ég vll benda á í tilefni af
málflutningi Ogmundar, og reyndar
ASÍ líka, því ég skil ekki hverníg for-
seti þess gat látið taka við sig þriggja
síðna Moggaviðtal án þess að minn-
ast orðl á launajafnrétti kynjanna, er
hvað íslensk verkalýðshreyfing er
langt frá því að koma sér upp tækj-
um til að glíma við launamun kynja.
Það er tilhneiging tll að tala um þetta
einvörðungu sem láglaunavandamál
og að með því að hækka lægstu laun-
in sé búið að afgreiða málið. Það er
bara ekki nóg. Það hefur komið í Ijós
með könnunum að launamunur fer
hraðvaxandi með aukinni menntun.
Ef launþegasamtökin ætla ekki að
vera með neinar aðrar aðferðir en að
lyfta lægstu launum þá ná þau ekki
utan um launamun kynjanna.
En er borgin meö ákveöna jafn-
réttisstefnu fyrir nœstu kjara-
samninga?
Ég kem ekki formlega að gerð
kjarasamninga eða launasteínu borg-
arinnar í heild, hún er í höndum
samninganefndar borgarinnar og
pólitíkusanna. En ég get greint frá
þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar
eru til að minnka launamun kynja,
sem eru auðvitað hluti af launastefn-
unni.
Hverjar eru þœr aögerðir?
Það liggur fyrir tillaga í fjórum lið-
um til að draga úr launamuninum,
því vlðurkennt er að launamunur
kynjanna geti átt sér margar sam-
verkandi orsakir og þess vegna dugi
engin ein leið. 1 fyrsta lagi segir að í
næstu kjarasamningagerð þurfi að
beita sér sérstaklega til að hækka
hefðbundin, lágt launuð kvenna-
störf. Leggja þurfi nýjan grunn að
launamyndun hjá Reykjavíkurborg
til framtíðar þannig að laun verði í
samræmi við verðmæti starfa og geti
jafnvel verið tengd einstaklings-
bundlnni frammistöðu. Ég held að
Ögmundur hafi líka sett þetta sfðast-
nefnda fyrir sig. Því er til að svara að
auðvitað er gert ráð fyrir þvi að slíkt
mat farl eftir samþykktum, kynhlut-
lausum reglum en ekkl ( þeim felu-
leik sem nú viðgengst í þjóðfélaginu.
I þriðja lagi að hver stofnun geri
áætlun um jöfnun þess launamunar
sem kemur f ljós innan stofnunarinn-
ar. Þetta sé hluti af vinnu hverrar
borgarstofnunar að starfsáætlun í
jafnréttismálum. í fjórða lagi er mik-
ið misræml mllll gelra; í karlageíran-
um hafa menn teklð sér meira svig-
rúm og stjórnendur hafa verið virk-
ari í að hækka laun. Því viljum við
skoða sérstaklega launamun milli
borgarstofnana sem hafa annars
vegar hátt hlutfall karla og hins veg-
ar kvenna.
Hvar stendur þessi tillaga?
Borgarráð hefur fjallað um hana
og þar kom ekki fram ágreiningur um
hana. Nú er hún til umsagnar hjá
jafnréttisnefnd og ég á ekki von á
öðru en hún fari þaðan aítur innan
skamms og til afgreiðslu.
Er veriö aö tala um miklar
breytingar í starfsliáttum stofnan-
anna?
í raun ekki, það er frekar verið að
fá fram I dagsljósið hvernig hlutirnlr
eru. Hvort sem okkur líkar það betur
eða verr er raunverulelkinn þannig
að launamunurinn, bæði hjá ríki og
borg, hefur orðlð til að mestu leyti
vegna ákvarðana sem eru teknar úti I
stofnununum. Markmiðið er að fá
þessar ákvarðanir upp á yfírborðið.
Það að draga úr miðstýringu launa-
myndunar þarf sjálfkrafa ekki að
hafa f för með sér eitt né neitt. Þetta
er spurning um það hvaða reglur
verða settar í framhaldinu. Það verð-
ur fylgst með stofnunum og gerð
krafa á þær um aðgerðlr til að draga
úr launamun kynjanna. Það er út í
hött að tala um að verið sé að vinna
gegn jafnréttl.
Stress, fjárhagsáhyggjur og framhjáhald í jólaglöggsveislum fyrirtækja eru fylgifiskar
jólahátíðarinnar. Það mætti því álykta að skilnaðir og sambandsslit væru tíðari í jóla-
mánuðinum. Eða hvað? Slíðrar fólk fremur sverðin, leitar sátta við ástvini sína og nýt-
ur hátíðarinnar? HP kannaði málið...
Þolir fjölskyldan jólin?
■■ ■ ú ætti að fara í hönd sá mánuður sem flestir
UMU híða eftir. Desember, með jólunum og undir-
■ Hbúningi þeirra, er flestum ánægjulegur, enda
er hér um að ræða mánuð helstu hátíðar kristinna
manna á Vesturlöndum. Jafnvel þó að trú fólks sé
ekki mikil hugsa margir með ánægju til samveru-
stunda með fjölskyldu og vinum í fjölmörgum jóla-
boðum og heimsóknum.
En desember er ekki öllum gleðilegur. í þessum
mánuði eru tengslin við fjölskyldumeðlimi í brenni-
depli og ýmsir velta þeim fyrir sér og taka þau til end-
urskoðunar. Aðrir hugsa um andlega líðan sína og
velta fyrir sér hvert stefni í lífinu. Víða eru samskipti
fólks það brothætt að það þolir illa nánari samvist og
ekkert má út af bera til að sambönd fari í vaskinn. Það
er því varla á bætandi þegar stressið grefur um sig
vegna fjárhagsörðugleika eða áiags sem fylgir skipu-
lagningu jólahátíðarinnar. Hvað þá allar jólaglöggs-
veislurnar í fyrirtækjum sem sögur fara af fyrir fram-
hjáhald, sem hefur óhjákvæmileg áhrif á samskipti
hjóna og para. Desember er því mörgum fjölskyldum
skeinuhættur og margt að varast ef samböndin eru
veik fyrir.
Margir reyna hins vegar að leita sátta þegar jólin
nálgast og stundum tekst það. Því er það auðvitað
ekki algilt að sambönd springi um þetta leyti og má
geta þess að skilnuðum hefur í raun fækkað töluvert
frá 1991. HP leitaði álits hjá þeim sem til þekkja um
hvort desember geti verið samböndum fólks vara-
samur?
Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
félagsráðgjafi:
Jólainnkaupin
mörgum þungbær
„Ég hugsa að fólk ýti frá sér vandamálum sínum til
seinni tíma og reyni að njóta jólahátíðarinnar. Ég get
því ekki sagt að fólk leiti til mín í meira mæli í desem-
ber en aðra mánuði ársins,“ sagði Sveinbjörg Júlía
Svavarsdóttir félagsráðgjafi. Það væri hins vegar
greinilegt að sumir yrðu stressaðri í þessum mánuði
en öðrum, en það hefði
sem betur fer ekki áhrif á
skilnaðartíðni, enda liði
flestum vel yfir hátíðirn-
ar. „Það er síðan ekki fyrr
en kemur að skuldadög-
um, í janúar og febrúar,
sem fer að syrta í álinn.
Ég finn þá fyrir að fólk
leitar í meira mæli til mín
en aðra mánuði ársins,
— það er eins og fólk sé
að flýja einhvern vanda
með því að skjóta vanda-
málum sínum á frest.
Fólk hefur haft á orði við
mig að það vilji frekar
fresta ákvarðanatökum
um jólin, bæði sín vegna og barnanna.
Það er svosem ekki einfalt að átta sig á því hvað
veldur fjölgun heimsókna til mín um þetta leyti árs en
jólin hafa örugglega einhver áhrif.“
Árni Bergur Sigurbjörnsson,
Bústaöakirkju:
Desember get-
ur verið erfiður
„Ég get nú ekki sagt að ég verði var við að
desember reyni meira á samband hjóna en
aðrir mánuðir gera. Hitt er annað mál að
þessi mánuður er ýmsum erfiður vegna
spennu sem myndast og slæms fjárhags. Það
er greinilegt að fjárhagur fjölskyldnanna hef-
ur verið bágborinn síðustu ár, en vonandi sér
fram úr því. Það er til dæmis greinilegt að
fjárhagsáhyggjur fólks aukast verulega í byrjun nýs
árs þegar það gerir upp jólahátíðina. Við reynum auð-
vitað að leysa margslungin vandamal fólks ef því er að
skipta, en það er oft erfitt,“ sagði Árni Bergur Sigur-
bjömsson, prestur í Bústaðakirkju.
Þorvaldur Karl Helgason hjá Fjöl-
skylduþjónustu kirkjunnar:
Fólk vill bæta sam-
skiptin
„Fólk hugleiðir mikið um eigin fjölskyldu og sam-
skipti við aðra fjölskyldumeðlimi um þetta leyti árs,
enda eru þessi bönd í sviðsljósinu yfir jólahátíðina. I
framhaldi af því velta sjálfsagt margir fyrir sér and-
legri líðan sinni og hvort tengslin við aðra meðlimi
séu eins góð og þau ættu
að vera. Fjölskylduráð-
gjöf kirkjunnar hefur ver-
ið starfandi í um fimm ár
og þann tíma sem ég hef
starfað þar hef ég fundið
að slíkar spurningar eru
ofarlega í huga fólks sem
til okkar leitar,“ sagði
Þorvaldur Karl Helga-
son hjá Fjölskylduþjón-
ustu kirkjunnar.
Að sögn Þorvaldar er
desember greinilega
þungur þeim sem standa
frammi fyrir erfiðum fjöl-
skyldutengslum en að
sama skapi gleðilegur
þeim þar sem tengslin eru góð. „Það er mikið af fólki
sem er einmana einmitt á þessum árstíma og í sumum
tilfellum má ekki mikið út af bregða
hjá fólki. Því miður hefur það brunnið
við að sambönd bresti vegna álags
sem fylgir jólahátíðinni. Það sem er
veikt fyrir brotnar endanlega ef til
þess kemur og hlutir eins og jólaglögg
í fyrirtækjum og fjárhagsáhyggjur geta
ýtt undir erfiðleika í sambúð. Þessi
mánuður lætur fólk því ekki í friði þeg-
ar samskiptin við aðra fjölskyldumeð-
limi eru annars vegar og því eru það
margir sem viija taka til hendinni í
nóvember og sættast við ástvini. Hlut-
ir eins og jólaglögg í fyrirtækjum eru
því stundum ekki til þess fallnir að
bæta ástandið ef þeir stuðla að minnkandi samvistum
hjóna."
Þorvaldur segir greinilegt að fólk noti jólin til að
gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart ástvinum og
þau verði til þess að hjón sem hafa átt í erfiðleikum í
sambúð nái betur saman og vilji reyna að halda sam-
vistum áfram. En svo er ekki í öllum tilfellum. „í janú-
ar og í febrúar verðum við hjá fjölskylduþjónustunni
vör við vonbrigði fólks vegna jólanna og að þau hafi
ekki verið eins ánægjuleg og hjá öðrum. Það er því
hvort tveggja sem gerist hjá því fólki sem á í einhvers
konar erfiðleikum og hefur leitað til okkar.“
Að sögn Þorvaldar hefur skilnuðum fækkað nokkuð
á síðustu árum og ætti kirkjan án efa sinn þátt í því.
„Við höfum verið iðnir við að benda fólki á að til eru
aðrar leiðir en skilnaður og það sé möguleiki út úr
vandanum. Það er gleðilegt að geta hjálpað fólki og
einnig þeim sem eru komnir í skilnaðarhugleiðingar
að skilja án leiðinda, með velferð barna ekki síst í
huga.“
Bragi Skúlason, prestur á Landspít-
alanum:
Vonbrigðin koma
fram
„Desember er að mörgu leyti líkur sumarleyfismán-
uðunum. Mikið álag er meðal margra fyrir hátíðina en
ró færist yfir fólk þegar hún gengur í garð. Það er
greinilegur vilji fólks að
slíðra sverðin yfir jólin
en ágreiningur getur líka
magnast. Allir hugsa til
jólanna með tilhlökkun
og vonast til að fjöl-
skylduböndin séu traust
en einmitt þegar það er
ekki kunna þau að bresta
og vonbrigðin geta orðið
mikil,“ sagði Bragi Skúla-
sonsjúkrahúsprestur.
„Á síðustu árum hefur
borið á efnahagslegri
kreppu og fólk hefur rætt
við mig um að það gæti
ekki haldið jólin eins og
það hefði kosið. En á
móti kemur að hefðir í fjölskyldum eru það ríkar að
fólki finnst erfitt að draga úr eyðslunni. Ég hef líka
starfað með syrgjendum sem kvíða því að sæti látins
fjölskyldumeðlims er autt á aðfangadagskvöld.“
Nedanmáls
Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur hefur veriö í sviðsljósinu aö undanförnu, enda hefur hann náö þeim einstaka
árangri aö vera samtímis meö tvö verk í gangi á stóra sviöi Þjóðleikhússins; Þrek og tár og
Kennarar óskast. Auk þess er Ólafur nú aö gefa út skáldsöguna Rigning meö köflum.
Hvaöa listamaöur hefur haft mest áhrif á
Þig?
Halldór Laxness, Gunnlaugur Scheving og Jó-
hann Sebastian Bach.
Hvaöa stjórnmálamaöur, lifandi eöa látinn,
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
Jón Sigurösson.
Hvaöa skáldsagnapersónu vildiröu helst líkj-
ast?
Njáli á Bergþórshvoli.
Hvaða persóna mannkynssögunnar vildiröu
helst hafa verið?
Gandhi.
Ef þú fengir aö lifa lífinu aftur, myndiröu þá
breyta einhverju?
Já mörgu, því annars heföi ég ekki áhuga á
því aö lifa aftur.
Hver er merkilegasti atburður sem þú hefur
upplifaö?
Þegar sonur minn datt niöur um stigaop milli
hæöa og var gripinn. Ég sá aldrei þann sem
greip hann.
Hver er merkilegasti atburöur sem þú ætlar
aö upplifa?
Dauöi minn.
Hvaöa atburður, verk eöa manneskja hefur
mótaö lífsviöhorf þitt framar öðru?
Islenskt landslag, íslenskt veöur og íslenskir
sjómenn.
Ef þú ættir kost á því að breyta einu atriöi í
þjóöfélaginu eöa umhverfinu, hvaö yröi fyrir
valinu?
Aö menn yröu vinsamlegri viö náungann án
þess aö taka greiöslu fyrir.
Sérðu eitthvaö sem ógnar samfélaginu ööru
fremur?
Fautaskapur og óhamingja ógna samfélagi og
lífríki.
Mottó?
Batnandi manni er best aö lifa.