Helgarpósturinn - 28.11.1996, Side 7

Helgarpósturinn - 28.11.1996, Side 7
7 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1996 Yfir fimmtíu ökumenn hafa á þessum áratug veriö ákærðirlyrir manndráp af gáleysi ogflestir þeirra sakfelldir. Jens Einarsson og Sigrún Erna Geirsdóttir ræddu viö dæmda menn og könnuöu málsmeðferðina. „Ég verð alltaf stimplaður mordmgi Pegar banaslys verða í um- ferðinni, segir Ólafur Guð- mundsson, formaður Lands- samtaka íþróttamanna, sem hefur kynnt sér ítarlega þá málsmeðferð sem fólk hlýtur þegar það á aðild að banaslysi, „er eins og hugtakið slys sé ekki til lengur. Það er alveg með ólíkindum að svona hlutir geti gerst í upplýstu þjóðfélagi þar sem fólk heldur að mann- úð og nærgætni séu sjálfsagðir hlutir. Sú miskunnarlausa og ruddalega meðferð sem þol- endur umferðarslysa þurfa oft á tíðum að sæta er algjörlega ólíðandi og ósæmandi íslensku þjóðfélagi.“ Saga þeirra ein- staklinga sem fjallað er um í þessari grein rennir stoðum undir sjónarmið Ólafs. Ámi Ársælsson var um ára- bil einn besti akstursíþrótta- maður landsins og vann til allra þeirra verðlauna sem hægt var að vinna til í grein- inni sem hann keppti í. Fyrir þremur árum varð hann manni að bana í umferðarslysi. „Ég var að koma að ljósun- um uppi á Höfða. Þegar ég nálgast gatnamótin sé ég mann sem stendur uppi á eyjunni til vinstri, á miðjum ljósunum. Hann er eitthvað tvístígandi og skimar í kringum sig. Það er komið rautt ljós á beygjuak- reinarnar og bílarnir stopp. Ég held áfram, enda á grænu ljósi, en áður en ég veit af hleypur maðurinn af stað, fyrir framan bílana og í veg fyrir bílinn hjá mér. Ég bremsaði strax en þeg- ar öll hjól voru læst sá ég að það myndi ekki duga, ég sleppti því bremsunum og reyndi að beygja. Því miður, það dugði bara ekki til. Ég hugsaði um það eftir á að kannski hefði ég getað forðað ákeyrslu á manninn með því að aka á bílana á beygjuakrein- inni vinstra megin við mig, en mér flaug það ekki í hug og óvíst hvaða afleiðingar slík ákvörðun hefði getað haft.“ Árni hafði spurnir af dóms- málum í banaslysum og hafði hugboð um hvað væri í vænd- presturinn hefði sagt við jarð- arförina að ég ætti enga sök á slysinu og ég er þakklátur fyrir að aðstandendur mannsins líta þannig á málið. Ég verð alltaf stimplaður morðingi og ég er að sjálf- sögðu alls ekki sáttur við það. Enn sem komið er hef ég ekki ient í vandræðum vegna dóms- ins, en það getur vissulega komið að því. Eg geri mér ljóst að breytingar taka tíma en það eru svo margir sem hafa hlotið þennan óréttláta dóm að það hlýtur eitthvað að fara að ger- ast. Það virðist heldur engu skipta hvernig bílslys ber að. Alltaf er reynt að finna söku- dólg. Það virðist vera mjög á reiki hvað er rétt og hvað rangt. Svo virðist stundum sem góður lögfræðingur sé það sem skiptir máli; hafi mað- ur hann þá sleppi maður. Hvort þú ert sekur eða saklaus er þá ekki lengur aðalatriðið,“ segir Ámi Ársælsson. Ólafur Guðmundsson: Sú miskunn- arlausa og ruddalega meðferð sem þolendur umferðarslysa þurfa oft á tíðum að sæta er algjörlega ólíð- andi og ósæmandi íslensku þjóðfé- lagi. Akæruvaldið: Setjum ekki öll banaslys undir sama hatt „Það er ekki alltaf ákært þeg- ar banaslys af þessu tagi verð- ur,“ segir Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari, „það hafa nokkur slík mál verið felld nið- ur. Líkt og með önnur slys er ákveðið hvort líklegt sé að að- ili verði sakfelldur fyrir verkn- aðinn og ef það er niðurstaðan er maðurinn saksóttur. Þar sem oft eru borin saman um- ferðarslys og sjó- og flugslys má geta þess að fyrir rúmum fjórum áratugum var ákært vegna flugsiyss á Vatnajökli þar sem slys urðu á mönnum. Við förum eftir opinberum réttarfarslögum sem setja okk- ur rammann um hvenær skuli sækja mál. Þetta er því ekki stefna hjá embættinu heldur förum við einungis eftir lögum um meðferð opinberra mála. Það er ekki rétt að við setj- um alla undir sama hatt og för- um með þessi mál eins og glæp,“ sagði Bragi ennfremur. „Umferðaróhöpp eru tilkomin vegna gáleysis, þetta eru slys. Við lítum því á þetta sem yfir- sjón en ekki brot. Þegar fólk segir að það sé ósanngjarnt að setja í sama flokk bílstjóra sem hafa einfaldlega lent í óhappi og þá sem valda slysi vegna þess að þeir voru undir áhrif- um þá bendum við á að dóm- urinn yfir þeim síðarnefndu er a.m.k. helmingi þyngri." Það sem gildir er að negla einhvern Krístján Krístjánsson, 23 ára ísfirðingur, deilir ekki þeirri skoðun Braga að farið sé vægt í mál fólks sem er aðilar að banaslysum. í febrúar árið 1995 var hann búinn að vera vörubílstjóri í fimm ár en lenti þá í slysi sem kostaði einn mann lífið. „í mínu tilfelli hljjóp maður fyrirvaralaust í veg fyrir mig, á móti rauðu Ijósi þar sem ekki var gangbraut. Hann lést. Það gat hins vegar alveg eins verið ég, eða það sem verra er: Ég hefði getað drepið einhvern annan. En þetta var slys." <- Látinn maður dæmdur um. „Ári eftir slysið kom dómur- inn: Dómur 215, mannráp af gáleysi; morðingi. Ég var dæmdur með takmarkaða ábyrgð og því missti ég öku- réttindin einungis í sex mánuði og engan skilorðsbundinn dóm, en mjög oft fá bílstjórar á sig hið síðarnefnda. Ég veit í hjarta mínu að ég gat ekkert að þessu gert og hef gætt þess að taka þetta ekki inn á mig. Þetta var hins vegar erfitt fyrir for- eldra mína og systkini. Dómar af þessu tagi eru út í hött og segja meiri sögu um réttarkerfið en um orsök og ábyrgð í umferðarslysum. Það er auðvitað mjög undarlegt að gangandi vegfarendur og hjól- reiðafólk séu alltaf í rétti en ökumenn bifreiða í órétti. Í mínu tilfelli hljóp maður fyrir- varalaust í veg fyrir mig, á móti rauðu ljósi þar sem ekki var gangbraut. Hann lést. Það gat hins vegar alveg eins verið ég, eða það sem verra er: Ég hefði getað drepið einhvern annan. En þetta var slys. Hugsanlega var maðurinn illa fyrir kallaður og ekki með sjálfum sér. Hann hljóp út á umferðargötu. Frá mínum bæjardyrum séð var það hann sem var valdur að slysinu. Ég hafði aldrei neitt samband við fjölskyldu mannsins. Það var ekkert að segja. Þau vita hvað manni þykir hryllilegt að þetta skyldi hafa komið fyrir. Eg frétti að Jón S. Halldórsson var einn besti __ akstursíþróttamaður okkar íslendinga í mörg ár og helsta driffjöður í málefnum akstursíþróttamanna. Það þóttu því kaldhæðin örlög að hann skyldi láta lífið um aldur fram í umferðarslysi. Eftir slys- ið var ökumaður bíls, sem ók í veg fyrir umferð úr gagnstæðri átt, ákærður af ríkissaksókn- ara fyrir manndráp af gáleysi. Málinu lyktaði á þann veg að bílstjórinn var sýknaður en Jón dæmdur að honum látnum fyrir umferðarlagabrot. Hann lét eftir sig sambýliskonu og eitt barn með henni en auk þess átti hann þrjár dætur aðr- ar. Sambýliskona hans fluttist til Danmerkur nokkrum mán- uðum eftir slysið svo það kom í hlut móður hans, Önnu Ein- arsdóttur, að fylgja málinu eft- ir. „Mér þótti öll meðferð þessa máls ákaflega furðuleg,“ segir Anna. „Ég fékk hvergi að koma að því og ekki lögfræðingur minn heldur. Ég var ekki látin vita þegar málið var tekið fyrir í undirrétti og embættið til- kynnti mér ekki niðurstöður dómsins. Ég frétti það hjá öðr- um. Niðurstaðan var sú að ákærði, bílstjórinn sem ók í veg fyrir Jón, var sýknaður, en Jón dæmdur fyrir umferðar- lagabrot. Það hefur hins vegar verið sýnt fram á að dómurinn er byggður á hæpnum forsend- Akstursíþróttamaðurínn Jón Sig- urður Halldórsson lést um aldur fram í umferðarslysi. Málsmeðferð rannsakenda og dómsyfirvalda er harðlega gagnrýnd af móður Jóns og formanni Landssambands ís- lenskra akstursíþróttamanna. um. Eflaust má deila um hvort hann er réttur eða rangur, en það að dæma mann að honum látnum finnst mér vægast sagt ósmekklegt. Eftir kynni mín af „kerfinu" get ég ekki sagt að virðing mín fyrir því hafi auk- ist.“ Anna segist hafa farið til rík- issaksóknara áður en málið var tekið fyrir í Hæstarétti. Hún vildi fá að segja sína skoð- un á málinu og taldi sig vera með ýmis gögn sem gætu skipt máli. „Þeir tóku mér vel en mér fannst þeir áhugalitlir. Ég fylgdist með málflutningi í Hæstarétti, en þar sem þetta var opinbert mál fékk lögfræð- ingur minn ekki að flytja neina vörn í því. í réttinum sá ég strax að ríkissaksóknari myndi tapa málinu, bílstjórinn yrði sýknaður og dætur Jóns fengju engar eða litlar bætur. Knútur Bruun var verjandi ákærða. Hann flutti mál sitt vel og hafði greinilega lagt mikla vinnu í undirbúninginn. Sömu sögu er ekki hægt að segja um Braga Steinarsson vararíkissaksókn- ara, sem sótti málið fyrir hönd embættisins. Mér fannst hann hafa takmarkaðan áhuga og að hann hefði ekki undirbúið sig nógu vel. Ég spurði Braga eftir réttarhaldið hvort liann teldi einhverjar líkur á að málið ynnist. Hann sagðist aldrei hafa verið eins viss um neitt. Hann lofaði síðan að láta mig vita hvernig hefði farið um leið og dómur félli. Hann gerði það aldrei og ég hringdi sjálf nokkr- um dögum síðar og fékk að vita niðurstöðuna; dómur und- irréttar hafði verið staðfestur. Ég hef aldrei ásakað bílstjórann sem ók í veg fyrir Jón, þetta var óhapp. Það að verða óviljandi valdur að dauða annars manns er skelfilegt," segir Anna. „Ég kannaði mál Jóns S. Hall- dórssonar, segir Ólafur Guð- mundsson, formaður Lands- samtaka íslenskra aksturs- íþróttamanna. „Engin nákvæm rannsókn fór fram á því slysi. Málinu lyktaði þannig að bíl- stjórinn var sýknaður en Jón dæmdur fyrir þrjú umferðar- lagabrot. Hugsaðu þér! Það gerist á íslandi að látinn maður er dæmdur, án þess að hafa verjanda. Aðstandendur fá ekki að koma að málinu. Ég tel að ]3etta sé skýlaust mannrétt- indabrot og dómskerfinu til háborinnar skammar. Hann er meðal annars dæmdur fyrir of hraðan akstur og vítavert öku- lag. Sá dómur er byggður á framburði vitna og ljósmynd- um af slysstað. Ég get rakið lið fyrir lið einstök atriði sem lögð eru til grundvallar og sýnt frain á að dómurinn er byggð- ur á hæpnum forsendum, sem sanna ekkert.“ Vararíkissaksóknari lítur öðrum augum á málið. „Jón var ekki hinn ákærði í þessu máli heldur bílstjórinn og sýkna hans var rökstudd þann- ig að Jón ætti þarna sök að verulegu leyti. Það er því ekk- ert óeðlilegt við það að hann skyldi ekki hafa verjanda," seg- ir Bragi Steinarsson. „Málsatvik voru þau að ég var að koma frá Arnarstapa að brúnni yfir Laxá. Aðstæður voru ekki góðar, það var hálka hér og hvar, skafrenningur og veðrið fór versnandi. Þegar ég átti smáspotta eftir að brúnni tók ég eftir bíl hinum megin við hana. Skyggnið var lélegt og snjóruðningar í vegköntunum gerðu það að verkum að ég sá bílinn seinna en annars. Ég var á undan inn á og sé stuttu seinna að fólksbíllinn byrjar að bremsa. Þegar ég var að koma út af brúnni sá ég að bíllinn var stjórnlaus og hann skellur síð- an með vinstra frambrettið á vinstra hornið á bílnum hjá mér. Framhald þessa máls er allt hið undarlegasta. Skýrsla var ekki tekin af mér fyrr en þrem- ur mánuðum seinna, eftir að pabbi hafði rekið á eftir því hjá sýslumanninum í Stykkis- hólmi. Það hefði dregist enn lengur ef hann hefði ekki gert það. Það var ekki fyrr en fjór- tán eða fimmtán mánuðum eft- ir slysið að mér var birt kæran og dómurinn féll í júní á þessu ári. Þetta var einn skrípaleikur. Fyrst var það öll þessi töf, teikningin af slysstað handa- hófskennd og gerð eftir minni, bíllinn minn var aldrei rann- sakaður og fólksbíllinn athug- aður lauslega í einhverjum bíl- skúr. Ég gerði alls ekki ráð fyrir að verða dæmdur fyrir mann- dráp. Ég tel engan hafa átt sök í þessu máli, þetta var slys. Mér fannst sækjandinn gera í því að láta þetta líta út eins og sökin hefði alfarið verið mín. Farþegi sem var í fólksbílnum bar vitni á þá leið að bílstjór- inn hefði ætlað að ná inn á brúna á undan mér, en það var ekkert mark tekið á þeim fram- burði. Lögfræðingurinn minn keyrði sömu leið og fólksbíll- inn og fann út að hann hefði sennilega verið á milli 80 og 90 km hraða miðað við tíma og vegalengd. Glataði öllu trausti á kerfinu „Ég glataði öllu trausti á kerf- inu,“ segir Kristján og heldur áfram: „Ég áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en saksóknari áfrýjaði þá líka. Hann er ákveð- inn í því að ég sé sökudólgur- inn. Það sem gildir hjá kerfinu er að taka þann sem eftir lifir og negla hann. Ég var 100% viss um sýknu eftir vitnisburð farþegans, mælingar lögfræð- ingsins og formgalla á málinu, en svo fór ekki. Ég missti vinnuna í fram- haldi af dómnum. Hann skemmdi því mikið fyrir mér. Ég átti möguleika á annarri vinnu um sama leyti og slysið varð, en það rann allt út í sand- inn. Ég get ekki lengur unnið sem bílstjóri. Ég er mjög reiður út í kerfið, út í dómarana og aðra sem að málinu stóðu. Mér finnst ekki ganga að allir séu settir í sama flokk, að ég sé flokkaður til dæmis með bíl- stjórum sem valda banaslysi undir áhrifum áfengis eða ann- arra vímuefna.“ Árni Ársælsson og Kristján Kristjánsson voru dæmdir fyr- ir manndráp af gáleysi. Þeir telja sig enga sök eiga á því hvernig fór og þegar málin eru skoðuð er auðvelt að setja sig í þeirra spor. Þeir lentu í því, sem enginn óskar sér, að valda óviljandi dauða annars manns. í kjölfarið kom dómurinn sem mun fylgja þeim eins og skuggi alla ævi.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.