Helgarpósturinn - 28.11.1996, Qupperneq 15
RMMTUDAGUR 28. NOVEMBER1996
15
Skörp ádeil
Lávarður heims
Ólafur Jóhann Ólafsson
Vaka-Helgafell 1996
★★★
Bók Ólafs Jóhanns kom mér verulega á
óvart; ánægjulega á óvart. Áður hafði ég les-
ið Fyrirgefrtingu syndanna en Sniglaveisluna
las ég ekki. Og mun víst ekki hafa misst af
miklu að sögn. En þessari bók hefði ég ekki
viljað missa af.
Mér finnst kveða við nýjan tón hjá Ólafi;
hann byggir ekki upp mikla spennu í byrjun
eins og í Fyrirgefningu syndanna, sem hélt
manni forvitnum bókina á enda. í þessari
bók, sem er skrifuð með þessum undirljggj-
andi trega sem mér finnst ætíð fylgja Ólafi
Jóhanni, rennur frásögnin áfram átakalaust.
Aðalpersóna bókarinnar er Tómas Tómas-
son, ósköp venjulegur maður sem býr í New
York ásamt syni sínum og konu. Kona hans
og sonur eru það sem líf hans snýst um og
hann vinnur ekki af ánægju, heldur vegna
þess að hann verður að vinna fyrir fjölskyld-
unni. Dag einn breytist allt í lífi Tómasar og
breytir honum sjálfum á ótrúlega skömmum
tíma. Kona hans lætur sér fátt um finnast og
heldur sínu striki og á milli þeirra skapast
gjá sem virðist óbrúanleg.
Þessi saga er ádeila; sterk ádeila og greini-
lega skrifuð af manni sem þekkir það sem
hann deilir á. Hann dregur ríka og snobbaða
gerviliðið sem mælir manndóm í peningum
sundur og saman í háði. Hann þekkir vel alla
staðhætti og veit greinilega hvernig þetta
fólk lifir og hvernig á að haga sér innan um
það.
Veikleiki bókarinnar er persónusköpun
Ólafs. Eins létt og hann á með að skrifa
finnst mér hann ekki skapa sterkar persónur
eða draga upp nægilega ljósa mynd af þeim.
Kristín, kona Tómasar, fær sjaldan orðið og
var ég aldrei
ánægð með hve
Ólafur gaf lítið
færi á henni; að
kynnast henni
örlítið betur
hefði gefið bók-
inni meiri fyll-
ingu. Villa,
drengnum
þeirra, gerði
hann hins veg-
ar betri skil.
Aðrar persónur koma lítt við sögu, utan
Frakkinn Monsieur Pian, sem var nokkurs
konar ráðgjafi Tómasar. Ólafi tekst vel upp
og skapar með honum eftirminnilega og
skemmtilega persónu. Ekki síður dregur
hann upp háðska mynd af athafnamanninum
og bókaútgefandanum Hólmgeiri Gústafs-
syni. Það sama gerði hann með ræfils útgáfu-
stjórann, þótt ekki segði hann margt.
Þessi bók hafði sterk áhrif á mig og það
var nokkuð sem ég átti ekki von á frá Ólafi
Jóhanni. Síst af öllu að hann myndi deila svo
harkalega á það sem hann sjálfur lifir og
hrærist í dagana langa.
Ólafur Jóhann hefur ekki verið „in“ hjá
„listaelítunni“, en mér finnst að hann eigi að
fá að njóta sannmælis. Þeir sem telja sig
sjálfskipaða dómara um hvað séu góðar
bækur og slæmar veita honum oft slæma út-
reið og tala um ófrumleika og að hann skrifi
ekki um neitt nýtt o.s.frv. En um hvað eru
bækur? Þær eru um það að lesandinn hafi
ánægju af að lesa þær og skilji eftir sig eitt-
hvað í brjósti manns. Veki ákveðna tilfinn-
ingu hjá lesandanum. Og það er einmitt það
sem þessi bók gerði; festi hana í höndum
mér og kom af stað ákveðnum hughrifum
sem skildu eftir hugsun um tilgang lífsins.
Bergljót Davíðsdóttir
Hvaða bækur ætlarðu ekki að láta framhjá þér fara?
Jón Ólafsson tónlistarmaður:
„Ég verð að lesa Guðmund
Andra Thorsson, íslandsförina,
og svo er kominn tími til að ég
láti hvorki Myndina af Dorian
Gray né Dr. Zhivago framhjá
mér fara lengur."
Guðríður Haraldsdóttir dag-
skrárgerðarkona:
„Ég ætla ekki að missa af Vigdísi
af því ég var svo hrifin af
Grandavegi 7, ég hef lesið allt
eftir Andra Snæ Magnason, sem
ég hef óbilandi trú á, og ætla að
lesa Engar smá sögur og svo hef ég í hyggju
að lesa Draugasinfóníu Einars Arnar Gunn-
arssonar, en hann fær mig alltaf til að flissa.“
Siguijón Ragnar, ljósmyndari og bjargvætt-
ur:
„Mig dauðlangar að lesa bókina um Benj-
amín H.J. Eiríksson sem
Hemnes Hólmsteinn Gissurar-
son skrifar og Bessastaðabœk-
ur foringjans. Regnbogann í
póstinum eftir Gerði Kristnýju
er ég svo ákveðinn í að lesa
eingöngu í þunglyndisköstun-
um í skammdeginu."
Anna Dóra Antonsdóttir
Bert er ekki af
baki dottinn
★★
Bækurnar um Bert hafa verið ofarlega á
metsölulista barna og unglingabóka undan-
farin ár. Anders Jacobsson og Sören Olsson
virðast skírskota til íslenskra lesenda ekki
síður en sænskra.
í Játningum
Berts verður
söguhetjan Bert
fimmtán ára,
með öllu sem
því fylgir. Hann
eignast skelli-
nöðru, fermist
og er í eilífri bar-
áttu við vakn-
andi kynhvöt. Af
þeim sex klíkum
sem hann til-
heyrir er
kvennafarsklík-
an án efa mikil-
vægust.
Sagan, eins og
fyrri sögur um
Bert, er skrifuð í
skemmtilegum
ýkjustíl sem
höfðar bæði til
barna og full-
orðinna, þótt
hann hafi e.t.v.
ekki verið mikið
notaður í barna-
bókum. Ýkju-
sögur hafa löng-
um átt upp á pallborðið og svo er enn.
Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Gegnum
grínið má lesa um erfiðleika Berts á þessu
æviskeiði. Erfiðleika sem margir unglingar
þekkja af eigin raun og og sjá sjálfa sig í
sögumanninum og dagbókarskrifaranum
Bert Ljung. Ein leiðin út úr veseninu er að
hlæja að öllu saman. Það er ekki öllum hent
en uppskriftin er á bls. 72: „Ef ég gæti hlegið
að því hversu ljótur ég væri gæti ég séð sjálf-
an mig utanfrá og þá myndi mér ekki finnast
ég ljótur lengur.“ Tæpt er á ýmsum samfé-
lagsmálum, samkynhneigð o.fl., en ekki farið
mjög djúpt. Það er
svo sem allt í lagi.
Aðrir skrifa um það.
Hugmyndin að dag-
bókum Berts er góð.
Hins vegar má ofnota
allar hugmyndir, jafn
góðar sem slæmar,
og spurning hvort
ekki sé komið nóg af
Bert og dagbókum
hans. Auðvitað má
segja sem svo að rétt
sé að nota hugmyndir
meðan þær seljast.
En samt.
Myndir gerir Sonja
Hardin og eru þær í
stíl við söguna. Jón
Daníelsson þýðir
bókina og gerir það
þokkalega en hefði
hér og þar mátt huga
betur að málfari.
Stuttir kaflar og
stórt letur gera þessa
bók aðgengilega fyrir
seinlæsa og má taka
það til fyrirmyndar.
Skjaldborg gefur bók-
f)á ex kátíðl
<£þegar. íslenski ostunnn er kominn á
ostabakkann, fjegar hann kórónar niataajcrdina
- bmWur eða djújisteiktur - eda er einfjalMéaa
settur beint í munninn
Hta
í krtjddoTÍu
Frábær með fersbu salati
og sem snarl.
<3Mascavfitíne
Góður einn og sér og
tilvalinn í matargerðina.
(jplvítm kastati
Með fersfeum ávöxtum
eða einn og sér.
(áþrie
Með feexinu. brauðinu og
ávöxtunum. Mjög
djup- eða smjörsteibtur.
%/anumbirt
Einn og sér, á ostabafefeann
og í matargerð.
GÚljómaostur
Á bexið, brauðið,
í sósur og ídýfur.
3)lon -Jj£)mion
Ómissandi þegar vanda
á til veislunnar.
t/xusjr/a
Mest notuð eins og hún bemur fyrir
en er einfear góð sem fylling í fejöt- og
fisferétti. Bragðast mjög vel djúpsteifet.
oPort (ójalut
Bestur með ávöxtum, brauði
og feexi.
Tilvalinn til matargerðar - í súpur,
sósur eða til fyllingar í fejöt- og
fisbrétti. Góður einn og sér.
<£Pepperoneostur
Góður í ferðalagið.
(cplvítlauks sðric
Kærbominn á
ostababbann. með feexi,
brauði og ávöxtum.
ÍSLENSKIR
OSTAiý
„HÍINASt,