Helgarpósturinn - 28.11.1996, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 28.11.1996, Blaðsíða 23
FlMIVmiDAGUR 28. NÓVEMBER1996 23 Rice Su Tong Touchstone Books 1995 Hrísgijóna* rómanaf bestugerð Kínverski rithöfundurinn Su Tong komst á spjöld bókmennta- og kvik- myndasögunnar þegar hann skrifaöi skáldsöguna Rauöi iampinn. í kjölfar- ið var gerö kvikmynd, sem hlaut meö- al annars útnefningu til Óskarsverö- launa, og var hún sýnd til langs tíma í kvikmyndahúsl hér i borg viö gríöarleg- ar vinsældir. Fyrir þá sem hrifust af Rauöa lampanum er nýjasta bók Su Tong, Rice, algjör skyldulesning. í Rice er sögð saga sveitadrengs- ins Rve Dragons. sem heldur til borg- arinnar eftir aö uppskerubrestur hefur oröiö í heimabyggö hans. Hann er svangur og hrakinn þegar Feng-fjöl- skyldan skýtur yfir hann skjólshúsi. Fi- ve Dragons fær vinnu hjá fjölskyldunni og ílendist því lengi. Hrisgrjónabrask er aöalatvinnuvegur Feng-fjöiskyldunn- ar, sem samanstendur af öldnum föö- ur og tveimur dætrum, Cloud Silk og Cloud Weave. Systurnar eru eins og dagur og nótt; Cloud Silk er iöin og sinnir fjölskyldufyrirtækinu af alúö en Cloud Weave lætur illa aö stjórn og upphefð hennar felst I því aö vera ein fjölmargra hjákvenna yfirstéttarmanns í borginni. Koma Five Dragons til fjöl- skyldunnar raskar jafnvægi hennar og örlagaþræöimir taka aö spinna marg- slunginn vef. Þaö væri tll þess aö eyöileggja fyrir lesendum aö fara nán- ar út i söguþráöinn. Rice er kraftmikil bók sem strax í upphafi hrifur lesendur meö sér til hins aldagamla þjóöfélags Kína. Bókin er 266 siöur, fæst hjá Máli og menningu og kostar 1.395 krónur. Tím Willocks Bloodstained Kings Arrow 1995 Haftur,svikog hefrídaitKNSti Bloodstained Kings er þriöja bók bandariska rithöfundarins Tims Willocks; en síöasta bók hans, Green River Rlsing, var metsölubók og nú er veriö að festa hana á filmu vestur í Hollywood. Meö Bloodstained Kings hefur Tim Willocks enn tekist aö slá naglann á höfuöiö, enda augljóslega á feröinni maður sem kann að segja sögu. Bloodstained Kings er mikil saga og skartar afar fjölbreyttri og áhugaveröri flóru persóna. Þrjár persónur eru þó í aöalhlutverkum en þær eru hinn llli vöröur laganna Clarence Jefferson, moldrík kaupsýslukona aö nafni tenna Parillaud og undarlegur geö- læknir. Dr. Cicero Grimes. Söguþráöur bókarinnar er talsvert flókinn en i stuttu máli er hann á þessa leiö: Lenna er aöframkomin af sorg vegna missis dóttur sinnar en hún er einnig heltekin af hefndarþrá í garö elgínmanns síns. sem nam dótt- urina á brott. Þá er geölæknirinn Grimes, þvert gegn vilja sinum, feng- inn til þess aö hafa upp á dótturinni og færa hana til móöur sinnar. Á þessu stigi taka málin að flækjast og lesandinn er í hrikalegri spennu allt til söguloka. Bloodstained Kings er framúrskar- andi spennusaga þar sem þráhyggja persónanna, hatur og hefnarþorsti keyra hana áfram. Þaö er hikstalaust hægt aö mæla meö Bloodstalned Kings fyrir unnendur vandaöra spennusagna. Bókin er 386 síöur, fæst hjá Máli og menningu og kostar 1.195 krónur. „ Textarnir eru ritskoðaðir, því þeir verða að vera guði þóknanlegir. Þegarmikið erí lagt eru trúarstundir á Omega eins konar sveitatónlistar- veizlur, tónleikarmeð vitnis- burði trelsaðra sála. Sameig- inlegt með flestum þeim tón- listarmönnum, sem þarna koma fram, sumum hreint ágætum, er að þeir voru djúpt sokknirf áfengi, eiturlyfog soralifnað, en „sáu Ijósið og frelsuðust Þótt ég hafi ekki lagzt í mikl- ar pœlingar við að kynna mér þetta íslenzk/ameríska sér- trúarsjónvarp ermérfyrir- munað að skilja hvaða erindi þessi bandarísku trúarvakn- ingamyndbönd eiga til ís- lendinga, sem fœstirtaka trú- mál mjög alvarlega, hvað þá svona biblíubeltishalelúja Sjónvarp Omega: Guð minn góður! Fiölmiðlar Halldór Halldórsson skrifar Iþessum pistium hefur aldrei verið fjallað um sjónvarps- stöðina Omega, trúboð á öld- um ljósvakans, sem greinilega er að mestu leyti byggð upp að fyrirmynd sjónvarpstrúboðs- ins í Bandaríkjunum. Raunar virðist uppistaða efnis á Om- ega-stöðinni vera myndbönd frá trúboðssjónvarpi í suður- ríkjum Bandaríkjanna með huglækningastjörnum eins og Benny Hinn og sértrúarsjón- varpsprédikurum, sem reyna af fremsta megni að færa boð- un guðs orðs í búning gulli sleginnar sýningar, og loks sveitasöngvurum. Þá er skotið inn viðtölum og bænum frá sérstökum gestum trúboðsins. Það eru gjarnan menn, sem eru titlaðir doktor þetta og doktor hitt, sólbrúnir og sæl- legir náungar, sem svara spurningum um efni nýrra bóka þeirra um söluvænlegar túlkanir á Biblíunni. Á dögunum var t.d. viðtal við dr. Jay (eða var það dr. Snell?), þar sem hann færði rök, með aðstoð biblíutilvís- ana, fyrir því, að það væri ekki einungis guði þóknanlegt, heldur skylda hvers manns, að safna að sér eins miklum auð- æfum og hann gæti. Höfundur- inn lýsti bókinni og gerði efni hennar spennandi fyrir auð- trúa sálir. Hér væri á ferðinni handbók (,,how-to“-bók) um það hvernig Biblían beinlínis kenndi mönnum að safna ver- aldlegum auði! Og um leið og doktorinn flutti söluræðu sína um bókina heyrðust prédikar- inn (frelsaður plötusnúður) og kona hans (frúrnar eru gjarnan með, allar blondínur af fyrstu gráðu) stynja reglulega í kór: Halelúja, amen! Og að lokinni bókarkynningu flutti bókarhöf- undur hins nýja sannleika bæn, sem í raun var framhald af bókarauglýsingunni. Hale- lúja, amen! Sveitatónlist — ritskoðaðir textar Mikilvægur hluti sjónvarps- trúboðsins eru silkimjúk Nas- hville-sveitalög með innblásn- um texta hins frelsaða manns og þátttaka gesta í upptökusal. Opinber tónlist þessara bók- stafstrúarmanna er sveitatón- list með trúarlegum textum eða sakleysislegum textum um ástina. Textarnir eru ritskoð- aðir, því þeir verða að vera guði þóknanlegir. Þegar mikið er í lagt eru trúarstundir á Om- ega eins konar sveitatónlistar- veizlur, tónleikar með vitnis- burði frelsaðra sála. Sameigin- legt með flestum þeim tónlist- armönnum, sem þarna koma fram, sumum hreint ágætum, er að þeir voru djúpt sokknir í áfengi, eiturlyf og soralifnað, en „sáu ljósið og frelsuðust“. Þótt ég hafi ekki lagzt í mikl- ar pælingar við að kynna mér þetta íslenzk/ameríska sértrú- arsjónvarp er mér fyrirmunað að skilja hvaða erindi þessi bandarísku trúarvakninga- myndbönd eiga til íslendinga, sem fæstir taka trúmál mjög al- varlega, hvað þá svona biblíu- beltishalelúja. Eiríkur Sigur- bjömsson, forsvarsmaður Om- ega, sagði á dögunum í Dags- Ijósi sjónvarpsins, að áhorf væri um 3%. Það er ótrúlega mikið, því bandaríska sjón- varpstrúboðið er í sannleika sagt á skjön við upjjlag, upp- eldi og menningu Islendinga. Hvað svo sem segja má um verulegt umburðarleysi íslend- inga almennt, þá eru þeir þó umburðarlyndir í trúmálum. Gráhærðir Presleyar boða vist í helvíti Þetta umburðarlyndi er ekki sjáanlegt í bandarískum trúar- þáttum Omega. Hingað til hafa Islendingar leikið tveimur skjöldum með því að vera hvort tveggja í þjóðkirkjunni lútersku og hinir mestu efa- hyggjumenn. í prédikun á Om- ega var hins vegar hamrað á því, að ekki einungis trúleys- ingjar lentu í helvíti, heldur líka efasemdarmenn. Yfir- borðskennd þeólógía prédik- arans var sú, að „ef þið trúið ekki á Satan farið þið á mis við vizku og kærleika guðs“... Og ef „þið efasemdarmenn haldið áfram að efast... lendið þið í helvíti", sagði sjónvarpsklerk- urinn, sem leit út eins og gam- all pg gráhærður Presley. „Ég finn þetta í hjarta mér,“ sagði hann og tók um magann á sér! Ekki má skilja orð mín sem svo, að ég sé á að mæla gegn sjónvarpstrúboði. Þvert á móti er bráðsnjallt að nýta sjónvarp í þessu efni. Menn eiga að fá frið til að boða trú sína svo sem þeir vilja þótt ekki sé óeðlilegt, að gerð sé sú krafa, að sértrúaðir, frelsaðir prédik- arar og svokallaðir „huglækn- ar“ séu heiðarlegir og beiti ekki bellibrögðum í þessum merkilega „bissness“. Reglu- Iega berast fréttir af gífurleg- um fjármálaumsvifum þessara sjónvarpstrúboða og því hvernig nokkrir þessara pré- dikara fitna eins og púkinn á fjósbitanum. Það sem ég fæ illa skilið er hvernig þessi íslenzka trúarstöð stendur undir sér og sínum á pínulitlum markaði. En vegir guðs ku vera órann- sakanlegir! H Bókmenntagetraun Isíðustu viku birtum við texta úr Aðventu Gunnars Gunnarssonar. Úr réttum lausnum var dregið nafn Amars Sigfússonar, Hrísalundi 14H, Akureyri, og fær hann senda bókina Úr plógfari Gefjunar eftir Bjöm Th. Bjömsson. Að þessu sinni spyrjum við um samtímahöfund sem hefur blaðamennsku að aðal- starfi. Þeir sem þekkja höfundinn ættu að senda okk- ur línu, annaðhvort í pósti: HP, Borgartúni 27, 105 Reykjavík, eða á myndrita 552 23 11 fyrir þriðjudag. Úr réttum lausnum verður dregið og vinningshafinn fær senda bókina Þjóðsögur Jóns Múla Árnasonar eftir sam- nefndan höfund, sem er nýkomin út hjá Máli og menn- ingu. Hver skrífaði? „Dr. Kropp rak útgáfufyrirtæki viö Gæsatorgiö í Hamborg. Hann haföi efnazt vel á viðskiptum viö hina dauöu og var í tölu heldri borgara. Hann var ókvæntur og þótti stundum léttur á bárunni, „þaö er nálægðin viö dauöann", sagði fólk sem þekkti lítið til hans. Núna sat hann á skrifstofu sinni og reykti stóran vind- il. Óvenjulegur viöskiptavinur var 1 heimsókn, ungur maður á dönsku skipi sem flutti vörur til veöurathug- unarstööva á Suðurpólnum. Á heimleiö til Hamborgar haföi einkavinur hans, annar stýrimaöur, dáiö úr hjart- aslagi. Hann var maður á bezta aldri, fráskilinn." Alvara Ihe Proud Tower A Portrait of the World Before the War 18901914 Barbara W. Tuchman Ballantine Books Veröld sem var „Stór sagnfræði", í merking- unni víöfeömt umfjöllunarefni, sækir á ný I sig veöriö eftir nokk- urra ára tímabil sem einkenndist af ritgerðum í fræöitímarit annars vegar og hins vegar sögulegum ævisögum meira í ætt viö blaöa- mennsku en sagnfræöi. Stórir höfundar eins og Eric Hobsbawm (skrifaöi um 20. öldina), Norman Davis (Evrópusagan) og Hugh Thomas (Veraldarsagan) hafa gefiö út metnaöarfullar bækur á þessu ári. Fyrirmyndir fyrir jafn- viöamiklum verkum eru bæöi gamlar og nýjar. Ein þeirra er án efa bandaríski sagnfræöingurinn Barbara W. Tuchman, sem allt frá sjötta áratugnum hefur skilaö sérstaklega áhugaveröum verk- um þar sem saman fara strang- fræöileg heimildavinna og ein- stakiega iipur frásögn. Bókin The Guns of August, um upphaf fyrri heimsstyrjaldar, aflaöi Tuchman Pulitzer-verölaunanna og þessi bók sem hér er kynnt tekur til tímabilsins þar á undan, þegar Evrópa flaut sofandi aö feigöa- rósi. í bókinni eru dregnar upp ógleymanlegar myndir af fólki, at- buröum og andrúmslofti sem eiga það sameiginlegt aö standa á mörkum tvennra tíma; fortíöar, sem átti meira skylt viö miöaldir en 20. öldina, og framtíðar, sem viö vitum ekki enn hvaö merkir. Bókin fæst hjá Máli og menn- ingu og kostar 1.750 krónur. Fjölmiðlar í tölum Ifljótu bragöi mætti ætla að fagurbókmenntir heföu fariö halloka fyrir sjónvarpinu á und- anförnum árum. Flestir verja drjúgum tíma fyrir framan sjón- varpiö, eða sem samsvarar rúm- um tveimur klukkustundum á dag aö meðaltali. Samkeppnin frá sjónvarpinu við bókina um takmarkaöan fritíma er ærin. Þrátt fyrir þetta hefur útgáfa fag- urbókmennta (skáldsagna, Ijóöa og leikrita) meira en tvöfaldast í titlum talið á undanförnum þremur áratugum (1965-1995), eöa langt umfram þaö sem nemur hlutfallslegri fjölgun landsmanna á sama tíma. At- hyglisvert er aö þetta gerist á sama tlma og Sjónvarpiö hóf út- sendingar og framboö sjón- varpsefnis hefur stöan margfald- ast. Reyndar virðist sem til- koma sjónvarpsins 1966 og hröö útbreiðsla þess á næstu árum hafi orðið til þess aö veru- lega dró úr útgáfu fagurbók- mennta um tíma. Öfugt viö þaö sem ætla mætti hefur innreið myndbandsins undir lok áttunda áratugarins og síöar tilkoma nýrra sjónvarpsstöðva eftir miöj- an ntunda áratuginn ekki haft jafnafgerandi áhrif á útgáfu fag- urbókmennta og RÚV-sjónvarpið virðist hafa haft á sínum ttma. Útgefið magn fagurbókmennta: meðaltal •65 ‘71 ‘76 •81 ‘88 ‘91 -70 -74 -80 -85 -90 -95 Skáldsögur 169 110 246 255 314 318 Leikrit 4 5 5 6 8 8 Ljóöabækur 28 46 58 61 85 90 alls 201 161 309 322 407 416 %+/• -19.9 +92,5 +4.2 +25.5 +2.2 Helmlld: Hagstofa íslands: Landshaglr.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.