Helgarpósturinn - 13.03.1997, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 13.03.1997, Blaðsíða 19
F1MM7UDAGUR13. MARS1997 19 ENSKl BOLTINN DEILDARMÖRK STAÐAN íþróttir Sigurður Ágústsson sknfar - eða slökkti Liverpool síðasta vonarneistann á mánudaginn var? Ginola á hér í höggi við Edghill í Man. City. Ginola hefur ekki gengið ^ jafnvel á þessari leiktíð og þeirri síðustu og var ekki í byrjunarliði Newcastle gegn Liverpool, þó vant- aði Ferdinand og Shearer. Wewcastle-liðið spilar sókn- arknattspyrnu, segja spekingarnir, og það má til sanns vegar færa að nokkru leyti. Liðið spilaði ágætissókn- arknattspyrnu í fyrra og á ágætisspretti núna. Fyrrver- andi stjóri liðsins bar ekkert sérstakíega mikið skynbragð á varnarleik, eða að minnsta kosti hafði hann lítinn áhuga á varnarleik, og það varð til þess öðru fremur að liðið missti af titlinum í fyrra. Því kom það svolítið á óvart að áhersla skyldi lögð á að fá sóknarmann frekar en að styrkja vörnina. Enginn efast þó um Shearer. í ár eru Newcastle-menn með í baráttunni um Englandsmeist- aratitilinn, eru í fjórða sæti og tæpum tíu stigum á eftir efstu liðum, en eiga leik til góða. Lið- ið er á besta aldri og leikmenn hungrar í titil. Það er samt mjög ólíklegt að þeir hreppi hnossið. Sjálfsagt hafa fram- kvæmdastjóraskiptin eitthvað að segja um gengi liðsins að undanförnu, en lánið hefur ekki leikið við liðsmenn. SUPER-AL MEIDDUR OG FERDIE GENGUR ILLA AÐ SKORA Lið sem hefur innanborðs stjörnusóknarleikmenn eins og Alan Shearer og Les Ferd- inand ætti að vera við eða á toppnum. Ferdinand hefur ekki gengið sem skyldi að skora upp á síðkastið, en báðir eru þeir góðir skot- og skalla- menn og sérlega þefvísir á færi. Þá eru þeir báðir leiknir og geta skýlt bolta vel. Eigin- lega er Súper-Al allt þetta og helmingi meira til. Sannarlega frábær leikmaður og mikill leiðtogi, margoft hefur hann klárað leiki á eigin spýtur og bjargað liðinu. Staða liðsins er hins vegar ekki góð af miðað er við þann fjölda stjarna sem í því er. Fyrir utan þetta baneitr- aða sóknarpar hefur Dalglish um vandræðagepilinn Tino As- prílla að velja. Asprilla er leik- maður sem getur gert nánast hvað sem er með boltann en hausinn á honum sjálfum virð- ist vera hans helsti andstæð- ingur og oftar en ekki koðnar hann niður í meðalmennskuna. Hæfileikunum virðist kastað á glæ. Þessir þrír hafa borið hit- ann og þungann af sóknarað- gerðum liðsins eftir að Kenny Dalglish setti goð Newcastle- manna út í kuldann, Peter Be- ardsley. Aðdáendur Newcastle segja enga varnarmenn geta hamið hann, hann sé eins og Guð og vegir hans því órann- sakanlegir. Beardsley skilar alltaf sínu og hefur hingað til verið einn af jafnbestu Ieik- mönnum liðsins. Sannarlega skrýtið að fyrrverandi fyrirlið- inn skuli ekki hljóta náð fyrir augum fyrrverandi samherja hjá Liverpool. Eitt er víst, mörg úrvalsdeildarlið teldu sig fullsæmd af að hafa Beardsley í sínum röðum. Nú horfir svo við að Kenny verður að taka upp veskið og veifa seðlum. Al- an Shearer verður frá a.m.k. fram í apríl vegna nárameiðsla og Ferdie gengur ekki heill til Uð Leikir u J T Möik (skor) Mörk (á sig) Markam. Stig Manchester United 29 16 9 4 57 33 24 57 Liverpool 29 16 8 5 50 24 26 56 Arsenal 30 15 9 6 49 26 23 54 NEWCASTLE 28 14 6 8 54 35 19 48 Aston Villa 29 13 7 9 35 27 8 46 Sheffield Wednesday 28 11 12 5 37 32 5 45 Wimbledon 27 12 8 7 39 32 7 44 Chelsea 27 11 10 6 42 38 4 43 Leeds United 29 11 6 12 24 31 -7 39 Leicester City 28 10 7 11 33 38 -5 37 Tottenham 28 10 5 13 34 38 -4 35 Everton 29 8 9 12 36 43 -7 33 Blackburn 27 7 11 9 28 26 2 32 Derby County 29 7 11 11 31 44 -13 32 Sunderiand 29 8 8 13 25 39 -14 32 Coventry City 30 6 12 12 26 39 -13 30 Nottingham Forest 29 6 9 14 24 45 -21 27 Southampton 27 6 7 14 37 46 -9 25 West Harn United 27 6 7 14 24 37 -13 25 Middlesboro 27 6 7 14 37 49 -12 22 skógar. Það mun því ekki koma á óvart þegar Sir John Hall hristir fram nokkrar milljónir til mannakaupa. JÓ-JÓ-VÖRN OG VARN- ARSOKNARMENN Varnarleikur liðsins er ekki nægilega stöðugur. Alltof oft hefur það gerst að liðið fái á sig ódýr mörk. Þar er þó ekki að sakast við hinn bráðefni- lega Shaka Hislop, sem staðið hefur í markinu að undan- förnu. Einn af skemmtilegri varnarmönnum deildarinnar er þó í liðinu, Belginn Philip Albert. Albert minnir um margt á Ólaf Adolfsson (ekki bara í útliti), báðir stórir og sterkir skallamenn og liðum sínum ómetanlegir sóknar- og varnarlega í hornum og auka- spyrnum. Albert hefur þó knatttækni framyfir Ólaf og er að auki góður skotmaður og nokkuð góður einn gegn ein- um. Albert er einn af afar fáum sóknarmiðvörðum í heiminum! Frábær leikmaður. Því miður verður ekki það sama sagt um alla félaga hans í vörninni. Þeir virðast oft úti á hinni víðáttu- mestu þekju sem vitað er um, svo notuð séu orð skáldsins. Þeir telja sig flestir hafa sókn- arhæfileika Alberts en því fer fjarri. Steve Howey hefur þó verið þeirra skástur, en bak- verðirnir (sóknar- ? ekki eru STERK OG BARÁTTU- GLOÐ MIÐJA Miðjan hefur ékki verið vandamál. Þar ráða þeir Dav- id Batty og Robert Lee ríkjum og píska sína menn áfram. David Batty er talinn einn besti miðjumaður Englands, duglegur og ósérhlífinn. Hann er ódrepandi í að brjóta sókn- ir andstæðinganna á bak aftur og flestir miðjumenn landsins telja hann erfiðasta andstæð- inginn. Batty er vinnuhestur sem ekki sést oft í hælsend- ingunum, en er gríðarlega mikilvægur hverju liði. Lee er góður skotmaður og duglegur að leggja upp, hann á það þó til að detta niður en þess á milli er hann í landsliðsklassa. David Ginola er dýrkaður af mörgum. Hann spilaði á vinstri vængnum hjá Keagan en hefur varla byrjað leik eftir að Kenny tók við. Hann kemur hins veg- ar ósjaldan inn á og þá oftast fremstur á miðju. Hann skapar oft usla með góðum sending- um, en hefur gengið afleitlega að skora í vetur. Spili hann á vængnum er það mál manna að hann fari sjaldan aftur fyrir miðju til að verjast, hann fær boltann hins vegar ansi oft og hefur þol og þrek til að tvista og sóla frammi. Því miður verður sjaldnast nokkuð úr því. Á Englandi er talað um að útafskipting Ginola sé fyrsta merki ÍCing Kenny um breyttar áherslur varnarlega. Keith Gillespie var hluti af greiðslu Man. Utd. til Newcastle fyrir Andy Cole. Gillespie er að mínu mati einn aleinhæfasti leikmaður enska boltans. Hann er svo einfættur að varnar- menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af honum. Hann lúrir á hægri kantinum og vill helst senda fyrir markið til móts við hornfánann. Hann tékkar nær aldrei inn á miðjuna og varnar- menn þurfa að vera meira en lítið tregir að fatta það ekki. Annar ungur leikmaður sem búið er að bíða eftir að springi út dágóða stund er Lee Clark, efnilegur leikstjórnandi sem ekki hefur náð að festa sig í sessi í aðalliðinu og er að mínu mati vanmetinn. í fyrra voru þeir á toppi deild- arinnar 90% af keppnistímabrl- inu en enduðu ekki þar. Þeir sögðu þá að þeir myndu láta sér þetta að kenningu verða og enda efstir í lok næsta tíma- bils. Þá eru áhangendur liðsins-*' ekki ánægðir með Dalglish, segja fráleitt að ætla að spila 4- 5-1 til loka tímabils. En Dalgl- ish segist verða að þétta vörn- ina, þeir geti alltaf skorað. Sjálfur trúir harin ekki öðru en Newcastle sé enn með í barátt- unni. Hann biður fólk að spyrja að leikslokum. Kenny Dalglish var frábær leikmaður, gerði Blackburn að meisturum og því skyldi maður ætla að hann hefði nokkuð til síns máls. Sjá- um hvað setur. þeir miklir varnarbakverðir!) eru miklir sölumenn og Beres- ford stjórnar útsölum alla leik- daga. Robbie Elliot, sem hefur unnið sér fast sæti í liðinu, er hins vegar öruggur og yfirveg- aður í sínum aðgerðum. Vörn- in í heild sinni virðist vera ósamhæfð oft á tíðum, leik- menn virðast ekki vita hvað hver gerir. Þetta sást vel í sjón- varpslejk um daginn þegar spretthlauparinn Matt Le Tiss stakk vörn Newcastle af og skoraði sigurmarkið. (Le Tiss, sem er frábær leikmaður, fer 100 metrana á 23 sekúndum). Efnilegastur varnarmannanna er Steve Watson. Varla er þó Philip Albert er lykilmaður í liði Newcastle. Hér gefur hann varnar- mönnum sínum ordrur. hægt að tala um hann sem efni- legan lengur, hann kom fyrst inn á í lið New- castle 16 ára gamall. Hann get- ur spilað hvar sem er á vellin- um en er að upp- lagi varnarmað- ur. Hann leysir öll verkefni með sóma. Warren Barton og Darr- en Peacock eru of mistækir til að teljast góðir en standa fyrir sínu. Barton er í enska landsliðshópn- um. BÚNIR AÐ MISSA AF LESTINNI Þrátt fyrir að Newcastle sé við toppinn er enn langt að fara. Liðið tapaði 4-3 gegn Li- verpool sl. mánudag og svo virðist sem um einvígi milli Li- verpool og Man. Utd. verði að ræða. Nokkuð erfitt prógramm er framundan hjá Newcastle. Þeir eiga eftir að spila við Sheffield Wed., Arsenal, Man. Utd. og Wimbledon, ekki-^ kræsilegur listi og án Shearer nánast óvinnandi vegur. Þó er ekki hægt að afskrifa þá alveg. Hann Peter Beardsl- ey telst seint snoppufríður en hann er frábær fót- boltamaður og sem dæmi segist Kevin Keagan ekki ætla á fótboltaleik fyrr en ágóðaleikur fyrir hann verður spilað- ur. „Sem virðingar- vott við manninn og allt sem hann stendur fyrir," segir Keagan. LEIKMENN I TOLUM 1 Þessir hafa leikið mest með eftirfarandi árangrí Bl Si Sú Mrk G R Eink. Bikarm. Robert Lee 25 1 4 4 7 0 7,20 1 Peacock 25 0 0 1 1 0 7,00 0 Ferdinand 23 1 6 13 1 0 7,13 5 Shearer 23 0 0 20 4 0 7,26 3 Watson 23 3 2 0 2 0 6,73 0 Albert 22 0 0 2 4 0 6,95 1 Batty 22 0 0 1 7 1 7,71 0 Beardsley 21 2 3 4 2 0 7,00 3 Gillespie 19 3 7 1 0 0 6,72 0 Elliot 19 0 1 2 3 0 6,61 0 Srnicek 18 0 0 0 0 0 6,67 0 Ginola 17 1 5 1 3 0 6,71 1 Beresford 11 1 0 0 3 0 6,91 0 Asprílla 10 4 5 1 1 0 7,11 5 Hislop 10 0 0 0 0 0 6,44 0 Howey 8 0 0 1 0 0 6,63 0 Clark 8 11 3 2 2 0 7,00 1 Barton 4 4 0 1 1 0 6,33 0 1 Bl = Byrjunarlið Si = Kemur inn á sem varamaður Sú = Tekinn út af Mrk = 1 Mörk G = Gul spjöld R = I gefnar forsendur Bikarm = Rauð spjöld eink : Bikarmörk = Samanlögð einkunn miðað við | Sl Hf Vf Sk It Ut Spi F.l.atr Víti Shearer 20 15 3 2 18 2 10 7 3 Ferdinand 13 9 1 3 13 0 9 4 0 Clark 4 4 0 0 3 1 4 0 0 Lee 4 3 1 0 2 2 3 1 0 Beardsley 4 1 2 1 4 0 3 0 1 Albert 2 0 2 0 1 1 2 0 0 Peacock 1 0 0 1 1 0 0 1 0 Howey 1 0 0 1 1 0 1 0 0 Ginola 1 1 0 0 0 1 1 0 0 Batty 1 1 0 0 0 1 1 0 0 Gillespie 1 1 0 0 1 0 1 0 0 Asprilla 1 1 0 0 1 0 1 0 0 Barton 1 1 0 0 1 0 1 0 0 Sl = Skoruð mörk samtals Hf - Skorað m/ hægri fæti Vf = Skorað m/ vinstri fæti Sk = Skorað með skalla It = Skorað innan teigs Ut = Skorað utan teigs Spil = Markið kom eftir samspil F.l.atr = Markið kom upp úr föstum leikatrið- um s.s. homi, aukaspymu o.þ.h. Víti = Vítaspyma

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.