Alþýðublaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 8
KRISTNIHALDIÐ í kvöld | Aðgöng'umiðasala i Iðnó íra M. 2. — Sími 13191. LaugarásbíS ‘ílml 381V- RANIÐ í LAS VEGAS Óvcnju spennandi ný aroerísk glœpamyind í litum og oine- mascope. AOaliiiutverk; Gary Lockwood Elke Sommer Jack Paiance og Lee J. Cobb Sýnd kl. 5 og 9 Bönnuð börnum innan 16 ára. Tónabío Slml 311» DAUBINN Á HESTBAKI (Deat'h rides a horse) Hörkuspennandi, mjög vel gerð ný, amerísk-ítölsk mynd í litum og 2echniscope. íslenzkur texti. John Pftilip Law Lee Van Cleef Sýnd kl. 5, 7 og 9..15 Bönnuð innan 16 ára. Sijörnubíó Síml 189.V NÓTT HERSHÖFDINGJANNNA — íslenzkur texti — I'ESSI VINSÆLA AMERÍSKA STÓRMYND í TECHNICOLO OG PANAVISIÓN MEÐ HÍNUM ÚRVALSLEIKURUM Peter 0‘Toole Omar Sharif Sýnd kl. 9 Bönnuð ínnan 12 ára FRED FLINTSTONE í LEYNIÞJÓNUSTUNNI — íslenzkur texti — BRÁOSKEMMTILEG NÝ LIT- MYND MiEÐ HINUM VINSÆLU SJÓNVARPSSTJÖRNUM Fred og Barney Sýnd kl. 5 og 7 FRU 8erð og .Jg^gjij.riý,- Æe^íki;|tip-mynd í lítum og Pa»v§gj<||jfyn<iin er gerð af lhiniul^*iiwsfræga leikstjói'a Mike Nichols og fékk han.n Oscai-s-verðlaunin fyrir stjórn. sína á myndinni. Sagan hefur vlea-ið framhaldssaga í Vikunni. Dustin Hoffman Anne Bancroft íslenzkur texti. Sýnd k!. 9 Síðasta sinn SfrnJ 22140 ÞRENNINGIN (Adelaide) Frönsk/ítölsk litmynd um. ástir manns og tveggja kvenna Aðalhlutverk: Ingrid Thulin Sylvie Fennec Jean Sorei Leikstjóri; Jearj-Daniel Simon Bönnuð innan 16 ára Danskur texti Sýnd kl. 5 og 9. Síðasta sinn. Képavogsbíó Simi 41985 ENDALAUS BARÁTTA Stórbrotin og vel lieikin lit- mynd Ifrá Rank. Myndin gerist í Indlandi. íslenzkur texti Jul Brynner Trevor Howard Endursýnd kl. 5.15 Bönnuð innan 14 ára ÓTTAR YNGVASON héraSsdómslögmaður MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Eiríksgötu 19 — Sími 21296 Auglýsingasiminn er 14906 Nú má engan tíma missa FRAMH ALD A F BLS. (1) með og- géra í sameihingu ráð stafanir til að koma í veg fyr- ir þá ískyggilegu öfugþróun, sem vísindamaðurinn Cous- teau bendir á í skýrslu sinni. Jón gat þess í viðtali við Alþýðublaðið í gær, að fjöl- margir þingmenn frá aðildar- löndum Evrópuráðsins hefðu þungar áhyggjur vegna hinna miklu olíufunda í Norðursjó, þar sem þeir teldu, að meng- unarhættan í sjónum við strendur Evrópulanda muni margfaldast með tilkomu olíu vinnslu úti fyrii- Jatröndum Noregs. Þingmennirnir voru flestir þeirrar skoffunar, að rnikil- vægt væri, að alþjóðleg sam- vinna yrði um lausn mengun- arvandans í höfunum, en Ev- rópulöndin ættu þó að verða öðrum heimsálfum fyrri til að takast á við vandann með svæðisbundnum affgerðum, sem næðu tii Evrópulanda, þar sem lausn á mengunar- vandanum í höfunum myndi taka miklu lengri tíma, ef einblínt væri á vettvang Sam einuðu þjóðanna. Blaðið ræddi í gær við Hjálmar R. Bárðarson, for- seta Alþjóðasiglingamálastofn- unarinnar, en sú stofnun hefur meff mengunarmál vegna olíu í sjó.að gera, og eins og fyrr segir vinnur sérfræðinganefnd á hennar vegum að imdirbún- ingi alþjóðlegrar ráðstefnu um mengun hafssvæffa, sem ráðgert er að halda 1973. f samtalinu kom þetta m. a. fram: Á síffasta þingi Alþjóða- stiglingamálastofnunarimiar, sem haldið var í fyrra, en á þ\á þingi var Hjálmar kjör- inn forseti stofnunarinuar, voru gerðar ýmsar ályktanir vegna mengunar á hafsvæð- um. Þar voru m. a. gerðar hreytingar á alþjóðareglum frá 1954 með breytingum frá 1962, en með þessum breyt- ingum er miðað að því að draga úr mengun í hafinu frá skipum og öðrum búnaði á og við sjó. Með þessum breytingum — eða þegar þær hafa öðlazt gildi — verður tekið upp að fullu svonefnt „lotan top“ kerfi, sem talið er að muni þýða minnkun olíumengunar í sjó, sem nemur 1 milljón og 500 tonnum af olíu á ári. Þá ganga í gildi með nýju alþjóðareglunum ný mörk um þá olíu, sem olíuskipum verð- ur heimilt að losa í sjó; að þeim verður þannig aðeins heimilt að dæla sem svarar 6Q lítrum af olíu á hverja siglda sjómílu eða 1/15.000 hiuta þess olíumagns, sem skip getur flutt í fei'ð. Þetta magn gaati farið upp í 100 þúsund tonn af olíu á ári, sem annars færi í sjóinn frá öli- uni olíuskipiun, sem sigla um heixnshöfin. Flutningaskipum, sem ekki eru olíuskip, verður heldur ekki heimilt að losa nema takmarkaða olíu í sjó á hverja siglda sjómílu og aðeins sem fjærst Iandi, eða sem svarar 100 hlutum af olíu í milljón (100 ppm.). Ýmis fleiri atriði felast í uinræddum breytingum, sem miða að þvi að draga úr olíu- mengun í höfunum. íslend- ingar hafa. þegai' staðfest þess- ar breytingar, en reglugerðin með þessum áorðnu breyting- um tekur giidi 12 mánuðunx eftir að 2/3 hlutar þeiri-a ríkja, sern aðild eiga að Al- þ j óð a siglingamálastofnuninni, hafa staðfest liana. Á grundvelli ályktana, sem gerðar voru á þingi stofnunar- innar í fyrra, og starfs sér- fræðinganefndar hennar er nii unniff að því að koma senx fyrst í framkvæmd raunhæf- um affgerðum til eftirlits og varna gegn mengun sjávar og er að því unnið með fullu samstaríi við aðrar alþjóðleg- ar stofnanir, sem áhuga hafa á þessum málum. Tilgngxir með hinni alþjóð- legn ráðstefnu um rnengun hafsins, sem haidin verðnr 1973, er, að sett verði alþjóð- leg lög um takmörkun á mengun hafsvæða, iands og lofts frá skipum og sérhverju fljótandi fari og öðrum út- búnaði, sem notaður er á, í eða við sjó. En undanfari þess, að fullum árangri verði náð meff þessari ráðstefnu, eru víðtækar rannsóknir og gagna söfnun, sem sérfræ'ðinganefnd Alþjóðasigiingamálastofnunar- innar vinnur nú að. Þá sagði Hjálmar R. Bárð- arson að mengunarmálin væru orðin gífuriega um- fangsmikill þáttur í starfi Al- þjóðasiglingamálastofnunarinn ar fyrri hluta næsta árs, en ef til þess kæmi, mundu mengunarmálin verða aðai- mál þess. VILJA (3) herra, að kappsamlega væri unnið að því að bæta úr ör- yggismálum sjómanna á þess- um slóðum, en þau mál hafa verið mjög til umræðu upp á síffkastið. Hafa bæði Alþýðu samband Vestfjarða og sjó- mannskonur vestra skorað á ríkisstjómina að hefjast handa um bætta öryggisþjón- ustu vegna hinna tíðu og hörmulegu sjóslysa undan- fama vetraimánuði þar vestra, cins og Alþýðublaðið hefur áður skýrt frá. Þannig gerði Alþýðusam- band Vestfjarffa það að til- lögu sinni á þingi sínu í haust, að hafin yrði samvinna um öryggismál við brezka eftir- litsskipið og hefur þegar ver- ið eftir slíku leitað af hálfu íslenzkra stjómvalda, eins og áður segir. Sagði dómsmála- ráðherra enn fremxir, að ef samningar tækjust við. lireta um að íslendingi yrði heimil- að að vera um þorð í eftirlits- skipinu til affstoðar við ís- lenzka fiskiflótann, myndi sá maður að öilum líkindum verða einn af yfirmönnum Landhelgisgæzlunnar, sem vel væri kunnugur á Vest- fjarðamiðum. — Væri talið hentxigra að hafa slíkan mann þar um hoið en íslenzkan veðurfræðing, enda væm nokkrir brezkir veðurfræð- ingar ætíð um borð í eftirlits- skipinu, sem veita myndu íslendingnum um borð allar nauðsynlegar veðurfræðileg- ar upplýsingar ef þessi sam- vinna tækist. — Mófmæla pungaskatii n Blaðinu hefir borist ályktun, sem samþykkt var einróma á stjórnarfundi Landssambands Vörubifreiðastjóra s.l. mánúdag. í ályktuninni mótmælir stjórn sambandsins liarðlega frumvarpi rikisstjórnarinnar um breytingu á vegalpgunum, en það felur m.a. í sér auiótar álögur á eig- endpr ökutækja. Segir i ályktun- inni. að hér sé um að ræða þriðju stórhækkun á útgjöldum þeirra, sem atvinnu hafa af bifreiða- akstri, á rúmlega tveim árum. F.r í því sambandi visað til laga nr. 7/1968 þar sem þungaskatt- ur var hækkaður um rúman helming svo og reglugerð urn ökumæla í dieselbifreiðar, sem sett var 1970 og segir samhandið að sú reglugerð hafi stuðlað að annarri stórhækkun á útgjöld- um atvinnubifreiðastjói'a. Þá segir stjómin, að ineð slík- um grengdaiTausum liækkunum sé verið að kippa heilbrigðum rekstursgrundvelli undan rekstri vörubifreiða þegar almenn vei'ð- stöðvun sé í gildi. Skorar sam- bandspájórlrcln á rikísstjóriiinal, að hún taki tillit til þessara mót- mæla og breyti frumvarpinu um hækkun þungaskattsins í sam- í'æmi við þau. — Munið jóíasöfnun Mæðia- stýrksnefndai', Njálsgötu 3, sími 14349. Unisóknum veitt móttaka á sama stað. p. MIOVIKWJSUB 16. DESEMBER.197J) I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.