Alþýðublaðið - 29.05.1971, Síða 11
í
REYKJAVlK:
I
Utankjörstaðaskrifstofa A-listans er að Hverfisgötu|4.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 10—22£ —
helga daga kl. 14—13. — Símar skrifstofunnar.Jjru
13202 og 13209. — Skrifstofustjóri: Jón Magnússon! •
Stuðningsfólk A-lisians! Hafið samband við skrif-
•ItM*
stofuna og látid vita um kjósendur, sem verða
verandi á kjördag.
Kosningaskrifstofa hefur verið opnuð fyrir Breiðhrjits-
hverfi. Skrifstofan er aö Fremristekk 12. — Sími 83tÍ0.
— Opið frá kl. 20—22. — Skrifstofustjóri: Vilhelm Jú^
son.
Kosningaskrifstofa fyrir Árbæjarhverfi, Langh^ts-
hverfi, Breiðagerðishverfi og Álftamýrarhverfi hefyr
verið opnuð að Grensásvegi 12. — Skrifstofan er opjji
virka daga kl. 17—22.. — Símarnir eru 84530, 84522 ó]»
84416. — Skrifstofustjóri: Lars Jakobsson.
______________________ -I
y
■V
Skrifstofa Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—10, er opiíi
alla virka daga frá kl. 9—22. — Símar skrifstöfunnaf
eru 15020, 16724 og 19570. — Skrifstofan veitir allar
upplýsingar og þar er aðsetur kosningastjórnar. —
Framkvæmdastjóri: Baldur Guðmundsson.
Kosningaskrifstofa fyrir Austurbæjar-, Hlíðar- og
Laugarneshverfi hefur verið opnuð í Brautarholti 26.
— Símar 12097 og 12432. — Skrifstofan er fyrst um sinn
opin kl. 20—22. — Skrifstofustjóri: Guðmundur Karls-
son.
Skrifstofa hefur verið opnuð í Hafnarfirði. Skrifstofan
er í Alþýðuhúsinu í Hafnorfirði. — Sími 50499. — Hún
verður opin kl. 13—11 ** 20,30—22. — Skrifstofustjóri:
Finnur Stefánsson.
Skrifstofa hefur verið opnuð í Kópavogi. — Skrifstofan
er að Hrauntungu 18. — Sími 43145. — Hún verður opin
virka daga kl. 14<—22, helga daga kl. 16—19. — Skrif-
stöfustjóri: Þráinn Þorleifsson.
Alþýðuflokksfólk og annað stuðningsfólk A-listans um
land allt. Hafið samband við kosningaskrifstofur eða
trúnaðarmenn Alþýðuflokksins á hverjum stað og veit-
ið upplýsingar, sem að gagni geta komið í kosningastarf
inu. Þeir, sem vilja vinna fyrir flokkinn á kjördag eða
fyrir kjördag, eru vinsamlegast beðnir að láta skrá sig
hjá skrifstofunum eða hjá trúnaðarmönnum flokksins.
VESTURL ANDSKJÖRDÆMI:
Skrifstofa hefur verið opnuð á Akranesi, á Vesturgötu
53, í Félagsheimilinu Röst. — Skrifstofan er opin kl.
17—22. — Síminn er 93-1716. — Skrifstofustjóri: Helgi
Daníelsson.
VESTFJ ARÐARKJÖRDÆMI:
Skrifstofan á ísafirði er í Alþýðuhúsinu v/Norðurveg.
Hún er opin kl. 9—19 og 20—22. — Síminn er 94-3915.
— Skrifstofustjóri: Finnur Finnsson. — Sími heima 94-
3313.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA:
Skrifstofan á Siglufirði er að Borgarkaffi. og er opin
kl. 17—19. — Sími 96-71402. — Skrifstofustjóri: Jóhann
Möller.
SJÁLFBOÐALIÐAR:
Þeir stuöningsmenn A-listans, stm vilja starfa fyrir
hann á kjördag eða við undirbúning kosninganna fram
til þess tíma, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu Alþýðuflokksins í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, símar 15020, 16724 og 19570.
Stuðningsmenn! — Vinnan fram að kosningum og á
kjördegi getur haft úrslitaáhrif um niðurstöður kosn-
inganna. Við verðum eins og ávallt áður að mestu að
treýsta á sjálfboðaiiðastarf.
Vinnum Alþýðuflokknum og jafnaðarstefnunni! —
Fram til sigurs fyrir A-listann.
BI'LAR Á KJÖRDAG:
Þeir stuðningsmenn A-listans, sem vilja lána bíla sína
á kjördag, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu Alþýðuflokksins við Hverfisgötu, símar
15020, 16724 og 19570 og láta skrá þar bíla sína.
Það ríður á miklu, að A-listinn hafi yfir nægum
bílakosti að ráða á kjördegi. — Stuðningsmenn! —
Bregðið skjótt við og látið skrá bíla ykkar!
Skrifstofan á Sauðárkróki er í Sjálfsbjargarhúsinu. —
Sími 95-5465. — Hún er opin kl. 17—18 og 21—22. —
Starfsmenn skrifstofunnar: Magnús Bjarnason, sími
heima 95-5161, Jón Karlsson, sími heima 95-5313.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA:
Skrifstofan á Akureyri er á Strandgötu 9. — Símarnir
eru 96-21602 og 96-21603. — Skrifstofan er opin virka
daga kl. 10—22 og sunnudaga kl. 13—21. — Skrifstofu-
stjóri: Jens Sumarliðason.
AUSTFJARÐAK JÖRDÆMI:
Skrifstofa hefur verið opnuð á Egilsstöðum og er hún
opin frá kl. 10—12 og 17—20. — Skrifstofan er að Tjarn-
arbraut 11. — Síminn er 97-1190. — Skrifstofustjóri:
Gunriar Egilsson.
RE YK J ANESK JÖRDÆMI: - j
Skrifstofa hefur verið opnuð í Keflavík. Skrifstofan er
að Hringbraut 93. — Sími 92-1080. — Skrifstofan verður
opin kl. 10—22. — Skrifstofustjóri: Sæmundur Péturs-
son.
SUDURLANDSK JÖRDÆMI:
- - NU
Skrifstpfa hefur verið opnuð í Vestmannaeyjum í Val-
höll við Strandgötu, opið kl. 17—19 og 20.30—23. —
Síminn Sí ' 98-1060. — Skrifstofustjóri: Reynir Guð-
steinsson.
„RÁNIБ . (1)^
einhvern hátt öðru vísi en upp-
haflega var að stefnt. Einnig;
hefur ráðuneytið óskað, að aðil-
arnir, Seðlabankinn og alþýöu-
samtökin, geri tillögur um breyt-
ingar á lánaákvæðunum, ef at-
huganir gefa þar tilefni til.
Þetta kemur m.a. fram í frétta-
tilkynningu frá félagsmálaráðu-
neytinu, sem Alþýðublaðinu
barst í gær, en, eins og kunnugt
er, hafa allmiklar umræður spunn
izt að undanförnu um gildandi
ákvæði um vísitölubindingu hús-
næðismálasjórnarlánanna.
í tilefni af þeim umræðum
bendir ráðuneytið m. a. á í frétta-
tilkynningunni, að vísitöluákvæð
in voru tek'n upp í fullu sam-
ráði við 1 .unþegasamtökin á ár-
unum 1934 og 1965. Með stór-
hækkunum íbúðarlánanna, sem
þá voru gerðar, voru vextir jafn-
framt lækkaðir um 4% um leið
og vísitöluákvæðin voru tekin
upp. Segir í fréttatilkynningunni,
að sú vaxtalækkun hafi verið
miklu þyngri á metunum fyrir
liúsbyggjendur, en sú hækkun,
sem vísitöluákvæðin hafa haft í
för með sér. Sem dæmi er nefnt,
að lántakandi, sem fékk 200 þús.
kr. íbúðarlán árið 1964 hefði 1.
maí 1971 verið búinn að greiða
í vexti og afborganir kr. 124.393
samkvæmt eldri kjörunum þar,
sem vísitöluákvæði voru ekki,
en vextir 4% liærri en nú. Sami
lántakandi hefði á þessum tíma-
bili liins vegar aðeins þurft að
greiða kr. 104.910 samkvæmt nú-
verandi Iánakjörum og hefði því
hagnast á þeim um kr. 19.483,
— eða 10% af upphaflegu láns- -
fjárhæðinni.
Þá víkur ráðuneytið einnig að
greinargerð Þóris Bergssonar,
tryggingafræðings, um lánakjör-
in, en liún liefur verið megin-
uppistaðan í þeirri g-agnrýni, sem
fram hefur komið síðustu daga.
Segir ráðuneytið þær upplýsing-
ar mjög villandi og sé byggt á
þeirri augljóslega röngu aðferð
að bera sainan áhrif kauphækk-
unar á tekju eins árs annars
vegar, en hækkun láns, sem á
að greiðast á 25 árum, hins veg-
ar.
Setur ráðuneytið í fréttatil-
kynningunni fram dæmi, þar
sem niðurstöðurnar stangast ger-
samlega á við fullyrðingar Þóris
Bergssonar. í því dæmi kemur
m.a. í ljós, að með t.d. 28,5%
meðalkauphækkun til vesrka-
manna og iðnaðannanna, en slík
hækkun varð á árinu 1970, verð-
ur árleg tekjuaukning þeirra kr.
88.400,00 og hafi viðkomandi
skuldað 500 þús. kr. húsnæðis-
málalán verður hann aðeins að
taka á sig viðbótarútgjöld þetta
ár vegna vísitölubindingar láns-
ins að fjárhæð 4.173 kr., — en
það er um 4,7 % af tekjuaukn-
ingu lians. —
1
Laugardagur 29. maí 1971 11