Alþýðublaðið - 22.04.1972, Síða 1
alþýðu
Það er ýmislegt, sem gert
verður til heiðurs lialldóri
Laxness i tilefni af sjötugs-
afmæli hans á morgun.
Hæst ber heiðursdoktorskjör
hans við heimspekideild Há-
skóla islands. Verður honuin af-
hent doktorsskjalið við hátið
lega athöfn á hátiðarsamkomu i
Iláskólabiói kl. 13.:i0 á morgun.
Þá hefur hreppsnefnd Mos-
fellshrepps einróma samþykkt,
að heiðra Ilalldór með þvi að
gcra hann að heiðursborgara
Mosfellshrepps. Verður honum
afhent heiðursborgarabréf I
kaffisamsæti laugardaginn 39.
april.
A mánudaginn hefst i Lands-
hókasafni islands sýning á ýms-
uin verkum llalldórs og verða
einkuin sýnd handrit skáldsins
og þýðingar verka hans á fjölda
tungumála, ennfremur nokkurt
úrval rita og greina um Halldór
og verk hans.
Mun sýningin standa næstu
vikur i anddyri Safnhússins við
Hverfisgötu og er öllum heimill
aðgangur.
Há hefur Bókaútgáfa Mcnn-
ingarsjóðs óskað þess, að mega
gefa út á þessu ári safn ritgerða,
er hann hefur samið um íslenzk
skáld og rithöfunda. Ilefur Hall-
dór góðfúslega orðið við þessum
tilmælum. Hannes Pétursson,
skáld mun sjá um útgáfuna i
samráði við höfundinn.
I.oks kom svo út aukahefti af
timaritinu Scandinavia og er
það helgað ilalldóri Laxness og
hefur Sveinn Skorri Höskulds-
son séð um útgáfu þess.
Ileftið hefst á inngangi og
ritaskrá Laxness, en meginefni
þess eru ritgerðir um skáldskap
Frh. á bls. 6
KOMNIR
TIL AÐ
KÍKlfl Á
MANN-
SKAPINN
Þeir fundu það fljótlcga sjón-
varpsmennirnir frá BBC, sem
voru á ferð og flugi um borgina i
góða veðrinu i gær með græj-
urnar sinar á lofti, hversu sam-
staða islendinga i landhelgis-
málinu er alger. í gærmorgun
tóku þeir m.a. viðtal við Hannes
Jónsson, blaðafulltrúa rikis-
stjórnarinnar, og þegar við hitt-
uin þá voru þeir i óða önn að
kvikmynda löndun úr togara
niðri á Togarabryggju.
Þeir eru nú einu sinni komnir
alla leið hingað til að safna efni
um landhelgismálið, sjónvarps-
mennirnir, og þegar þeir urðu
varir við, hvað skoðanir manna
eru hér á eina lund, ákváðu þeir
að taka vegfarendur tali.
Að þvi er þeir sögðu gckk það
þó ekki alltof vel, af tæknilegum
ástæðum. Hljóðncminn þeirra
cr svo næmur, að mannsröddin i
Austurstræti yfirgnæfði ekki
bilaskarkalann. Þcgar við hitt-
um þá höfðu þeir ákveðið að
reyna'að koma sér á kyrrlátan
stað i borginni þar sem landinn
geti sagt skoðanir sinar óáreitt-
ur.
ÞAÐ MIINADI
MlðU 11UNGL-
LENDINGUNNI
Það munaði minnstu að illa
færi, þegar tunglferjan Orion
lenti með þá félaga John Young
og Charles Duke á tunglinu i gær.
Með naumindum tókst þeim að
forða ferjunni frá þvi að lenda of-
an i stórri holu á yfirborði tungls-
ins og við nánari athugun komust
þeir að þvi, að einn af fótum ferj-
unnar hafði komið niður aðeins
hálfan metra frá mjög stórum
steini.
Það var klukkan fjórar minutur
i fimm, sem Charles Duke steig
fæti sinum á yfirborð tunglsins og
fjórum minútum siðar gerði John
Young slikt hið sama.
Þá strax hófust þeir handa um
að losa tunglbilinn Rover frá ferj-
unni og siðan hófu þeir fyrsta
ferðalagið af þremur á tunglinu.
Um tima var ckki ljóst, hvort
þeir færu i fyrstu áætluðu ferðina,
þar sem nokkrar tafir urðu á
lendingunni.
i fyrsta sinn i sögu Apollo-áætl-
Ungur háseti af togaranum
Kaldbak frá Akureyri féll fyrir
borð aðfaranótt fimmtudagsins,
og drukknaði. Hann hét Brynjar
Ananiusson 19 ára gamall til
heimilis á Akureyri.
Hann var ókvæntur.
Það var um klukkan fjögur um
nóttina sem hann féll fyrir borð,
og var togarinn þá staddur út af
Kögri.
Var þegar hafin mikil leit að
Brynjari heitnum, en án árang-
urs. Hélt togarinn þá inn til isa-
fjarðar, þar sem sjópróf hafa .
farið fram.
unarinnar var fyrstu skrefum
gcimfaranna á tunglinu ekki
sjónvarpað.
Ástæðan var sú, að bilun kom
fram á sjónvarpsloftnetinu á
tunglferjunni.
Hins vegar mun verða sjón-
varpað frá fcrðum þeirra þar sem
komið var fyrir sjónvarpstökuvél
á tunglbilnum.
Þar með eru þeir Young og
Duke niundu og Tiundu geimfar-
arnir, sem stiga fæti sinum á yfir-
borð tunglsins.
Þetta er sumarstúlkan
okkar og hún prýðir forsiðu
helgaraukans, sem fylgir
blaðinu i. dag. Þar er meðal
margsvislegs efnis að finna
persónulýsingar þeirra, sem
fæddir eru i merki Hrútsins,
þriðja hluta þátta okkar um
stjörnuspekina — þátt Gests
um ferðir innanlands, stóra
helga rkrossgátu og sitthvað
fleira.
NANAST
DAGLECA
ÞEIR LYFSIÚKU
• •
OSJALFBJARGA AF GOTUNUM
Það er orðinn daglegur við-
buröur, að við þurfum að hjálpa
fólki, sem er orðið ósjálfbjarga
eða hreinlega fársjúkt af of
miklum lyfjatökum, sagöi einn
af varðstjórum lögreglunnar I
viðtali við blaðiö I gær.
i gær fannst kona liggjandi
ósjálfbjarga á Vesturgötunni
vegna ofneyzlu lyfja og var hún
flutt á Slysavarðstofuna.
Önnur kom ranglandi út úr
kjarri i Hljómskálagaröinum i
fyrrinótt, og hné i götuna rifin
og blóðug.
Hún hafði einnig tekið stóran
skammt af lyfjum.
Loks liggur svo stúlka úr
Hafnarfirði á sjúkrahúsi og er
enn þungt haldin, eftir að hafa
verið flutt þangað meðvitundar-
laus i fyrrinótt eftir lyfjatöku.
Þetta eru aðeins dæmi siö-
asta sólarhrings, svo að ástand-
ið er orðið slæmt, sagði lög-
regluvarðstjórinn.
Þá má geta þess, að siðasta
vetrardag voru tveir menn sótt-
ir niður á Grandagarð, mjög illa
haldnir af neyzlu lyfja.
Okkur er einnig kunnugt um
hóp fólks, sem stöðugt er i lyfja-
vimu án þess að við skiptum
okkur af þvi, sagði varöstjórinn,
enda lenda þeir aöilar sjaldan i
vandræðum og engin hætta staf-
ar af þeim. Þó eru nokkrir ein-
staklingar, sem viö erum stöð-
ugt að fá upp i hendurnar.
Meirihluti þessa fólks er ungt
þótt fólk á öllum aldri komi við
sögu af og til.
Algengast er að fólkiö hafi
Frh. á bls. 6
VARÐSTJÓRI:ÁSTANDIÐ ER JAFNVEL AÐ VERSNA