Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 2

Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 2
ÚRBÆTUR HJÁ GÆZLUNNI? ALDREI MEIRI UMFERÐ EN í SUMAR Ot BÍLAFLOTINN i MIKLU BETRA ASIGKOMULAGI Nú þarf ekki framar vitnanna við til að sanna, hverjar séu ástæður fyrir framrúðubroti á bifreiðum. Af þeim sex vega- þjónustubilum lögreglunnar, sem hafa verið i stöðugum ferð- um um landið siðan um miðjan mai, hefur enginn orðið fyrir framrúðubroti. Þó hefur sú helgi i sumar ekki liðið, að ekki hafi veriö tilkynnt til lögregl- unnar um fleiri eða færri rúðu- brot. Oskar Olafsson yfirlögregiu þjónn benti á það i viötali við Al- þýðublaðið i gær, að þetta sann- aði einfaldlega þá staöreynd, að framrúðubrot verða vegna of hraðs aksturs, en lögreglubil- arnir hafi sloppið vegna þess, aö ökumenn draga yfirleitt úr ferð- inni þegar þeir verða varir viö þá, og mæta þeim þvi á skikkan- legum hraöa. Þó sumarið sé ekki liðið, sam- kvæmt almanakinu er þó all- nokkuð liðið á aðal umferðar- timann, og þvi spurðum við Oskar álits á þvi, hvernig um- ferðin á þjóðvegunum hafi gengið i sumar. óskar sagði, að umferðin hafi likast til aldrei fyrr verið svo mikil, en þó hafi hún verið að þvi leyti öðruvisi en fyrri sumur, að hún hefur verið timabundnari. Vegna hins slæma tiðarfars hefur umferðin verið bundnari við helgar en áður, fólk hafi gert minna af þvi að ferðast á virkum dögum i sumarfrium sinum. En þegar verðurútlit var gott fyrir helgar sagði hann, að allir hafi virzt þurfa að halda út á vegina, og þá hafi umferðin oft orðið gifur- leg. Þá höfðum við samband við Steinþór Nygaard, sem er einn af elztu og reyndustu vegalög- regluþjónunum, og spuröum hann, hvernig menn hafi hagað sér á sunnudagsbiltúrunum i sumar. Steinþór sagðist ekki muna eftir annarri eins umferð áður á vegunum, ekki sizt i nágrenni Reykjavikur, þar sem vegir séu að færast i betra horf. En hann sagði einnig, að óhöpp hafi verið meiri en nokkru sinni áður, og þau séu sérstaklega bundin við ákveðin svæði. Þar sagði hann Borgarfjörð- inn efstan á blaði. Hann hafi ekki farið i eftirlitsferð þangað án þess að þurfa að hafa afskipti af einu eða fleiri óhöppum. Astæðuna fyrir þessum mörgu óhöppum sagði hann ekki endi- lega vera of hraðan akstur, heldur sé þar mjög áberandi andvaraleysi ökumanna, — þeir séu ekki með hugann við aksturinn, Þessum tveimur lögreglu mönnum bar samna um, að i sumar hefur verið óvana- lega litiö um bilanir á bilum á vegum úti, og sé ástæðan eflaust sú, aö bilafloti landsmanna sé i betra ástandi en fyrr. Þar komi bæði til, að nýir bilar séu marg- ir, og einnig, að fólk haldi ekki gömlum bílum gangandi eins lengi og áður. Magnús H. Valdimarsson, framkvæmdastjóri Félags is- lenzkra bifreiðaeigenda sagði i viðtali við blaðið fyrir skömmu, að vegaþjónustu bilar FIB hafi liklega aldrei þurft aö sinna eins fáum viðgerðartilfellum og i sumar, þeir hafi hreinlega haft sáralitið að gera. Helztu verkefni þeirra hafa verið að segja fólki til vegar, og mjög mikið er gert af þvi að not- færa sér talstöðvarþjónustu bil- anna, t.d. i þvi skyni að ieita upplýsinga um, hvar sólskins- blettir eru á landinu. EKKERI ÁKVEÐ- ILENN ,,Mér er ekki kunnugt um nein- ar aðgerðir til bættrar starfsað- stöðu fyrir Landhelgisgæzluna eftir útfærslu landhelginnar”, sagði Asgrimur Ásgeirsson, full- trúi forstjóra Landhelgisgæzl- unnar, i simatali við Alþýðublaðið i gær. Blaðið sneri sér til Landhelgis- gæzlunnar i framhaldi af frétt blaðsins s.l. föstudag, þar sem skýrt var frá þvi, að fulltrúar starfsmannafélags landhelgis- gæzlunnar hefðu sent Ólafi Jó- hannessyni, dómsmálaráðherra, kröfur um aðgerðir til stórbættr- ar vinnuaöstööu eftir útfærslu landhelginnar. P'ramhald á bls. 4 ÞINGEYINGAR VÍSITERAÐIR Biskup íslands visiterar næstu daga eftirtalda söfnuði i Þingeyj- arprófastsdæmi og hefur guðs- þjónustur á kirkjunum svo sem hér segir: P'immtudaginn 24. ágúst kl. 2: Skinnastaðakirkja. P"östudaginn 25. ágúst kl. 1.30: Garðskirkja. Sama dag kl. 8.30: Snartarstaða- kirkja. Laugardaginn 26. ágúst kl. 4: Raufarhafnarkirkja. Sunnudaginn 27. ágúst kl. 1.30: Sauðanesskirkja. Sama dag kl. 5: Svalbarðskirkja STEINDÚR HEIBRAÐUR Hinn 12. þ.m. átti hinn landskunni skólamaður og náttúrufræðingur, Steindór Steindórsson frá Hlöðum, sjötugsafmæli. 1 tilefni þess gaf Bókaútgáfan örn og Örlygur út bók með greinum og ræðum Steindórs, flestu áð- ur óbirtu. Bókin ber nafnið AF SÓLARFJALLI. AF SÓLARFJALLI skiptist i fjóra meginþætti, en þeir eru: 1. Landið og náttúran. 2. Minnst samferðamanna. 3. Við ýmis tækifæri. 4. Skóla- kveðja 1972. Þá er nokkrum kvæðum eftir Steindór dreift um bókina. Fremst i bókinni er Tabula gratulatoria, eða skrá yfir hátt á sjötta hundrað manns sem minntust afmælis Steindórs FYNSTII NÝIU VERKAMANMABð- STADIRNIR TEKNIR RL fBllBAR 1 júlimánuði voru afhentar á Sauðárkróki fyrstu sex ibúðirnar, sem þar eru byggðar samkvæmt nýjum lögum um verkamannabú- staði. tbúðirnar eru i tólf ibúða fjölbýlishúsi og verða siðari sex i- búðirnar afhentar i haust. Þessar ibúðir eru hinar fyrstu, sem lokið er af þeim ibúðum sem i byggingu eru viðsvegar um landíð á vegum stjórnar verka- mannabústaða. Bygging verkamannabústaða standa yfir m.a. á Neskaupstað, Patreksfirði, Siglufirði, Akranesi og Hólmavik. Marteinn P'riðriksson fram- kvæmdastjóri stjórnar verka- HAFNARFRAMKVÆMDIR FYRIR TÍU MILUONIR A HÚSAVÍK Dýpkunarskipið Grettir vinnur um þessar mundir að dýpkun hafnarinnar á Húsavik, en auk þess er unnið að gerð uppfyllingar sunnan við aðalbryggjuna þar. Samkvæmt fjárhagsáætlun er ætlunin að vinna að þessum fram- kvæmdum fyrir 10 milljónir króna i sumar, en aðalkostnaður- inn er við dýpkunina i höfninni. Siðar eru fyrirhugaöar frekari hafnarframkvæmdir við Húsa- vikurhöfn, að sögn Guðmundar Hákonarsonar. fréttaritara blaðsins þarnyrðra.Meðal annars er fyrirhugaö að gera bátakvi i höfninni og lengja hafnargarðinn. Miklar byggingaframkvæmdir standa yfir i sumar á Húsavik og er mikið byggt af ibúðarhúsnæði. Þá er haldið áfram við byggingu hótels og smiði nýs gagnfræða- skólahúss. Mun starfsemi gagnfræðaskól- ans flytjast i hið nýja húsnæði að verulegu leyti i haust. — HELDUR STÖRORÐUR STÖDUMÆLAVÖRDUR ,,Nú veröur fólk ekki lengur lát- ið komast upp með að borga ekki stöðumælasektir”, sagöi stöðu- mælavörður við bilaeiganda I Reykjavik i gær. Sagöi hann, að nýlega hefði þremur mönnum verið stungið i fangelsi fyrir vanskil á sektar- greiðslum. Einn þeirra, útgerðarmaður i Reykjavik, sagði hann, skuldaði 43 þúsund krónur og hann sat inni i einn sólarhring áður en hann borgaöi skuldir sinar. Okkur á Alþýðublaðinu kom þetta nokkuð á óvart, þvi hingað til hefur ekki verið tekið svo hart á vanskilum á sektargreiðslum. Þvi grennsluðumst við fyrir um þetta hjá lögreglustjóranum i Reykjavik og sakadómi Reykja- vikur i gær, en þar kannaðist eng- inn við þetta. ,,Þetta er tómur uppspuni” var okkur sagt. „Stöðumælavörður- inn hefur verið að skrökva og haldiö að hann myndi hrella við- komandi með þessu.” mannabústaða á Sauðárkróki, sagði i samtali við Alþýðublaðið, að ibúðirnar væru af þremur stærðum, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja, og væru fjög- urra herbergja ibúðirnar um 100 fermetrar. lbúðirnar hafa verið i byggingu siðan á árinu 1971. 1 samtalinu við blaðið kvaðst Marteinn ekki geta sagt, hver kostnaðurinn væri við byggingu ibúðanna, en sagði, að kostnaðurinn væri talsvert undir kostnaði hins svonefnda visitölu- húss. Hin nýju lög um verkamanna- bústaði voru sett á næst siðasta Alþingi að tilhlutan Alþýðuflokks- ins, sem þá fór með yfirstjórn húsnæðismálanna i landinu. Var sú lagasetning liður i heildarend- urskoðun á öllum lagabálknum um Húsnæöismálastofnun rikis- ins og aðstoð hins opinbera við húsbyggjendur, sem þá var fram- kvæmd. Birgðir hafa hlaðizt upp hjá Kisilgúrverksmiðjunni við Mývatn að undanförnu og eru birgðir verksmiðjunnar nú um 3.000 tonn. Að sögn Björns Friðfinnssonar, framkvæmdastjóra, hafa af- skipanir gengið hægt i sumar, aðallega vegna sumarfria erlend- is. Kvað Björn ekki liklegt, að afskipanir færu að glæðast aftur fyrren seinnipartinn i september eða i byrjun október. 2 Miövikudagur 23. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.