Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 5

Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 5
alþyðu[ aðið I Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtiyggsson. Aðsetur ritstjórn- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. DUGLEG AÐ SLA Skuldseig er ólafia! 1 lok júlimánaðar var skuld rikissjóðs við Seðlabanka íslands komin upp i sextán hundruð fimmtiu og sjö milljónir fjögur hundruð og tiu þúsund sjötiu og fimm krónur og sjötiu aura. Á sama tima hafði rikis- stjórnin selt bankanum vixla fyrir tvö hundruð sjötiu og sjö milljónir og eitt hundrað þúsund krónur og er þetta vixlabrask stjórnarinnar al- gerlega ný leið til þess að slá rikissjóði fé. Sam- anlagðar skuldir rikissjóðs á miðju þvi herrans ári 1972 nema þvi tæplega TVÖ ÞÚSUND MILLJÓN KRÓNUM. Er þetta um það bil helm- ingi meiri skuld, en rikissjóður var i við Seðla- bankann á sama tima i fyrra. Rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar þarf þvi meira en litið fé til búsins. Með nýjum skatta- lögum hefur hún þyngt svo skattbyrðina á al- menningi i landinu, að sennilega mun aldrei verða hægt að ganga lengra i beinni skattlagn ingu. Til viðbótar þvi slær hún út eins mikla pen- inga hjá Seðlabankanum og mögulega hægt er og selur svo vixla, þegar annað dugar ekki. Vonandi er ekkert það heimili til á íslandi þar sem óstjórnin i f jármálunum er jafn hroðaleg og á heimili Ólafiu. ÞAR KOM VEL A VONDAN Þjóðviljinn — þetta gamla og gróna málgagn alheimskommúnismans og löngum trú og hlýðin málpipa erlends valds, virðist saman settur úr algerum andstæðum. Þrátt fyrir alla „alþjóða- hyggjuna” lætur blaðið þannig iðulega i ljós svo ihaldssamar þjóðernisskoðanir, að einna helzt minnir á ungmennafélagsræðu frá aldamótun- um. 1 hugmyndaheimi þeirra skiptast t.d. allir at- vinnuvegir i tvo flokka. Annars vegar eru ,,þjóð- legir atvinnuvegir”. Hins vegar þeir ,,óþjóð- legu” Og auðvitað þarf ekki frekari orðum að þvi að eyða, að sú skoðun Þjóðviljamanna, að íslendingar eigi aldrei að ljá hinum „óþjóðlegu atvinnuvegum”, svo sem eins og stóriðju, rúm i landi sinu. í forystugreinÞjóðviljansi gær er enn tekið til við klifið. Sú forystugrein ber yfirskriftina „Þorskur eða ál” og gengur auðvitað öll út á það, að núverandi stjórnarherrar og þá einkum ráðherrar Alþýðubandalagsins séu með hinum „þjóðlega þorski” en á móti hinu „óþjóðlega áli”. í gegnum öll þessi skrif skin svo það, að væntanlega verði kommúnistinn, sem nú skipar embætti iðnaðarmálaráðherra, ekki lengi að koma hinni „óþjóðlegu stjóriðju” fyrir kattar- nef. Þessi leiðari Þjóðviljans er ákaflega vel tima- settur. Þannig bar nefnilega við, að einmitt þann sama morgun og hann var lesinn i útvarpið skýrði Alþýðublaðið frá þvi, að fyrrnefndur iðn- aðarmálaráðherra kommúnista sé nú um þess- ar mundir staddur i Svisslandi í bóði sjálfs erki- fjandans ALU-SUISSE, — auðhringsins, sem á bróðurpartinn i Álverinu i Straumsvik, þvi „óþjóðiega” fyrirtæki. Þessa lystireisu þá ráð- herrann röskri viku áður en íslendingar hyggj ast taka til við siðasta og mikilvægasta þáttinn i iandhelgisbaráttu sinni. Þá fann hann ekkert þarfara að gera, en að fara fyrst i privat- skemmtiferð til útlanda og siðan til Svisslands i boði alþjóðlegs auðhrings. Er þetta framferði ráðherrans og fyrrverandi ritstjóra Þjóðviljans ekki ákaflega „þjóðlegt”? Þetta var nú kosturinn, sem hann tók, þegar valið stóð á milli „þorsks og áls”! HENNSLUBÚKASKORTUR f FRAMHALDSSKÚLUNUM Það er ekki oft, að þingmenn i stjórnarandstöðu fá samþykkt þau mál, sem þeir bera fram. Þó kemur það fyrir. 1 vetur t.a.m. fengu þingmenn Alþýðuflokksins samþykkt nokkur mál, sem þeir báru fram á Alþingi og önnur af- greidd á jákvæðan hátt, þótt ekki næðu þau formlegu samþykki að sinni. t grein i Alþýðublaðinu fyrr i sumar voru rakin afdrif ein- stakra þingmála Alþýðuflokksins frá liðnum vetri og verður það ekki endurtekið hér. Verður aðeins minnst á eitt þeirra, — þingsályktunartillögu, sem sam- þykki hlaut. Bækurnar verði á boð- stólum Flutningsmenn umræddrar til- lögu voru tveir þingmenn Alþýðu- flokksins, þeir Stefán Gunn- laugsson og Karl Steinar Guðna- son, en sá siðarneíndi sat um hrið á Alþingi i fyrra i forföllum Jóns Ármanns Héðinssonar. Þingsá- lyktunartillaga þessi var flutt i Sameinuðu Alþingi og fjallaði um námsbækur framhaldsskóla- nema. Var i tillögunni lögð áherzla á það, að fleiri kennslu- bækur fyrir framhaldsskólastigið verði gefnar út á islenzku, en verið hefur og að fræðsluyfirvöld sæju svo um, að allar þær bækur — bæði innlendar og erlendar — sem framhaldsskólanemendum er ætlað að nota við nám sitt, væru ávallt tiltækar i skólavöru- búðum, en á þvi hefur verið mikill misbrestur. t heild hljóðaði tillagan svo: ..Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að hlutast til um, að nauðsynlegar kennslubækur, innlendar og erlendar, sem notaðar eru S hverjum tima vegna náms i framhaldsskólum, séu jafnan á boðstólum i verzlun- um, en talsvert skortir á, að svo hafi verið, svo að fullnægjandi geti talizt. Enn fremur verði at- hugað, hvort unnt sé að auka út- gáfu islenzkra kennslubóka og á þann hátt draga úr notkun er- leiídra bóka, einkuni i mennta- skólum og Háskóla islands. i þessu sambandi kemur til álita, hvort nauðsynlegt sé að fela Kikisútgáfu námsbóka forgöngu i þessum efnum. Þá verði kannað, hvernig háttað er verðlagningu erlendra kennslubóka i verzlunum, með það fyrir augum að tryggja, að þær séu á boðstólum á hóflegu verði.” Löng bið og oft til litils Tilgangur þessa tillöguflutn- ings er skiljanlegur öllum þeim nemendum, sem eru á fram- haldsskólastiginu svo og for- eldrum þeirra. Eins og kunnugt er, hafa miklar breytingar verið gerðar á námsefni og kennslu- bókakosti ýmissa skóla, — m.a. framhaldsskóla svo sem eins og menntaskóla, kennaraskóla o.s.frv. Margar af þeim bókum, sem orðið hafa fyrir valinu sem kennslubækur við þessar breyt- ingar, hafa aðeins verið til á er- lendum málum og hefur það að sjálfsögðu oft talsverða erfiðleika i för með sér fyrir nemendur. Oft hefur dregizt nokkuð lengi að þýða þessar bækur á islenzku og i sumum tilvikum hefur það ekki verið gert og virðist ekki standa til að gera. Undir slikum kringumstæðum verður að útvega umræddar bækur erlendis frá, — tiðast fyrir milligöngu bókaverzlana i einka- eign þar sem sjaldnast er um neinar skólabókaverzlanir að ræða, sem annast slik innkaup fyrir nemendur. Af eðlilegum ástæðum er það gróðasjónar- miðið, sem ræður milligöngu einkaaðilans um bókakaupin og þar sem það er töluvert atriði fyrir hann að liggja ekki með mikið magn af óseldum bókum hagar hann oft pöntun sinni þannig, að þegar til á að taka, þá eru ekki nægilega margar bækur til fyrir alla nemendur, sem þurfa á þeim að halda. Þurfa þeir þá að Stefán Gunnlaugsson biða lengi, oft mjög lengi, eftir nýrri bókasendingu og til eru dæmi þess, að ákveðin kennslu- bók hafi ekki verið fáanleg heilt skólaár þannig að þeir, sem ekki hafa getað fengið við bók- ina við upphaf árs hafa orðið að láta sér lynda að vera bókarlausir allt kennslutimabilið og ganga til prófs án þess að hafa nokkru sinni átt þá kennslubók, sem prófað er óviðunandi ástand Auðvitað er slikt ástand með öllu óviðunandi. Það eru hin opin- beru fræðsluyfirvöld, sem leggja linurnar um nám i skólum lands- ins og segja til um, hvaða bækur eigi að nota. Þau verða þá einnig að sjá til þess, að fyrirskipaðar kennslubækur séu ávallt á boð- stólum. Milligangan um bókaút- vegunina getur verið hvort heldur hjá einstökum bókaverzlunum eða hjá opinberu skólaforlagi, sem væri öllu eðlilegast, en hvor leiðin, sem valin er, þá er það frumskylda fræðsluyfirvaldanna að lita til með þvi, að fyrir- skipaðar kennslubækur séu ávallt tiltækar. Slikt má ekki vera undir hælinn lagt frekar en það, hvaða bækur á að nota við kennslu. 1 greinargerð, sem fylgdi þingsályktunartillögu Alþýðu- flokksmannanna, er m.a. rætt um þessa hlið málsins. önnur rök eru þar einnig til nefnd, en i heild hljóðaði greinargerðin svo: Aukiö eftirlit „Talsvcrð brögð munu hafa verið að þvi, að nemendur hafi átt i erfiðleikum með afla nauðsyn- legra erlendra kennslubúka, sem notaðar eru við nám i framhalds- skólum, einkum i upphafi skóla- timabils á haustin. Ilafa sumir þeirra um langan tima verið án kennslubóka, scm lagðar eru til grundvallar við nám, sem þcir stunda, þar sem þær hafa ekki reynzt fáanlegar hérlendis. Gildir þetta fyrst og fremst um er- lendar, en einnig um innlendar bækur, sem notaðar eru við nám i framhaldsskólum. Brýna nauðsyn ber til, að úr þessu verði bætt. Til þess að koma hér á umbótum cr hugsan- legt að fela einhverjum einum aðila forgöngu i þessu efni, t.d. Karl Stcinar Guðnason. Itikisútgáfu námsbóka. Þó skal tekið fram, að ekki er vist, að bóksalar cigj sök á umræddum bókaskorti i verzlunum þeirra. Af skiljanlcgum áslæðum verður ekki komizt hjá þvi að nota erlendar kcnnslubækur i islcnzkum framhaldsskólum að einhverju marki. Hins vegar cru uppi þær skoðanir, að vel sé kleift á hagkvæman hátl að auka útgáfu islenzkra kennslubóka og draga úr nolkun erlendra frá þvi sem nú er. Ef vilji og áhugi sé fyr>r hendi hjá þeim, sem þeim málum eiga að sinna. Hugsanlegt væri að fcía Kikisútgáfu námsbóka verkefni á þessu sviði. Verðlag innfluttra kennslu- bóka, sem hér hafa verið á boð- stólum, hefur verið mjög hátt og sömu hækur verið seldar á mis- jafnlega háu verði eftir útsölu- stöðum. Slikar bækur cru sjálf- sagt dýrar i innkaupsverði, en fyilsta ástæða er að láta kanna, hvernig vcrðlagningu þeirra er háttað, og tryggja, eftir þvi sem frekast er unnt, að þær séu fáan- lcgar á sanngjörnu verði.” Ekkert frétzt um fram- kvæmdir Þessi tillaga um námsbækur framhaldsskólanema, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, hlaut ágætar viðtökur á Alþingi. Henni var fyrst visað til alls- her jarnefndar Sameinaðs Alþingis. Leitaði nefndin um- sagnar ýmissa aðila og að þeim fengnum mælti hún með sam- þykkt tillögunnar. Frá nefndinni fór svo tillagan aftur til Sameinaðs þings, sem samþykkti hana óbreytta sem viljayfirlýsingu Alþingis. Hefur riksistjórnin þvi það verk að framkvæma það sem i tillögunni segir, en ekkert hefur frétzt um það, hvernig sú framkvæmd gengur. Húsbyggjendur - Verktakar Kambstál: S, 10, 12, 1«, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og beygjum slál og járn eftir óskum viðskiptavina. Stálborg h.f. Smiðjuvegi 13. Kópavogi. Simi 42480. Míðvikudagur 23. ágúst 1972 5

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.