Alþýðublaðið - 29.09.1972, Side 7
SVARTI HITLER -
UGAHOAMEISTARI
í HNEFALEIKUM
Fyrrverandi Ugandameistari i þungavikt i hneíaleik-
um, Idi Amin, hershöfðingi, sem i janúar i fyrra vann eina
lotuna i viðbót er hann geröist forseti landsins, á nú á
hættu að tapa næslu lotu i hinum blóðuga hring. baö er
herinn, sem gerði byltingu i fyrra, og þá varð Amin æðsti
yfirmaður niu milljóna undirsáta, — en nú vofir yfir hon-
um hættan á að lúta i lægra haldi fyrir einhverjum, enn
ónafngreindum manni úr hópi leiötoga andspyrnuhreyf-
ingarinnar.
Idi Amin vill helzt láta kalla sig ,,Big Daddy” eða ,,Kall
inn” eins og sagt er um islenzka skipstjóra, hvar sem
hann kemur fram, og þegar hann ruddist með hermenn
sina inn i Kampala i janúar i fyrra og steypti af stóli
Milton Obote, sem hann hafði áður svarið eilifa tryggð og
vináttu þá var ekki laust við það að landsmenn fögnuðu
þessum nýja herra.
„Hisinn” eins og Amin hefur stundum verið nefndur,
vegna stærðar sinnar, lofaði þjóðinni umbótum, lofaði þvi
að ráðist yrði að spillingunni i þjóðfélaginu, og lofaði að
ganga milli bols og höfuðs á þeirri sósialistisku efnahags-
stefnu, sem þar hafði ráðið, og reyndar næstum gert
Uganda gjaldþrota.
Amin naut ekki litilla vinsælda heima fyrir þegar hann
lét flytja heim lik Sir Edward Frederick Motlesa annars,
fyrrum Buganda konungs, en Obote hafði steypt honum af
stóli, og hann lézt i útlegð i Englandi, snauður og einmana.
bessi fyrrum konungur var fluttur heim og hlaut virðu-
lega útförá vegum rikisins i Kampala. En þessi útför var
sett á svið. Amin var með þessu að höfða til tiltekinna kyn-
þátta i Uganda, einkum Buganda-fólksins, og gefa i skyn
veldi sitt. En það fór fljótlega að bera á bágbornum efna-
hag , sem ekki hafði verið góður fyrir.
t Afriku höfðu menn, kunnugir málum, þegar við valda-
töku Amins sagt að gáfur og stjórnmálavit hans stæði i öf-
ugu hlutfalli við likamsstærðina.
1 stjórnartið Obotes var oft heitt i kolunum i sambúð
Uganda og nágrannarikjanna, en eftir að Idi Amin tók við
fór fyrst fyrir alvöru að skerast i odda. Ari eftir valdatök-
una kúventi hann i nokkuð öfgafullri afstöðu sinni til
mikilvægra málefna. Aður hafði hann lýst ánægju sinni
yfir sigri Israelsmanna i sex-daga striðinu, en nú tók hann
að predika að „zionisminn, heimsvaldastefnan og Bret-
land” væru óvinir Uganda, og i stað þess fór hann fögrum
orðum um Araba og sókn þeirra til sigur yfir zionisman-
um.
Jafnframt hafði hann i hótunum við nágrannarikið
Tanzaniu og forseta landsins, Julius Nyerere, sem ekki
hafði aðeins veitt Obote landvist, heldur áleit frá upphafi
Amin heimskingja og kallaði hann meira að segja sinnis-
veikan mann, sem þjáðist af stórmennskubrjálæði.
Sjálfur hefur Amin oftar en einusinni gert þaö heyrum
kunnugt að kynþáttastefna hans i innanlandsmálum, ofs-
óknir hans á hendur ibúum af asiskum uppruna og hvitum
ibúum landsins, se vegna opinberunar frá Guði, og hann
segistræða daglega við Drottinn almáttugan.á gönguferð-
um.
Idi Amin, sem nú er viða kallaður „Svarti Hitler” hefur
tvöfaldað herafla Uganda og komið útgjöldum til hermála
upp i 65% af heildarútgjöldum rikisins. En hann hefur ekki
komiztfyrirspillinguna i rikiskerfinu, og hann hefur held-
ur ekki á neinn hátt bætt efnahaginn.
Hermenn Amins og lögreglan fara hins vegar um landið
og valda hvarvetna ógn og skelfingu, og framkoma þeirra
hefur styrkt andspyrnuhreyfinguna i Uganda og ná-
grannarikjunum.
En „kallinn” lætur það ekki á sig fá. bessi 46 ára gamli
harðstjóri, sem verið hefur svo mjög i sviðsljósinu undan-
farnar vikur, virðist vera við þvi búinn að i þessum hring
eins og þeim, sem hann keppti í áður, vinni menn ekki all-
ar lotur, og i útvarpsviðtali fyrir nokkru sagði hann: „Mér
er sama hvenær ég verð skotinn”.
Að liðinni síðustu helgi
hefur það hvarflað að
mörgum áhorfanda sjón-
varps, að þar vanti einn
dagskrárstjórann í viðbót
við þá tvo ágætu menn,
sem annast dagskrár-
stjórnina, Jón Þórarins-
son, tónskáld, sem hef ur á
hendi stjórn skemmti-
deildar. og Emil Björns-
son, sem annast stjórn
fræðslu- og fréttadeildar.
Þessi nýi dagskrárstjóri
mundi ráðinn til að sjá um
afþreyingarefni ein-
göngu, en mjög skortir nú
á, að slikt efni sé haft um
hönd í sjónvarpi í þeim
mæli að sæmilegt geti
talizt. Hins vegar er séð
svo vel fyrir tónlistinni í
sjónvarpinu, að jafnvel
mætti nefna slíka
ofnotkun músikofbeldi.
Auðvitað liggur ekkert
fyrir um það, hve þeir eru
margir hér á landi, sem
hafa ánægju eða nautn af
því að hlusta á tónlist úr
gömlu hesthúsi í Austur-
ríki, eða hver ánægja það
er að heyra kokhraustan
brezkan almúga kyrja
,,Rule Brittannia", svo að
vel sé nú tekið undir við
brezka ofbeldismenn á
miðunum við ísland, sem
milli þess þeir eru að
spýta í áttina að land-
helgisvörðum okkar
bregða á það ráð að kyrja
þennan heimsveldissöng.
En látum vera. Það sem
skipti þó mestu var, að
bæði hesthúsmúsikin og
heimsveldisprumpið tók í
hvort skipti klukkutíma
af dagskrártíma sjón-
varpsins.
Nú stendur yfir inn-
heimta á gjöldum fyrir
sjónvarp og hljóðvarp.
Það veitir sjálfsagt ekki
af, a.m.k. hafa auglýs-
ingar í sjónvarpi dottið
niður, kannski vegna þess
að sm jörlíkisframleið-
endur og sápukallar telja
lítinn gróðaveg að borga
þúsundir á mínútuna
öðruhvoru megin við fiðl-
una og annað sargerí. AAá
segja að þá sé nokkuð
unnið með músikofbeld-
inu, ef á annað borð er
stefnt að lokun sjónvarps-
ins. En stjórnendur al-
menningstækja eins og
sjónvarps og hljóðvarps
hafa skyldum að gegna,
sem koma ekki hið
minnsta mál við persónu-
legar skoðanir þeirra,
einkamat eða langanir.
Þeir sem greiða afnota-
gjöld sin af þessum tækj-
um eiga rétt, sem ekki er
hægt að ganga framhjá.
Þaðerorðin fjörutíu ára
saga hvernig nokkrir
ágætir áhugamenn um
tónlist komu sér fyrir hjá
hljóðvarpinu með þeim
árangri, að þar starfar nú
blómleg tónlistardeild
með miklu starfsliði á
sama tíma og einn starfs-
maður berst um í leik-
listardeild, engin
bókmenntadeild er til og
þaðan af síður deildir yfir
aðra efnisflokka, — fyrir
utan fréttir- sem fjölmiðl-
um á borð við hljóðvarpið
er nauðsynlegt að hafa á
valdi sínu. Auðvitað er
það svo um hljóðvarpið,
að tónlistardeildin gerir
öðrum þræði kleift að
halda úti langri dagskrá.
Kenningin á bak við tón-
listardeildina var í upp-
hafi sú, að nú væri komið
tækifæri til að tónmennta
þjóðina. Búandkarlar
ýmsir risu upp og skrif uðu
lesendabréf í blöðin og
jafnvel langar greinar
gegn sinfóníum, og fóru
háðulegum orðum um út-
lend mikilmenni eins og
Chopin og AAozart. En
útvarpið kunni ráð við
því. Það bætti bara
búnaðarþáttum inn í
dagskrána. Siðan var
,,musiserað" af fullum
krafti áfram. Ef öðrum
blöskraði, þá var reynt að
bæta úr því með því að
koma áhugamálum hinna
sömu inn í dagskrána. og
lengi tóku þeir við þessir
tólf eða tuttugu tímar,
sem dagskráin stendur nú
til dags. Það má því
segja, að hlutföllin hafi
samkvæmt happa og
glappaaðferð orðið nokk-
uð skárri i dagskrá hljóð-
varps en hún var, en þó
með þeim árangri, að svo
til allir áhugamanna-
hópar og félagahópar
eiga nú sína dagskrár-
þætti mismunandi dauða
og ómerkilega eftir efn-
um — allt frá fuglavina-
félögum niður i álitamál
pól itískra glaumgosa.
Samt ræður tónlistin öllu
hjá hljóðvarpinu enn, og
sést það bezt á þvi, að eina
sjónvarpslausa kvöld vik-
unnar hellist yfir útvarps-
hlustendur slikt tónaflóð,
að engu er likara en tapp-
inn hafi verið tekinn úr
púkaflöskunni. AAúsikin
skal nefnilega í helvítin,
vogi þeir ser að opna
tækin.
Viðhorfið til tónlistar-
af reka hl jóðvarpsins hér á
landi er á sinn hátt orðið
likt og viðhorfið til Sikil-
eyinganna í Bandaríkjun-
um. Þetta er komið í fast
form og rennur sína leið,
og ekkert að gera nema
umbera hina daglegu
áþján. Oðru máli gegnir
um sjónvarpið. Það verð-
ur tæplega þolað að fá-
mennur hópur áhuga-
manna um tónlist hafi
áhrif á dagskrána, alveg
einsog þaðyrði illa séð ef
leikarafélagið tæki við
dagskrárstjórninni, þótt
auðvitað yrði um mikið
myndrænna efni að ræða.
Hljómsveitir í sjónvarpi
eru um það bil dauðasta
efni, sem þar er hæQtað
sýna. En hvað varðar
áhugamenn um tónlist
um það. Hún skal í helv-
ítin samt. Auðvitað verð-
ur eitthvað að vera um
tónlist í sjónvarpi. Hjá því
verður ekki komizt, enda
óðs manns æði að setja
slíká list alveg til hliðar.
Hitt er að kunna sér ekki
hóf að hafa klukkutima
tónlistardagskrá kvöld
eftir kvöld og mundu
engir gera neins staðar í
heiminum nema þeir,
sem aldnir hafa verið upp
við það að allt hefur verið
hægt í þessum efnum í
hljóðvarpinu.
Þeir, sem stjórna
dagskrárefni í sjónvarpi,
hafa fyrst og fremst um
tvennt að hugsa. Annars
vegar þarf að gera sér
grein fyrir þörfum al-
mennings um skemmti-
efni; hins vegar nauðsyn-
inni á því að flytja þeim
mannbætandi efni, og má
kalla það menningarlegt
ef vill. Þá fer vel ef jafn-
vægis er gætt í þessu
tvennu. Persónulegar
skoðanir manna, með
misjöfn áhugamál, geta
ekki haft áhrif á dag-
skrárgerðina. Þeir, sem
stjórna , verða að heyja
sérefni til dagskrárgerðar
utan sérsjónarmiða, því
sérsjónarmiðin eiga sér
ekki viðhlæjendur í þeim
mæli, að það réttlæti að
leggja heilar stofnanir
undir þarfir þeirra, nema
þá um miðjar nætur.
islenzka sjónvarpið er
ekki i aðstöðu til að sitja
við sinn keip hvað leiðin-
lega dagskrá snertir. Svo
er fyrir séð, að það nýtur
engrar samkeppni. Væri
um samkeppni að ræða
mætti það auðveldlega
halda svona áfram unz
enginn nennti að opna það
lengur, eins og hljóð-
varpið, sem af flestum er
ekki opnað nema á frétta-
tímum. Þeir sem greiða
afnotagjöld af tæki eins
og sjónvarpi eru ekki að
því til að láta ,,musisera"
yfir sér, og þeir eru ekki
að því til að gefa sjón-
varpsmönnum sjálfum
færi á forsjón misgóðra
umræðuþátta, sem sumir
gætu hvað áhuga áhorf-
enda snertir allt eins verið
um meltingargöng kýr-
innar.
Staðreynd er, að þegar
sjónvarpið fór af stað,
stóðu menn sig með tölu-
verðum glæsibrag. Grát-
konur kvörtuðu yfir
drykkjuskap dýrlingsins,
og fréttirnar voru jafnvel
svo fjörugar, að menn
óttuðust bráðan blaða-
dauða. Sjónvarpsfréttirn-
ar hafa haldið merkilega
vel í horf inu, og einnig eru
f ræðsl uþætti r ýmsir
ágætir Ólafur Ragnar
Grímsson hefur stjórnað
nokkrum þáttum, sem
bera af um kraft og
dirfsku, og munu allir
sammála um það. Fasta-
þættir ýmsir eru forvitni-
legir, en þeir eru of fáir.
Kvikmyndirnar eru
stundum afleitar, og
þessir skandinavísku
samf élagsþættir gætu
komið hverjum sem er til
að flýja á náðir brenni-
víns eða annara örfandi
lyf ja. Áreiðanlega er eng-
inn forvitinn um meira
eða minna uppblásin
vandamál granna okkar
— þennan sifellda storm í
vatnsglasinu — á meðan
fárviðrin geisa um alla
jarðarkringluna. Þvílík
smáskítlegheit.
Af framantöldu er aug-
Ijóst að annað tveggja
verðurað ráða þriðja dag-
skrárstjórann að sjón-
varpinu— mann sem litur
á sig sem fulltrúa áhorf-
enda, — eða þá að
útvarpsráð verður að
setja skömmtunarreglur
yfir músikina. Sjónvarps-
notendur eiga nefnilega
heimtingu á skemmti-
legra sjónvarpi. Undan
þeirri kröfu verður ekki
vikizt. Hin útlendu hest-
hús verða að víkja af
skerminum. ,,Rule
Brittannia" skal aðeins
sungin um borð í brezkum
togurum, og starfi kvik-
myndavalið öðrum þræði
af því að í stofnuninni
gengur einhver með
frönskudellu, verður að fá
póstþjónustuna til að láta
a.m.k. aðra hvora send-
ingu hverfa. Sjónvarpið
getur ekki haldið áfram
að vera tilraunastofnurj
sérvitringa af því svo vill
til að áhorfendahópurinn
samanstendur ekki af
hvítum músum.
VITUS
Sjónvarpið getur ekki haldið
ófram að vera tilraunastofnun
sérvitringa af því svo vill til að
óhorfendahópurinn samanstendur
ekki af hvítum músum.
0
Föstudagur 29. september 1972
Föstudagur 29. september T972
o