Alþýðublaðið - 13.10.1972, Side 1
RÆNT EIGIN BARNI
Sakadóms i gær
» #ær l»óf rannsóknarlÖRrcglaB leit »6 manni
nokkruui og barni bans. 5-6 ára gömlu. setn hann
hefur nu yerift ákaeröur fj-rír a6 hata rant frá
niööurinw, Hm rr fynrverundí eiginkona hans.
AAdragandi þessa raáls cr sá, aö maöurinn. ítm
cr islentkur, en konan sera ex brezk ,voro áöur gift i
o« hjuggu Mráan I London, cn skildu samvj#tura. "
SkilnaÁnrinii ttr frim I R»«Ho»ai ™. l»...
LEITAÐ UM
ALLT LAND
Viðtæk leit fór fram i gær að manninum, sem
hefur verið sakaður um að hafa „rænt” barni sinu
frá fyrrverandi eiginkonu sinni, sem samkvæmt
úrskurði ber forráðaréttur yfir barninu. Hvorki
maðurinn né barnið var fundið i gærkvöldi. Ekki er
vitað, hvort barnið er i fylgd með föður sinum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér, hefur lög-
reglu um allt land verið gert að-
vart og hún béðin um að vera á
verði, ef mannsins yrði vart.
Maðurinn hefur farið huldu höfði
siðan um klukkan 16 á miðviku-
dag. Hins vegar hefur um skeið
verið ókunnugt um dvalarstað
barnsins.
Siðast var vitað um ferðir
mannsins, er hann mætti fyrir
fógetarétti i Reykjavik um kl. 16 á
miðvikudag, þar sem borgar-
fógeti staðfesti úrskurð dóms-
málaráðuneytisins um afhend-
ingu barnsins. Fyrir réttinum
neitaði maðurinn að visa á
dvalarstað barnsins.
Leitin að manninum hófst siðan
um klukkustund siðar, en hún
Framhald á bls. 4
VIETNAM: EITTHVAÐ
MIKILVÆGT Á SEYÐI
Henry Kissinger, sérlegur
sendifulltrúi Nixons Bandarikja-
forseta, fór frá Paris áleiðis til
Washington i gær til að gefa for-
setanum skýrslu um leynivið-
ræður sinar við fulltrúa Norður-
Vietnams undanfarna daga.
Viðræður Kissingers og Le Duc
Tho, sem er i miðstjórn kommún-
istaflokks Norður-Vietnams,
stóðu i að minnsta kosti fjóra
daga.
Hvorki fulltrúar Bandarikj-
anna né Norður-Vietnams vildu
staðfesta hvort Kissinger og Tho
áttu fund með sér i gærmorgun
áður en sá fyrrnefndi hélt til
Bandarikjannna.
Kissinger frestaði heimför sinni
nokkrum sinnum og ýtti það undir
Framhald á 2. siðu.
Biblían hans Halldórs E. Sigurðssonar,
fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1973, var
lagt fram á Alþingi fyrir tveim dögum.
Eins og venjulega kennir þar margra
grasaog misstórra. Við Alþýðublaðsmenn
biöðuðum lítið eitt í bákninu í gær og
bárum niður svona hér og hvar. Við rák-
umst m.a. á það sem hér fer á eftir.
Hækkuð
gjöld
— nýir
skattar?
Samkvæmt fjárlagafrum-
varpi rikisstjórnarinnar er gert
ráð fyrir þvi, að tckjuskattar
hækki um 1342 milljónir króna á
árinu 1973 þar af tekjuskattar
einstaklinga um 1347 milljónir,
— þ.e.a.s. tekjuskattur félaga á
að lækka um 18 milljónir á
árinu! Astæða: ....útlit fyrir að
hagur ýmissa atvinnugreina
hafi versnað í ár...
Gjöld af innflutningi (tollar
o.fl.) eiga afi gefa 1046 m.kr.
tekjuauka.
Skattar af seldum vörum og
þjónustu eiga að gefa 852,2
in.kr. i tekjuauka, þar af sölu-
skattur 363 m.kr. og aðrir óbein-
ir skattar eiga að hækka um 98,7
m.kr.
En er það þar með búið? Ekki
alveg. i athugascmduni rájeö
fjárlagafrumvarpinu er gefið i
skyn, að búast mcgi við enn
einni skattalagabreytingunni á
þessu þingi.
Dýrt er drottins
orðið
Tveir nýir starfsmenn hafa
verið ráðnir til forsætisráðu-
neytisins, sem veldur þvi, að
launagreiöslur ráðuneytisins
aukast töluvcrt. Er hér um að
ræða blaöafulltrúa rikisstjórn-
arinnar, — llannes Jónsson, og
ritara hans.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
lagafrumvarpsins nema árs-
laun Hannesar 743 þús. kr. —
u.þ.b. 62 þús. kr. á mánuði — og
ritarans 403 þús. kr. eða samtals
launakostnaður við embætti
blaðafulltrúans kr. 1146 þús. á
ári.
A sama tima er i frumvarpinu
ákveðið að auka framlög til
upplýsinga- og kynninga-
slarfscmi á vegum utanrikis-
ráðuncytisins um litlar 300 þús.
kr.
Vel borgað fyrir
blundinn
Pá liggur fyrir áætlun rikis-
stjörnarinnar i menntamálum
fyrir næsta ár. Ilún hyggst auka
þar mjög nefndarstörf. I fjár-
lagafrumvarpinu leggur hún
þannig til að kostnaður við
nefndarstörf á vegum ráðu-
ncytisins verði hækkaöur um
1634 þús. kr. Vel borgað fyrir
blundinn í nefndunum þeim!
Og launakostnaðurinn við
„yfirstjórn” menntamálanna er
hækkaöur um 7,2 milljónir kr.
l>á er cins gott að „yfirstjórnin”
fari senn hvað liður að afgreiða
hlutina.
Halldór góður
við Halldór...
Fjármálaráðherrann hefur
verið mjög lipur við landbún-
aðarráðherrann i sambandi við
gerð fjárlagafrumvarpsins, —
enda hcita báðir Ilalldór. Kostn-
aöurinn við aðalskrifstofu ráðu-
neytisins fær þannig fyrir náð
fjárinálaráðherrans að hækka
um rösk 1800 þúsund. Þar af
leyfist landbúnaðarráðherr-
anum að ráða sér aðstoðarráð-
herra fyrir 682 þús. kr„ bílstjóra
fyrir 308 þús. kr. og liækka laun
fyrir nefndarstörf um 107 þús.
Framlög til landbúnaðarins
last svo hækkuð um 162 milljón-
ir, — þar af eru útflutningsupp-
hælur hækkaöar um 110 millj-
ónir og eiga á næsta ári að nema
433 milljónum. Þá er hækkuð
jarðræktarframlög og jarðrækt-
arstyrkir, framleiðnissjóðs-
framlag og framlög til fram-
ræslu, búfjárræktarframlög og
framlög til veðdeildar Búnaðar-
bankans, svo og framlög til
nautgriparæktarsambanda.
Alls eiga framlög til landbún-
aðarins á næsta ári að nema 702
m.kr. auk, að sjálfsögðu, ann-
arrar aðstoðar.
...og Halldór
við Halldór
Kostnaður við aðalskrifstofu
Ijármálaráðuneytisins hefur
vcrið hækkaður um litlar 8
milljónir. I>ar af cr ráöinn einn
nýr deildarstjóri og háifur full-
trúi fyrir 1349 þús. kr. Önnur
laun hækka um 2492 þús. kr. og
2329 þús. kr. kostnaöarauki er
ráðgcrður vegna aðkeyptrar
þjónustu og ncfndarstarfa.
Segir i athugasemdum, að þetta
sé byggt á reynslu.
TOGVEIÐIBATAR UPPI LAND-
STEINUM IÍT AF SEYÐISFIRÐI
EINN VAR
SVIPTUR
VEIÐILEYFI
í GÆR
Mikil brögð hafa verið að þvi i
haust, að togveiðibátar hafi
verið á veiðum alveg upp i land-
steinum út af Seyðisfirði. Hafa
bátarnir unnið mikil spjöll á
trillubátum Seyðfirðinga.
I gær var einn þessara báta,
Hersir OF 77, sem gerður er út
frá Neskaupstað, sviptur veiði-
leyfum útgefnum af sjávarút-
vegsráðuneytinu, vegna grófrar
misnotkunar á þeim.
Mikil óánægja rfkir meðal
smábátaeigenda á Seyðisfirði,
sem vilja meina að Hersir og
fleiri togbátar hafi stundað
þessi landhelgisbrot óáreittir
um þriggja vikna skeið nú i
haust.
Þá vilja Seyðfirðingar einnig
meina, að togbátar hafi meira
og minna togað upp við land-
steina á þessum slóðum undan-
farin þrjú ár, smábátaútgerð
Seyðfirðinga til mikils tjóns.
Segjast Seyðfirðingar hafa