Alþýðublaðið - 13.10.1972, Side 4
HJÚKRUNARKONA
Hjúkrunarkonu vantar að Heilsuhæli
N.L.F.Í. Upplýsingar i skrifstofu hælisins,
simi 4201, Hveragerði.
Lögtök á Akranesi
Bæjarfógetinn á Akranesi hefur hinn 11. október 1972
úrskurðað, að lögtök geta farið fram fyrir áföllnum, en
vangoldnum útsvörum, aðstöðugjöldum og fasteigna-
gjöldum til bæjarsjóðs Akraness, og
hafnargjöldum til hafnarsjóðs Akraness fyrir árið 1972 og
eldri, og fyrir lögboðnum dráttarvöxtum og kostnaöi.
Lögtök mega fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
þessa úrskurðar, ef ekki hafa verið gerð skil fyrir þann
tima
Bæjarstjóri
||) Hjúkrunarkonur
Hjúkrunarkonur óskast strax á Endur-
hæfinga- og Hjúkrunardeild Borgar-
spitalans i Heilsuverndarstöðinni.
1/2 starf eða hluti úr starfi kemur til
greina.
Upplýsingar gefur forstöðukonan i sima
81200.
Reykjavik, 12. 10. 1972.
BORUARSPÍTALINN
Samkeppni um merki fyrir
Félag íslenzkra iðnrekenda
1 tilefni af 4()ára afmæli fólagsins býður Félag islenzkra
iðnrekenda til samkeppni um félagsmerki.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum Félags
islenzkra teiknara og er öllum heimil þátttaka.
Veitt verða ein verðlaun krónur 60 þúsund.
Félag islenzkra iðnrekenda var stofnað 6. febrúar 1933.
Tilgangur þess hcl'ur i'rá upphafi verið að sameina alla
iðnrekendur i einn félagsskap og að vinna að eflingu
iðnaðar á Islandi. Aðildarheimild hafa allir, sem
iðnrekstur stunda án tillits til réttinda eða menntunar.
IMerkimier ætlað að vera sameiginlegt tákn islenzks verk-
smiðjuiðnaðar. t>að skal vera til almennra nota á prent-
gögnum, i auglýsingum, sem barmmerki, a bókarkili,
fána, til auðkennis á munum og eignum félagsins o.s.frv.
Tillögumað merki i einum lit skal skila i stærð 10x15 cm i
þvermál á pappirsstærð DIN A4. Keppendur skulu gera
grein fyrir merkinu i linu og litum. Tillögurnar skal ein-
kenna með sérstöku kjörorði, og skal nafn höfundar og
heimilisfang fylgja með i lokuðu ógagnsæju umslagi,
merktu eins og tillögurnar.
Skilafroslur tillagna er til kl. 17:00 föstudaginn 24.
nóvember 1972. Skal skila þeim i póst eða til skrifstofu
Félags islenzkra iðnrekenda merktum:
Félag islenzkra iðnrekenda
Samkeppni —
c/o Gisli Benediktsson
Lækjargötu 12. Rvik.
Gisli Benediktsson er ritari nefndarinnar og jafnframt
trúnaðarmaður keppenda og geta keppendur snúið sér til
hans, i sima 24473, varðandi frekari upplýsinga um sam-
keppnina.
líóinncfiidin er þannig skipuð: Bragi Asgeirsson, list-
málari, Kristin Þorkelsdóttir, teiknari og Hjalti Geir
Kristjánsson, húsgagnaarkitekt.
Dómnefndin skal skila niðurstöðum innan hálfs mánaðar
frá skiladegi og verður efnt til sýninga á tillögunum og
þær siðan endursendar.
Verðlaunaupphæðinni verður allri úthlutað, en er ekki
hluti af þóknun höfundar. Félag islenzkra iðnrekenda
hefur einkarétt á notkun þeirrar tillögu, sem dómnefndin
velur, og áskilur sér rétt til að kaupa hvaða tillögu sem er,
samkvæmt verðskrá F.f.T.
FÉLAG ÍSLENZKRA IÐNREKENDA
.. « Lögreglan vildi þó ekkert eiga á
HOtaðÍ w hættu og handtók manninn. Var
——.—— hann siðan fluttur i fangageymsl-
ar var hann ekki liklegur til stór- urnar i lögreglustöðinni við
aðgerða i svipinn, þvi hann svaf. Hverfisgötu.
Læknaskipti
Eirikur Björnsson læknir hefur ákveðið að
fækka við sig sjúkrasamlagsnúmerum frá
1. nóvember n.k. á þann hátt að segja upp
þeim, sem búsettir eru i Norðurbænum.
Þeir samlagsmenn, sem hér um ræðir, þurfa því að koma i
skrifstofu samlagsins með skirteini sin og velja nýjan
heimilislækni.
Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar
Við yfirheyrslur hjá lögregl-
unni, játaði maðurinn að hafa
hringt og hótað fyrrgreindum að-
gerðum, en vildi ekkert meira um
málið segja. Var hann greinilega
eitthvað við skál.
Hann var siðan látinn gista
fangaklefann til morguns, en þá
yfirheyrði rannsóknarlögreglan
hann og var að þvi fram undir há-
degi.
Var þá vigmóðurinn af mann-
inum, og bar hann við algeru
minnisleysi, og sagðist hafa verið
mikið drukkinn. Fékkst hann ekki
einu sinni til að viðurkenna að
hafa hringt.
Manninum, sem er miðaldra og
hefur hingað til haldið sig réttu
megin við lögin og ekki verið tal-
inn ofbeldismaður, var siðan
sleppt úr haldi eftir hádegið, þar
sem rannsóknarlögreglan taldi
ekki ástæðu til að halda honum
lengur, hvort sem það var hann
sem hringdi eða ekki. —
Dagskrá i Norræna húsinu um
jafnrétti þegnanna i menntun og
löggjöf, 14. og 15. október n.k.
Laugardaginn 14. október kl. 17 talar
INGER MARGRETE PEDERSEN,
dómari i östre Landsret i Kaupmanna-
höfn, um réttarfarslega stöðu konunnar á
Norðurlöndum i dag.
Sunnudaginn 15. október kl. 20,30 talar
Ilelga Strene, frá Kennaraháskólan-
um i Osló, um konuna i menntunarþjóð-
lelaginu fyrr og nú og i framtiðinni.
Fyrirlesararnir taka þátt i umræðum hvor
hjá öðrum að erindunum loknum.
VEItlD VELKOMIN.
NORRÆNA
HÚSIÐ
Símaskróin 1973
Simnotendur í Reykjavik,
Seltjarnamesi, Kópavogi,
Garða- og Bessastaðahreppi
og Hafnarfirði
Vegna útgáfu nýrrar simaskrár eru sim-
notendur góðfúslega beðnir að senda
skriflega breytingar, ef einhverjar eru,
fyrir 1. nóv. n.k. til Bæjarsimans,
auðkennt Simaskráin.
Athygli skal vakin á þvi að breytingar,
sem orðið hafa á skráningu simanúmera
frá útgáfu seinustu simaskrár og til 1.
október 1972, eru þegar komnar inn i
handrit simaskrárinnar fyrir 1973 og er
óþarfi að tilkynna þær. Aðeins þarf að til-
kynna fyrirhugaða flutninga, breytingar á
starfsheiti og á aukaskráningu.
Athugið að skrifa greinilega. Nauðsynlegt
er að viðkomandi rétthafi simanúmers til-
kynni um breytingar, ef einhverjar eru, og
noti til þess eyðublað á blaðsiðu 577 i sima-
skránni.
Nánari upplýsingar i simum 22356 og 26000
og á skrifstofu Bæjarsimans við Austur-
völl. .
Bæjarsiminn.
Leitað
hefur verið árangurslaus til
þessa.
Eins og Alþýðublaðið skýrði frá
i gær staðfesti borgarfógeti þann
úrskurð, að maðurinn skyldi af-
henda móðurinni barnið, og áfr-
ýjun til hæstaréttar hafi engin
áhrif á framkvæmd þessa úr-
skurðar.
Strax að fógetaréttinum af-
stöðnum kærði lögmaður móður-
innar manninn fyrir Sakadómi
Reykjavikur fyrir rán á barninu
og óskaði eftir aðstoð við leit að
manni og barni.
Magnús Eggertsson yfirlög-
regluþjónn hjá rannsóknarlög-
reglunni sagði, er blaðið hafði
samband við hann i gær, að Saka-
dómur Reykjavikur hefði engan
úrskurð kveðið upp vegna máls-
ins. ,,En við leitum að manninum,
þurfum að ná tali af honum og fá
upplýsingar um dvalarstað
barnsins, sem honum ber að af-
henda móðurinni’, sagði Magnús
Eggertsson.
Gisli Guðmundsson rann-
sók narlögreglum aður tjáði
Alþýðublaðinu i gærkvöldi, að
leitin hefði þá engan árangur
borið, en hún væri talsvert erfið i
framkvæmd, þar sem rann-
sóknarlögreglan hefði fáar upp-
lýsingar á að byggja um ferðir
mannsins eða hugsanlegan
dvalarstað hans.
Góður dómur
fyrir dómara
Kjaradómur hefur úrskurðað
liæstaréttardómurum viðunandi
kjarabætur. Skv. upplýsingum
fjárlagafrumvarps rikis-
stjórnarinnar nema launa-
liækkanir til hæstaréttar-
dómara árið 1973 2,803 tnillj. kr.
frá yfirstandandi ári, — eða
60,6%.
Það er ekki alltaf, sem opin-
berir starfsmenn hafa átt slikan
hauk i horni sem Kjaradómur
hefur að þessu sinni reynst
koliegunum i hæstarétti.
Mikið byggt
fyrir það
í 20 þúsund milljóna fjárlaga-
frumvarpi er ráðgerð hækkun á
framlögum til húsnæðismála
um hvorki meira né minna, en
79,9 milljónir. Þar af eru 79,7
milljónir markaðir tekju-
stofnar, sem ákveðið er meö
sérstökum lögum að renna eigi i
húsnæðislánakerfið. Beint
framlag úr rikissjóði þessu tii
viðbótar er svo ráðgert hvorki
meira né minna, en 200 þúsund
krónur.
Mörg húsnæöismáiastjórnar-
lán verða veitt út á það!
Auglýsingasíminn
okkar er 8-66-60
o
Föstudagur 13. október 1972