Alþýðublaðið - 13.10.1972, Qupperneq 9
LYFTINGAMENN LEGGJA
SNÖRU FYRIR ALEXJEV!
i lok ársins fara sovézkir lyft-
ingamenn i keppnis- og sýn-
ingarferðalag til Norðurlanda. i
hópnum verða allir frægustu
lyftingamenn Sovétrikjanna, og
er þar frægastan að nefna
Vaselji Alexjev, Ólympiumeist-
ara i yfirþungavikt lyftinga og
af mörgum talinn sterkasti
maður hcimsins.
íslenzkir lyftingamenn hafa
mikinn hug á að fá sovézku lyft-
ingamennina hingaö til lands.
Hafa þeir spurzt fyrir um ferðir
þeirra, og senda væntanlega
formlega beiöni um að þeim
komi hér við á leið sinni um
Norðurlöndin. Verður að telja
miklar likur á þvi að úr heim-
sókn sovézku lyftingamannanna ,
geti orðið, svo framarlega sein
þcir hafa tima til að skreppa
hingaö.
Sovétmenn hafa ætið lagt
mikla áherzlu á að sýna sitt
bezta iþróttafólk, og það hefur
ekki þótt dýrt að taka heim
sovézka iþróttaflokka. Eins og
gefur að skilja geta islenzkir
lyftingamenn ekki greitt ncinar
stórupphæðir fyrir aðkomna
iþróttaflokka, jafnvel þótt búast
megi við miklum fjölda áhorf-
enda að horfa á Alexjev og
félaga reyna við lóðin. Slikir
inenn eru til alls liklegir, og ekki
NU VAR ROÐIN KOMIN AÐ
KENNSLUSTUND FYRIR KR
Eftir leikina i Reykjavikurmót-
inu á miðvikudagskvöld, hefur
Frain tekið forystuna i mótinu
með 6 stig aö loknum þrem ieikj-
um. Hefur liðiö ekki tapað stigi.
Eitt lið annað hefur ekki tapað
stigi, Valur, en liðið hefur aðeins
leikiö tvo leiki.
I>að markverðasta viö leikina á
miövikudaginn var stórsigur Ar-
manns yfir KR-ingum. KR hafði
aðeins örfáum dögum áður tekiö
ÍR i kennslustund, en nú var
komið að KR-ingum að fara i
kennslustund hjá Armanni.
Vikingur-Fylkir 14:7 (6:5)
Eins og markatalan i hálfleik
bendir til, áttu Vikingar i tölu-
veröum erfiðleikum með Fylkis-
menn i fyrri hálfleik. Var þaö
reyndar sjálfskaparviti Viking-
anna, sem léku eins og hreinir
idiótar. Eini maðurinn sem hélt
sæmilega höfði i hálfleiknum var
Guðjón Magnússon, en hann skor-
aði f jögur af sex mörkum liðsins i
fyrri hálfleik.
Laus skot Fylkismanna smugu
auðveldlega gegnum götótta vörn
Vikings, og að sjálfsögðu framhjá
afarslökum markvörðunum.
t seinni hálfleik tóku Vikingar
sig aðeins saman i andlitinu, og
tókst að sigra með helmingsmun.
Guðjón bar af i Vikingsliðinu,
gerði helming af 14 mörkum liðs-
ins, en Einar gerði fjögur. Hjá
Fylki voru Einar Einarsson og
Kjartan Kolbeinsson markhæstir
með tvö mörk. Einar Einarsson
er mjög hávaxinn, og með fleiri
likamsburðum ætti hann aö verða
skæður leikmaður i framtiðinni.
Armann—KR 14:5 (8:2)
Hér var sannarlega um óvæntan
stórsigur Armanns að ræða, og
með slikri spilamennsku og i
fyrrakvöld ættu Armenningar að
komast langt.
Ármann hafði algera yfirburði
allt frá byrjun, og nánast var um
leik kattarins að músinni aö ræða,
enda KR-liðið óþekkjanlegt frá
fyrri Ieikjum.
Þrir menn voru öðrum fremur
mennirnir bak við sigur Ár-
manns, Vilberg Sigtryggsson,
Björn Jóhannsson og Höröur
Kristinsson. Vilberg er stór-
skemmtilegur linumaður og
Björn mikil skytta. Björn gerði 6
mörk og Vilberg 4.
Lengi leit út fyrir aö KR ætlaði
ekki að gera fleiri en tvö mörk, en
siðustu minúturnar tókst þeim að
koma knettinum þrisvar i
markiö. Þeir Haukur og Þor-
Framhald á 2. siðu.
er útilokað að heimsmetið i ein-
hverri greininni fjúki.
Vaselji Alexjev er nú nálægt
þritugu. Hann er tvimælalaust
konungur lyftinganna i dag, og
öruggur sigur hans yfir skæð-
/asta keppinaut sinum á siðustu
Ólympiuleikum, Þjóðverjanum
Rudolf Mang, sannaði það svo
ekki var um villst. Aiexjev átti
heimsmetið I öllum greinum
ólympiskrar þriþrautar, og i
dag á hann öll metin i tviþraut-
inni.
Um tima tókst öðrum Sovét-
manni að hrifsa til sin eitt met
Alexjev, cn hann svaraði fyrir
sig stuttu seinna og stórbætti
inctið. Þannig er Alexjev, herö-
ist þcgar á reynir.
Eins og fram hefur komið i
fréttum dagblaöa, er jafnvel
húist við þvi að fjórar frægustu
fimleikakonur lieims gisti is-
land i byrjun desember. Það
ætti ekki að draga úr ánægjunni
ef hingaö kæmu nokkrir beztu
lyftingamenn heimsins. ólikari
iþrótlagreinar cru vart til, fim-
leikar og lyftingar — SS.
Vasilji Alexjcv og Rudolf Mang
faðinast að lokinni keppni i yfir-
þungavikt lyftinganna á
óly mpiuleikunum i sumar.
Þjóðverjinn Mang er nær, en
Alexjcv cr fjær.
Reykjanesmótið i handknatt-
leik hefst n.k. miðvikudag 18
október 1972.
Keppt verður i Iþróttahúsinu i
Hafnarfirði, i meistara-, 1. og 2.
flokki,en á Seltjarnarnesi i 3ja og
4. flokki.
Þátttökutilkynningar skulu
sendar eða tilkynntar fyrir n.k.
mánudag til HKRH simi 50449
eða Stefáns Ágústssonar simi
18088 eða 11146.
Þátttökugjald fyrir hvern flokk
er kr. 500, 00 og greiðist fyrir
fyrsta leik.
Handknattleiksráð Hafnar-
fjarðar.
ARSÞING
Arsþing Fimleikasambands
Islands verður haldiö laugar-
daginn 4. nóvember n.k. að Hótel
Loftleiðum.
Auk aöalfundarstarfa verður
sérstaklega rætt um Norrænt
fimleikamót, sem haldið verður
hér á landi i júli 1973.
Fimleikasamband Islands.
STADION OG
FRAM HAFA
NÚ SAMIÐ
Endanlcgir samningar hafa
nú tekizt milli Fram og Stadion i
sambandi viö Evrópuleikina i
liandknattleik. Fara báðir leik-
irnir fram hér á landi.
Fyrri leikurinn fer fram
föstudaginn 27. október og sá
seinni sunnudaginn 29. október.
Stpdion leikur auk þess einn
aukaleik.
Liðið kemur hingað 26. októ-
bcr og fer 31. október út aftur. 1
liðshópnum verða 15 manns.
Mikið hcfur verið deilt á Stadion
idönskum blöðum fyrir að vilja
leika báða leikina á islandi, en
sú gagnrýni virðist ekkert hafa
bitið á félagið.
Vegna naums tima, verður
ekki unnt að fara með ieik-
mennina i ferðir sem þeir höfðu
óskað eftir, svo sem á fiskveiðar
og i reiðtúr.
—SS.
o
Föstudagur 13. október 1972