Alþýðublaðið - 13.10.1972, Blaðsíða 12
alþýðu
mnm
JPAVOGS APÚTEK
]iö öll kvöld til kl. 7
augardaga til kl. 2
nnnudaga milli kl. 1 og 3
Nýskipaöur sendiherra Bandarikjanna hr. Frederick Irving afhenti
i dag forseta tslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum utanrikisráð-
herra Einari Ágústssyni.
Siðdegis þá sendiherrann heimboð forsetahjónanna að Bessastöð-
um ásamt nokkrum fleiri gestum.
VINNA AÐ
REGLUM
UM INN-
LENDU
TOGARANA
Eins og komið hefur fram í
fréttum, hai'a reglur um veiðar
islenzkra skipa innan 50 miln-
anna enn ekki verið settar, og
fiska þvi islenzk skip áfram inn
að 12 milna landhelgi.
Fyrir nokkru skipaði sjávar-
útvegsráðherra nefnd alþingis-
manna samkvæmt lilnefningu
þingflokkanna, til þess að gera
tillögur um heildarskipulag
fiskveiða i hinni nýju landhelgi
og semja drög að lagasetningu
þar að lútandi.
Nefndin mun athuga gaum-
gæíilega öll þau atriði sem til
greina koma i samningu þeirrar
reglugerðar sem að framan
greinir.
i nefndinni eiga sæti alþingis-
mennirnir Gils Guðmundsson,
sem er formaður, Guðlaugur
Gislason, Jón Ármann Héöins-
son. Karvel Pálmason og Stein-
ÞETTA
GERÐIST
LÍKA...
grimur Hermannsson. Ritari
nefndarinnar er Hórður Ás-
geirsson skrifstofustjóri i
Sjávarútvegsráðuneytinu.
Nefndin hefur starfað um
nokkurn tima, og á næstunni
hyggst hún halda fundi úti á
landi. Verða fundir með útgerð-
armönnum, sjómönnum og
þeim öðrum sem hagsmuna
hafa að gæta, og geta þeir þar
komið fram hugmyndum sinum
og óskum.
ÞÓR LOKS
LAGÐUR
AF STAÐ
Áætlað hafði verið, að varð-
skipið Hór legði af stað frá Dan-
mörku i gærkvöldi, en viðgerðirp
á skipinu gekk hraðar en búizt
var við og þvi lagði það af stað
til landsins i gærmorgun.
Nákvæmur komutimi liggur
ekki fyrir ennþá, en skipið
verður þó visast komiö hingað
um helgina.
LÍKIÐ VAR AF GASTON
Nú er talið fullvist að likið,
sem fannst rekið við Engey
fyrir siðustu helgi, sé af ungum
Frakka, sem týndist hér i
sumar, og gekk undir nafninu
Gaston. Rannsóknarlögreglan
hefur nú lokið rannsókn sinni og
átti að tilkynna franska sendi-
ráðinu um niðurstöður i gær.
Gaston sást siðast aðfaranótt
9. ágúst i sumar. Sá þá maður
nokkur hvar maður, sennilega
Gaston, lagði sig til sunds út frá
Gróttu og hvarf.
Hann lét þó lögregluna ekki
vita fyrr en daginn eftir, að
farið var að grennslast fyrir um
ferðir Gastons, Var þá gerð
viðtæk leit af sjó, landi og úr
lofti, en an árangurs.
Fullu nafni hét hann Henri
Dominique de Saint Marie, og
var 26 ára.
RfKH) KRAFIÐ TUG-
MILUÚNA FYRIR AB
STÖDVA FLUGFÉLAG
RÁÐAMENN FYRIR j^ÉTTI [
STÆRSTA SKAÐABOTAMALI
SEM HÖFÐAÐ HEFUR VERIÐ HER
Guðni — krefst 65 milljóna.
Stór og dýr, en...
Á LANDI
Fyrstu yfirheyrslur i
stærsta skaðabótamáli, sem
höfðað hefur verið á tsl. hófust
i borgardómi Reykjavikur i gær-
morgun.
Snemma i október i fyrra
höfðaöi Guðni Þórðarson forstjóri
Ferðaskrifstofunnar Sunnu, mál
á hendur rikinu vegna flug-
rekstrarleyfis, sem hann var
sviptur, og nemur bótafjárhæðin
hvorki meira né minna en 65
milljónum króna.
Það var Guðni sjálfur, sem
fyrstur mætti fyrir réttinn i gær-
morgun, en meðal annarra, sem
verða kallaðir fyrir, eru Ingólfur
Jónsson, fyrrverandi fjármála-
ráðherra, Brynjólfur Ingólfsson,
ráðuneytisstjóri i samgöngu-
málaráðuneytinu, og 7)lafur
Steinar Valdimarsson, fulltrúi i
sama ráðuneyti.
Rikið hefur skilað greinargerð i
málinu, þar sem krafizt er al-
gerrar sýknu af kröfu Guðna og
til vara, að bótafjárhæðin verði
stórlega lækkuð.
Það var 1. september, sem
Ferðaskrifstofunni Sunnu var
veitt flugrekstrarleyfi og hóf
ferðaskrifstofan flugrekstur vorið
eftir. Þá fór samgöngumálaráð-
herra að setja alls konar hömlur á
flugrekstur Sunnu, m.a. með þvi
að banna lendingar á ýmsum
stöðum, sem Sunna taldi hins
vegar ekki i samræmi við leyfið,
sem fyrir lá.
Um haustið, eða eftir að flug-
reksturinn hafði verið i fullum
gangi i nokkra mánuði, og fyrir
Framhald á 2. siðu.
Skipulagshyggja var stóra
orðið hjá núverandi stjórnar-
flokkum, — á meðan þeir voru i
stjórnarandstöðu og fyrstu dag-
ana eftir að þeir tóku við völdum.
Þá var mikið talað um að hraða
framkvæmdum, skipuleggja og
semja áætlanir. Sérstakt apparat
varð auðvitað að setja á stofn til
þess að annast öll þau verk, —
Framkvæmdastofnun rikisins.
Og auðvitað er sú stofnun miklu
umfangsmeiri, stærri i sniðum, —
og dýrari, en aðrar eldri. 1 fjár-
lagafrumvarpinu hyggst rikis-
stjórnin þannig verja 9 millj. kr.
til reksturs stofnunarinnar. Er
það hækkun upp á 3,7 milljónir trá
þvi rekstrarfé, sem Efnahags-
stofnunin, forveri Framkvæmda-
stofnunarinnar, fékk i fjárlögum
yfirstandandi árs.
Og hver er svo árangurinn af
öllu skipulagsstarfinu. Litum
aðeins i athugasemdirnar með
fjárlagafrumvarpinu. ,,Enda þótt
kappkostað sé að nýta fjármagnið
sem bezt og hraða framkvæmd-
um verka, mun þó ekki verða
unnt að miða almennt við meiri
hraða i byggingum barna og
gagnfræðaskóla, en fjögur ár SVO
SEM VERIÐ HEFUR (leturbr.
Alþbl.)...”
Það er nú það!
BmDAMSX flugyfirvold SOGD HLYNHT
STORLÆKKUH FLIIGFARGIALDA
SÉ FARID PANTAD MEÐ
MÁNADA FYRIRVARA
Brezk flugmálayfirvöld ráð-
gera að frá og með 1. april n.k.
taki gildi nýjar reglur um flugfar-
gjöld i hópferðum yfir Norður-
Atlanzhafið.
Samkvæmt þvi verður flugfé-
lögum heimilt að selja einstakl-
ingum farmiða i hópferðir fyrir
mun lægra fargjald en kostar i
áætlunarflugi, jafnvel þótt við-
komandi farþegi ferðist hugsan-
lega i sömu flugvél og farþegar
sem keypt hafa miða sina fullu
verði.
Nýju reglurnar miðast við að i
stað þess að i dag þurfa væntan-
legir farþegar i ,,leiguflugi” eða
hópferðum að tilheyra sérstökum
félögum eða samtökum, sem
aðilar eru að hópferðunum, þá
mun i framtiðinni miðað við að
farþegar hafi pantað miða sina
30-90 dögum fyrir brottför, hafa
greitt inn á við pöntun og skuld-
bundið sig til að fljúga á tiltekn-
um tima, og til baka innan 14
daga frá brottför.
Með þessu er vonast til að regla
komist á hópferðir af þessu tagi
yfir N-Atlanzhafið, og til að byrja
með mun þetta eingöngu gilda um
flug á þeirri leið.
Tillaga brezku flugmálayfir-
valdanna verður lögð fyrir árs-
þing alþjóða flugmálastofnana i
Ottawa i Kanada 16. þ.m. Hún
þarf aðeins samþykki þriggja að-
ila á þvi þingi, ,,European Civil
Aviation Conference,” ,,Can- ;
adian Civil Aviation Authority” i
og samgönguráðuneytisins
bandariska.
Bandariska flugmálastofnunin,
FAA, tekur ekki þátt i umræð-
unum um þessa áætlun, en sam-
kvæmt heimildum brezkra flug-
yfirvalda hefur stofnunin ekkert á
móti brezku tillögunni.
Umsokmr flugfélaga um far-
gjöld samkvæmt þessu nýja kerfi
steyma inn. Þar er um svo miklar
lækkanir fargjalda að ræða, að
búizt er við met umferð á þessari
leið næsta sumar.
Eitt félagið býður samkvæmt
þessu farmiða London — New
York — London fyrir 108 dollara,
og brezka rikisflugfélagið BOAC
hyggst bjóða fargjöld utan
háannatimans á 144 dollara.
Ödýrustu fargjöld reglubund-
inna áætlunarflugfélaga eru um
200 dollarar á þessari leið.
„ALGENG UPPHLAUP"
Mér kemur i hug að þetta geti
verið aðeins eitt af tiltölulega
algengum upphlaupum, sem
einkum ber á fyrir fargjalda-
ráðstefnur, sagði Sigurður
Magnússon blaðafulltrúi Loft-
leiða i viðtali við blaðið i gær.
Blaðið átti viðtal við Sigurð i
tilefni af frétt okkar i gær, þess
efnis að þrjú flugfélög vildu
lækka flugfargjöld á Norður-
Atlantshafsleiðinni um allt að
helming.
Þau félög, sem fljúga nú á
þessari leið, eiga yfirleitt öll i
rekstrarörðugleikum, sagði
Sigurður. Það stafar sjálfsagt af
of lágum fargjöldum nú þegar,
og þvi hef ég ekki trú á, að
mögulegt sé að lækka þau um
helming.
Þrátt fyrir það, fylgist stjórn
Loftleiða vel með þróun þessara
mála, sagði hann, en hún hefur
ekkert lagt til málanna að svo
stöddu, enda hefur ekki nema
annar aðilinn, Bretar, sam-
þykkt þetta fyrir sitt leyti.
Bandarikjamenn hafa ekki gert
það og alls óvist er, að þeir geri
þaö!.