Alþýðublaðið - 13.12.1972, Side 8
LAUGARAS8Í0
Simi 11207 S
HAFNARBÍÚ
Simi 10444
Bönnuö innan 16 ára.
ifiNÓÐLEIKHÚSIÐ
Hin" heimsfræga ameriska verð-
launakvikmynd i litum og
Cinema Scope með úrvalsleikur-
unum Gregory Peck, Davíd
Niven, Anthony Quinn.
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð innan 12 ára.
Sjálfstætt fólk
sýning föstudag kl. 20
Túskildingsóperan
sýning laugardag kl. 20
Siðasta svning
Lýsistrata
sýning sunnudag kl. 20
Miðasala 13.15 til 20. Simi 1-1200.
HflSKtiUBÍÓ
Simi 22140
STJttRNUBÍÓ Simi ,6936
Byssurnar i Navarone
(The Guns of Navarone)
— Dracula —
Afar spennandi og hrollvekjandi
ensk - bandarisk litmynd. Ein-
hver bezta hrollvekja sem gerð
hefur verið með:
Peter C'ushing
Christopher Cee
Michael Gough
Bönnuð innan 16 ára
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
TÓNABÍÓ Simi 31182
Undur ástarinnar
(I)as wunder der Ciebe)
tslenzkur texti.
Býzk kvikmynd er fjallar djarf-
lega og opinskátt um ýms við-
kvæmustu vandamál i samlifi
karls og konu. Aðalhlutverk:
Biggy Freyer, Katarina Haertel,
Ortrud Gross, Régis Vallée.
„Hamingjan felst i þvi að vita I
hvað eðlilegt er”. Inga og Sten.
Endursýnd kl. 5.15 og 9.
Ofbeldi beitt.
(Violent City.)
Óvenjuspennandi og viðburðarrik
ný itölsk — frönsk — bandarisk
sakamálamynd i litum og Techni-
scope með islenzkum texta. Leik-
stjóri: Sergio Sellima, tónlist;
Ennio Morricone (dollaramynd-
irnar) Aðalhlutverk: Charles
Bronson — Telly Savalas, Jill Ire-
land og Michael Constantin.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sjö hetjur meö byssur
Hörkuspennandi amerisk mynd i
litum. Þetta er þriðja myndin um
hetjurnar sjö
Aðalhlutverk: George Kennedy,
James Witmore, Monte
Markham.
Endursýnd kl. 5.15 og 9
Bönnuð innan 16 ára.
Allra siöasta sinn
,,Mosquito
flugsveitin"
I the i
‘MQSQUITO |
SQUADROHI”
D!D BOTH!
Mjög spennandi kvikmynd i lit-
um, er gerist i Siðari-heimstyrj-
öldinni.
tslenzkur texti.
Leikstjóri: BORIS SAGAL
Aðalhlutverk: DAVID McCALL-
UM, SUZANNE NEVE, David
Buck.
Sýnd kl. 5, 7. og 9
Bönnuð börnum innan 14 ára
KÓPAVOGSBÍÓ Simi 419X5
;;; OeiIdarhjúkrunarkona
Staða deildarhjúkrunarkonu viö Grensásdeild Borgar-
spitalans er laus til umsóknar. '
Staðan veitist frá 1. febrúar eða eftir nánara samkomu-
lagi. Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðukona Borgar-
spitalans. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar fyrir
1. janúar 1973.
Reykjavik, 12.12.1972.
Heiibrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
Jólamót Ármanns i lyft- laugardaginn kemur að
ingum verður haldið á Brautarholti 22
FRAMHÖLDFRAMHÖLfRAMHÖ
Ógnarástand__________________1
Blaðið hafði i þessu tilfelli tal
af Snjólfi Pálmasyni rann-
sóknarlögreglumanni, sem
einkum rannsakar afbrot ung-
linga. Sagöi hann að ástandið i
þessum málum hafi aldrei
nokkurntimann verið eins
slæmt og nú, auk þess sem þessi
afbrot unglinganna gerðust
stöðugt grófari, og væri aðal
aukningin i grófari afbrotum,
svo sem innbrotum og bilþjófn-
uðum.
Snjólfur hefur rannsakað
þessi mál i fjögur ár, og sagði
hann aö unglingaafbrot hefðu
aukizt gifurlega og stöðugt frá
þvi hann byrjaði að kanna þau,
og þetta ár virðist ætla að slá öll
met.
Efaðist hann ekki um að þessi
þróun heldi áfram og börn og
unglingar yrðu brátt athafna-
mestu afbrotamennirnir hér, ef
ekkert yrði að gert.
Sagði hann að ekki væri nóg
að koma upp um afbrotin og fá
unglingana til að játa þau á sig,
heldur þyrfti að hjálpa þessum
unglingum, jafnvel ráðstafa
þeim á einhvern hátt og veita
þeim sálfræðilega aðstoð. Ef
þetta væri ekki gert héldu þeir
þvi miður alltof oft uppi upp-
teknum hætti og gerðust þá af-
brot þeirra gjarnan alvarlegri
og alvarlegri.
Þá benti hann einnig á að
nauðsynlega vantaði húsnæði til
skyndivistunar fyrir þessa af-
brotaunglinga, a.m.k. á meðan
mál þeira væru rannsökuð niður
i kjölinn.
Gunnar Thor. 3
A fundinum voru kosnir sex
fulltrúar I stjórn fulltrúaráðs-
ins, sem er æðsta stofnun
flokksins í málefnum Reykja-
vikurkjördæmis. Báðar fylking-
ar gerðu tillögur um jafnmargt
fólk i stjórnina og kjósa átti, þ.e.
tólf manns.
Leikar fóru svo, að fylking Jó-
hanns Hafstein, formanns, og
Geirs Hallgrimssonar, varafor-
manns, fékk fimm kjörna i
stjórnina, en fylking andstæð-
inganna aðeins einn. Sá eini
þeirra, sem kosningu hlaut, var
forsprakkinn sjálfur, Gunnar
Thoroddsen. Hinir fimm, sem
stungið var upp á úr liði Gunn-
ars, voru „stráfelldir” i at-
kvæðagreiðslunni, þar á meðal
tveir, sem áður áttu sæti i
stjórninni, þau Ragnheiður
Guðmundsdóttir, læknir, og
Magnús Óskarsson, vinnumála-
fulltrúi Reykjavikurborgar.
Frambjóðendur fylkingar
Gunnars Thoroddsen, auk for-
ingjans sjálfs voru: Albert Guð-
mundsson, borgarfulltrúi, Ei-
rikur Ásgeirsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavikur,
Sveinn Björnsson skókaupmað-
ur, Magnús Óskarsson, vinnu-
málafulltrúi Reykjavikurborg-
ar, og Ragnheiður Guðmunds-
dóttir, læknir.
Ful! ástæöa 3
aðaláfrýjanda, Sverris H.
Magnússonar, i máli þessu.
Gagnáfrýjendur greiði aðal-
áfrýjanda óskipt málskostnað i
héraði og fyrir Hæstarétti, sam-
tals kr. 220.000.00, að viðlagðri að-
för að lögum”.
1 ársbyrjun 1968 létu Lands-
banki Islands og Seðlabankinn
fara fram athugun á greiðslu af-
urðaandvirðis af hálfu sjávaraf-
urðadeildar S.l.S. Hafði þá um
skeið borið á óeðlilegri seinkun
greiðslna af hálfu deildarinnar.
Bankarnir kröfðust þess, að
framkvæmdastjórar Iceland
Product Inc. og sjávarafurða
deildar S.I.S. yrðu látnir vikja úr
á meðan rannsókn fór fram.
I april 1963 var Sverrir H.
Magnússon ráðinn framkvæmda-
stjóri Iceland Product Inc., sem
er dótturfyrirtæki S.t.S. i Banda-
rikjunum. Hinn 1. marz 1968 var
orðið við áðurgreindum kröfum
bankanna, en Sverrir gerður að
varafrkstj. Seint i maimánuði
1968 ákvað stjórn S.I.S. a'ð segja
Sverri upp störfum.
Þar sem bankarnir gátu þess i
skýrslu til fjölmiðla, að þeir hefðu
gert kröfu til vikningar Sverris úr
starfi, gerði hann kröfu til þess,
að þeir birtu á sama hátt viðhlit-
andi yfirlýsingu um, að forsend-
urnar fyrir þvi, að honum var
vikið úr starfi meðan á rannsókn
stóð, væru ekki lengur fyrir
hendi, er henni var lokið, sem og
niðurstöður rannsóknarinnar.
Slika yfirlýsingu birtu bankarnir
ekki fyrr en eftir að mál hafði
verið höfðað. Taldi héraðsdómur
málssókn hafa verið nauðsynlega
og dæmdi bankana til greiðslu
málskostnaðar, en sýknaði þá
hinsvegar af skaðabóta- og
miskakröfum.
Hæstiréttur telur i forsendum
sinum, að Sverrir hafi haft fulla
ástæðu til að höfða mál á hendur
bönkunum, en staðfestir niður-
stöður héraðsdóms varðandi
miska- og bótakröfur, eins og fyrr
greinir.
Magnús Thoroddsen kvað upp
héraðsdóminn. Lögmaður Sverris
var Árni Guðjónsson hrl., en lög-
maöur Landsbankans og Seðla-
bankans var Einar B. Guðmunds-
son hrl.
Vegirnir 3
Þá má komast á Eskifjörð frá
Reyðarfirði, en Oddsskarð er
ófært, og sömuleiðis Fjarðar-
heiði, — milli Egilsstaða og
Seyðisfjarðar. Þar yfir eru hins
vegar ferðir með snjóbil, og er
látið nægja að laga til braut fyrir
hann.
Um Norðurland er það að
segja, að væntánlega komst
Akureyri í samband við Reykja-
vik i gærkvöldi eða nótt eins og
fyrr segir, en aliar leiðir þaðan,
og austur um til Húsavikur eru
ófærar. I gær var hafinn mokstur
á Siglufjarðarleið, en ekki var bú-
izt við, að hún yrði opnuð fyrr en i
dag.
Vestfirðirnir eru eins og þeir
eru, — heiðar eru þar allar ófær
ar, og viða er tæpt á, að fært sé
innan sveita.
Valkostir 1
Með öðrum orðum gerir val-
kostanefnd ráð fyrir miklum tap-
rekstri i öllum helztu atvinnu-
greinum þjóðarinnar á næsta ári.
Þá segir i skýrslunni, að þrátt
fyrir bjartsýni um útflutnings-
framleiðslu á næsta ári, stefni i
mikinn halla á viðskiptajöfnuði
og er áætlað, að viðskiptajöfnuð-
urinn á næsta ári verði óhagstæð-
ur um heilar 5.500—5.800 milljónir
króna.
Orræðin, sem „valkostanefnd”
bendir á til lausnar efnahags-
vandanum, eru i meginatriðum
þrjú , en sú leið, sem nefndin
mælir helzt með og telur auðveld-
asta i framkvæmd, felur i sér 12%
gengislækkun auk annarra að-
gerða.
Leiðirnar þrjár, sem „val-
kostanefndin” bendir á, eru þess-
ar:
1. Svonefnd „millifærsla fjár til
atvinnuveganna”, eða uppbóta-
leið. Verði þessi ieiö válin, verður
stefnt að þvi að halda atvinnuveg-
unum gangandi með uppbótum úr
rikissjóði.
1 „millifærsluleiðinni" felst, að
söluskattur hækki um 7%, kaup-
gjaldsvisitalan lækki um 2 stig og
opinberar framkvæmdir skornar
niður um 1.600—1.700 milljónir
króna.
2. „Niðurfærsla kaupgjalds og
verðlags”. Hér er gert ráð fyrir
beinum ráðstöfunum með sam-
komulagi við aðila vinnumarkað-
arins eða lagasetningu til lækkun-
ar launa. Hér ger gert ráð fyrir,
að kaupgjaldsvisitalan lækki um
5 stig, söluskattur hækki um 3%,
nýr „lúxusskattur” verði lagður,
svonefnt fjáraukagjald 8%, og
opinberar framkvæmdir verði
skornar niður um 1600—1700
milljónir króna.
3. „Uppfærsla tekjuverðlags
allra útflutningsgreina, með al-
mennri gengislækkun eða hlið-
stæðriráðstöfun, svo sem almennu
yf irfærslugjaldi bæði við kaup og
sölu gjaldeyris”.
I „uppfærsluleiðinni” felst, að
gengi krónunnar verði fellt um
12%, kaupgjaldsvisitalan lækki
um 2 stig, söluskattur hækki um
1% og opinberar framkvæmdir
verði skornar niður um 1.300—
1.400 milljónir króna.
Þetta eru samsagt þær þrjár
meginleiðir, sem „valkosta-
nefnd” rikisstjórnarinnar bendir
á til úrlausnar, en eins og áður
segir mælir nefndin einna helzt
með þvi að gengisfelling verði
fyrir valinu.
Að sjálfsögðu eru til ýmsir
millivegir út frá þessum megin-
tillögum, t.d. að blanda þeim að
einhverju leyti saman, eða velja
einstaka þætti úr þeim öllum.
Telja kunnugir einmitt að slikt sé
ofarlega i huga ýmissa stjórnar-
sinna, sem undanfarna daga hafa
setið á stöðugum fundum yfir
þeim viðamiklu gögnum, sem
„valkostanefndin” hefur sent frá
sér. —
Deilt 1
þá.sem vilja reyna að miðla mál-
um milli hinna óliku viðhorfa.
1 stjórnarliðinu er það nú al-
mennt talið útilokað, að ráðstaf-
anir rikisstjórnarinnar verði til-
búnar fyrir jólin og gefur Ólafur
Jóhannesson það raunar I skyn i
viðtali við Visi I gær. Hins vegar
mun nú komið um það samkomu-
lag I stjórnarherbúðunum að
reyna að ljúka fjárlögum á til-
settum tima, — þótt ógerningur
sé að gera sér grein fyrir hvernig
slikt er unnt áður en frá bjargráð-
unum hefur verið gengið. Er
þannig þegar hafin prentun á
fjárlagatillögum fyrir aðra um-
ræðu fjárlagafrumvarpsins, sem
rikisstjórnin er staðráðin i að láta
fara fram nú i vikunni, — senni-
lega á morgun. Þær tillögur eru
þó hvorki fugl né fiskur þvi allt er
enn á huldu um stórvægilegustu
atriði fjárlaganna — m.a. alla
tekjuhlið þess — og hafa fjárveit-
ingarnefndarmenn ekki hugmynd
um þá veigamiklu þætti, þar sem
ekkert hefur enn fengist upp úr
rikisstjórninni þar að lútandi.
Fjárlagaafgreiðslan i vetur bar
þvi öll merki þess að verða gerð
með sama öngþveitinu og i fyrra.
Að þvi er Alþýðublaðið hefur
fregnað er ekki líklegt, að ráð-
stefna Alþýðusambands Islands
um efnahagsúrræðin verði boðuð
fyrr en þau liggja fyrir.
SKJPAUTGCRð RIKISINS
M/S BALDUR
fer frá Reykjavik mánu-
daginn 18. des. til Snæ-
fellsness- og Breiða-
fjarðarhafna. Vörumót-
taka á föstudag,
Jólaljósin
í Fossvogskirkjugarði
verða afgreidd alla virka daga frá kl.
9—19 frá og með 14. des. til hádegis á
Þorláksdag.
Ath. ekki afgreitt á sunnudögum.
Guðrún Runólfsson
Miðvikudagur 13. desember 1972