Alþýðublaðið - 07.02.1973, Page 3
□ Búðarstuldir virðast ekki færast í vöxt — það
er yfirleitt sama fólkið sem uppvíst verður að hnupli
HVERJU STELUR
UR BUDUM?
Kaupmenn vilja augiýsa búðaþjófa
með því að birta myndir af þeim í blöð-
um. Þessi hugmynd hefur komið framí
Danmörku. Er hún meðal annars hugs-
uð sem gagnráðstöfun kaupmanna
gegn nefndaráliti, semmælir með því,
að fyrir ýmis minniháttar afbrot verði
ekki refsað samkvæmt hegningarlög-
um, og ekki fjallað um það að hætti
opinberra mála.
Ekki mun ákveöiö hvort
væntanlegt lagafrumvarp um
þetta efni nær til þjófnaöa I
verzlunum. En veröi fariö eft-
ir nefndarálitinu, telja kaup-
menn liklegt, aö þjófnaöir á
verðmæti undir vissu há-
marki, verði refsilausir. ótt-
ast þeir, sumir hverjir, aö
þetta dragi þann dilk á eftir
sér, að búðaþjófnaöir kunni að
færast i vöxt, og þvi sé nauö-
synlegt að gera gagnráöstaf-
anir.
Þvi fer fjarri, aö kaupmenn
séu sammála um áður-
nefndar auglýsingar. Eru
sumir algerlega andvigir
þeirri aöferð og telja hana úr
hófi ómannúölega, auk þess
sem lögmæti hennar er dregið
mjög i efa. Leggja þeir til, aö
gefin veröi út skrá yfir þá,
sem gera sig seka um þetta at-
ferli, og veröi jafnvel farið
meö hana sem trúnaðarmál
eftirlitsmanna.
Nefndin, sem áður er um
getiö, telur, aö aukið eftirlit i
verzlunum sé sjálfsögð ráð-
stöfun kaupmanna, og t.d.
megi i þvi tilliti nota innan-
hússjónvarp. Telur hún, að
reynslan sýni, að strangt eftir-
lit dragi mjög úr freistingum
til að stela úr búðum.
Almenn viðbrögö i þessu
máli eru m.a. þau, aö ekkert
samræmi sé i þvi aö beita svo
grimmilegum aðferðum, á
meöan tiltölulega vægt er tek-
iö á llfshættulegu atferli, eins
og t.d. ölvun viö akstur.
Alþýðublaöið sneri sér til
Magnúsar Eggertssonar hjá
Rannsóknarlögreglunni, og
spurði hann um tiöni búöa-
þjófnaða, semkæröir væru og
kæmu til kasta embættisins.
Kvaö Magnús slik mál ekki
vera mörg, og færi ekki fjölg-
andi, og væru þau oftast liður i
lengri afbrotakeöju af ýmsu
tagi, þeirra, sem kærðir væru.
Blaöið hafði samband viö
nokkra kaupmenn og starfs-
fólk i verzlunum. Hafði þetta
fólk allt svipaöa sögu að
segja: „Það eru nokkur brögð
að þessu, en þaö er alltaf sama
fólkiö, sem er að reyna þetta.
Viö vitum hvaða fólk þetta er,
og þegar það kemur i verzlun-
ina, erum viö á varðbergi og
förum ekki leynt meö eftirlit-
ið. Þetta er eina leiðin, enda
hættir þetta fólk að venja kom
ur sinar þar sem gott eftiriit
er”.
Sérhæfing
„Það er engu likara en fólk
sérhæfi sig i stuldi á vissum
vörutegundum. Við tölum
stundum um þetta við starfs-
fólk i nálægum verzlunum, og
það litur út fyrir, aö þetta fólk
steli sumt t.d. eingöngu bók-
um, en ekki t.d. matvælum
eöa fatnaöi og öfugt. Annars
þekkjum við nokkuð af þessu
fólki, og vitum, að það gerir
þetta ekki af fjárhagsvand-
ræöum, heldur virðist þetta oft
vera einhver árátta”.
,,Ég man eftir finni frú, sem
ég var viss um að hafði stolið
rúmlega fjögur þúsund króna
verðmæti. Ég þekki manninn
hennarpersónulega,við erum i
sama félagsskap. Ég talaöi
við hann, og hann kom og
borgaði. Konan hefur ekki
komið aftur”, sagði einn
verzlunarstjóri i miðbænum.
„Manni dettur helzt i hug, að
svona fólk gangi með einhvern
anga af stelsýki”, sagði hann.
Einn skókaupmaöur sagði
frá þvi, að einn daginn hefði
verið saknað skópars úr sýn-
inshornagrind. „Nokkrum
dögum seinna kom maður
með þessa skó og bað um að fá
þeim skipt, af þvi þeir hefðu
verið fullþröngir. Það kom i
ljós, að hann notaöi þrem
númerum stærra. Ég sagði
honum, að ég vissi, hvernig
hann hefði komizt yfir þessa
skó og bað hann að skila þeim
með góðu. Hann rauk þá á dyr
með formælingum og hefur
ekki komið aftur”, sagði þessi
kaupmaður. „Ekki nennti ég
að kæra þetta”, bætti hann
við.
Atvinnubiófar
Sumir kaupmenn telja vist,
að eitthvað sé um hreina og
beina atvinnuþjófa. Alita þeir,
að bókaverzlanir og hljóm-
plötuverzlanir veröi mest fyr-
ir barðinu á þeim, vegna þess,
að tiltölulega auðveldast sé að
koma þeim vörum i verð fyrir
peninga, og erfitt sé að hafa
upp á þeim.
Viö töluðum við einn forn-
sala. Hann kvaðst hafa það
fyrir reglu aö kaupa ekki nýja
muni af börnum eða ungling
um. Annars væri útilokað að
vita, hvort varningur væri vel
eða illa fenginn, þegar fullorð-
ið fólk ætti i hlut, en oft tæki
hann niður nafn og heimilis
fang seljanda.
Rafmagnslevsið örvar
Við spurðum nokkra kaup-
menn og verzlunarstjóra,
hvort þeir teldu, að brögð
hefðu verið að þjófnuðum i
rafmagnsskömmtuninni fyrir
jólin. Flestir töldu, að eitthvað
hefði áreiðanlega borið á þvi,
og sumir sögðust hafa lokað
um leið og rafmagnið fór af
hverju sinni, vegna ótta við
stórfellda stuldi.
„Það hefði verið eins og að
hafa opna sjálfsafgreiðslu fyr-
ir óheiðarlegt fólk, ef við hefð-
um ekki lokað, þvi að það var
vonlaust að háfa nauðsynlegt
eftirlit”, sagði einn kaupmað-
ur.
Langflestir töldu, að þessi
afbrot færu alls ekki i vöxt, og
raunar hefði fremur dregið úr
þeim. Sérstaklega heföi kaup-
mönnum orðið ljós þörfin á
auknu eftirliti með tilkomu
kjörbúðafyrirkomulagsins, og
þeim, sem freistingin ónáðaði
eitthvað, væri þetta ljóst.
Engir töldu þó timabært að
taka upp það fyrirkomulag,
sem reynt hefur verið i Sviss-
landi með góðum árangri, að
fólk afgreiði sig aö öllu leyti
sjálft.
Það er helzt sitthvað fyrirferöarlitið og dýrt, sem fóik
hnuplar úr búðum, gjarnan bækur. 1 matvöruverzlunum
gjarnan smjörstykki og þviumlikt. A þessari mynd er af-
greiðsiustúlka einnar matvöruverzlanar i miðborginni,
Rósa Sigtryggsdóttir, búin að tina til i körfu sitthvaö sem
titt er að hverfi úr hiiiunum.
VWBUNIR AD GETA OPNAÐ
EIDID A ÖRFAUM VIKUM
„Viö gerum okkur fyllilega
grein fyrir þvi, aö höfnin i Vest-
mannaeyjum gæti lokazt vegna
hraunrennslis i innsiglingunni, en
án þess að höfnin eða hafnar-
mannvirki eyðilegðust að öðru
leyti. Við höfum þess vegna gert
nákvæma könnun á möguleikum
þess að opna „Eiðið” að vestan-
verðu og mynda þannig nýja inn-
siglingu i höfnina”, sagði Aðal-
steinn Júliusson, vita og hafna-
málastjóri, við Alþýðublaðiö i
gær.
Færi svo hrapallega, að hraun-
rennslið frá eldstöðvunum i
Heimaey lokaði núverandi inn-
siglingu, yrði að sögn Aöalsteins
hægt með þessari nýju innsigl-
ingu gegnum „Eiðið” að nýta
fullkomlega hafnaraðstöðuna i
Eyjum aö fáum vikum liönum.
„Það er hægt að opna rennu inn
i höfnina að vestanverðu, sem
yrði fær flestum skipum, með þvi
að grafa upp um 100 þúsund rúm-
metra af mestmegnis lausu efni.
Hér yrði ekki um ógnarmikið
verk að ræöa og væri hægt að
framkvæma það á fáeinum vik-
um, eftir að heppileg tæki væru
komin á staðinn”, sagði Aðal-
steinn.
Hins vegar kvað vita- og hafna-
málastjóri opnun „Eiðisins” ekki
verða framtiðarlausn, nema
gerðir yröu miklir garðar
hlifðar hinni nýju innsiglingu, i
unnið væri að athugun varðan
slika hugsanlega mannvirkj
gerð.
„Þessir garðar yrðu mit
mannvirki”, sagði Aðalstein
„og er ekki enn vitað, hver kost
aður við gerð þeirra yrði, og i
heldur ekki vitað, hvort heppile
grjót i þessa garða er til I Ves
mannaeyjum, ef til kæmi”. —
Miðvikudagur 7. febrúar 1973