Alþýðublaðið - 07.02.1973, Page 4
NAI
335ivt%3®msn®m'
&
SJI
•/r
P
S?
S
s?
i
i
ÞORRAMATURINN VINSÆLI
ÍTROGUM
VESTURGÖTU 6-8 SÍMI 17759
&
88
1
Bótagreiöslur
Almannatrygginga i Reykjavik.
Útborgun ellilifeyris i Reykjavik hefst
þessu sinni fimmtudaginn 8. febrúar.
Tryggingastofnun
Ríkisins
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
Húsbyggjendur — Verktakar
Kamhslál: S. 1(1. 12, III. 20, 22, of$ 2.'> m/m. Klippum og
hcv|>,jum slál 0}/ járn cftir óskum vióskiptavina.
Stálborg h.f.
Smiöjuvcgi 12, Kópavogi. Simi l24K0,
AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12
VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smíðaðar eftir beiðnl
GLUQGAS MIÐJAN
Síðumúla 12 - Simi 38220
Upplýsingar fyrir Vestmannaeyinga í Hafnarbúðum.
11690 Upplýsingar um skip og
farm.
11691 Uppiýsingar um sendibila.
11692 Geymslurými og sjálfboöa-
liðar.
28896 Húsnæðismál (upp.)
25843 Húsnæðismál og atvinnu-
miðlun.
11693 Upplýsingar.
25788 Ferðaleyfi.
12089 Uppiýsingar um fbúöa-
skrána.
14182 Sjúkrasamlag.
25788 Fjármál.
22203 Óskiiamunir.
25788 Skiptiborð við allar deiidir.
25795 Skiptiborð við aiiar deiidir.
25880 Skiptiborð við allar deiidir.
o
Fósturevðingar
á dagskrá:
Franskir
læknar
leggja
réttindin
að veði
Mikill fjöldi lækna i Frakklandi
hafa nú tekið upp baráttu fyrir
þvi, að numin verði úr gildi fimm-
tiu og tveggja ára gömul lög um
bann við fóstureyðingum. Einn
liðurinn i baráttunni er sá, að alls
545 læknarhafalagtfram opinbera
viðurkenningu um, að þeir hafi
framkvæmt slikar aðgerðir, en
með þvi hætta þeir á, að þeir
verði dæmdir i allt að tiu ára
fangelsi og missi lækningaleyfi
sin að auki. Tvöhundruð læknar
lögðu fram þessa viðurkenningu i
gær, en áður höfðu 345 læknar
opinberað þessi lagabrot sin.
Þessir tvöhundruð læknar eru
allir meðlimir samtaka, sem
standa fyrir rannsóknum á
fóstureyðingum og krefjast þeir,
að leyft verði að eyða fóstrum
kvenna, sem geta ekki fætt án
þess að hætta lifi sinu. Einnig
vilja þeir fóstureyðingar, ef for-
eldrarnir sjá sér ekki fært að ala
upp barnið, ef útlit er fyrir, að
barnið verði vanskapað, eða kona
hefur orðið barnshafnadi vegna
nauðgunar.
Fyrri hópurinn setur fram enn
meiri kröfur, m.a. frjálsar fóst
ureyðingar, kynfræðslu fyrir all-
ar konur og einnig unglings
stúlkur.
OKKUR VANTAR
BLAÐBURÐAR-
FÓLK í EFTIR-
TALIN HVERFI
Gnoðarvogur
Laugarteigur
Laugarnesvegur
Rauðilækur
HAFIÐ SAM-
BAND VIÐ AF-
GREIÐSLUNA !
VÍETNAM: EFTIRLITIÐ ER
AÐ KOMAST í GAGNIÐ
YFIRBURÐA-
SIGIIR OG
HESTUR AD
LAUNUM
Ólafur Jóhann Sigurðsson
hlaut „Silfurhestinn 1972”, en
það er verölaunagripurinn i
samkeppni um „beztu bók árs-
ins” að áliti ritdómara dagblaö-
anna. Fékk ólafur Jóhann við-
urkenningu þessa fyrir skáld-
söguna „Hreiðrið”, sem vakið
hefur mikla athygli og nokkrar
deilur.
Urslit i atkvæðagreiðslu rit-
dómaranna urðu i fyrstu at-
rennu þau, að Ólafur Jóhann
fékk 200 stig fyrir „Hreiðrið” og
175 stig fyrir ljóðafcók sina „Að
laufferjum”, en Vésteinn Lúö-
viksson 300 stig fyrir skáldsög-
una „Gunnar og Kjartan”.
Aðrar bækur, er til greina
komu þessu sinni, voru: „Mörg
eru manns augu”, eftir Matt-
hias Jóhannessen (150 stig),
„Veðrahjálmur”, eftir Þorstein
frá Hamri (125 stig), „Guðs-
gjafarþula”, eftir Halldór Lax-
ness (75 stig), „Fyrir opnum
tjöldum”, eftir Grétu Sigfús-
dóttur (50 stig) og „Folda”, eft-
ir Thor Vilhjálmsson (50 stig).
Yfirburðasigur
Að svo búnu fór fram ný' at-
kvæðagreiðsla um þrjár
stigahæstu bækurnar. Lauk
henni svo, að „Hreiðrið” fékk
þá 450 stig, „Gunnar og Kjart-
an” 350 stig og „Að laufferjum”
325 stig.
Silfurhesturinn var afhentur á
laugardag við yfirlætislausa at-
höfn að Hótel Sögu. Flutti Helgi
Sæmundsson það tækifæri
eftirfarandi ræðustúf:
Þriggja bóka maður
„Mér hefur verið falið aö
mælahér nokkur orð i tilefni af
úrslitunum i atkvæðagreiðslu
ritdómara dagblaðanna um
„beztu bók ársins”, er leið.
Ólafur Jóhann Sigurðsson sigr-
aði i henni eins og þegar er
kunnugt. Þó mun enn augljós-
ara, að hann verðskuldi nafn-
bótina „höfundur ársins 1972”.
Ritdómararnir greiddu honum
sem sé atkvæði.fyrir tvær bæk-
ur, skáldsöguna „Hreiðrið” og
ljóðabókina „Að laufferjum”.
Auk þeirra lét hann svo frá sér
fara á þessu liðna ári smá-
sagnasafnið „Seint á ferð”.
Sennilega hefur þaö lika átt at-
kvæði skilið að sumra áliti.
Listrænt skáld
Við Ólafur Jóhann Sigurösson
erumjafnaldrar að kalla og höf-
um báöir vaxiö úr grasi austur i
Arnesþingi — ég I Flóanum,
hann i Grafningnum. Ég las
fyrstu bók Ólafs Jóhanns heima
á Stokkseyri um jólaleytið 1934
árið eftir ferminguna og hef
fylgzt með ritstörfum hans sið-
an.
Ennfremur vill svo til, að
fyrsti ritdómur minn fjallaði
einmitt um bók eftir Ólaf Jó-
hann. Orðalag mitt væri
kannski eitthvað á aðra lund i
slikum málflutningi nú en þá, en
skoöanir minar á skáldskap
hans eru óbreyttar, enda hafa
þær fengiö ótviræða staöfest-
ingu.
Ólafur Jóhann telst i hópi list-
rænustu skálda okkar. Hann er
öruggur og jafnvægur rithöf-
undur, semástundar kröfuharða
vandvirkni. Þetta kennist
glöggt af „Hreiðrinu” og „Aö
laufferjum”, en eigi siður af
smásögunum „Seint á ferð”.
Þeim svipar ekkert til eftirlegu-
kinda, þó að höfundur byrgi þær
i bók i seinna lagi.
Annars er hér ekki stund eða
staður að reyna að lýsa eða skil-
greina skáldskap Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar, svo að mynd væri
á. Ég læt nægja að vekja athygli
á mikilvægu einkenni á vinnu-
brögðum hans, sem er iþrótt
máls og stils.
Strákurinn úr Grafningnum,
sem fyrrum var, er löngu orðinn
rammislenzkur heimsborgari
og slær snilldarlega hörpuna til
þess að túlka lifsreynslu, sýnir
og tilfinningar.
Málfar ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar er hreint og tært eins
og drykkjarvatnið austan fjalls
og stillinn mjúkur sem græn-
gresiö þar og oft yfir honum
djúp kyrrð og sérkennileg birta
likt og þegar sólin rennur upp og
stafar vorkalda jörð, en áferð
hans ber svip og blæ af haustlit-
um og ljósum dögum.
„Hreiðrið” gerist aðallega
hér i höfuðstaðnum, en ólafur
Jóhann Sigurðsson er þó jafnan
mikill og einlægur sveitamaður
i sögum sinum og ljóðum eins og
að ætt og uppruna. Fer þvi vel á,
að hann eignist hest.
Hér er silfurhesturinn. Þú
hefur til hans unnið, Ólafur Jó-
hann, og njóttu heill”.
Ritdómararnir, sem atkvæði
greiddu um „beztu bók ársins
1972”, voru: Andrés Kristjáns-
son (Timinn), Árni Bergmann
(Þjóðviljinn), Helgi Sæmunds-
son (Alþýðublaðiö), Jóhann
Hjálmarsson (Morgunblaðiö)
og Ólafur Jónsson (Visir). Fer
einn maður meö atkvæði hvers
blaðs. —
Alþjóða eftirlitsnefndin, sem
skipuð hefur verið til þess aö sjá
um, að vopnahléð I Vietnam verði
virt, fór frá Saigon i fyrradag
fyrstu eftirlitsferð sina.
Sama dag fékk nefndin fyrsta
verkefnisitt,en það var rannsókn
á hertöku flotastöðvar i grennd
við hlutlausa beltið, sem s.-viet-
namskir hermenn náðu á sitt vald
tveimur minútum áður en vopna-
hléð gekk i gildi. Nokrum dögum
seinna sögðu þeir, að gerð hafi
verið mikil árás á flotastöðina,
svo S.-VIetnamirnir hafi orðið að
flýja.
Frá Paris kom sú frétt i gær-
dag, að fulltrúar Saigonstjórnar-
innar og byltingarstjórnarinnar
hafi komið saman til fundar þar i
borg til að ræða um pólitiska
framtlö S.-VIetnams. Báðir aðila-
ar sögðu, að fljótlegi hefjist I
Saigon viðræður um myndun
þjóðarráös, sem á m.a. að undir-
búa að hafa eftirlit með almenn-
um kosningum I S.-Vietnam og
fjalla um meðferð þeirra
pólitisku fanga, sem eru I haldi
hjá Þjóðfrelsisfylkingunni og
yfirvöldum S.-Vietnams.
Miðvikudagur 7. febrúar 1973