Alþýðublaðið - 07.02.1973, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 07.02.1973, Qupperneq 5
Alþýöublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f...4 L0F0R0IN OG EFNDIRNAR Fyrir þá, sem studdu núverandi rikisstjórn til valda og trúðu á hana fyrst framan af hlýtur að vera átakanlegt að fylgjast með þvi, hvernig skýjaborgirnar hrynja ein af annnari. Svo ógæfusamir eru ráðherrarnir að segja má, að þeir hafizt varla að öðru visi en að ganga þvert gegn margítrekaðri stefnu og marggefnum lof- orðum. Eitt nýjasta dæmið um þetta eru siðustu athafnir Magnúsar Kjartanssonar, heilbrigðis- ráðherra. Það þarf varla að rifja upp fyrir fólki, sem lagt hefur eyrun við málflutningi Alþýðubanda- lagsmanna og þá ekki hvað sizt Magnúsar Kjartanssonar, að eitt af þvi, sem þeir hafa hvað ákafast gagnrýnt um fjöldamörg umliðin ár, hefur verið skipulagið á lyfjaverzlun lands- manna. Alþýðubandalagsforingjarnir hafa hvað eftir annað ráðizt harðlega á þá fjárplógsstarf- semi, sem þeir segja að hafi verið stunduð i sambandi við lyfjasöluna i landinu og margoft flutt um það tillögur og áskoranir, að lyfja- verzlunin yrði tekin úr höndum einstaklinga og sett undir félagslega stjórn þvi með þeim eina hætti væri unnt að tryggja almenningi lyf á sanngjörnu verði og útrýma gróðasjónarmiðinu úr verzlun með þessar lifsnauðsynjar. Þegar Alþýðubandalagsmenn svo gengu til myndunar rikisstjórnar fyrir tæpum tveim árum fengu þeir til leiðar komið, að i sjálfum stjórnarsátt- málanum hét rikisstjórnin ,,að endurskipu- leggja lyfjaverzlunina með þvi að tengja hana við heilbrigðisþjónustuna og setja hana undir félagslega stjórn”. Til þess að geta fylgt fyrir- ætlunum eftir fengu Alþýðubandalagsmenn þvi svo framgengt, að maður úr þeirra röðum fengi heilbrigðismálaráðuneytið og var þeim nú ekkert að vanbúnaði að standa við öll stóru orðin. En að þvi kom aldrei. t það röska hálfa annað ár, sem Magnús Kjartansson hefur gegnt embætti heilbrigðisráðherra, hefur hvorki hósti né stuna heyrzt frá honum um lyfjasölumálin. Þar til nú fyrir nokkrum dögum. Þá skýrði Lög- birtingablaðið frá þvi, að heilbrigðisráðherrann hafi ákveðið 52,5% hækkun á lyfjaverði. Fimmtiu og tvö komma fimm prósent hækkun! Hvorki meira ne minna. Og fyrir hvern var Magnús Kjartansson að hækka? Fyrir einstaklingana, sem hafa lyfja- verzlunina með höndum vegna þess, að þeir höfðu sagt honum, að þeir græddu ekki nóg á verzluninni! Og þá þótti Magnúsi auðvitað sjálf- sagt að hækka fyrir þá lyfjaverðið um 52,5%! Annað hefur ráðherrann ekki aðhafst i lyfja- sölumálunum i ráðherratið sinni. Hversu mörg fyrirheit skyldi Magnús nú hafa svikið með þessari afgreiðslu sinni? í fyrsta lagi loforðin um að halda i við verðhækkunarkröfur milliliðanna. í öðru lagi loforðin um að bæta aðstöðu gamals fólks og sjúklinga i þjóðfé- laginu, þvi auðvitað er það fyrst og fremst þetta fólk, sem lyfsalarnir byggja gróðamöguleika sina á. í þriðja lagi loforðin um að útrýma gróðahyggjunni úr verzlun með lyf fyrir sjúkt fólk. Og i fjórða lagi loforðin um að tengja lyfja- verzlunina heilbrigðisþjónustunni og setja hana undir félagslega stjórn, því auðvitað er verð- hækkunin ekki til neins annars en að rétta hag þeirra einstaklinga, sem reka lyfjaverzlunina i landinu með eigin ágóða fyrir augum. Röggsamur maður Magnús Kjartansson við að bregðast trausti þeirra, sem á hann trúðu. Ummæli Sir Alec sönn eða ósönn? Fyrir skömmu barst Alþýöu- blaðinu neðangreind orðsending frá utanrikisráðuneytinu. Vegna þrengsia i biaðinu féll orðsendingin úr birtingu þann dag, sem hún átti að birtast — daginn eftir að hún barst biaðinu. Þvi miður veitti ritstjórn þvl ekki athygli fyrr en nú um helgina og birtir biaðið orðsendinguna hér með um leið og viðkomandi eru beönir afsökunar vegna dráttar- ins. Vegna ummæla, sem höfð eru eftir Sir Alec Douglas-Home i Morgunblaðinu, vill Einar Agústsson, utanrikisráðherra, taka fram eftirfarandi: A ráðherrafundinum i Reykjavik 27. og 28. nóvember 1972 lögðu Bretar til, að veiðar brezkra togara á Islandsmiðum yrðu takmarkaðar við ákveðna tölu úthaldsdaga, þannig að um 10% fækkun á úthaldsdögum væri að ræða. Töldu Bretar, að þessi aðferð mundi gefa af sér 25% minna aflamagn en þeir fengu árið 1971, sem var óvenju- gott aflaár. Þetta tilboð var tekið til athugunar af íslands hálfu. Lauk Reykjavíkur- fundinum þannig. Þegar ég hitti Sir Alec Douglas-Home i Bruxelles i des- ember sagði ég honum, að þessi tillaga væri ekki aðgengileg fyrir okkur, m.a. vegna þess, að erfitt væri að hafa eftirlit með framkvæmd slikra aðgerða. Væri þvi nauðsynlegt að fleira kæmi til, og þá helzt að athuga sameiningu á tveimur að- ferðum, þ.e. takmörkun út- haldsdaga og svæðafyrirkomu- lagi. Ég sagði að nauðsyniegt væri að vita hversu langt Bretar vildu ganga til samkomulags áður en afstaða væri tekin til þess, hvort formlegar viðræður gætu orðið að gagni. Sir Alec kvaðst geta fallizt á, að fleiri en einni aðferð væri beitt til að ná sama marki, ef heildarniður- staðan breyttist ekki mikið, þ.e. ef mismunandi aðferðum væri ekki bætt hverri ofan á aðra. A þessum grundvelli afhenti Sir Alec tillögu um, að auk tilboðs- ins frá nóvemberfundinum yrði einu svæði af sex umhverfis landið lokað til skiptis i 2 mánuði i senn. Að athuguðu máli var talið að þetta tilboð væri ekki aðgengilegt, og skýrði ég frá þvi i orðsendingu minni til Sir Alec hinn 19. janúar s.l. Lagði ég jafnframt áherzlu á, að rikisstjórn tslands væri reiðu- búin til frekari viðræðna ef hag- stæöari tillögur kæmu frá brezku rikisstjórninni. Ella væri bilið milli sjónarmiða rikisstjórna Islands og Bret- lands enn of breitt til að nýr fundur gæti komiö aö gagni. Utanrikisráðuneytið Reykjavik, 30. janúar 1973. ATHUGASEMD ALÞÝÐUBLAÐSINS Meginatriðin i skrifum Morgunblaðsins og Alþýðu- blaðsins um skipti þeirra utan- rikisráðherranna Einars Agústssonar og Alec Douglas- Home, sem Alþýðublaðið hefur m.a. óskað skýringa Einars Agústssonar á, eru þessi: 1 ræðu, sem Alec Douglas- Home flutti, skýrði hann frá þvi, að i viðræðum við Einar Agústs- son á ráðherrafundi NATO I Brussel hefði sá siðarnefndi sett fram ákveðin tilmæli um samningstilboö i landhelgis- deilunni frá brezku stjórninni, sem Douglas-Home sagði að Einar hefði fullyrt að myndi verða vel tekið af islenzkum stjórnvöldum. Brezki utanrikis- ráðherrann sagðist hafa i sam- ráði við rikisstjórnina sent is- lenzkum stjórnvöldum samn- ingstilboð, sem heföi verið Stefán Gunnlaugsson, alþingis- maður, hefur lagt fram svohljóð- andi fyrirspurn til heilbrigðis- og tryggingaráðherra: ,,Með skirskotun til endurtek- inna tilmæla bæjaryfirvalda Hafnarfjarðar til heilbrigðis- málaráðuneytisins um rekstur annarrar lyfjabúðar i Hafnarfirði er óskað svars við eftirfarandi: Þar sem knýjandi er, að stofn- sett verði lyf jabúð i „Norðurbæ” i Hafnarfirði tafarlaust vegna ört vaxandi fólksfjölda og dreifingar byggðarinnar, vill ráðherra hlut- nákvæmlega samhljóða til- mælum Einars Agústssonar. Þvi hefði lengi vel ekki verið svaraö. Loks, sexvikum eftir að umbeöið tilboð hefði verið sent, þá hefði borizt neikvætt svar frá islenzku ríkisstjórninni. Sagðist Douglas-Home þá hafa falið brezka sendiherranum á tslandi að ganga á fund utanrikis- ráðherra lil þess að láta i ljós undrun yfir þessum viðbrögðum islenzkra stjórnvalda viö til- boði, sem sjálfur utanrikisráð- herra tslands hefði látið i ljós tilmæli um að fá. Þannig hljóðar meginatriðið i frásögnum blaðanna tveggja af ræðu brezka utanrikisráð- herrans. Alþýðublaðið hefur spurt, hvort brezki ráðherrann hafi farið hér rétt með. Þvi hefur Einar Agústsson enn ekki svarað eins og ljóst má vera af lestri framanritaðrar yfir- lýsingar hans. I ast til um, að gerðar verði nú þegar nauðsynlegar ráðstafanir i I þeim efnum?” FLOKKSSTARFIÐ FÉLAGSVISTIN Félagsvist Alþýðuflokksfélags Reykjavikur verður i Iðnó n.k. laugardag og hefst kl. 2.30 e.h. Góð verðlaun eru i boði. Vinsamlega mætið stundvislega. Alþýðuflokksfélag Reykjavikur. KONUR REYKJAVIK Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik heldur félagsfund n.k. fimmtudag, 8. febrúar kl. 20.30 i Ingólfscafé. Gestur fundarins verður Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaður. Stjórnin. ANNAÐ APOTEK í FIRÐINUM? ALÞYÐUFLOKKSFELAG REYKIAVIKUR AUGLYSIR VIÐTALSTÍMAR ÞINGMANNA OG BORGARFULLTRÚA ALÞÝÐUFLOKKSINS Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavikur hefur ákveðið að gangast fyrir þvl, að Reykvikingum gefist tækifæri á aö hitta að máli þingmenn Alþýðuflokksins úr Reykjavík og borgarfulltrúa. t þeim tilgangi mun stjórnin auglýsa viðtalstíma reglulega hvern fimmtudag á tfmabilinu frá kl. 5 til 7 e.h., þar sem hinir kjörnu fulitrúar Reykvikinga úr Alþýðuflokknum skiptast á um að vera til viðtals. Viðtalstimarnir verða haldnir á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10. Til viðtals á morgun, fimmtudaginn 8. febrúar, verður Björg- vin Guðmundsson, borgarfulltrúi. Verður hann til viðtals á skrif- stofum Alþýöuflokksins á timabilinu frá kl. 5 til 7 e.h. eins og fyrr scgir. Siminn i viðtalsherberginu hefur númerið 1-50-20. Reykvikingar. Notið þetta tækifæri til þess að hafa tal af borgarfulltrúanum. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. Björgvin Guðmundsson Miðvikudagur 7. febrúar 1973 0

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.