Alþýðublaðið - 07.02.1973, Side 11

Alþýðublaðið - 07.02.1973, Side 11
71 V£#/< £Fr/R /V. /<. lhx/J£SS ± F/h&Ur &£/N/t> NLNSy 3«£/nm DuR. ‘PRTy/L umq % F/SK /NN \ H G£ l : ÞM&D 3fíl- 3P/K ftnD/ í' fio . Nul ? KjfíNfí i JTOK £INL£IK UR/NN %,KJ 30 lu H£K 3c/?ó/ Sl'/t, . 5 VONr UN 3TV ORÐ 3 3 £/N$ 'il'rt U Sft/nT£ l ' HLÍOU F/tP/ b íy/</lO/?Ð- H//T7F) í SKUGGA MARDARINS eftir Victoriu Holt Saga ástar lega veik, heföi hann ef til vill beitt annarri lækningaaðferð. Ef til vill hefur hún þurft þess með. — En þú ert að saka hann um að vera ekki starfi sinu vaxinn. — Það er ég ekki. Ég veit að hann er starfi sinu vaxinn. En öll- um getur skjátlazt. — Læknar hafa ekki efni á þvi. t guðs bænum, nefndu þetta ekki við neinn. — Ég geri það ekki, nema við þig... og Franklyn, sem skiptir ekki máli. — Ekki við neinn, sagði hún æst. — Lofaðu mér þvi. — Ég hugsaði með mér: Hún elskar hann þá. Ég lofaöi henni þessu fúslega. — Og gleymdu þvi, Minta, hélt hún áfram. — Útilokaðu það úr huga þinum. Það er... sjúklegt. Móðir þin dó af hjartaslagi. Það getur komið fyrir hvern sem er. Ég hef heyrt um fólk, hraust fólk, sem féll allt i einu, og móðir þin var búin að eyðileggja heilsu sina með kyrrsetum og inniveru. — Ég veit það Lucie, ég veit. — Móðir þin er dáin og grafin. Við verðum að reyna að halda áfram sem bezt við getum. Ég kinkaði kolll. — Gleymdu ekki, bætti hún við bliðlega, — að ég er hérna til að hugga þig og h’jálpa þér. Hefur þaö ekki ávallt verið þannig, allt frá skólaárunum? Ég viðurkenndi að svo væri. — En þú átt ekki að fórna þér, Lucie. Við getum séð um okkur sjálf. Og þú værir ekki langt i burtu heima hjá lækninum. Lucie hristi höfuðið. — Ég held að ég muni aldrei verða heima hjá lækninum, sagði hún. — Ég held að minn staður sé hér . . . á Whiteladies. — Ég segi það enn og aftur, Lucie, þú mátt ekki fórna ham- ingju þinni. — Pislarvottar eru þreytandi fólk, sagði hún og brosti. — Ég hef ekki i hyggju að gerast pfslarvott- ur. Hér vil ég vera, Minta. Ég vil vera hérna kyrr. Ég hefði átt að vera við þvi bú- in, en það varð mér áfall þegar það kom. Það var i mai — misseri eftir og örlaga dauða móður minnar — unaðsleg- ur dagur og sumri likastur. Fugl arnir sungu i fagnandi kór, brum- knapparnir voru allsstaðar að springa út, kastaniutrén stóðu i blóma,. aldingarðurinn var bleikt og hvitt blómahaf og i loftinu lá þessi auðþekkti grunur um að lifið sé dásamlegt og hamingjan á næsta leiti. Þannig er töframáttur hins enska vors. Ég hafði farið riðandi um morguninn strax eftir árbitinn, alla leið út að Wakefield landar- eigninni og kom aftur i þeim þönkum hve nú væri gott að fá tebolla. Klukkuna vantaði enn stundarfjórðung i fjögur, svo ég fór og settist undir kastaniutréð. Og þangað kom Lucie til min. Ég horfði á hana ganga yfir gras- flötina. Hún var mjög ólik kennslukonunni, sem ég hafði kynnzt fyrst. Þá var eitthvað storkandi í fari hennar. Nú gekk hún f jaðurmögnuðum skrefum og nýi kjóllinn, sem Lizzie hafði saumaðeftir fyrirsögn hennar fór henni vel. Hún var það sem Frakkar kalla une jolie laide. Væri hún skoðuð frá sérhverri hlið út af fyrir sig var ómögulegt að segja annað en að hún væri ófrið, en yfir heildarsvipnum voru óvenjulegir töfrar, sem nálguðust fegurð. — Ég þarf að tala við þig um mikilvægt mál, sagði hún. — Komdu og seztu hjá mér, Lucie. Hún gerði það. Ég horfði á vangasvip hennar — of langt nef- ið, framstæða hökuna. — Ég hef mikilsverð tiðindi að segja þér og ég er ekki viss um hvernig þú munt taka þeim. — Þú litur út fyrir að vera viss um að ég taki þeim vel. — Ég vildi að ég væri það. — Hvers vegna heldurðu mér i óvissu? Segðu mér það fljótt. Ég bið með óþreyju. Hún dró djúpt andann og sagði: — Minta, ég ætla að giftast föður þinum. — Lucie! — Sko! Þú ert hneyksluð! — En . . . Lucie! — Virðist þér það slik fjar- stæða? . — Ja, það er svo óvænt. — Okkur hefur þótt vænt hvoru um annað lengi. — En hann er mikiðeldri en þú, Lucie. — Þú ert að leita þér að ástæð- um til að vera okkur andstæð. — Ég er ekki að þvi. Það er satt að þú ert helmingi yngri en hann. — Hvað um það? Ég er ráðsett eftir aldri. Finnst þér það ekki? — En þið læknirinn . . . — Þú imyndaðir þér margt og mikið i sambandi við það. — En hann bað þig að giftast sér. — Og ég tók honum ekki. — Og nú eruð þið pabbi . . . — Ertu þvi mótfallin, að ég verði stjúpmóðir þin? — Vitanlega ekki. Og hvernig gæti ég verið á móti þvi að þú til- heyrðir fjölskyldunni? Þú gerir það hvort sem er. Það er bara . . . — Þér virðist það óviðeigandi? — Mér hafði bara ekki dottið það i hug! Nú hugsaði ég með mér: — Það var þetta, sem frú Glee átti við. öðrum hefur þá verið það augljóst þó ég sæi það ekki. Hún hélt áfram: — Við höfum orðið mjög samrýnd þessa sið- ustu mánuði sem ég hef reynt að gera honum lifið bærilegt. Hann hefur áfellzt sjálfan sig dálitið — ég hef að ástæðulausu stöðugt þurft að hughreysta hann. Ég held að við verðum mjög ham- ingjusöm, Minta. En ég vil fá samþykki þitt. Ég gæti ekki orðið hamingjusöm án þess. — En ekki skiptir það neinu máli hvað ég segi? — Mig skiptir það öllu máli. Ó, Minta, segðu að þú viljir fegin fá mig fyrir stjúpmóður. — 1 stað þess að svara stóð ég upp og vafði hana örmum. — Elsku Lucie, sagði ég. — Þetta er dásamlegt fyrir okkur pabba. Ég var að hugsa um þig. Hún strauk mér um hárið. — Þú ert svo rómantfsk. Þú komst að þeirri niðurstöðu, að læknirinn hæfði mér og gerðir þér fallega mynd af hvi hvernig ég kæmi honum upp á tindinn. Jæja, þannig verður það ekki. Það sem virðist rómantískt færir manni ekki alltaf hamingjuna. Ég er hamingjusöm núna, Minta. Ég vil vera hérna. Þú og faðir þinn eruð mér kærust allra. Þetta er heimili mitt. Farðu nú til föður þins. Segðu honum að ég hafi sagt þér fréttirnar og láttu hann finna hvað þær hafa gert þig ánægða. Við Lucie fórum siðan til pabba og ég sagði honum að mér þættu þetta dásamlegar fréttir, og hann varð hamingjusamari en ég hafði nokkru sinni séð hann áður. — Við verðum að biða þar til árið er liðið, sagði Lucie, — annars verður talað. — Látum það tala, sagði faðir minn. En Lucie áleit bezt að biða — og hann var þegar farinn að hlita hennar dómi. Hún hafði auðvitað á réttu að standa og þau biðu. Það var á þokugráum nóvem- berdegi, mjög likum dánardegi mömmu, sem Lucie varð lafði Cardew, stjúpmóðir min. Heimilið var vissulega ger- breytt. Þjónustufólkið. vissi að það varð að hlýða Lucie. Hún skipt'i aldrei skapi, var alltaf alúðleg. Ég efast um að virtari óðalsfrú hafi nokkurn tima rikt á Whiteladies. Hún unni húsinu og það virtist endurgjalda ást hennar. Ég hef séð hana standa á gras- flötinni og horfa á það með eins konar furðusvip, eins og hún gæti varla trúað þvi að hún væri hús- móðir þar. Ég striddi henni á þessu. — Ég held þú sért endurholdguð nunna. Þú vissir að þessi staður var heimili þitt frá þvi þú sást hann fyrst. — Rómantiska bullið i henni Mintu, sagði hún striðnislega. Bók föður mins miðaði litið áfram. Lucie hafði nú svo mörgu að sinna og þar sem ekki var si- fellt verið að segja honum hve duglaus eiginmaður hann væri, fann hann ekki hjá sér þörf til að réttlæta sjálfan sig. Hann fékk áhuga á görðunum og húsinu. Lucie uppgötvaði fljótt að þörf var á viðgerðum. Það var skömmu sfðar sem ég sá hana i verulegu uppnúmi og svipta sinni venjulegu rósemi. Hún trúði mér fyrir raunum sin- að téðar stofnanir hefðu undir höndum ákveðnar sannanir (á segulböndum og ieftirriti), sem lutu að hinu fyrirhugaða afbroti, og hafði tekizt fyrir mörgum mánuðum að komast á snoðir um þetta með hlertækjum. Að visu hafði engin einstök stofnun upplýsingar um alla þætti málsins — svo sem hvar eða hvenær átti að láta til skar- ar skriða eða hverjir voru við málið riðnir o.s.frv. En ég er ekki i vafa um, að tekizt hefði að afstýra ráninu, ef öllum gögn- um hefði verið safnað saman á einn stað (á tölvumiðstöð t.d.) Ég mæli eindregið með þvi, að boðað verði til fundar með full- trúum þeirra borgar- og rikis- stofnana, sem fara með lög- gæzlustörf, og gerð verði könn- un á rekstrargrundvelli slikrar miðstöðvar. Ég býð fram krafta mina máli þessu til stuðnings, þar sem ég hef myndað mér ákveðnar skoðanir i þessu sam- bandi. (93) Eftiiffarandi segulbands- upptaka var gerð á heimili Ingrid Macht að Vestur 24. stræti 627 i New York um klukk- an 5.45. (Dyrabjalla hringir). (Ellefu sekúndna hlé). (Dyrabjalla hringir). (Atta sekúndna hlé). Ingrid: Já? Anderson: Duke. Ingrid: Ég er sofandi, Duke. Ég er svo þreytt. Vertu svo vænn að koma seinna i dag. Anderson: Viltu, að ég skjóti lásinn frá hurðinni? Ingrid: Hvað? Hvað segirðu, Duke? (Sex sekúndna hlé). Ingrid: Guð minn góður. Anderson: Já. Læstu dyrunum. Settu keðjuna fyrir. Eru tjöld- in fyrir gluggunum? Ingrid: Já. Anderson: Sæktu handklæði eða eitthvað svoleiðis. Ég vil ekki ata út hvita gólfteppið þitt. Ingrid: Ó, Schatzie, Schatzie. (Niu sekúndna hlé). Ingrid: Guð minn góður. Þú ert rennblautur. Hérna... leyfðu mér... Anderson: Þetta er ekki svo slæmt núna. Það blæðir inn- vortis núna. Ingrid: Er þetta eftir byssu eða hnif? Anderson: Byssu. Ingrid: Hve mörg sár? Anderson: Tvö. Annað er rétt undir viðbeininu, og hitt er á siðunni. Ingrid: Komu kúlurnar út? Anderson: Hvað þá? Það held ég ekki. Koniak. Sæktu koniak handa mér. Ingrid: Já. Leyfðu mér að hjálpa þér að setjast i stólinn. Allt i lagi. Sittu kyrr. (Fjórtán sekúndna hlé). Ingrid: Hérna. Á ég að halda á þvi? Anderson: Ég get það sjálfur. Jesús minn, þetta hrifur. Ingrid: Er þetta slæmt? Anderson:Það var sárt i fyrstu. Mig langaði að öskra. Nú er ég allur dofinn. Ég er kol- svartur innan. Blæðingarnar eru innvortis. Ég finn kraft- inn fjara út. Ingrid: Ég þekki lækni... Anderson: Vertu ekki að hugsa um það. Það er tilgangslaust. Þessu er að verða lokið. Ingrid: Og þú varðst að koma hingað... Anderson: Já. Ó... guð. Ég dróst hingað eins og hundur til að deyja heima. Ingrid: Þú varðst að koma hing- að. Hvers vegna? Varstu að borga fyrir það, sem ég hafði gert? Anderson: Fyrir það, sem þú gerðir? Nei. Ég var longu bu- inn að gleyma þvi. Það var svo litilfjörlegt. Ingrid: En þú þurftir að koma hingað. Anderson: Já. Ég kom til að drepa þig. Sjáðu hérna. Það eru tvö eftir. Ég sagðist ein- hvern tima mundu hjálpa þér. Ég lofaði þér... Ingrid: Þú ferð með fleipur, Duke. Anderson: Ó jú. Ef ég segi... Ó guð minn... sortinn... Ég heyri þytinn i golunni. Langar þig að æpa? Langar þig að hlaupa inn i næsta herbergi og stökkva út um gluggann? Ingrid: Ó, Schatzie, Schatzie.þú þekkir mig betur en svo. Anderson: Ég þekki þig betur... betur en svo... Ingrid: Versnar þér? Anderson: Þetta kemur yfir mig eins og svartar bylgjur. Það er eins og sjórinn. Nú fer öllu að verða lokið. Ó, guð minn... Ingrid: Ykkur hefur mistekizt. Anderson: Já. Við vorum svo nærri markinu. En okkur mistókst. Ekki veit ég hvers vegna. En ég hafði allt i hendi minni um stundarsakir. Ingrid: Já. Þú hafðir allt i hendi þinni. Ég á lyf, Duke, morfin. Viltu sprautu? Það gerir gagn. Anderson: Nei. Ég hef stjórn á þessu. Þetta er ekki mjög slæmt. Ingrid: Fáðu mér byssuna, Schatzie. Anderson: Ég stend við orð min. Ingrid: Hvaða gagn gerir það? Anderson: Ég lofaði þér þvi. (Sjö sekúndna hlé). Ingrid: Gott og vel. Þú verður að efna loforð þin. Ollu er lokið fyrir mér hvort sem er. öllu væri lokið fyrir mér, jafnvel þótt þú dæir nú á stundinni. Anderson: Þótt ég dæi? Verða þetta þá endalok min? Er ekkert eftir? Ingrid: Nei. Endalok Johns Andersons. Ekkert er eftir. Og endalok Ingrid Machts. Og Gertrude Hellers Og Berthu Knobel. Og allra hinna kvenn- anna, sem ég hef þótzt vera. Þetta eru endalok okkar allra. Anderson: Ertu hrædd? Ingrid: Nei. Þetta verða beztu endalokin. Ég er þreytt og hef ekki getað sofið að undan- förnu. Þetta verður ljúfur Miðvikudagur 7. febrúar 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.