Alþýðublaðið - 15.03.1973, Page 12
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
k!. 1 og 3.símj40102
SENDIBIL ASTÖÐIN Hf
FULLUMNIB FISHBtTTIR
GETfl GEFIfl BRIIÍBÁN
PENING I AÐRA HÖND
Hlutafélagið F’iskréttir, sem er
eign StS og níu frystihúsa, hefur
gert samning um sölu á fullunn-
um fiskblokkum, niðursöguðum
og i neytendapakkningum, lyrir
17 milljónir króna, og er þetta
fyrsta skref i áttina til þess að
fullvinna fiskafurðir i landinu.
Neyðarsímar
bakvið
hlífðarkápu
1 sambandi við nýju sima-
skrána hefur sú nýbreytni verið
tekin upp, aö hafa skrá yfir
neyðarsima á bakhlið skrárinnar.
Hefur Landssiminn vakiö á þessu
athygli, þvi nú eru I gangi hlffðar-
kápur um skrána, með
óprentuöum auglýsingum. Séu
þessar kápur settar utan um
skrana hefur simnotandinn ekki
aögang aö neyðarnúmerunum
með skjótum hætti. Hlifðar
kápur þessar eru Landssiman-
um óviökomandi.
Stærsti hlutinn, eða 100 tonn,
verður seldur fyrirtæki i Austur-
riki, en 2.5 tonn hafa þegar verið
sendir til IRMA i Danmörku, en
þar verður kynning á framleiðsl-
unni á næstunni.
Þá er hafin dreifing á fram-
leiðslu F’iskrétta á Reykjavikur-
svæðinu, og fæst hann i nokkrum
verzlunum, en á næstunni er
væntanlegur kynningarbæklingur
með uppskriftum, sem reyndar
hafa verið i tilraunaeldhúsi SIS á
Kirkjusandi.
Framleiðslan var kynnt blaða-
mönnum i gær, og sagði Guðjón
B. Ólafsson, framkvæmdastjóri
Afbragðsloðnuveiði var i fyrri-
nótt og i gær. Veður fór versnandi
á miðunum i gærkvöldi, en það
kemur varla mikið að sök, þvi
flotinn er að mestu bundinn i
höfnum. Annars hefur löndunar-
bið verið styttri að undanförnu en
oft áður.
Þegar blaðið hafði samband við
Loðnulöndunarnefnd rúmlega
átta i gærkvöldi, höfðu bátarnir
Fiskrétta, m.a. við það tækifæri,
að með þessu mætti vænta þess,
að fólk fari að lita á frystan fisk
sömu augum og fryst kjöt hefur
verið litið um langa hrið. Einnig
kvaðst hann vona, að þetta verði
til að ieysa úr þeim skorti á nýj-
um fiski, sem oft gerir vart við
sig.
Eins og kunnugt er eru hrað-
frystar fiskblokkir meðal þýðing-
armestu vörutegunda, sem flutt-
ar eru út frá Islandi, og eru slikar
blokkir nýttar sem hráefni fyrir
fiskréttaverks.miðjur, sem vana-
lega eru staðsettar i neyzluland-
inu.
tilkynnt um 9,400 lestir á siðasta
sólarhring.
Undir kvöld i gær fréttist af
veiði við Hrollaugseyjar.
Aflaskipið Guðmundur RE var
með mestan afla þeirra báta sem
tilkynntu afla i gær, 700 lestir.
Eldborgin var með 550 lestir, og
fleiri aflaskip voru á miðunum,
svo sem Börkur og Óskar
Magnússon.
VEIDDU 10 ÞUSUND
LESTIRAF LOÐNUNNI
GASMENGUNIN GETUR
STÖÐVAÐ BJÖRGUNAR-
ADGERÐIRNAR í EYJUM
Nú er gasmcngunin I Vestmannaeyjum komin á svo aivarlegt
stig, að aukist hún enn. er talið liklcgt að hún stöðvi allar björgunar-
aðgerðir. Mengun var svo mikil I miðbænum f gær, að bilar drápu á
sér og björgunarmenn fundu fyrir óþægíndum vegna súrefnis-
skorts.
Búiö er að loka mörgum húsum i miðbænum, og er hættusvæðiö
stööugt að stækka. Almannavarnir leggja nú á það rika áherzlu að
engin hafist viö i Vestmannaeyjum, nema af algerri nauðsyn.
Ein er sú nefnd islenzk sem
með engu móti verður bendluð
við leti. Þetta er loðnunefndin
svonefnda, en á hennar
„herðum” hefur hvilt öll skipu-
lagning loðnulöndunar á
yfirstandandi vertið. Og ekki
nóg með það, heldur hefur
nefndin verið einskonar upplýs-
ingamiðstöð fyrir hina og þessa
aðila. Útgerðarmenn hringja og
spyrja um báta sina, eiginkonur
og unnustur vilja fá upplýs-
ingar um sina nánustu ef vera
sjávarútvegsráðuneytisins, sem
er formaður nefndarinnar, og
Andrés Finnbogason, sem er
fulltrúi loönuseljenda i nefnd-
inni. Auk þess var þar Njáll Ing-
jaldsson starfsmaður. Jóhann
Guðmundsson fulltrúi kaupenda
var staddur á Austfjörðum i
erindum nefndarinnar, og
Björgvin Torfason starfsmaður
var einnig fjarverandi. Þeir
Björgvin og Njáll eru annars
starfsmenn Sildarútvegs-
nefndar, en eins og gefur að
skilja er starfsemi hennar ekki
rismikil nú sem stendur.
Góö reynsla
,,Ég held að flestir séu sam-
mála um að reynsla hafi orðið
góð af störfum nefndarinnar,
enda var orðin brýn nauðsyn á
betra skipulagi löndunarmál-
anna”, sagði Gylfi Þórðarson er
við ræddum við hann i gær.
,,Þetta er þóaðeins reynsluár,
og eftir þessa vertið verða lögin
um loðnulöndun tekin til endur-
skoðunar, enda gilda þau aðeins
i eitt ár. Eg veit ekki hversu
miklar breytingar verða
gerðar, en ég tel þó vist að vald
nefndarinnar verði aukið frekar
en hitt. Nefndin var skipuð svo
seint að regla var ekki næg á
hlutunum fyrst i stað. En eftir
að loðnan fór að veiðast hér
fyrir sunnan, má segja að vel
hafi tekizt til”.
Svartir sauðir
,,Þvi er ekki að neita að
einstaka svartir sauðir eru
innan um, en þeim fer fækkandi,
sem betur fer. Ef bátarnir
melda sig ekki til okkar, höfum
við heimild til að reka þá úr röð-
inni, og það höfum við þurft að
gera í einstaka tilfelli. Þá hafa
verið brögð að þvi að verk-
smiðjur hafi ekki farið eftir
settum reglum, en brotin hafa
þó ekki verið mjög alvarleg,
utan eitt þeirra. Það viröist enn
vera sjónarmið hjá einstaka
verksmiðju að hygla sinum
heimabátum, en við reynum að
giröa fyrir slikt með þvi að setja
mjög strangar reglur. Þannig
verða verksmiðjurnar á
hverjum morgni að tilkynna
hvenær næst losni þróarrými,
og þær verða að gera það með
tveggja sólarhringa fyrirvara.”
Margþætt þjónusta
Starfsemi Loðnulöndunar-
nefndar hefst klukkan 7.30 á
Framhald á bls. 4
Þaö var inikið um að vera hjá Loönulöndunarnefndinni þegar
Alþýðublaðsmenn litu þar við i gær, enda mokveiði. Njáll Ingjalds-
son starfsmaður nefndarinnar er lengst til vinstri, þá kemur Gylfi
Þórðarson formaður hennar og þvi næst Andrés Finnbogason. A
myndina vantar einn nefndarmanna Jóhann Guðmundsson, og
einnig Björgvin Torfason starfsmann hennar.
nr——————————MT—immpTTti; TfflT^miianui o."»ai»rala I
kynni að þeim öðlaðist sú lukka
að fá þá heim rétt sem snöggv-
ast ef löndunarbið er fyrirsjáan-
leg. Úr öllu þessu leysir Loðnu-
löndunarnefnd, enda eru sim-
arnir hjá nefndinni rauðglóandi
18 tima á sólarhring.
Alþýðublaðsmenn litu sem
snöggvast inn til nefndarmanna
i gær, en nefndin hefur aðsetur
að Hafnarstræti 5. i höfuð-
stöðvunum voru þá staddir tveir
nefndarmanna, þeir Gylfi
Þórðarson starfsmaður
LOONULÖNDUNARNEFNDIN DIIG-
LEGASTA NEFNDIN HÉRLENDIS?