Alþýðublaðið - 03.04.1973, Page 3

Alþýðublaðið - 03.04.1973, Page 3
Helgi E. Helgason lætur af störfum Helgi E. Helgason lætur nú af störfufn sem blaðamaður við Alþýðublaðið, en hann hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Félags Is- lenzkra simamanna. Helgi hefur verið biaðamað- ur við Aiþýðublaðið I hálft sjötta ár. Hann hefur átt sæti I stjórn Blaðamannafélags is- lands og verið fulltrúi Alþýðu- biaðsins i iaunamálanefnd B.Í.. Alþýðublaðið óskar Helga alls velfarnaðar I hans nýja starfi. PRÚFLAUSIR OG DRUKKNIR UNG- LINGAR A STOLNUM BÍL og það endaði með ósköp- um eins og vænta mátti Tveir 16 ára þétt- drukknir unglingar, brutust inn i bil suður i Grindavik á laugar- dagskvöldið, komu hon- um i gang og óku af stað. Ekki varð sú ferðin til fjár, þvi þegar þeir höfðu skammt ekið, óku þeir inn á aðalbraut, þvert i veg fyrir bil, og varð þar harður árekst- ur og mikið tjón, en eng- an sakaði þó teljandi. Við yfirheyrslur sögðust þeir ekki hafa séð nokkurn bil á aðal- brautinni, enda skyn- semin og sjónin skert af vindrykkjunni, þeir voru báðir réttindalausir og með öllu óvanir bilnum. Piltarnir eru báðir að- komumenn i Grindavik, og vinna þar við vertið- ina. BRUGÐIÐ Á LEIK I TILEFNI DAGSINS Fjölmiðlar brugðu á leik að venju 1. april og þá mátti lesa og heyra ýmsa kynduga fréttina, sem bar keim af glensi og hugar- flugi fremur en sannleik. Þannig varð til sú frétt Alþýðu- blaðsins að tilraun yrði gerð þá um kvöldið með útsendingu sjón- varpsþáttar i litum. Hafi hins vegar einhver ekki áttað sig á gabbinu hefur hann eflaust gert annað tveggja, farið upp á þak og snúið loftnetinu, ellegar hringt i „Orð lifsins”. Fréttin „Verndum kengúruna” á baksiðu Morgunblaðsins var ekki aprilgabb eins og ýmsir kunna að hafa haldið, heldur var það að sjálfsögðu forsiðufréttin um sönnun þess að Snorri Sturlu- son sé höfundur Njálu. Hins vegar fór það ekki fram hjá neinum að kengúrufrétt sjónvarpsins var i tilefni dagsins, og eins útvarps- frétt um visindalegar rannsóknir á Bernhöftstorfunni. Visir gat engu gabbi við komið þar sem hann kemur ekki út á sunnudög- um, en Timinn birti þann dag frétt um að áform væru um styrjurækt i Eyjafjarðará. Villurnar ekkert vandamál lengur Elin Sigurbjörg Gestsdóttir hjá Skrifstofuvélum hf. sýndi blaða- mönnum í gær kosti nýjustu ritvél- arinnar frá IBM, sem heldur innreið sína á íslenzkan markað í dag. Með- al annarra nýjunga er á þessari rit- vél sá útbúnaður, að það er leikur einn að leiðrétta villur, sem henda jafhvel færustu vélritunarstúlkur. Fyrirtækið heldur næstu þrjá daga sýningu á nýjustu gerðum verzl- unar- og skrifstofutækja á Hótel Sögu. Er hún opin almenningi kl. 5—7. VARPIÐ SALTAÐ! Fyrsti blaða- maðurinn fær fálkakross Fyrsti Islendingurinn til að bera starfsheitið blaðamaður varð Árni Ola og hefur forseti Islands nú sæmt hann riddara- krossi islenzku fálkaorðunnar fyrir ritstörf hans. Aðrir, sem heiðraðir voru: Arni Kristjánsson, pianó- leikari hlaut stórriddarakross fyrir tónlistarstörf. Ingimar A Oskarsson, grasafræðingur riddarakross fyrir störf á sviði náttúruvísinda, séra Magnús Guðmundsson fyrrv. prófastur riddarakross fyrir embættis- störf og dr. phil Matthias Jónasson, riddarakross fyrir störf á sviði fræðslu og uppeldis- mála. Talið er nú næsta öruggt, að grunnskólafrumvarpið margum- rædda verði ekki að lögum á þessu þingi. Stjórnarflokkarnir munu vera staðráðnir í þvi að láta ljúka þinghaldi fyrir páska, þann ig að einungis eru nú u.þ.b. 4 vik- ur eftir af þingtimanum. Sá timi er talinn of skammur til þess að unnt verði að afgreiða grunn- skólafrumvarpið og mun mennta- málaráðherra hafa sætt sig við að fresta afgreiðslu þess enn um hrið — þótt ekki hafi það verið honum ljúft. Er þvi auðséð, að annað starfsár rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar ætlar að vera eins og það fyrsta — stórtiðindalaust i skólamálum: alger eyða i sögu fræðslumála á Islandi. Og þau munu vera fleiri stóru málin, sem rikisstjórnin hefur afráðið að fresta. Þannig er talið næsta öruggt, að heilbrigðismála- frumvarpið verði ekki að lögum á þessu þingi og mun þvi ekkert stórt mál frá stjórninni verða af- greitt það, sem eftir er þingtim- ans. Þá verður einnig afgreiðslu frestað á fjölmörgum þinganna- málum ef þinghaldi á að verða lokið fyrir páska. Eilífur skortur á vinnuafli i stein- bítinn fyrir vestan „Okkur vantar alltaf vinnu- kraft hérna fyrir vestan en við erum ekki i neinum vandræðum i likingu við það sem þekkist fyrir sunnan”, sagði Jón Páll Halldórs- son framkv.stj. Norðurtanga hf. á ísafirði er blaðið ræddi við hann GRUNNSKOLAFRUM vegna frétta um stórfelldan vinnuaflsskort. Jón Páll sagði, að atvinnulifið væri miklu stöðugra á Vestfjörð- um og þar kæmu sjaldan þessar miklu aflahrotur. En þvi væri ekki að leyna að vinnuafl vantaði, til dæmis nú þegar mikið veiðist af steinbit. Ekki þýðir að setja steinbitinn i flökunarvélar, held- ur verður að handflaka hann all- an. Fiskiriið hefur verið heldur tregt að undanförnu hjá Vest- fjarðabátum, þetta 5—8 lestir i róðri. Sem fyrr segir er uppistað- an i aflanum steinbitur. Þriöjudagur 3. apríl 1973. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.