Alþýðublaðið - 13.04.1973, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 13.04.1973, Blaðsíða 6
Galeiðubrælarnir í gomlu Róm FLESTIR ÐÓU Á FIMM ÁRUM Galeiðuþrælar i Rómaborg áttu ekki svo illa ævi, ef marka má lýsingar kvikmynda nútim- ans. Þar sitja þeir i röðum og hreyfa árar sinar eftir merkj- um bumbuslagara með litt minni áreynslu en fer i að slá garðinn. En ævi þeirra var miklu verri i raun og veru. Þeir gátu ekki vænzt þess, að lifa nema i fimm ár. Galeiðurnar voru rennileg, tignarleg skip, sem létu mjög vel að stjórn. Þær voru geröar fyrir návigi. Framan á stafni höfðu þær oddhvassa trjónu, sem var til þess gerð að rekast i skip óvinarins og sökkva þvi. t stórri galeiðu voru um 100 yfirmenn og hermenn og 300 galeiðuþrælar. Ararnar voru i tveim eða fleiri röðum beggja vegna i skipinu og voru raðirnar hvor fyrir ofan aðra. Aðeins einn maður stjórnaði hverri ár. Miklu máli skipti, hvaða sætum þrælarnir náðu, og á hverjum morgni var kapphlaup um beztu sætin, þar sem auðveldast og léttast var að handfjatla þungar árarnar. Viö hljóðfall Ararnar i neðstu röðinni voru styztar og þess vegna léttastar. Þvi vildu allir galeiðuþrælar ná sér i sæti á neðsta bekknum. Við sérhvert áratog varð ræð- arinn að standa upp úr sæti sinu til þess að ýta árinni fram. Sið- an setti hann blaðið i sjó, og dró árina að sér aftur. Þetta urðu ræðararnir að gera eftir hljóð- falli bumbuslagara að jafnaði tvisvar á minútu. Það var hinn eðlilegi róðrarhraði. Það var mikils um vert fyrir ræðarana, að yfírleitt lögðu Rómverjar skipum sinum við akkeri á næt- urnar. Þá gátu þeir hvilzt. Milli bekkjarraöanna var mjór gangur, þar sem róðrar- stjórinn gekk um og hélt aga með hjálp svipu sinnar. Einnig var þar varðstöð þar sem bog- maður stóð og skaut til bana þá ræðara, sem virtust ætla að vera meö eitthvað múöur. ódýrir Undir þiljum voru 50 róðrar- menn til vara til þess aö koma i stað þeirra sem dæju eða gáfust upp. í bardaga reyndi skipstjóri galeiðu ávallt að sigla á skip andstæöinganna. Ef honum tókst þaö, þá festi trjónan á stefni galeiðunnar hana við skip óvinanna og hermennirnir réðust um borð i það. Ef honum tókst ekki að hitta skip fjand- mannanna lét hann menn sina kasta logandi kyndlum og körf- um fullum af eitursnákum um borð i það. En ef galeiðan hitti var höggið oft svo mikið, að heilar bekkjar- raðir ræðara köstuðust útbyrö- is, hlekkjaðir við árar sinar. Það gerði litið til, þvi enginn hörgull var á ræðurum, og þeir ódýrir. Ræðarar gengu kaupum og sölum á svo til hverjum markaði fyrir jafnvirði ca 1000 króna islenzkra. Nýir ræðarar voru sendir i eins mánaðar þjálfun. Þjálfun þeirra fór fram i sérstökum stöðvum við hafnirnar. Blóöugur bardagi Þegar Rómverjar háðu ekki raunverulegar sjóorrustur bjuggu þeir þær til sjálfir sér til skemmtunar. Hægt var að veita vatni eða sjó á hringsvið margra hringleikahúsa svo hægt var að fleyta þar 30 til 40 galeiðum. Upphófst svo blóðug- ur bardagi áhorfendum til skemmtunar. Galeiðuþrælar, sem lifðu af fyrstu fimm árin, fengu frelsi og leyfi til þess að leggja fyrir sig hvaða störf, sem þeir vildu. En mörgum tókst það ekki. 1 orrust unni við Ecnomus börðust 350 skip Karþagómanna við 330 skip Rómverja. Rómverjar unnu, en þá voru aðeins örfá skip eftir ofansjávar. Þessi herramaður segist vilja kynna sér kjörin áður en hann tekur ákvörðun um vinnu hjá okkur. . . MJÓLKIN -EIN NÆRINGi Langar þig i steik mc öflum og eggi? Þú getu eins fengið þér glas af Hvað næringargildinu vi þá er ekki mikill munui Vegna þess að mjólk næringarrikasta fæða, s getur. Bororo-svertin Vestur-Afriku geta staðf Ef þörf krefur geta þei hafa — lifað á tómri mj mánuðum skiptir. t mjólkinni er kalk, se þurfa að fá daglega til | styrkja tennur og bein. auki eru svo vitamin i m — bæði c-vitamin og ein B-vitamins: thianine. Mjólkin er ein elzta fæ menn þekkja. Hvort hel hefur komið úr geitum, lama-dýrum, bufflum, dýrum, kúm eða ám hal drukkið hana og búið s< henni ýmsa rétti. Hr< mjólkin til dæmis er fim um auðugari að næringt en kúamjólk og þrisvar auðugri af köfnuní samböndum. Báðum þ' Bæði eru mikil Cawley og ljónsui frægri, brezkri sir eftir að hrista n hringleikahússins, hvorugt þeirra fæi sviðinu. Þau verð enn um hrið. Sumt fólk hrekur frá starfi til starfs, sífellt að fá upps EN ÞAÐ ER EKKIENDILI VINNUHRÆDSLA SEIUR Flest fólk vinnur — og geðjast jafnvel vel að því. Margir starfa þó án þess að yndi af. En þúsundir eru til, sem alls ekki geta haldið það út að vinna — hvað svo sem í boði er... Þetta eru vinnu- vandræðagemling- arnir, þeir, sem alltaf eru að fá uppsagnir, félagar í nýtt-starf-á- sex-mánaða-fresti- samtökunum, vel þekktir í flestum starfsgreinum. Sumir þeirra eru bara latir frá náttúr- unnar hendi og eru nógu klókir til þess að geta orðið sér úti um lífsframfæri fyrir lítið hjá velferðarríkinu. En er allt þetta fólk svona? Nei, segja sálfræðing- arnir, sem litið hafa á vandamál eirðarleysingj- anna. Þeir telja, að sumir vinnu-vandræðagemling- arnir séu hreinlega veikir. Starfsflótti þeirra hófst á bernskuárunum út af ýms- um ástæðum og meö um- önnun og réttri meðhöndl- un er hægt að lækna þá aft- ur. Af þvi er sérfræðingarnir segja, þá skiptast þeir, sem þjást af vinnuhræðslu, i þrjá hópa. I fyrsta hópnum eru þeir, sem reyna ekki að vinna fyrr en þeir eru komnir i ákafan vanda. Fjölmargt skapandi listafólk er i þessum hópi, svo sem eins og tónsnilling- urinn Debussy. Hann gat ekki, eða vildi ekki, .semja svo mikið sem eina laglinu fyrr en fógetinn var farinn að berja að dyrum. Þá fyrst,. hvattur áfram af hugsuninni um, að nú væri hann að missa allt, tók De- bussy til óspilltra mál- anna. Blankheitin Franski rithöfundurinn Balzac eyddi venjulega öll- um tima sinum i drykkju- skap, matarveizlur og kon- ur, unz hann stóð uppi staurblankur. Þegar sið- asti eyririnn var á braut, þá þvingaði hann sjálfan sig til þess að horfast i augu við vinnuna, læsti sig inni i herbergi ásamt svörtu kaffi i litravis og þvingaði sig áfram i grið og ergi unz lokið var við nýja bók. Þessir listamenn eru fræg dæmi. En fjöldinn all- ur af venjulegu fólki hagar sér eins. Vinnuborö þess eru ávallt þakin af ófrá- gengnum verkefnum. Það dregur þýðingarmikil við- fangsefni fram á elleftu stund en kasta sér þá út i verkið i örvæntingaræði og vinna i djöfulmóð — oft gerandi alvarleg mistök i flýtinum. 1 sumum starfsgreinum getur ýmislegt fólk sloppið vel frá sliku — jafnvel notið velgengni i starfi. En i sér- hverri starfsgrein, þar sem á riður að vinnan gangi sinn jafna, daglega gang, þá leiðir slik hegðun beint til glötunar. Sálfræðingar segja, að þessi tegund af vinnu- hræðslu byrji ávallt á bernskuskeiði. Barn, sem á óöryggi að mæta — t.d. vegna þess, aðforeldrar eru skilin eða að þeim kem- ur ekki vel saman — í e.t.v. á vit letilegra d drauma unz einhvers koi áfall, refsing eða hótum i ur þau upp af dvalanum rekur þau til aðgerða. t uppnámi setur bar þá allt i gang og kemst raun um, að allt gen bara nokkuð vel. Astæl er sú, að óttinn eða áfa hvata framleiðslu adi lins i likamanum, adrealin er hormón, s framleiðir skyndior Þegar úr óttanum eða fallinu dregur minnkar adralinframleiðslan — um leið dregur úr einb ingu og afköstum. ófullkomleiki Þessi hegðun kemur : upp i vana, og þegar < staklingurinn hefur r starfsaldri þarf hann verða gripinn ofboði þess að geta byrjað vinna. Hann getur ekki í ið að vinna fyrir alvöru f en hann hefur komið s< klipu. Stundum er þá áta orðið of seint og viðk< andi fær reisupassan Siðan koma hinir ,,sál lega ófullkomnu” þ.e.j o Föstudagur 13. april. 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.