Alþýðublaðið - 13.04.1973, Side 12

Alþýðublaðið - 13.04.1973, Side 12
Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 86660 KOPAYOGS APÖTEK Opið öll kvöld tii kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kl' 1 09 3'Simi40102. ÚRGANGSEFNIN ATU RÆSID í SUNDUR Enn ein mengunarstían við bæjardyrnar er Vífils- staðalækurinn i Garða- hreppi, en lækurinn og umhverfi hans er eitt vin- sælasta leiksvæði barna i Garðahreppi. Víöa rennur skolp og óþverri út i lækinn, en þó keyrir um þverbak þar sem skolplögn frá Sápugerðinni Frigg kemur út i hann. Sú skolplögn opnast meira að segja langt frá lækn- um og rennur skolpið góðan spöl eftiropnum farvegi áður en það blandast vatninu i læknum. Er hinn mesti óþrifnaður af MENGUN VIÐ BÆJAR- DYRNAR skolpi þessu og leggur megna sápulykt upp úr þvi, enda freyð- ir lækurinn þar sem skolpið kemur út i hann. Umhverfi verksmiðjunnar er hinsvegar snyrtilegt og virðist ekkert að- finnsluvert fyrr en kemur að þessu atriði. Er lækurinn orðinn svomeng- aður að ekki þrifast þar einu- sinni hornsili, en áður þreii'st þar fiskalif langt uppeftir lækn- um. Að sögn náttúrufræðinga eru þau efni sem renna frá verk- smiðjunni mjög skaðleg náttúr- unni, og brotna ekki niður i frumefni er þau blandast vatn- inu i læknum og sjónum. Reyndar má sjá skaðsemina á gróðri bakkanna og i botni. Tekur lækurinn greinilega breytingum til hins verra neðan við ræsið frá Frigg, svo ekki er um að villast aö það er aðal- mengunarvaldurinn. Einnig liggur járnarusl, ann- að drasl og tægjur úr plastpok- um úti i læknum og rotna þar, til hinnar mestu óprýöi og meng- unar. Greinilega má sjá litaskil þar sem lækurinn rennur út i sjóinn, enda er hann þar likari sápu- vatni en bergvatni. Sem sæmi um hversu sterk efni renna um ræsið frá Frigg út I lækinn, má nefna að fyrir ári varð að endurnýja ræsið þar sem hin sterku efni höfðu étið það i sundur. BORGIN BJARGAR DYRUNUM Nú er fengin lausn á þeim vanda Sædýrasafnsins sem Alþýðublaðið vakti athygli á fyrir skömmu. Borgarráð hefur sam- þykkt að leggja fram átta milljónir til safnsins, svo ljóst er að framtið þess er tryggð. Framkvæmdastofnun rikisins hafði gert tillögu um uppbyggingu safnsins, sem gerði ráð fyrir þvi að rikið legði fram átta milljónir. Reykjavikurborg átta milljónir og önnur sveitar- félög á Reykjanesi fjórar milljónir. Rikið og sveitarfélögin að Njarðvikurhreppi undanskild- um svöruðu strax játandi, en borgin dró að svara. Eins og kom fram i frétt blaðsins, stóð til að loka safninu i haust, fengist ekki jákvætt svar frá borginni. Framlag borgarinnar er bundið þvi skilyrði, að skólabörnum verði veittur afsláttur þegar þau skoða safnið á vegum skóla borgarinnar i fylgd skólastjóra eða kennara. LISTAMENN í SKATTFRJÁLSUM VINNUSTOFUM? ,,Ég held, að engin borg i heiminum hafi ennþá undanþegið vinnustofur listamanna BREIDHOLT II: EINBVLISHUSIIM FÆKKAB EN BLOKKUM FJfiLGAB 1 sumar á loksins að hefjast handa við byggingu Breiðholts II, en þvi hverfi hefur verið valinn staður fyrir suðvestan Breiðholt III, og verður það nefnt Selja- hverfi. I upphafi var gert ráð fyrir, að þarna yrðu eingöngu ein- býlishús, en fyrir skömmu fékk stjórn verkamannabústaða út- hlutað svæði fyrir blokkir uppi á hæðinni, en nokkur einbýlishús verða þar fyrir neðan. 1 Seljahverfi er gert ráð fyrir 308 ibúðum i fyrsta áfanga, og verður byrjað að grafa fyrir hús- unum i sumar og ljúka þeim i árs- byrjun 1975 Það er stjórn verka- mannabústaða, sem sér um Otlit er fyrir mikla loðnu- gengd á næstu vertið, en þó ekki eins mikilli og nú i ár. Þá er fiskifræðingar bjartsýnir á mikla loðnugengd I það minnsta næstu 2-3 árin. Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur hefur nú lokið at- hugunum sinum á ókynþroska loðnu fyrir norðan og austan, en af magni hennar má nokkuð ráða loðnugengd næstu vertiðar. Athuganir Hjálmars gáfu til kynna mikið magn ókynþroska loðnu við landgrunnsbrún norður af Langanesi og suðureftir brúnni. Þó fannst ekki eins mikið magn og þegar athuganir voru gerðar um svipað leyti i fyrra. Hjálmar hefur undanfarna daga athugað magn kolmunna austur af landinu en litils orðið var. Aftur á móti hefur verið ágæt kolmunnaveiði undan Irlandsströndum, og verið getur, að islenzkir bátar haldi þangað til veiða. NOG LOÐNA NÆSTU ÁRIN? byggingu þessara húsa, en sam- kvæmt lögum frá 1970 tekur hún við af Framkvæmdanefndinni, en hún lýkur störfum, þegar sjötti áfangi bygginga þeirra i Breið- holti er búinn. Söluskilmálar stjórnar verka- mannabústaða verða svipaðir og Framkvæmdanefndarinnar, og skilar hún byggingunum fullfrá- gegnum til kaupenda. Skilmálar til að fá keyptar ibúðir eru einnig þeir sömu þ.e. að viðkomandi séu i verkalýðsfélagi innan ASI. Samkvæmt lögunum, sem sam- þykkt voru 1970 hóf borgin þegar að leggja til hliðar fé til fram- kvæmdanna, og nú er til það mikið fé, að frarnkvæmdirnar eiga að geta gengið mjög fljótt fyrir sig. Heimilt er, að sveitar- félögin leggi til hliðar allt að 1200 krónum á ibúa á ári, og leggur rikið þá jafn mikið á móti. fasteignaskatti, og mér fyndist vel til fundið, að við riðum þar á vaðið i tilefni af 1100 ára afmæli Islands byggðar”, sagði dr. Gunnlaugur Þóröarson í viðtali við Alþýðublaðið i gær, en hann hefur lagt fyrir Borgarráð bréf þar, sem hann fer þess a Ieit, að fasteignaskattar á vinnustofum listamanna verði afnumdir. Gunnlaugur fékk þvi fram- gengt, að fasteignaskattar voru lækkaðir á vinnustofu Asmundar Sveinssonar myndhöggvara úr 196 þúsund krónum i tæplega 70 þúsund krónur. ,,En mér fyndist, að Asmundur ætti ekki að borga meira, en sem nemur fasteigna- sköttum fyrir þiggja herbergja ibúðinni, sem er i húsinu hans,” sagði Gunnlaugur. Og nú vill Gunnlaugur stiga skrefið til fulls og gera vinnu- stofur allra listamanna skatt- frjálsar. Hann nefndi ýmsa lista- menn sem nú eru að berjast við aðkoma sér upp vinnustofum, og ennfremur benti hann á þá mögu- leika, að erlendir listamenn fáist til að setjast hér að. Þar nefndi hann hljómleikasal Askhenazys, en listamaðurinn verður vafa- laust að greiða m jög mikla skatta af honum að óbreyttu ástandi. FYRIRHEIT Borgarráð hefur samþykkt að gefa Sjálfstæðisflokknum fyrir- heit um lóð á horni Skipholts og Bolholts.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.