Alþýðublaðið - 03.05.1973, Side 6

Alþýðublaðið - 03.05.1973, Side 6
Umferðin 1972: 23 létust, 5 eru algerir öryrkjar og 70 — 80 búa við einhverja örorku Erindi Hauks Kristjánssonar, yfirlæknis á Slysadeild Borgarsjúkra- hússins, flutt á ráðstefnu klúbbanna Öruggur akstur Á síöasta ári komu 1123 í Slysadeild Borgarspitalans vegna umferöarslysa. Sem betur fer var margt af þessu fólki litið sem ekkert slasað, en því miöur voru alltof margir ílla farnir. Átta voru látnir, nokkrir hlutu varanleg örkuml og fjölda- margir máttu þola miklar þjáningar og voru óvinnufærir í langan tima. Fjárhags- legt tjón þori ég ekki að gizka á i þessu sam- bandi. Sé þess gætt, að á sama tíma. komu í Siysadeildina um 28 þúsund manns, þar af um 20 þúsund vegna slysa, kunna menn að lita svo á að hlutur umferðarslysanna sé ekki ýkja stór, eða tæp- lega 5%, — en þess ber að gæta, að verulegur hluti stærstu slysanna, þar á meðal dauðaslys- anna, er einmitt inni- falinn í þessum 5%. Samkvæmt skýrslum um tölur þeirra er slasast i umferð árlega, sést að þeim fjölgar stöðugt. Auðvitað verður þá að hafa i huga bæði vaxandi bila- og ibúa- fjölda og verður þá útkoman kannski eitthvað skárri en virðist við fyrstu sýn — og þó — getum við á hinni miklu öld þekkingar, visindaafreka og tæknimenningar sætt okkur við stöðnun i þessum málum eða jafvel afturför? Nei, þvi fer fjarri. Tekizt hefur að vinna bug á ýmsum hættulegustu sjúkdómum er hrjáö hafa mannkynið frá upphafi vega og margvis- legir slysavaldar hafa verið yfirunnir, þvi hlýtur það að teljast með öllu óviðunandi, að svo margt fólk missi árlega lif og heilsu á strætum og þjóðvegum hinna svonefndu menningarrikja. Einhver lausn hlýtur að vera til að ná þó ekki sé nema hálfum sigri og vonandi má komast lengra. Megin spurningin i þessu sambandi er hver sé orsök eða réttara sagt orsakir slys- anna og vil ég fara nokkrum orðum um það atriði. Þegar ekiö er á gangandi mann á Miklubraut þannig að hann býður samstundis bana, eða hlýtur varanleg örkuml, getur verið um mörg samvirk atriði að ræða, sum jafnvel hreinar tilviljanir. Hér eiga hlut að máli skyni gæddar verur, þ.e. menn annarsvegar en að hinu leytinu dauðir hlutir svo sem bill, gata og höfuð- skepnur, en auðvitað eru mennirnir hinir ábyrgu ger- endur i harmleiknum. Kannski hefur göngu- maðurinn farið óvarlega, gengið hugsunarlaust útá götuna rétt framanvið bilinn, ef til vill var skyggni slæmt, rigning og myrkur. Gatan var máske hál. Og hver var svo hlutur bilstjórans? Hann ók kannski of hratt miðað við aðstæður. Hann beitti ekki athygli sinni nógu vel að akstrinum, var jafnvel að skima i kringum sig eða var annars hugar. Kannski var hann slæmur ökumaður almennt, viðbragðsseinn, klaufskur, sljór — eða allt þetta i senn — og svo gat hann lika verið haldinn þeim eiginleika sem verstur er allra þ.e. kæruleysi gagnvart umhverfinu. Ekki má heldur gleyma ástandi bilsins, slæm ljós, lélegar bremsur o.s.frv. Hér hef ég nú dregið fram nokkur atriði, sem hvert og eitt eða fleiri i sameiningu geta leitt til meiösla eða bana, en séu málsatvik athuguð nánar, hlýtur athyglin fyrst og fremst að beinast að einum og sama punkti, þ.e. að manninum þvi að það er hann einn og enginn annar, sem hægt er að kalla til ábyrgðar i þessum efnum. Að sjálf- sögðu getur hann haft margt sér til málsbóta og svo óvin- veitt geta hin dauðu náttúru- öfl verið honum, að hann fái alls ekki rönd við reist, frekar en kempan Egill Skallagrimsson er hann skorti afl mót sonarbana sinum, sjónum. Ég nefndi áðan kæruleysi, sem hugsanlegt atriði i sam- bandi við umferðarslys og er það sannfæring min að einmitt það sé langmesti böl- valdurinn i þessum málum. Kæruleysi hefur ákaflega viðtæka merkingu og að baki þvi leynastflestir þeir lestir i mannlegri skapgerð, sem leiða til allskonar misferlis. Frekja og dónaskapur eru einskonar undirflokkar kæruleysis og það eru að minu áliti langalgengustu orsakir umferðarslysa. Afbrot og glæpir eru óhugnanlega algeng fyrir- bæri i islenzku mannlifi, þjófar brjótast inni hús og láta greipar sópa um eigur manna, ræningjar ráðast á fólk á götum úti, misþyrma þvi og stela af þvi, ávisana- falsarar og skattsvikarar vaða uppi i þjóðfélaginu. Hvað með ökuniðinginn, sem ekur purkunarlaust inná aðalbraut eða virðir ekki gangbrautir, er hann ekki skilgetinn tviburabróðir hinna fyrrnefndu? Ég tel engan vafa á þvi, þó undan- tekning sé. 1 stuttu máli sagt, ég held að umferðarslysin séu.að verulegu leyti, hluti af mjög útbreiddri þjóðfélags- meinsemd, sem er almennt virðingarleysi fyrir sam- borgurunum. Þá kemur sú spurning hvað hægt sé að gera til bóta. Eða eigum við kannski engra úrkosta völ annarra en að láta fljóta sofandi að feigðarósi? Það finnst mér sannarlega allt of mikil svartsýni, en patentlausn er engin. Upplýsingastarfsemi ásamt hóflegum refsiað- gerðum geta haft mikil áhrif til hins betra. En þetta hvor- tveggja tel ég að hafi farið úrskeiðis hér á landi. Það virðist t.d. alltof algengt, að þeir sem lent hafa i átökum við refsivöldin vegna mjög alvarlegra afbrota, á sviði umferðarmála, séu fljótlega farnir að aka bil á ný eins og ekkert hafi i skorizt. Þá virðist manni stundum að refsivöndurinn sé reiddur til höggs, þar sem betur ættu við vinsamlegar aðvaranir. Þvi miður yarð hið bros- milda umferðareftirlit fyrstu daga hægri umferðar alltof endasleppt. Það þyrfti að taka upp að nýju hið bráð- asta. Umferðaruppeldi i barna og unglingaskólum er góðra gjalda vert, en ekki einhlitt. Umferðarkennsla þarf að vera stöðugt i gangi, og allsstaða'r þar sem umferð fer fram, jafnt fyrir gangandi sem akandi. Refsingar eru auðvitað sjálf- sagðar en þeim verður að beita með mikilli varúð. Annars geta | konar bummf En þessar auðvitað sorgl og áður en þæ að skila árang mannslif far fjöldi fólks legar þjáninj fjármunir i umferðarslys; þótt árangur vonum frama koma til. Það að bætt vega varanlegt sl dregur ekki i vel siður en heildina er lit ýmislegt ann bryggjur og t Hinsvegar v vona, að fa tiðarinnar ve en nú er. Mji rætt um algj gerð bila ekki til mengunai bætta akstur þá minni hætl Þetta er a sem við fsle litil áhrif á, þ; ekkert met slikra tækja umferðarslys lega ekki sér bæri og erii einmitt i þei sem bilar et’ stærstum stil Fyrirbyggj eru auðvit legasta laus vanda en m ekki borið m nú er, og a orðið alful verðum við andi áherzlu afleiðingunu slysanna eins arra slysa. Þar kom stöðugar fra FYLUBYTTUR IFORSTJORASTÚ Klukkan er sex að morgni i verzlunar- og skrifstofuhverfum San Francisco. Barirnir hafa ný- lega opnað dyr sinar fyrir fyrstu hópunum af deildar-og skrifstofu- stjórum stórfyrirtækjanna, sem eru að undirbúa sig fyrir störf dagsins. Upp fara olnbogarnir og niöur fara vinblöndurnar og „irska kaffið”, sem er litið annað en hreint whisky. Skrifstofur margra stórfyrir- tækja á vesturströnd Banda- rikjanna opna þrem klukkustund- um á undan skrifstofunum i New York til þess að vinna upp tima- muninn og það, sem er sterkara en te, hjálpar starfsliðinu til þess að hljóma álika hressilega i sima og hinir glaðvöknuðu austur- strandarbúar. Um klukkan 10 f.h. — um það leyti þegar New York- búinn heldur til hádegisverðar — þá siappar kollegi hans á vestur- ströndinni af viö barinn i skrif- stofunni sinni. Siðan er haldið af stað til móts viö margra- kokkteila-hádegisverö, þar sem samningar eru undirritaðir, eða haft er ofan af fyrir utanbæjar- gestum. A heimleiðinni ekki löngu siðar, þá hefur þú viðdvöl á kránni með glitrandi ,,Hamingjustund”-ar ljósaskiltinu eða skreppur út á lifið ásamt félögunum af ráð- stefnunni. Allt er þetta hluti af W.C. Fields-tálsýninni, þar sem vin- maðurinn er traustur og elsku- verður einstaklingur i ameriskri þjóðsögu — en mesti glansinn er nú að fara af vinmanninum i aug- um forráðamanna og eigenda fyrirtækjanna. Að þvi er banda- riska áfengisvarnarráðið segir, þá kosta áfengisneytendurnir bandarisk fyrirtæki 3000 millj. dollara á ári fyrir slæmar mætingar, mistök og tapaðan tima. En hvernig komast menn upp með þetta? Þeir gera það ekki, segir mr. William Livingstone 34ra ára gamall ráðunautur um stjórnunarmál, sem starfar fyrir áfengisvarnarráðið. Þessir kallar halda, að einn eða tveir snafsar hjálpi þeim til þess að gera hlutina betur — en i raun og veru hjálpa snafsarnir þeim aðeins til þess að skammast sin minna yfir illa gerðum hlutum og illa unnum verkum. Þeim er hlift af yfir- mönnum, sem segja „Jói gamli þolir sitt brennivin, látið hann i friði”. Vinir hjálpa honum til þess að fela mistökin, sem hann gerir þegar hann er timbraður. Svo gerir Jói einu axarskaftinu of margt — og þá er þaö lika búið. Þar til áfalliö dynur yfir, þá hefur honum sennilega tekizt aö leyna vandamálinu fyrir sjálfum sér, segir Livingston sem telur, að fjöldi þeirra, sem haldnir eru drykkjusýki, sé á að gizka 6. hluti borgarbúa San Francisco. Borgin er þó langt frá þvi að vera eins- dæmi i þessum efnum aö hans sögn. Söm er myndin, sem við blasir i svo til öllum stórborgum Bandarikjanna. Fjöldi drykkju- sjúkra i Bandarikjunum öllum er talinn vera 6,5 til 9 milljónir. Afengið er mest misnotaða eitur- lyfið i Bandarikjunum. Þar til nýlega var litið sem ekkert rætt um áfengisvanda- ui málin i bandariskum fyrirtækjum sí — bannhelgi hvildi yfir vanda- sl málinu. Dæmigerð svör, sem di Afengisvarnarráðið fékk við ui spurningum til fyrirtækja um j,, áfengisvandamál hjá starfsliði ai þeirra, eru: — þ — Til allrar hamingju höfum við engin slik vandamál. þ, — Eruð þið að gefa i skyn, að b fyrirtæki okkar sé stjórnað af R fyllibyttum? á — Við skiptum okkur aldrei af B einkalifi starfsfólksins. t; Þessi samtök þagnarinnar hafa y nú verið rofin af ýmsum stór- þ fyrirtækjum Bandarikjanna: fj Eastman Kodak, Bell Telephone, b Consolidated Edison, Hughes u Aircraft, McDonnel Douglas, h Boeing, Betlehem Steel og mörg- e 0 Fimmtudagur 3. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.